Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 20
standa með sér. Setningin „þú ert svo dugleg“ hefur einnig margræða merkingu. Hún getur verið lamandi skipun um endalausan dugnað sem við upplifum öll sem kvöð en svo er hún vel meint hrós og viðurkenning.“ Hvernig sérðu þessar breytingar á stöðu kvenna? ,,Það eru forréttindi að fæðast á Íslandi hvað varðar stöðu kynjanna. Víða í vestrænu samfélagi er jafnt og þétt unnið að jafnrétt- ismálum en ég held við gerum okkur ekki grein fyrir hversu mikilla forréttinda við njótum og að við getum glatað því sem hefur áunnist á örstuttum tíma. Mörg verka minna tala inn í jafnréttisbaráttuna sem mér ber ljúf skylda til. Ég bjó á Ítalíu og dvel mikið í Mið-Evrópu og sé þar hversu langt er í land. Mentun kvenna og fjárhagslegt sjálfstæði eru grundvall- aratriði, hvar sem er í heiminum.“ Alin upp við að taka ábyrgð á eigin hamingju Af hverju skiptir sjálfstæði þig svona miklu máli? „Ég held þetta liggi í skapgerðinni. Svo er ég alin upp innan um sterkar kven- en líka karlfyrirmyndir. Foreldrum mínum þótti sjálfsagt að ég væri sjálfstæð og að ég réði öllu um mitt eigið líf. Það var einhvern veginn aldrei spurning. Ég var sautján ára þegar ég ákvað að leggja fyrir mig myndlist. Ég tilkynnti það bara yfir hádegismatnum og það var ekkert rætt frekar. Svarið var bara „já góða mín, gerðu það.“ Foreldrar mínir voru í góðu hjónabandi og ég skynjaði aldei valdabaráttu heldur djúpa virðingu og vináttu þeirra á milli.“ Fyrir hvað var þér hrósað í æsku? „Ég fékk hrós fyrir að vera góð. Foreldrar mínir bjuggu bæði við heilsubrest og það mótaði mig mikið. Ég komst ung að því að hamingjan fólst í því að búa til gæðastundir og njóta þess að vera saman. Það er ekki sjálfsagt mál að vera hraustur og fá að vera innan um fólkið sitt. Foreldrar mínir voru glatt fólk og skapgott að eðlisfari og lögðu mér skýra lífsreglu sem fólst í því að ég ein bæri ábyrgð á hamingju minni. Ég gæti ekki stjórnað því sem gerðist en ég gæti stýrt viðbrögðum mínum. Þau bjuggu sjálf yfir sterkri trúarsannfæringu og kenndu mér að treysta guði og nota bæn- ina. Grunnur sjálfstæðisins liggur í þessu trausti að maðurinn stendur einn en þó ekki. Ég vona að ég miðli þessu til minna eigin barna. Mér finnst sjálfsagt að þau velji sína framtíð sjálf og fylgi eigin sannfæringu.“ Þegar þú teiknar mannslíkamann, ertu þá með lifandi mód- el? „Já alltaf. Ég teikna mikið í Myndlistaskóla Reykjavíkur þar sem módeltímar bjóðast. Fyrir mér er mikilvægt að hafa lif- andi módel, tíminn sem maður hefur til að teikna skiptir máli og nálægðin við lifandi manneskju hefur áhrif. Ég hef teiknað módel frá unglingsárum þegar ég var í Myndlistaskólanum á Akureyri og teikningin verður samgróin manni eins og and- ardráttur. Ég skissa mikið og leik mér. Þær teikningar eru ómeðvitaðri og ég nota þær mikið í saumaverkunum. Að teikna fólk er að nálgast mennskuna í lífinu, allar tilfinningar og reynsla sem maðurinn býr yfir liggja í formi og línu líkamans og er jafn erfitt að nálgast og það er heillandi. Það er hægt að segja allt um manneskjuna í nokkrum línum eins og í ljóði.“ Hvað ertu að fást við núna? „Ég vinn við nokkur verk í einu gjarnan í mismunandi tækni eins og að sauma á striga, blönduð tækni, teikna, mála og fleira. Það er ákveðin hvíld í að geta skipt um verk til að vinna í og oft fara verkin að tengjast sín á milli. Að vinna í ákveðinni tækni kallar á einbeitingu sem leiðir af sér annað verk, sem svo aftur leiðir að því næsta. Það er vinnan sjálf og forvitnin sem leiðir af sér fleiri verk. Þessi öldufaldur sem skapast og felst í vinnunni sjálfri er orkuspretta nýrra hugmynda og vinnu þar sem leiðin er takmarkið og lokaniðurstaða er ekki til.“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Maríu-styttan hennar Kristínar fékk nýtt útlit með litnum Kristín sem fæst í Litavali. Dagsbirtan er falleg í stofunni enda gluggarnir stórir og vísa í suður. Kristín lét byggja stórt rými við húsið sitt þar sem hún er nú með vinnusvæði og verkstæði sem rúmar hana og verkin hennar sem eru þó nokkuð mörg heima í vinnslu. Kristín leggur mikið upp úr því að hafa gott útsýn. Hún veit fátt skemmtilegra en að bjóða góðu fólki í gómsætan mat. Matarstellið er frá listakonunni Margréti Jónsdóttur. 20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.