Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Er ekki kjörið að grilla meðEurovision í kvöld? Frábært úrval af kjöti – Kíktu við! Opið virka daga 8:00-16:30 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Öfgamálmsveitin Ophidian I undir- ritaði fyrr á árinu samning við hina þekktu plötuútgáfu Season of Mist sem stofnuð var 1996 í Marseille í Frakklandi og kunn er fyrir útgáfu á rokki í þyngri kantinum. Ophidian I skipa trommarinn Ragnar Sverris- son, gítarleikararnir Símon Þórólfs- son og Daníel Máni Konráðsson, bassaleikarinn Þórður Hermanns- son og söngvarinn John Olgeirsson. Daníel Máni segir samninginn kveða á um útgáfu þriggja platna með möguleika á framlengingu og fleiri plötum. Hann er spurður að því hvort Season of Mist sé ekki eitt þekktasta fyrirtæki heims í útgáfu á málmrokki og segir hann að fyrir- tækið sé eitt af þremur eða fjórum þeirra sýnilegustu í þeim geira í dag. „Þetta eru ekki alveg þessir sömu og eru í hefðbundinni tónlist, þetta er ekki eins og Universal eða Sony en eitt af þessum stærstu,“ segir Daníel Máni. Ophidian I hefur verið starfandi frá 2010 og fór með sigur af hólmi í hljómsveitakeppninni Wacken Metal Battle árið 2013. „Hún tók þó nokkuð miklum mannabreytingum fyrir svona tveimur árum og í kjöl- farið var konseptið bak við hljóm- sveitina endurhugsað og nýtt efni samið með nýjum meðlimum,“ segir Daníel Máni. Þá hafi boltinn farið að rúlla. Nýtt upphaf En hvaða áhrif heldur hann að samningurinn við Season of Mist muni hafa? „Það er auðvitað dálítið óljóst í núverandi ástandi en við vonumst til að ná þeim mun betri dreifingu og til fleiri sem gætu haft áhuga á þessu, að koma þessu svolít- ið út. Það er hægt að ná mun betri árangri í því í gegnum svona kanal,“ svarar Daníel Máni. Hann segist líka vonast til þess að í framtíðinni geti hljómsveitin gert það sem hana langi að gera, þ.e. að túra og leika á tónleikum. Daníel Máni segir hljómsveitina í raun líta á samninginn sem nýtt upphaf hvað varðar möguleika á tónleikahaldi og ferðalögum. Þýskur umboðsmaður hafi lengi haft áhuga á hljómsveitinni og verið í sambandi við hana. „Það er svolítið hann sem hafði millgöngu með þennan samn- ing og ýmislegt og við reiðum okkur svolítið á hann til að koma þessu þeim mun lengra hvað varðar bók- ara og næstu ár. Við erum með ein- hvern infrastrúktur til að vinna út frá. Þetta er allt í ferli.“ Næsta plata sveitarinnar kemur út 16. júlí og nefnist hún Desolate. Platan er tilbúin, að sögn Daníels Mána, og var það reyndar áður en samningurinn var undirritaður. „Það er eitt lag komið út af henni og svo koma nokkrir singlar áður en hún kemur út í sumar. Svo verður henni fylgt eftir rafrænt eins mikið og hægt er með vídeóum og ýmsu efni,“ segir Daníel Máni um útgáf- una. Hratt og flókið Daníel Máni er beðinn að skil- greina tónlist Ophidian I og segir hann hana þungarokk í grunninn með mikla áherslu á tæknilega færni. „Þetta er rosalega hratt og frekar flókið, öfgamálmur er þetta nú kallað stundum, „extreme met- al“,“ útskýrir hann. En þarf maður þá að vera skól- aður í málmfræðum til að geta notið þessarar tónlistar? „Nei, nei, þetta er mjög melódískt og rosalega hljóð- færadrifið, drifið áfram af hljóð- færaleik. Þetta er ekki erfitt í hlustun, bara mikill hraði, melódíur og tækni,“ svarar Daníel Máni en þeir sem vilja kynna sér tónlist sveitarinnar geta gert það t.d. á Spotify og á YouTube. Lagið nýút- komna sem Daníel Máni nefndi heitir „Diamonds“ og gefur það forsmekkinn að hinni væntanlegu plötu. Ophidian I hjá Season of Mist Málmsmiðir Þungarokkshljómsveitin Ophidian I, frá vinstri þeir John, Ragnar, Daníel, Þórður og Símon. - Gefur út þrjár næstu breiðskífur hljómsveitarinnar - „Þetta er ekki erfitt í hlustun, bara mikill hraði, melódíur og tækni,“ segir gítarleikarinn Daníel Máni Ljósmynd/Rúnar Geirmundsson Myndlistarmaðurinn Ásmundur Sveinsson fæddist 20. maí árið 1893 og af því tilefni verður aðgangur ókeypis að Ásmundarsafni við Sig- tún í dag. Milli kl. 16 og 18 verður boðið upp á örleiðsagnir um sýning- arnar Ef lýsa ætti myrkva og Hönn- un í anda Ásmundar. Úti í garði verður ratleikur fyrir fjölskyldur. Skólahljómsveit Austurbæjar leik- ur fyrir gesti kl. 17.45. Dagana 20.-23. maí taka vöru- hönnuðir á móti gestum í safninu kl. 12 í tengslum við sýninguna Hönnun í anda Ásmundar. List Ásmundur Sveinsson var einn af frumkvöðlum höggmyndalistar á Íslandi. Afmælisdegi Ásmundar fagnað Sigrún Páls- dóttir hlýtur Bókmenntaverð- laun Evrópusam- bandsins 2021 ásamt 13 öðrum evrópskum höf- undum. Verð- launin hlýtur Sigrún fyrir Delluferðina sem út kom 2019. Í rökstuðningi dómnefndar segir: „Delluferðin er skrifuð af listfengi höfundar sem hefur náð gríðarlegu valdi á bæði formi og stíl. […] Hér er sannarlega ekki á ferðinni hefð- bundin þroskasaga heldur er miskunnarlaust snúið upp á allar hefðir. […] Hér er allt undir; þjóðararfurinn og þeir brauðfætur sem söguleg sýn hvers samfélags stendur á, en einnig stéttaskipting, staða konunnar, staða Íslands, staða erlends vinnuafls í New York undir lok 19. aldar og síðast en ekki síst skáldsagan sjálf.“ Sigrún verðlaunuð fyrir Delluferðina Sigrún Pálsdóttir Ungir einleikarar er yfirskrift tón- leika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fara í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 20 undir stjórn Önnu- Mariu Helsing. Einleikarar og ein- söngvarar á tónleikunum voru valdir í samkeppni sem fór fram í samstarfi við Listaháskóla Íslands í haustið 2020. Sigurvegarar í keppninni að þessu sinni voru Íris Björk Gunnars- dóttir söngkona, Johanna Brynja Ruminy fiðluleikari, Jón Arnar Einarsson básúnuleikari og Marta Kristín Friðriksdóttir söngkona. Á efnisskránni eru aríurnar „Je dis que rien“ úr Carmen eftir Georges Bizet, „Stridono lassu“ úr I Pagliacci eftir Ruggero Leoncavallo og „Tu che di gel sei cinta“ úr Turandot eftir Giacomo Puccini, Fiðlukonsert eftir Felix Mendels- sohn, Fantasy for trombone and orc- hestra eftir Paul Creston, aríurnar „Non mi dir“ úr Don Giovanni eftir Wolfgang Amadeus Mozart, „Tu che di gel sei cinta“ úr Turandot eftir Giacomo Puccini og „Tutte le feste al tempio“ úr Rigoletto eftir Giuseppe Verdi ásamt sönglaginu „Drauma- landið“ eftir Sigfús Einarsson. Námsmenn yngri en 25 ára og tónlistarnemar geta keypt miða á 1.800 kr. með Skólakorti Sinfóníunn- ar. Vegna samkomutakmarkana er takmarkað sætaframboð á tón- leikana til að hægt sé að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber skylda til að vera með grímu á tónleikunum sem eru um klukku- stundar langir án hlés. Eftirvænting Johanna Brynja Ruminy, Jón Arnar Einarsson, Marta Kristín Friðriksdóttir og Íris Björk Gunnarsdóttir koma fram í Eldborg Hörpu. Ungir einleikarar í kvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.