Morgunblaðið - 20.05.2021, Page 52
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valur og Breiðablik þurftu svo
sannarlega að hafa fyrir sigrum
sínum í fjórðu umferð Pepsi Max-
deildar kvenna í gærkvöld. Vals-
konur lögðu ÍBV í bráðfjörugum
leik í Vestmannaeyjum, 4:2, eftir
að hafa lent undir snemma, og
Breiðablik marði 1:0-sigur á nýlið-
um Tindastóls sem héldu marki
sínu hreinu á Kópavogsvellinum í
75 mínútur.
_ Sandra Sigurðardóttir mark-
vörður Vals og íslenska landsliðs-
ins braut blað í sögu fótboltans hér
á landi í leiknum á Hásteinsvelli.
Hún lék sinn 300. leik í úrvals-
deildinni en hún er langleikjahæst
allra í deildinni frá upphafi. Sandra
leikur nú sitt 21. tímabil eftir að
hafa byrjað 15 ára gömul í marki
Þórs/KA/KS árið 2001. Dóra María
Lárusdóttir samherji Söndru í Val
er næstleikjahæst en hún lék sinn
255. leik í deildinni í gærkvöld.
_ Sigríður Lára Garðarsdóttir
skoraði sitt fyrsta deildarmark fyr-
ir Val þegar hún jafnaði metin í
1:1. Sigríður er frá Eyjum en hún
er næstleikjahæsti leikmaður ÍBV í
efstu deild frá upphafi.
_ Viktorija Zaicikova, lettneski
framherjinn hjá ÍBV, skoraði
glæsilegt skallamark snemma
leiks. Hún hefur nú skorað þrjú
mörk, öll gegn stóru liðunum, Val
og Breiðabliki.
_ Delaney Baie Pridham skoraði
annað mark ÍBV þegar hún minnk-
aði muninn í 2:3. Hennar fjórða
mark í fyrstu fjórum umferðunum
og þau hafa öll komið á Hásteins-
velli.
_ Bandaríski framherjinn Tiff-
any McCarty náði loks að brjóta ís-
inn fyrir Breiðablik gegn Tinda-
stóli með sigurmarkinu á 76.
mínútu. Þriðja mark hennar fyrir
Blikana og hún gæti átt eftir að
verða þeim dýrmæt í sumar. Fyrr í
leiknum höfðu tvö mörk verið
dæmd af henni vegna rangstöðu.
_ Tindastóll tapaði þar með sín-
um fyrsta leik í efstu deild en þær
skagfirsku gátu gengið stoltar af
velli eftir að hafa staðið af sér stór-
sókn Blika nær allan tímann.
Breiðablik átti 23 markskot í leikn-
um en Tindastóll þrjú.
_ Hildigunnur Ýr Benedikts-
dóttir var hetja Stjörnukvenna á
Akureyri. Hún skoraði sigurmark
Garðabæjarliðsins gegn Þór/KA í
Boganum, 1:0, í uppbótartíma
leiksins og fyrsti sigur tímabilsins
var þar með í höfn.
_ Arna Sif Ásgrímsdóttir var
mætt aftur í vörnina hjá Þór/KA
en hún spilaði ekki fyrstu þrjá leik-
ina þar sem hún var í láni hjá Glas-
gow City í Skotlandi.
Selfoss er með fullt hús stiga
eftir sigur á Þrótti, 4:3, í Laugar-
dalnum og Fylkir og Keflavík
skildu jöfn, 1:1, í Árbænum en
þeim lauk rétt þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöld. Allt um þessa
leiki er að finna á mbl.is/sport/
fotbolti en M-gjöfin úr þeim verður
birt í blaðinu á morgun.
Sandra braut blað í sögunni
Morgunblaðið/Eggert
Návígi Murielle Tiernan úr Tindastóli og Agla María Albertsdóttir úr
Breiðabliki í baráttu um boltann á Kópavogsvellinum í gærkvöld.
- Fyrst til að leika 300 leiki í úrvalsdeildinni þegar Valur lagði ÍBV í bráðfjör-
ugum leik í Eyjum - Breiðablik var 75 mínútur að brjóta Tindastól á bak aftur
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Methafinn Sandra Sigurðardóttir markvörður Vals spyrnir boltanum frá
marki sínu í 300. leiknum sínum í deildinni á Hásteinsvelli í gær.
52 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Pepsi Max-deild kvenna
Breiðablik – Tindastóll ............................ 1:0
ÍBV – Valur............................................... 2:4
Þór/KA – Stjarnan ................................... 0:1
Þróttur R. – Selfoss.................................. 3:4
Fylkir – Keflavík ...................................... 1:1
Staðan:
Selfoss 4 4 0 0 12:4 12
Valur 4 3 1 0 7:3 10
Breiðablik 4 3 0 1 15:5 9
Tindastóll 3 1 1 1 3:3 4
Stjarnan 4 1 1 2 3:5 4
Þróttur R. 4 0 3 1 6:7 3
ÍBV 4 1 0 3 8:10 3
Keflavík 4 0 3 1 3:6 3
Þór/KA 4 1 0 3 3:7 3
Fylkir 3 0 1 2 1:11 1
England
Everton – Wolves..................................... 1:0
- Gylfi Þór Sigurðsson lék í 86 mínútur
með Everton og lagði upp sigurmarkið fyr-
ir Richarlison.
Crystal Palace – Arsenal ........................ 1:3
- Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik-
mannahópi Arsenal.
Burnley – Liverpool ................................ 0:3
- Jóhann Berg Guðmundsson lék allan
leikinn með Burnley.
Newcastle – Sheffield United ................. 1:0
Tottenham – Aston Villa.......................... 1:2
WBA – West Ham.................................... 1:3
Staðan:
Manch. City 37 26 5 6 78:32 83
Manch. United 37 20 11 6 71:43 71
Chelsea 37 19 10 8 57:34 67
Liverpool 37 19 9 9 66:42 66
Leicester 37 20 6 11 66:46 66
West Ham 37 18 8 11 59:47 62
Tottenham 37 17 8 12 64:43 59
Everton 37 17 8 12 47:43 59
Arsenal 37 17 7 13 53:39 58
Leeds United 37 17 5 15 59:53 56
Aston Villa 37 15 7 15 53:45 52
Wolves 37 12 9 16 35:50 45
Crystal Palace 37 12 8 17 41:64 44
Southampton 37 12 7 18 47:65 43
Newcastle 37 11 9 17 44:62 42
Brighton 37 9 14 14 40:44 41
Burnley 37 10 9 18 33:54 39
Fulham 37 5 13 19 27:51 28
WBA 37 5 11 21 34:73 26
Sheffield Utd 37 6 2 29 19:63 20
Ítalía
Bikarúrslitaleikur karla:
Atalanta – Juventus ................................. 1:2
Danmörk
Úrslitakeppnin:
Köbenhavn – Midtjylland ....................... 4:2
- Mikael Anderson kom inn á hjá Midtjyll-
and á 80. mínútu.
_ Midtjylland 57, Bröndby 55, Köbenhavn
55, AGF 48, Nordsjælland 43, Randers 37.
Svíþjóð
B-deild:
Helsingborg – Norrby............................. 0:2
- Böðvar Böðvarsson var í byrjunarliði
Helsingborg en var rekinn af velli á 68.
mínútu.
Noregur
B-deild:
Raufoss – Aalesund ................................. 4:2
- Davíð Kristján Ólafsson var varamaður
hjá Aalesund og kom ekki við sögu.
Start – Jerv............................................... 2:4
- Jóhannes Harðarson þjálfar Start.
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Sputnik Rechitsa ........ 2:1
- Willum Þór Willumsson fór af velli hjá
BATE strax á 8. mínútu.
4.$--3795.$
Umspil karla
Undanúrslit, fyrsti leikur:
Fjölnir – Kría ........................................ 20:27
Víkingur – Hörður...................... (ekki lokið)
Meistaradeild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
Flensburg – Aalborg........................... 33:29
- Alexander Petersson skoraði ekki fyrir
Flensburg.
- Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
_ Aalborg áfram, 55:54 samanlagt.
París SG – Kiel...................................... 34:28
_ París SG áfram, 63:59 samanlagt.
Þýskaland
Bergischer – Melsungen..................... 23:25
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 6 mörk
fyrir Bergischer.
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt
mark fyrir Melsungen. Guðmundur Þ. Guð-
mundsson er þjálfari liðsins.
Staða efstu liða:
Kiel 51, Flensburg 51, Rhein-Neckar Lö-
wen 42, Magdeburg 40, Göppingen 38,
Füchse Berlín 34, Melsungen 32, Wetzlar
32, Lemgo 29, Bergischer 29, Leipzig 29,
Erlangen 26, Stuttgart 26.
Frakkland
Umspil, 1. umferð, fyrri leikur:
Dijon – Nancy....................................... 27:29
- Elvar Ásgeirsson skoraði 2 mörk fyrir
Nancy.
%$.62)0-#
Liverpool steig stórt skref í áttina
að sæti í Meistaradeild Evrópu í
gærkvöld með því að sigra Burnley,
3:0, á Turf Moor. Roberto Firmino
braut ísinn með marki rétt fyrir hlé
og miðvörðurinn Nathaniel Phillips
skoraði í byrjun síðari hálfleiks.
Alex Oxlade-Chamberlain bætti
þriðja markinu við undir lokin.
Fyrir lokaumferðina í ensku úr-
valsdeildinni er Chelsea með 67
stig, Liverpool 66 og Leicester 66
en Liverpool fór uppfyrir Leicester
á markatölu. Tvö þessara liða kom-
ast í Meistaradeildina, eins og stað-
an er núna. Liverpool á heimaleik
við Crystal Palace í lokaumferð-
inni, Leicester á heimaleik við Tott-
enham og Aston Villa útileik við
Chelsea.
_ Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp
sigurmark Everton gegn Wolves í
gær, 1:0, en Richarlison skoraði
markið í byrjun síðari hálfleiks.
Everton á því enn von um að ná
Evrópusæti í lokaumferðinni.
AFP
Sigur Liverpool fagnar marki Alex Oxlade-Chamberlain í Burnley.
Þrjú mörk í Burnley og
Liverpool í fjórða sætið
BREIÐABL. – TINDASTÓLL 1:0
1:0 Tiffany McCarty 77.
M
Áslaug Munda Gunnlaugsd. (Breiðabliki)
Karitas Tómasdóttir (Breiðabliki)
Andrea Rán Hauksdóttir (Breiðabliki)
Tiffany McCarty (Breiðabliki)
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Dominique Bond-Flasza (Tindastóli)
Bryndís Rut Haraldsdóttir (Tindastóli)
Kristrún María Magnúsdóttir (Tindast.)
Amber Kristin Michel (Tindastóli)
Dómari: Guðmundur Friðbertsson – 7.
Áhorfendur: 263.
ÞÓR/KA – STJARNAN 0:1
0:1 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 90.
MM
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Chanté Sandiford (Stjörnunni)
M
Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Colleen Kennedy (Þór/KA)
Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni)
Heiða Ragney Viðarsdóttir (Stjörnunni)
Hildigunnur Ýr Benediktsd. (Stjörnunni)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 9.
Áhorfendur: Um 100.
ÍBV – VALUR 2:4
1:0 Viktorija Zaicikova 14.
1:1 Sigríður Lára Garðarsdóttir 23.
1:2 Lillý Rut Hlynsdóttir 44.
1.3 Sjálfsmark 47.
2:3 Delaney Baie Pridham 61.
2:4 Bergdís Fanney Einarsdóttir 84.
MM
Annie Williams (ÍBV)
M
Hanna Kallmaier (ÍBV)
Viktorija Zaicikova (ÍBV)
Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV)
Sólveig Larsen (Val)
Mary Alice Vignola (Val)
Lillý Rut Hlynsdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (Val)
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson – 7.
Áhorfendur: 164.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.