Morgunblaðið - 20.05.2021, Síða 43

Morgunblaðið - 20.05.2021, Síða 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 ✝ Þuríður Gísla- dóttir fæddist í Reykjavík 28. ágúst 1946. Hún lést á Landakoti 5. maí 2021. Foreldrar henn- ar voru Jóna Unn- ur Ágústsdóttir, f. 30. júní 1925, d. 17. október 2002 og Gísli Árnason Johnsen, f. 18. október 1916, d. 8. janúar 1964. Fósturfaðir Þuríðar var Rögnvaldur Ólafsson, f. 18. júlí 1917, d. 24. nóvember 1994. Bræður Þuríðar eru sam- mæðra Ólafur Rögnvaldsson, f. 4. september 1954 og samfeðra Karl Gíslason Sævar, f. 9. des- ember 1938, d. 19. apríl 2017. Þuríður ólst upp í Mávahlíð Rögnvaldur Örn, f. 13. sept- ember 1971, giftur Kristínu Björgu Árnadóttur, f. 1974. Börn Rögnvaldar frá fyrra hjónabandi eru Selma, f. 1998 og Róbert, f. 2002. Móðir þeirra er Jóna Björg Olsen, f. 1972. Börn Kristínar eru Amalía, f. 1999, Arnór, f. 2003, Aldís, f. 2008. 3) María Björk, f. 20. desember 1980, gift Sveini Jóhannessyni Kjarval, f. 1977. Þuríður fluttist ung að ár- um til Reykjavíkur og bjó á höfuðborgarsvæðinu alla tíð, síðustu árin í Hallakri 3, Garðabæ. Hún vann ýmis störf um ævina til dæmis í Mat- ardeildinni í Hafnarstræti, Klúbbnum, Happdrætti Há- skólans auk þess að vera mat- ráður bæði í leik- og grunn- skóla. Útför Þuríðar fer fram frá Lindakirkju 20. maí 2021 klukkan 13. á Snæfellsnesi hjá ömmu sinni og afa, Þuríði Þor- steinsdóttur, f. 1899 og Ágústi Ólasyni, f. 1897, til sex ára aldurs en þá fluttist hún til Hellissands til móður sinnar og fósturföður. Þann 24. maí 1969 giftist Þur- íður Jóni Magnússyni, f. 30. október 1947, d. 16. júlí 2010. Börn þeirra eru: 1) Arnar, f. 14. nóvember 1969, giftur Helgu Þórdísi Gunnarsdóttur, f. 1970. Börn þeirra eru Brynjar Ísak, f. 1995, giftur Aðalbjörgu Guðmundsdóttur, f. 1996, Arndís Björk, f. 2001 og Hilmar Jökull, f. 2003. 2) Mig langar að segja nokkur orð um elskulega móður mína sem lést eftir erfið veikindi á fal- legri vornótt með alla fjölskyld- una hjá sér. Mamma var alltaf harðdugleg og ég man að ég skildi aldrei á mínum unglings- árum allan þennan dugnað, alltaf var unnið frá morgni til kvölds og helst um helgar líka. Ég skildi þetta allt seinna þegar ég áttaði mig á því að mamma og raunar pabbi líka gerðu þetta til þess að veita okkur systkinum eins gott líf og var hægt. Enda fengum við frábært uppeldi og okkur skorti aldrei neitt. Alltaf var stuðningur við misgáfulegur ákvarðanir sem við tókum og við hvött áfram. Mamma fylgdist sérstaklega vel með mér á framhaldsskólaár- unum og ég gat alltaf treyst á að það yrði tekið á móti mér þegar ég kom heim eftir langar nætur við skemmtanahald. Við mamma áttum það sameiginlegt að halda með sama liðinu í Englandi og á ég margar minningar um það hvernig við ötuðumst í Arnari bróður með gengi hans liðs. Mamma ákvað mjög snemma fyr- ir mig með hverjum ég ætti að halda þegar hún gaf mér bol úti á Ítalíu sem var merktur rétta lið- inu og örlög mín voru ráðin í þessum efnum, þetta er ég mjög þakklátur fyrir. Þar sem ég er miðjubarn tala systkini mín alltaf um að ég hafi komist upp með allt, ekki er ég viss um það en ég og mamma átt- um í mjög góðu og nánu sam- bandi alla tíð þótt við værum ekki alltaf sammála. Mamma var mikil sjálfstæðiskona og ekkert þýddi fyrir mig að reyna að vera eitt- hvað annað. Eitt sinn þegar ég var að ganga af trúnni ræddum við þetta fram og til baka sem endaði með því að nokkrum dög- um síðar fékk ég símtal frá þing- manni flokksins. Sá tilkynnti mér að móðir mín hefði beðið sig að hringja í mig og tala mig til. Það tók stuttan tíma en þetta lýsir henni móður minni vel, hún var ákveðin og gaf ekkert eftir þegar henni fannst tilefni til. Mamma missti pabba frá sér alltof snemma eða fyrir ellefu ár- um. Hún fór í gegnum það af miklum styrk og var okkur systk- inum mikill styrkur á erfiðum tímum. Mamma átti sér fallegt heimili í Garðabæ síðustu árin þar sem hún undi sér afar vel og á ég margar góðar minningar um skemmtilegar stundir þar. Síð- ustu mánuðirnir voru henni mjög erfiðir þar sem hvert áfallið rak annað í veikindunum en á góðum dögum var alltaf stutt í brosið og á einhvern ótrúlegan hátt náði hún að brosa til okkar með sínum síðasta andardrætti. En nú er hún farin og án vafa hefur pabbi tekið vel á móti henni eftir langa bið. Við munum alltaf elska þig mamma mín og gera okkar besta til þess að halda minningu ykkar á lofti. Ykkar er sárt saknað. Þinn sonur, Rögnvaldur (Röggi). Tilvera okkar systkinanna tengist tilvist Melabúðarinnar en foreldrar okkur kynntust þar við kjötborðið af öllum stöðum. Óhætt að mæla með því; þau áttu frábært hjónaband og helguðu sig því að veita börnunum þrem- ur sem best líf. Ég var örverpið og samband okkar mömmu litað því. Fyrsta alvöruminningin mín er í fanginu á mömmu. Ég var morgunfúlt barn og sívælandi um kulda þegar ég var tekin undan sænginni til að fara á leikskólann. En mamma hafði lausn á því eins og öllu, hún átti sjal sem hún hafði keypt á Ítalíu og sagði sól- ina vera í því. Alla daga byrjaði hún á að hjúfra mig að sér í sjal- inu góða. Síðar gantaðist hún með að þetta hefði staðið þar til ég varð fimmtán ára gömul en ég neita því staðfastlega. Mamma elskaði að ferðast og fór víða. Á tíunda áratugnum tók hún ástfóstri við að ferðast um Bretlandseyjar. Við pabbi feng- um engu um þetta ráðið, ár eftir ár, og varla sá smábær, kastali eða fish and chips-búlla sem við könnuðum ekki. Unglingurinn ég sofandi í aftursætinu með vasad- iskóið, pabbi undir stýri og far- arstjórinn hún móðir mín með þrjú kort á lofti og regluleg varn- aðarorð um vinstri umferð. Hún var einn færasti aftursætisbíl- stjóri sem sögur fara af og hafði þá staðföstu trú að hún gæti hægt á bílum með ósýnilegri fót- bremsu farþegamegin. Mamma dvaldist í Brighton árið 1966 og sú dvöl mótaði hana. Hún sagði mér að hún hefði farið út forpokuð lítil kerling en komið heim víðsýn ung kona. Hún bar virðingu fyrir unglingamenningu og hvatti mig alltaf til dáða hvort sem ég klæddi mig eins og banda- rískur rappari eða eyddi öllum peningum í tónleika eða eitthvað annað gáfulegt. Sama hve seint ég kom heim af næturbrölti vakti mamma og beið mín með grill- samloku og trúnó. Hún var líka þrjóskari en flestir, eins og þegar hún vakti heila nótt til að klára lopapeysu á mig fyrir óvænta ferð á Þjóðhátíð í Eyjum. Lopa- peysulaus færi Mæja hennar ekki. Mamma gat verið svo hugrökk að það kom henni í koll. Þannig fékk hún einu sinni alvarlegt til- tal frá rannsóknarlögreglumanni eftir að hafa reynt með handafli að stöðva tvo stóra grímuklædda menn frá því að brjótast inn í íbúð nágranna okkar. Hún fór líka oft- ar en einu sinni alein á leiki með Manchester United löngu fyrir tíma fótboltaferða. Einu sinni fékk hún bara miða með stuðn- ingsmönnum hins liðsins svo hún varð að halda í sér fagnaðarlát- unum þegar United skoraði. Svo skellti hún sér á pöbbinn með ein- hverjum sessunautum eftir leik- inn. Síðustu ár var hún órjúfanleg- ur hluti af heimili okkar Sveins og dvaldi alltaf hluta vikunnar hjá okkur. Sú samvera var ómet- anleg og vonandi gat ég endur- goldið eitthvað af öllu sem hún gerði fyrir mig. Ég gæti skrifað endalaust um elsku bestu mömmu mína. En í hennar anda læt ég staðar numið við þessi minningabrot enda var hún ekki mikið fyrir að taka lífið of alvar- lega. Hún var duglegri en flestir, tryggari en flestir og besta vin- kona mín. Ég á eftir að sakna hennar alla daga og hugga mig við að hún sé komin í ferðalag aft- ur með pabba sem hún hefur saknað svo sárt. María Björk. Þurý var ekki bara tengda- mamma heldur mjög góð vinkona sem ég mun sakna mikið. Hún var fróðleiksfús og áhugasöm um flest mannlegt svo maður gat spjallað við hana um heima og geima. Hún var mikill húmoristi og við áttum gott skap saman. Henni leiddist ekki að bakka mig skilyrðislaust upp í alls kyns mis- gáfulegum fíflagangi þegar jafn- vel hún Mæja mín var farin að hrista hausinn. Þá gat ég alltaf leitað úrslitaatkvæðis hjá Þurý og fengið eitt gott „já auðvitað, Svenni minn“ með tilheyrandi glotti. Þurý vildi allt fyrir alla gera og var mjög rausnarleg á tíma sinn og orku. Hún elskaði að gera vel við fólkið sitt og elda góðan mat. Ég hef alltaf verið botnlaust ílát fyrir matvæli en í hvert einasta skipti sem Þurý sá um borðhaldið þurfti ég að játa mig sigraðan þótt hún reyndi alltaf að telja mig á að borða meira. Í seinni tíð var það oftar ég sem eldaði fyrir hana og þá hrósaði hún matreiðslunni í hástert, jafnvel þegar kosturinn var ekki merkilegri en pylsur í brauði. Alvörufélagi. Þurý var ævintýragjörn, fannst gaman að ferðast og fór víða með Jóni í gegnum árin. Hún dró okkur Mæju líka með í nokk- ur ferðalög. Við tókum „roadtrip“ með henni og Jóni um allan Flór- ídaskaga með viðkomu á Lyklun- um, við heimsóttum með henni Miðvesturríki Bandaríkjanna, fórum í sólina á Tenerife og keyrðum þar um alla eyjuna og leigðum okkur hús bæði norðan og sunnan megin til að fá tilfinn- ingu fyrir sem flestu á stuttum tíma. Veiðiferðirnar voru ófáar og þótt hún léti okkur hin um veiðarnar að mestu naut hún þess að vera með fjölskylduna á einum stað og hélt þétt utan um hópinn. Þurý átti ekki alltaf auðvelt líf en hún var algjör töffari, stóð ávallt fast í fæturna og gerði um- hverfið sitt að betri stað fyrir aðra. Í raun var hún ótrúleg fyr- irmynd að því leyti og ég hef hugsað mikið til þess undanfarið þegar við höfum setið og farið yf- ir lífshlaupið hennar. Hún missti Jón allt of snemma fyrir 11 árum síðan. Það var gífurlegt áfall en hún var sterk eins og alltaf, lagð- ist meðal annars í ferðalög upp á eigin spýtur og hélt áfram að skoða heiminn. Ekki löngu eftir að Jón dó byrjuðu veikindin að láta á sér kræla og smátt og smátt missti hún ýmsa getu og þurfti á meiri stuðningi að halda, en aldrei gafst hún upp og vildi alltaf reyna að hjálpa til þótt hún væri löngu búin að gera sinn skammt og vel það. Seinustu árin dvaldi hún hjá okkur Mæju þrjár nætur í viku og leit eftir hundinum okkar henni Tinnu þá daga sem við vor- um bæði í vinnu. Þær voru miklar vinkonur enda Þurý einstakur dýravinur frá barnsaldri. Tinnu fannst gaman að fá að vera uppi í gluggakistu og Þurý taldi ekki eftir sér að sitja þar yfir henni eins lengi og hana lysti, svo oftast þegar við komum heim úr vinnunni biðu þær vinkonurnar eftir okkur í uppáhaldsgluggan- um sem virkar ansi tómlegur þessa dagana. Sveinn Kjarval. Elsku tengdamóðir mín er lát- in og missir fjölskyldunnar mik- ill. Nú eru þau bæði farin tengda- foreldrar mínir, en Jón lést fyrir 12 árum. Eftir situr tómarúm hjá okkur fjölskyldunni. Finnst þau hafa farið allt of snemma. Ljúfar minningar ylja og undanfarna daga hefur verið legið yfir mynd- um, horft á myndbönd og rifjaðar upp góðar stundir saman. Það voru hlýir og hjálpsamir tengdaforeldrar sem tóku á móti mér í Ljósheimum fyrir meira en 30 árum og buðu mig velkomna í fjölskylduna. Við fórum fljótt að búa, eigandi ekki neitt og þá var nú gott að eiga þau að. Með öll spjót úti áskotnaðist okkur hitt og þetta í búið sem hafði verið í geymslum hér og þar og svo hjálpaði hún okkur að sauma gardínur fyrir alla glugga. Þar sem engin þvottavél var á heim- ilinu fyrstu árin sendi Arnar móður sinni þvottinn vikulega og fékk hann samanbrotinn og straujaðan þegar við mættum svo í sunnudagsmatinn. Brynjar okk- ar sem við eignuðumst í háskól- anum fékk smá forskot sem fyrsta barnabarnið og naut góðs af því. Samband hans við afa sinn og ömmu var ljúft. Hann og afi hans tefldu mikið og fór afi hans með hann að veiða. Þegar við eignuðumst svo Arndísi og Hilm- ar 6 og 8 árum síðar auglýstum við eftir ömmu til að koma heim og passa þau áður en þau kæmust inn i leikskóla. Og viti menn. Amma Þurý sótti um og við tóku yndislega dýrmæt ár hjá ungun- um mínum með ömmu heima. Þvílík forréttindi og gæfa. Þetta var góður tími. Í framhaldi fluttu amma og afi svo í hverfið og sóttu krakkarnir í að fara heim til ömmu eftir skóla í dekur. Þegar upp komu veikindi eða frí í skóla var amma Þurý fyrst manna til að standa vaktina og minning krakkanna um ömmu að lesa, horfa á Friends með þeim og breiða sængina yfir þau er sterk. Síðust vikur voru strembar í veikindum Þuríðar en ósköp var ljúft að fylgjast með hve börnin hennar og fjölskyldan var sterk og stóð vaktina saman. Ég kveð með hlýju og söknuði einstaklega trausta og hjálpsama tengdamömmu. Minningin um hana lifir. Með kæru þakklæti fyrir allt, Helga Þórdís. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Að leiðarlokum er mér þakk- læti í huga fyrir að taka svo fal- lega á móti mér og börnunum mínum þegar við Röggi vorum að kynnast. Ég þakka fyrir að hafa átt með henni samleið, þó að ég hefði sannarlega viljað að sá tími hefði orðið lengri. Blessuð sé minning elskulegr- ar tengdamóður minnar, Kristín Björg Árnadóttir. Þuríður Gísladóttir - Fleiri minningargreinar um Þuríði Gísladóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Okkar ástkæri ARNÞÓR INGÓLFSSON, fv. yfirlögregluþjónn og kirkjuvörður, lést á Hrafnistu, Hraunvangi í Hafnarfirði, sunnudaginn 16. maí. Útför auglýst síðar. Kristín Snæfells Arnþórsd. Sigurgeir Arnþórsson Ásdís Gígja Halldórsdóttir Friðbjörg Arnþórsdóttir Guðmundur Þór Sigurbjörnss. Margrét Arnþórsdóttir Elín Inga Arnþórsdóttir og fjölskyldur þeirra Okkar ástkæra, ÁSTA GARÐARSDÓTTIR frá Fáskrúðsfirði, lést á Grund fimmtudaginn 6. maí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 28. maí klukkan 13. Jóhanna Jakobsdóttir Dennis Magditch Björg Jakobsdóttir Ómar Eyfjörð Friðriksson Hjörleifur Jakobsson Hjördís Ásberg Herdís Jakobsdóttir Guðmundur Ingi Guðmundss. Hjördís Þóra Hólm Þór Wium barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri eiginmaður, sonur, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, HILMAR ÞÓRARINSSON, lést á krabbameinsdeild Landspítalans mánudaginn 10. maí. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk Hilmars. Birna E. Benediktsdóttir Þórarinn Guðmundsson Hulda Petersen Þórarinn Hilmarsson Ásta R. Thorarensen Benedikt Kjartan Magnúss. Petrea I. Guðmundsdóttir Karitas María Lárusdóttir Gylfi Einarsson Edda Þórarinsdóttir Jón Ingi Guðmundsson Inga Þórarinsdóttir Baldur Bragason og barnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, PÁLL JÓNSSON, Tröllagili 14, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 13. maí. Útför hans mun fara fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn 25. maí klukkan 13. Allir velkomnir. Jón Pálsson Björk Axelsdóttir Rannveig Jónsdóttir Þorlákur Axel Jónsson Gunnhildur H. Gunnlaugsd. Sigurður Pétur Jónsson Inga S. Guðbjartsdóttir Þorsteinn Styrmir Jónsson systkinabörn og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.