Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Fjöldi áhugaverðra og verð-
launaðra kvikmynda er á dagskrá
Stockfish að þessu sinni og hér
verða nokkrar nefndar.
The Man Who Sold His Skin er
háðsádeila eftir leikstjórann
Kaouther Ben Hania og fjallar um
Sam Ali, hvatvísan ungan mann
frá Sýrlandi sem flúið hefur til Líb-
anons. Hann leyfir heimskunnum
listamanni að húðflúra bakið á sér
og hefur það ófyrirséðar afleið-
ingar. Pinocchio eftir ítalska leik-
stjórann Matteo Garrone er sögð
nýstárleg nálgun á hið sígilda æv-
intýri um spýtustrákinn Gosa sem
öðlast líf fyrir töfra, skapara hans
og föður til mikillar undrunar og
gleði. Beginning eftir Dea Kulum-
begashvili er georgísk-frönsk og
segir af árás öfgamanna á Votta
Jehóva í litlum bæ. Á sama tíma
hrynur heimur Yönu, eiginkonu
leiðtoga Jehóva-samfélagsins,
sem upplifir innri átök gagnvart
eigin löngunum og þrám, eins og
því er lýst í tilkynningu frá Stock-
fish.
La Llorona eftir leikstjórann
Jayro Bustamante er frá Gvate-
mala og er henni lýst svo: „Ég skýt
ef þú grætur voru síðustu orðin
sem hljómuðu í eyrum Ölmu og
barna hennar þegar þau voru myrt
í borgarastyrjöld Gvatemala. Þrjá-
tíu árum síðar er ábyrgðarmaður
þjóðarmorðanna, Enrique hers-
höfðingi, leiddur fyrir rétt og lát-
inn svara til saka. En þegar rétt-
arhöldin eru dæmd ógild leysist
vofa La Llorona úr læðingi þar sem
hennar týnda sál vafrar um heim
hinna lifandi með þeim afleiðing-
um að Enrique heyrir óp hennar
um nætur.“
Sun Children er írönsk kvik-
mynd eftir leikstjórann Majid Ma-
jidi og fjallar um Ali, 12 ára dreng,
og þrjá vini hans. Þeir sjá fyrir fjöl-
skyldum sínum með íhlaupaverk-
um og smáglæpum en dag einn er
Ali treyst fyrir því að sækja fjár-
sjóð sem er falinn neðanjarðar.
Promising Young Woman hlaut
Óskarsverðlaun fyrir besta frum-
samda handrit fyrr á árinu og var
hún gagnrýnd í Morgunblaðinu og
hlaut fjórar stjörnur af fimm. Í
henni segir af ungri konu sem á
harma að hefna.
Heildardagskrá Stockfish má
finna á stockfishfestival.is.
Kvikmyndaveisla í Bíó Paradís
VERÐLAUNAMYNDIR Á STOCKFISH-HÁTÍÐ
Gosi Úr Pinocchio eftir Matteo Garrone.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Valgeir Sigurðsson, tónskáld og
upptökustjóri með meiru, gaf fyrir
um tveimur mánuðum út plötuna
Kviku sem er sjálfstætt verk en þó
byggð á tónlist sem hann samdi við
kvikmyndina Malá ríša eftir slóvak-
íska leikstjórann Peter Magát, eða
Little Kingdom eins og hún heitir á
ensku. Mynd þessi er frá árinu
2019 og var frumsýnd í Slóvakíu
það ár en er nú komin í Bíó Para-
dís og á dagskrá
Stockfish-kvikmyndahátíðarinnar
sem hefst í dag.
Á vef hátíðarinnar (stockfish.is)
segir um myndina að hún sé róm-
antískt búningadrama þar sem
sögusviðið er þorp í Slóvakíu árið
1944 í seinni heimsstyrjöldinni.
„Ung stúlka að nafni Eva vinnur í
verksmiðju sem er í eigu hrokafulls
vel efnaðs manns að nafni Bar.
Hennar áætlun er að láta lítið fyrir
sér fara og lifa af þar til eig-
inmaður hennar mun snúa aftur úr
stríðinu. En daginn sem eig-
inmaður hennar snýr aftur er allt
breytt,“ segir þar.
Valgeir er ekki eini Íslending-
urinn sem kom að gerð myndar-
innar því einn framleiðenda hennar
er Sæmundur Norðfjörð.
Kúgara- og ástarsaga
„Hún er að megninu til fram-
leidd og gerð í Slóvakíu,“ segir
Valgeir um myndina og að fólk af
ýmsu þjóðerni hafi komið að gerð
hennar. „Það er til dæmis írskur
handritshöfundur og leikarar alls
staðar að. En leikstjórinn og fram-
leiðendurnir eru frá Slóvakíu.“
Valgeir segir um efni myndar-
innar að einn alvaldur sé í þorpinu
sem hafi samið við vopnaframleið-
endur um sína verksmiðju. „Hann
þarf að halda því gangandi og
fólkið í þorpinu er undir hæl hans
upp á að hafa vinnu. Þetta er
kúgarasaga öðrum þræði og svo
ástarþríhyrningur og -ferhyrn-
ingur,“ segir Valgeir.
Tungumál myndarinnar er
enska sem Valgeir segir dálítið
óvenjulegt fyrir evrópska kvik-
mynd en ástæðan líklega sú að
leikararnir eru af ólíkum þjóð-
ernum.
Valgeir segir annan leikstjóra
hafa upphaflega átt að leikstýra
myndinni og að á tímabili hafi ekki
litið út fyrir að hann myndi semja
tónlist við hana. Þegar nýr leik-
stjóri tók við keflinu fór verkefnið
að líta betur út og þráðurinn var
tekinn upp að nýju.
Spurður út í stærðargráðu
myndarinnar segir Valgeir að hún
sé sjálfstætt framleidd, evrópsk og
líti afar vel út. „Þeir eiga mikið af
settum og búningum frá þessum
tíma þannig að þetta er mjög
raunverulegt allt saman og mynd-
in lítur út fyrir að vera flott per-
íóda sem er, hugsa ég, flókið og
dýrt að gera,“ segir Valgeir.
Tónlist á óræðum tíma
Valgeir er beðinn um að lýsa
tónlist sinni við myndina. „Per-
íódan kallaði á að tónlistin væri á
svolítið óræðum tíma, hún hjálpar
sögunni og persónunum og það
sem hún átti að gera var að skýra
dramað. Þetta er dálítil flækja,
undirferli og svik og hver er hvað
svolítið þannig að tónlistin styður
við þá frásögn. Ég gat unnið með
stórri hljómsveit og kór og í raun-
inni gat framleiðslan skaffað það
sem þurfti til að gera epíska um-
gjörð. Það var auðvitað líka
skemmtilegt, að fá dálítið frjálsar
hendur og stuðning til að skila því
verki sem mér fannst myndin
kalla á og það sem þeir voru að
biðja um. Myndin er að vinna svo-
lítið upp fyrir sig í skala, þetta er
stór lítil mynd eða lítil stórmynd,“
útskýrir Valgeir.
Tónlistina vann hann að miklu
leyti í stúdíói sínu í Breiðholti,
Gróðurhúsinu, og upptökur með
hljómsveit og kór fóru fram í Sló-
vakíu. „Þetta var ótrúlega þægi-
legt miðað við að verið var að
vinna í fjarlægð, þetta komst allt
mjög vel til skila,“ segir Valgeir
og hann hafi líka blandað við raf-
tónlist og leik minni hljómsveita
og stakra hljóðfæraleikara.
Gott flæði og fyrirkomulag
Tónlistina samdi Valgeir við
fyrsta klipp af kvikmyndinni sem
hann fékk sent til sín. Á meðan
hann vann að tónlistinni var haldið
áfram að klippa myndina. „Leik-
stjórinn kom hingað og við unnum
saman í að finna út úr því hvaða
hlutverki tónlistin ætti að gegna,
hvar hún ætti heima og svo skildi
hann þetta í rauninni eftir í mín-
um höndum,“ segir Valgeir.
– Þetta hefur þá verið þægilegt
fyrirkomulag?
„Já, já, þetta var bara gott flæði
og menn kannski orðnir vanir því
að vinna svona milli landa og
örugglega enn þá meira eftir síð-
asta ár,“ svarar Valgeir.
Morgunblaðið/Eggert
Í Gróðurhúsinu Valgeir Sigurðsson tónskáld í hljóðveri sínu í Breiðholti. Hann hefur komið víða við í tónlist.
Rómantík Úr kvikmyndinni Little Kingdom sem sýnd er á Stockfish.
„Stór lítil mynd eða lítil stórmynd“
- Valgeir Sigurðsson samdi tónlist við slóvakísku kvikmyndina Little Kingdom sem sýnd er á Stock-
fish-kvikmyndahátíðinni sem hefst í dag - Íslenskur meðframleiðandi og alþjóðlegur leikarahópur