Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 39
„Um 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla
það ekki en það er þó hægt,“ segir hún.
„Spurðar af hverju sögðu konurnar margs konar
tilfinningar sem fylgdu hárlosinu, sumar sögðust
leiðar, aðrar fundu fyrir kvíða og áhyggjum og
skammast sín og margar vissu ekki hvert best
væri að leita og fá upplýsingar.“
En hvað er hárlos? „Lífsferill hárs er einfaldur,
það vex, dettur af og nýtt hár tekur að vaxa.
Langoftast detta hárin af jafnt og þétt og vaxa
sömuleiðis. En hárlosi er almennt hægt að skipta
í tvennt, það að missa hár og fá það aftur og/
eða missa hár og fá það ekki aftur, það kallast
skallamyndun. Þættir sem ráða hárlosi geta
verið margs konar s.s. erfðir, hormónavandamál
og öldrun. Eins geta áföll valdið skyndilegu
hárlosi, slys og ýmsir sjúkdómar og meðferðir
við þeim, t.d. geisla- eða lyfjameðferðir. Við mikil
veikindi eða álag getur hárlos orðið meira en ella.
Þetta sést hjá þeim sem hafa veikst alvarlega.
Hárlosið verður þó oft ekki beint í kjölfar veikind-
anna, heldur 3-6 mánuðum seinna. Dæmi um
kvilla sem geta valdið hárlosi er járnskortur og
truflun á starfsemi skjaldkirtils. Öðru máli gegnir
ef hárlos dreifist ójafnt um höfuðið, þannig að há
kollvik myndist eða skallatungl. Í þeim tilvikum
ætti viðkomandi að leita læknis og ef um konu er
að ræða að láta athuga hormónastarfsemina. Þá
getur hárlos verið aukaverkun sumra lyfja.
Hárlos margra tengdist lífsstíl og öðru tengdu
lífsferlinum eins og meðgöngu,“ heldur Fríða Rut
áfram. „Hárið er oft óvenjuþykkt og ræktarlegt
á meðgöngu en u.þ.b. hálfu ári eftir fæðingu
verður mikið hárlos og hárið rytjulegt. Breytingar
á hormónum og þá sérstaklega estrógeni sem
hefur þau áhrif að engin hár falla heldur bætast í
sífellu við ný í hársverðinum meðan á meðgöngu
stendur. Eftir fæðingu ganga þessi hormón til
baka og við missum mikið af meðgönguestró-
geninu. Það góða við þessa tegund af hárlosi er
að hún er tímabundin.
Hægt að að örva hárvöxt
Fríða Rut segir að það sé ýmislegt sem hægt sé
að gera til að örva hárvöxt. „Hágæðahárvörurnar
Kérastase Paris sem eru í eigu L´Oréal Group
setti nýverið á markað sérhannaða línu sem
hjálpar til við að sporna gegn hárlosi. Línan
samanstendur af sjampói, næringu, djúpnæringu
og sex vikna meðferð í formi dropa sem notaðir
eru heima fyrir til að vinna á hárlosi og styrkja
hár og hársvörð sem er eitt það mikilvægasta
í meðferðinni. Droparnir eru notaðir daglega
og settir í hársvörðinn til að koma í veg fyrir
að kollagen herðist og að hárið falli. Einnig
inniheldur línan hitavörn til að verja hárið ásamt
fagmeðferð sem hægt er að fá á Kérastase-hár-
greiðslustofum þar sem hár og hársvörður er
hreinsað vel með sérstöku dufti sem blandað er
í sjampó til að ná öllum umhverfisþáttum, efna-
leifum og þess háttar, úr til að hefja meðferð við
hárlosi.
Rannsóknardeild Kérastase sýndi fram á að með
því að meðhöndla hárlos og nota línuna saman
fundu 93,3 % þátttakenda mikinn mun. Hárið
brotnaði síður og hárlos varð minna.“ Mælt er
með samhliða notkun á sjampó og næringu að
nota ávalt daglega dropana en þá þarf ekki að
nota samhliða hárþvotti heldur mega þeir fara í
hárið hvenær sem er hvaða tíma dags í blautt,
þurrt, hreint eða óhreint aðalmálið er notkun
þeirra leggur Fríða á með áherslu.
Fríða Rut segir að gott sé að vinna að því að
nota sérstaka sérhannaða línu sem er mild og
með það í huga að vinna á hárlosi til að draga
úr því eins og hægt er. Mikilvægt er að taka
inn vítamín og steinefni sem örva hárvöxt. Eitt
af mikilvægasta sem hárið þarf er bíotín til að
halda bæði húð og hári heilbrigðu en bíótín örvar
hárvöxt. „Þá er kísill mikilvægt steinefni fyrir
hárið og einnig hafa kollagen-duftblöndur reynst
vel. Fitusýrur fyrirbyggja þurrk bæði í hársverði
og hárinu sjálfu og B-vítamín eru mikilvæg til að
halda hárvexti og hári heilbrigðu. Við hárlosi mæli
ég með inntöku Sugarbearhair sem inniheldur
hátt hlutfall bíótíns ásamt öllum þeim vítamínum
sem þarf til að stuðla að heilbrigðu hári,“ segir
hún að lokum.
Fyrir nánari upplýsingar www.regalo.is
Glímir þú við
hárlos?
Yfir 88% kvenna segjast hafa glímt við hárlos á lífsleiðinni og af þeim eru
um 40% í kringum þrjátíu og fimm ára aldurinn. Fríða Rut Heimisdóttir,
hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo ehf. heildsölu, segir að tilfinningarnar
sem vakna hjá konum við hárlos séu margvíslegar og áhyggjur séu algeng-
astar. Hjá Kérastase Paris eru til meðferðir við hárþynningu fyrir bæði kynin
og eins hármeðferð við hárlosi sem heitir Kérastase Genesis.
Auglýsing