Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 49
eins og áföllin dynji bara endalaust á fólki. En veistu að ég verð
samt að segja að þetta er áhugaverðasta fólkið sem ég þekki.
Maður veit það bara sjálfur. Ég þroskaðist til dæmis ekkert
fyrr en eftir að ég varð 35 ára. Eða mér finnst það. Mér finnst
ég hafa verið hálfgerður krakki fram að því. Þroskinn kemur
ekki fyrr en maður vinnur úr og lærir af áföllum lífsins, nýtir
þau til að fá aðra sýn á lífið, aukinn skilning og meiri samkennd
og æðruleysi. Þá fyrst getur maður litið á það sem blessun að
lífið hafi látið mann fá erfið verkefni. Þegar maður verður fyrir
svona þá er tvennt í stöðunni: Ætlar maður að láta áföllin buga
sig eða ætlar maður að reyna að standa í lappirnar og láta þau
efla sig? Einhver sagði við mig að sama hversu ljótur, grimmur
eða erfiður atburðurinn er … til að láta hann ekki buga sig þá
verður maður að reyna að sjá eitthvað jákvætt við hann. Þú
verður að finna út hvernig erfiðir atburðir geta gefið þér styrk.
Það er hægt að sjá og finna styrk í öllu sem hefur komið fyrir
mann. Stundum líða reyndar mörg ár þar til maður áttar sig á
því að hann leynist þarna í öllum erfiðleikunum en það gerist
þegar maður er tilbúinn til að sjá það.“
Embla segir að öll árin frá því hún var að vinna sig upp í
stúdentinn og þar til hún eignaðist Þór og síðar Kolbrúnu, þá
hafi hún ekki gert annað en að smána sjálfa sig og tala sig
niður.
„Mér fannst áföllin hafa veikt mig og gert mig að ómennt-
uðum svörtum sauði. Ég var aldrei nógu góð í eigin huga og var
með mikla fullkomnunaráráttu.
Þurfti að vera mest og best í öllu
og fá hæstu einkunnirnar. Ég var
heltekin af þessum tilfinningum
sem breyttust ekki fyrr en ég átti
börnin mín og fór út í nám. Nú eru
átta ár liðin frá því ég kom aftur til
baka úr náminu og mér hefur tek-
ist að sjá fyrir sjálfri mér og börn-
um mínum með því sem mér finnst skemmtilegast að gera. Ég
er orðin 42 ára og mér finnst ég fyrst núna vera byrjuð að
blómstra, en ég er sannfærð um að þessi innri blóm hefðu aldr-
ei sprottið hefði ég ekki fundið mína leið úr myrkrinu í gegnum
listina mína,“ segir þessi kraftmikla, heillandi og hugrakka
kona að lokum.
Hér er Embla
á góðri stundu
ásamt föður sínum.
„Seinna kom svo í ljós
að ofheyrnirnar
stöfuðu af svefnleysi
því barnið hafði varla
sofið í marga mánuði.“
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 49
NÝTT
Dr. Hauschka Ísland
FLOWER POWER SINCE 1967
Hinn mikli kraftur blómannna hefur verið undirstaða í snyrtivörunum okkar í yfir 50 ár.
Flower Power línan samanstendur af þrem léttum fljótandi dagvökvum:
Balancing Day Lotion fyrir feita óhreina og blandaða húð.
Soothing Day Lotion fyrir húð með roða og háræðaslit.
Revitalizing Day Lotion fyrir föla og þurra húð.