Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros-
@mbl.is Margrét Hugrún margret.hugrun@gmail.com Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
F
yrir tíu árum var mér boðið að búa til vef inni á
mbl.is sem ætti að höfða til kvenna. Þá var ég búin
að starfa sem blaðamaður í áratug og var komin á
þann stað að ég nennti alls ekki að gera neitt sem
var leiðinlegt. Mig langaði til að draga fram það
skemmtilega í okkar samfélagi og hafa fjör í for-
grunni. Mitt markmið var að búa til lifandi tímarit
á netinu þar sem fólk gæti eflt andann og fengið
pásu frá lífinu. Pásu frá fréttum um að allt væri að fara til and-
skotans og heimurinn væri að farast. Á þessu veftímariti sem
Smartland var og er átti fólk að finna leið til að slaka á, fá upp-
örvun, fá nýjar hugmyndir og helst að verða svo upprifið að það
myndi kannski standa upp, teygja vel úr sér, draga andann djúpt
og langa til að sigra heiminn. Vefurinn átti líka að hressa þá við
sem leið illa en ég nefndi það nú aldrei við nokkurn mann. Smart-
land átti að vera skjól fyrir þá sem þurftu á því að halda.
Það sem dreif mig áfram í þessu verkefni var áhugi á fólki. Alls
konar fólki. Ekki bara ofurfyrirsætum með lága fituprósentu eða
mönnum með utanbæjarstrípur og hvíttaðar tennur. Þegar ég
hitti fólk fer ég ósjálfrátt að yfirheyra það og oftar en ekki stend
ég uppi með þær upplýsingar að viðkomandi sé viðtalsefni. Það
búa allir yfir sögu en fólk er misviljugt að deila þeim með öðrum.
Mér finnst það þó vera að breytast og í dag er fólk miklu opnara
og þorir að segja hvaðan það er að koma og hvert það er að fara.
Mér finnst alltaf gaman að hitta fólk sem hefur notið velgengni
í lífinu. Ég elska að vita hvernig það masteraði sína velgengni.
Hvað það gerir til að efla sig, hvað drífur það áfram, hvernig það
skipuleggur sig og á hvað það leggur áherslu til að lifa sem bestu
lífi. Ég kann líka að meta viðtöl við fólk sem hefur upplifað áföll
og komist í gegnum þau. Sama hvernig það fór að því. Það hreyf-
ir við mér að fólk hafi lífsvilja þegar það hefur upplifað sorgir
lífsins. Á stundum þar sem harmurinn tekur völdin er nefnilega
svo ósköp auðvelt að missa hann og húmorinn um leið.
Þá er mjög nauðsynlegt að geta leitað þangað sem gleðin er við
völd. Eitt af því sem Smartland hefur alltaf lagt ríka áherslu á í
gegnum tíðina er að segja líka svolítið fyndnar fréttir. Eitthvað
sem fær okkur til að hlæja smá. Smartland er nefnilega vefur
með húmor þótt hinir húmorslausu fatti það ekki alltaf. Þegar 10
ára afmæli Smartlands var í undirbúningi fannst
mér ekki annað hægt en að heimsækja Gylfa
Þór Þorsteinsson sem hefur staðið vaktina í
farsóttarhúsinu síðan veiran kom upp. Hann
var framkvæmdastjóri mbl.is þegar Smart-
land fór í loftið. Gylfi hefur ýmsa fjöruna sop-
ið eins og sagt er og á mjög merkilega sögu
en í gegnum sinn harm lærði hann að nota
húmorinn. Hann kenndi mér margt þegar
við unnum saman en eitt var þó dýrmæt
lexía og það var að geta hlegið og haft
gaman þótt allt væri að fara í vift-
una hjá mér. Fólk gleymir stað og
stund meðan á hláturskastinu
stendur. Svo líður fólki betur á eft-
ir.
Á þessum tímamótum langar mig að
þakka ykkur lesendur fyrir að vera trygg-
ir og trúir. Án ykkar hefði nefnilega ekk-
ert orðið að neinu!
Gott ráð þegar
lífið fer í viftuna!
Marta María Jónasdóttir
B
orðar þú morgunmat?
„Já, alltaf það sama. Ég er mjög
íhaldssamur. Gríska jógúrt og múslí.“
Klukkan hvað vaknar þú?
„Mér finnst ekki gaman að vakna of
snemma. Yfirleitt milli 8 og 9. Í kó-
víðinu hef ég svolítið farið að breytast í ungling aftur
og snúið sólarhringnum við, verið að lesa og glápa á
nóttinni.“
Á hvaða tíma sólarhringsins færðu bestu hugmynd-
irnar?
„Ég hugsa skýrast á morgnana, held ég, áður en
ringulreið dagsins nær yfirhöndinni.“
Ertu lengi að velja föt fyrir daginn?
„Nei, ekki er nú hægt að segja það. Ég geng eig-
inlega bara í fötum frá Ralph Lauren og
skóm frá Blundstone. Á birgðir af því
sama eða svipuðu.“
Notar þú einhverjar húðvörur?
„Veturinn fer ekki vel með húðina í
andlitinu, ég nota Pensím og svo krem
frá Weleda. Get illa verið án
rakspíra frá Issey Miyake.“
Hvað um hárið. Hvað gerir
þú til þess að það sé svona glansandi?
„Veit ekki hvað það er glansandi núorðið, hárið
á mér hefur tilhneigingu til að verða þurrt. Ég
þótti afar fagurhærður á yngri árum og held sem
betur fer hárinu að mestu leyti. En ég nota oftast
vörur frá Paul Mitchell og eitthvað sem heitir
Wax Works frá þeim til að krullurnar njóti sín
betur.“
Breyttist í
ungling í
veirunni
Egill Helgason er einn af skemmtilegustu mönnum Íslands. Hann
hefur unnið í fjölmiðlum síðan elstu menn muna en ég þekki hann
fyrst og fremst sem kaffivin minn af Kaffifélaginu á Skólavörðustíg.
Yfir kaffibollanum hef ég komist að því að Egill kaupir öll sín föt í
Ameríku og fer varla út úr húsi nema setja Penzím á andlitið.
Marta María | mm@mbl.is
Egill Helgason hefur verið tíður gest-
ur á skjám landsmanna síðan elstu
menn muna. Áður en sjónvarps-
vinnan hófst var hann blaðamaður.
Egill er aðdá-
andi Penzíms.
Skin Food frá
Weleda er ekki
bara vinsælt hjá
stjörnunum úti í
heimi heldur hjá
Agli Helgasyni.
Ralph Lauren er
í sérlegu uppá-
haldi hjá Agli.