Morgunblaðið - 05.05.2021, Síða 39

Morgunblaðið - 05.05.2021, Síða 39
„Um 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki en það er þó hægt,“ segir hún. „Spurðar af hverju sögðu konurnar margs konar tilfinningar sem fylgdu hárlosinu, sumar sögðust leiðar, aðrar fundu fyrir kvíða og áhyggjum og skammast sín og margar vissu ekki hvert best væri að leita og fá upplýsingar.“ En hvað er hárlos? „Lífsferill hárs er einfaldur, það vex, dettur af og nýtt hár tekur að vaxa. Langoftast detta hárin af jafnt og þétt og vaxa sömuleiðis. En hárlosi er almennt hægt að skipta í tvennt, það að missa hár og fá það aftur og/ eða missa hár og fá það ekki aftur, það kallast skallamyndun. Þættir sem ráða hárlosi geta verið margs konar s.s. erfðir, hormónavandamál og öldrun. Eins geta áföll valdið skyndilegu hárlosi, slys og ýmsir sjúkdómar og meðferðir við þeim, t.d. geisla- eða lyfjameðferðir. Við mikil veikindi eða álag getur hárlos orðið meira en ella. Þetta sést hjá þeim sem hafa veikst alvarlega. Hárlosið verður þó oft ekki beint í kjölfar veikind- anna, heldur 3-6 mánuðum seinna. Dæmi um kvilla sem geta valdið hárlosi er járnskortur og truflun á starfsemi skjaldkirtils. Öðru máli gegnir ef hárlos dreifist ójafnt um höfuðið, þannig að há kollvik myndist eða skallatungl. Í þeim tilvikum ætti viðkomandi að leita læknis og ef um konu er að ræða að láta athuga hormónastarfsemina. Þá getur hárlos verið aukaverkun sumra lyfja. Hárlos margra tengdist lífsstíl og öðru tengdu lífsferlinum eins og meðgöngu,“ heldur Fríða Rut áfram. „Hárið er oft óvenjuþykkt og ræktarlegt á meðgöngu en u.þ.b. hálfu ári eftir fæðingu verður mikið hárlos og hárið rytjulegt. Breytingar á hormónum og þá sérstaklega estrógeni sem hefur þau áhrif að engin hár falla heldur bætast í sífellu við ný í hársverðinum meðan á meðgöngu stendur. Eftir fæðingu ganga þessi hormón til baka og við missum mikið af meðgönguestró- geninu. Það góða við þessa tegund af hárlosi er að hún er tímabundin. Hægt að að örva hárvöxt Fríða Rut segir að það sé ýmislegt sem hægt sé að gera til að örva hárvöxt. „Hágæðahárvörurnar Kérastase Paris sem eru í eigu L´Oréal Group setti nýverið á markað sérhannaða línu sem hjálpar til við að sporna gegn hárlosi. Línan samanstendur af sjampói, næringu, djúpnæringu og sex vikna meðferð í formi dropa sem notaðir eru heima fyrir til að vinna á hárlosi og styrkja hár og hársvörð sem er eitt það mikilvægasta í meðferðinni. Droparnir eru notaðir daglega og settir í hársvörðinn til að koma í veg fyrir að kollagen herðist og að hárið falli. Einnig inniheldur línan hitavörn til að verja hárið ásamt fagmeðferð sem hægt er að fá á Kérastase-hár- greiðslustofum þar sem hár og hársvörður er hreinsað vel með sérstöku dufti sem blandað er í sjampó til að ná öllum umhverfisþáttum, efna- leifum og þess háttar, úr til að hefja meðferð við hárlosi. Rannsóknardeild Kérastase sýndi fram á að með því að meðhöndla hárlos og nota línuna saman fundu 93,3 % þátttakenda mikinn mun. Hárið brotnaði síður og hárlos varð minna.“ Mælt er með samhliða notkun á sjampó og næringu að nota ávalt daglega dropana en þá þarf ekki að nota samhliða hárþvotti heldur mega þeir fara í hárið hvenær sem er hvaða tíma dags í blautt, þurrt, hreint eða óhreint aðalmálið er notkun þeirra leggur Fríða á með áherslu. Fríða Rut segir að gott sé að vinna að því að nota sérstaka sérhannaða línu sem er mild og með það í huga að vinna á hárlosi til að draga úr því eins og hægt er. Mikilvægt er að taka inn vítamín og steinefni sem örva hárvöxt. Eitt af mikilvægasta sem hárið þarf er bíotín til að halda bæði húð og hári heilbrigðu en bíótín örvar hárvöxt. „Þá er kísill mikilvægt steinefni fyrir hárið og einnig hafa kollagen-duftblöndur reynst vel. Fitusýrur fyrirbyggja þurrk bæði í hársverði og hárinu sjálfu og B-vítamín eru mikilvæg til að halda hárvexti og hári heilbrigðu. Við hárlosi mæli ég með inntöku Sugarbearhair sem inniheldur hátt hlutfall bíótíns ásamt öllum þeim vítamínum sem þarf til að stuðla að heilbrigðu hári,“ segir hún að lokum. Fyrir nánari upplýsingar www.regalo.is Glímir þú við hárlos? Yfir 88% kvenna segjast hafa glímt við hárlos á lífsleiðinni og af þeim eru um 40% í kringum þrjátíu og fimm ára aldurinn. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo ehf. heildsölu, segir að tilfinningarnar sem vakna hjá konum við hárlos séu margvíslegar og áhyggjur séu algeng- astar. Hjá Kérastase Paris eru til meðferðir við hárþynningu fyrir bæði kynin og eins hármeðferð við hárlosi sem heitir Kérastase Genesis. Auglýsing

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.