Morgunblaðið - 05.05.2021, Page 34
S
ólveig Andrea Jónsdóttir
gengur rakleitt til verks og
er vanalega með nóg á sinni
könnu. Þannig hafa hlutirnir
verið lengi hjá henni.
Hún veit fátt skemmti-
legra en að hanna fallegt
húsnæði þó flugfreyjustarfið
og ferðalög komi þar strax á eftir. Síðan elskar
hún að vera með fjölskyldunni sem hún segir
bjargið sem við stöndum á og stundum ljósið í
myrkrinu. Reynslan hefur kennt henni að mað-
ur ætti aldrei að fara í gegnum lífsins ólgusjó
einn á báti.
Sólveg hefur einstakt lag á því að halda mörg-
um boltum á lofti. Hæfni til þess kom fljótt í ljós
og ekki síst eftir að hún eignaðist fyrsta barnið
sitt, dótturina Guðrúnu Andreu Sólveig-
ardóttur, einungis fimmtán ára að aldri.
Stærsta verkefnið að missa þá sem maður
elskar
Sólveig er gift Hilmi Víglundssyni og eiga
þau tvö börn saman, þau Heklu Rán og Víking
Rafns. Þó að Hilmir sé ekki faðir Guðrúnar
Andreu er hann góður félagi og stuðningur við
hana.
Foreldrar Sólveigar þau Jón Rafns Ant-
onsson og Guðrún Clausen hafa alltaf leikið
stórt hlutverk í lífi Sólveigar sem gekk í gegn-
um erfiðasta verkefnið sitt til þessa fyrir tveim-
ur árum þegar faðir hennar veiktist skyndilega
og dó. Þegar faðir hennar lést höfðu foreldrar
hennar verið kærustupar í rúm fimmtíu ár og í
hjónabandi í ein ellefu ár. Þau voru þannig ást-
fangin að það smitaði yfir í allt sem þau tóku sér
fyrir hendur.
,,Þetta er það erfiðasta sem ég hef farið í
gegnum. Að eignast barn ung er ekkert miðað
við það að missa einhvern sem manni þykir
svona vænt um. Pabbi sagði alltaf að börn væru
blessun og hlutirnir gætu verið verri. Enda vildi
hann eignast fullt af börnum og við litum alltaf
svo á að þegar Guðrún Andrea fæddist þá hefði
pabbi verið einu skrefi nær draumi sínum.
Hann var stór hluti af lífi okkar allra og þegar
hann kvaddi okkur skyndilega þá sagði Hilmar
maðurinn minn að hann hefði ekki einungis
misst tengdapabba sinn heldur einnig sinn
besta félaga. Þannig var pabbi.“
Guðrún Clausen starfaði alla tíð sem flug-
freyja og er hún dóttir Holgers Peters Clausen
kaupmanns og Sólveigar Clausen kaupkonu svo
ferðalög og viðskipti voru henni í blóð borin. Jón
Rafns menntaði sig á erlendri grund og ferðað-
ist mikið með eiginkonu sinni svo að þegar Sól-
veig varð fimmtán ára vildu þau endilega gefa
henni færi á að kynnast heiminum betur og
læra nýtt tungumál. Þau fundu góðan skóla fyr-
„Börn eru alltaf
blessun sama hvernig
þau verða til“
Lífið er ekki einfalt en við þurfum ekki að fara í gegnum það ein, að mati Sólveigar Andreu Jónsdóttur innanhússarkitekts
sem eignaðist fyrsta barnið sitt fimmtán ára að aldri eftir að hafa verið í málaskóla í Bretlandi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sólveig og Hilmir ásamt börnum,
tengdasyni og barnabörnum. Guðrún
Clausen er ung og glæsileg langamma.
5 SJÁ SÍÐU 36
Sólveig Andrea Jónsdóttir
innanhússarkitekt á fallegt
heimili í Garðabænum.
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021