Morgunblaðið - 05.05.2021, Page 50

Morgunblaðið - 05.05.2021, Page 50
J enna Huld fær að jafnaði margar spurningar frá skjólstæðingum sínum sólvarnir. Landsmenn virðast vita mik- ið um sólina en sumar staðhæfingar eru á kreiki sem eru ekki vísindalega sam- þykktar. Eitt af því sem Jennu Huld finnst mikilvægt að fólk viti er að sólvarnir eru góðar þó þær séu ekki fullkomnar. Það þýðir því lítið að smyrja á sig sólvörn og vera svo allan daginn í sólinni. „Það á að nota sól- varnir sem viðbót við sól- hlífar, klæðnað, sólhatt eða derhúfu. Margir trúa því að það sé óhætt að liggja í sólinni ef þeir bera á sig reglulega sól- arvörn. Það er alls ekki rétt og mik- ilvægt að gæta hófs í sólinni eins og í svo mörgu öðru. Reyn- ið að forðast sólina yfir miðjan daginn þegar hún er sem sterk- ust og verið í skugga. Mikilvægt er að smyrja sólarvörn á svæði sem þú getur ekki dulið með klæðnaði, eins og andlit og handarbök.“ Mælir alltaf með notkun sólvarna Er sólvörn með hærri SPF betri sólvörn? „Það er rétt að vissu leyti. Það er ekki svo mikill munur á SPF 30 og 50 sólarvörn ef hún er borin á í þykku lagi. Þá verndar sólarvörn með SPF 30 um 96-97% gegn geislum sól- arinnar á meðan sólarvörn með SPF 50 vernd- 50 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 www.gilbert.is Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum við okkur í úrsmíði, hönnun og framleiðslu úra Clarins UV Plus Anti -Pollution SPF 50 er nýjasta and- litsvörnin frá Clarins. Hún viðheldur og varðveitir æskuljómann. Fæst í Hagkaup. Það getur verið eftir- sóknavert að vera í sólinni en nauðsynlegt að vera með sólarvörn til að verja húðina. „Mikilvægt að smyrja sólarvörn á svæði sem ekki verður dulið með klæðnaði“ Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir hjá Húðlæknastöðinni, segir sólvarnir nauðsynlegar í sólinni í sumar. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Eucerin Dry Touch Sun Gel-sólvörnin SPF 50 fæst í Lyfju. Skin Ceuticals-sólvörnin er vara sem læknarnir mæla með. Fæst í Húðlæknastöðinni. ar um 98%. Rannsóknir hafa aftur á móti sýnt að það er bara um fjórðungur sem notar þykkt lag eins og á að gera og að flestir smyrja allt of þunnt á sig. Þá er stór munur á því að bera á sig sólarvörn með SPF 30 eða SPF 50, þar sem 50 verndar mun betur. Ég mæli alltaf með notkun á sólarvörn með SPF 50 eða hærri, aldrei lægri en SPF 30.“ Er sólvörn krabbameins- valdandi? „Þetta hefur verið hvimleið mýta undanfarin ár og skapað hræðslu og vantrú hjá fólki. Það eru engar vísindalegar rann- sóknir sem hafa sýnt fram á að innihaldsefnin í sólar- vörnum séu krabbameinsvald- andi. Vísindalegar rannsóknir hafa aftur á móti sýnt fram á ótvíræð tengsl á milli sól- arnotkunar og húðkrabbameina, það er að því meiri sólarnotkun því meiri hætta á húðkrabbameini á lífsleiðinni.“ Þurfum fimmtán mínútur á dag í sólinni Eins hefur borið á þeirri staðhæf- ingu að húðin geti ekki framleitt D- vítamín ef þú notar sólvarnir. Er það rétt? „Það er satt en mikilvægt er að hafa í huga að þú þarft alls ekki lang- an tíma í sólinni til að fá nægjanlegt D-vítamín yfir daginn. Rannsóknir hafa sýnt að 15 mínútur á dag án sól- arvarnar eru nægjanlegar fyrir D- vítamínframleiðslu. Nú í dag vitum við að sólin er ekki bara krabbameinsvald- andi heldur einnig ein af meginorsökum ótímabærrar öldrunar húðarinnar. Það er því mikilvægt að gæta hófs í nærveru sólarinnar til að viðhalda heilbrigði húðarinnar.“ Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir segir mikilvægt að nota góða sólvörn í sólinni. Ljósmynd/H Magasín Shiseido Expert Sun-sólar- vörnin SPF 50 er fyrir andlit og líkama. Kremið býr yfir húðbæt- andi eiginleikum og dregur úr litablettum. Fæst í Hagkaup. Vichy-sólvarna- stifti SPF 50 fæst í Lyfjaveri. La Roche-Posay Anthelios- sólvörn SPF 50 fæst í Lyfju. Evy Daily UV Face Mousse SPF 30 fæst í Beautybox.is. We Love Planet- sólvörnin er SPF 30. Hún fæst í Vistveru. Bella Aurora- sólvörnin er SPF 50. Hún fæst í Beautybox.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.