Morgunblaðið - 05.05.2021, Qupperneq 62
Það er ótrúlegt hvað góður ilmur getur gert mikið fyrir
lífið og tilveruna. Í leitinni að rétta ilminum er eðlilegt að
prófa sig aðeins áfram. Ilmur getur verið fullkominn í
búðinni en svo þegar heim er komið er miðnótan eða
grunnurinn ekki að falla í réttan farveg. Eftirfar-
andi ilmir eru að slá í gegn um þessar mundir.
Carner, Latin Lover Hair Perfume
Það er dásamlegt að vera með góðan ilm í
hárinu. Einn besti hárilmurinn um þessar mundir er
latínilmurinn frá Carner. Ilmurinn er ávanabindandi
og hentar bæði fyrir konur og karla.
Toppnótan er ítalskur bergamot, ylang lang Moheli og kín-
versk magnolía.
Miðnótan er fjóla, indversk jasmína og franskt ástríðublóm og
fjóla.
Grunnurinn er benzoin frá Laos, indversk patchouli og hvítur
musk-ilmur.
Lancôme, Idôle L’Intense
Þessi ilmur frá Lancôme kom á markað árið 2020. Ilmurinn er
fyrir nútímakonur sem þora að taka sér pláss en kunna að vera
leyndardómsfullar þegar það á við. Hann er ferskur og skemmti-
legur og lætur vita af sér. Fyrir frjálsu konuna sem veit sitt virði.
Toppnótan er beisk appelsína og mandarína.
Miðnótan er tyrknesk rós, egypsk jasmína og musk.
Grunnurinn er Patchouli, kasmírull, madagascar vanilla og sand-
alviður.
Versace, Dylan Turquoise
Nýjasti ilmurinn frá Versace, Dylan Turquoise, einkennist af
líflegum blóma og sítrusnótum með vott af viði og musk. Hailey
Bieber er andlit Versace og færir okkur innblástur frá ströndum Sik-
ileyjar á Ítalíu, þar sem blár himinn mætir kristalvatni og hafgolan gælir
við húðina. Ilmurinn er sumar í glasi.
Toppnótan er sítróna, mandarínur og bleikur pipar.
Miðnótan er guava, freesia, jasmín og cassis.
Grunnurinn er musk, cedarviður og trjáviður.
Dolce & Gabbana, Light Blue Forever
Nýjasta viðbót í Dolce & Gabbana er Light Blue
Forever. Ferskur og seiðandi sítrusilmur sem
fagnar fjölbreytileikanum og eilífri ást. Innblástur
ilmsins má rekja til Capri-eyja á Ítalíu, með frísk-
legum blóðappelsínu- og sítrónunótum sem undir-
strika mjúka musk og hlýjan sedruvið.
Toppnótan er blóðappelsína, sítróna og græn epli.
Miðnótan er appelsínublóm og hvít blóm.
Grunnurinn er cedar-viður, kasmír og hvítur musk-tónn.
Carolina Herrera, Very Good Girl
Kynþokkafullur sumarilmur fyrir konur sem glitra og heilla alla
þá sem á vegi þeirra verða. Ilmurinn einkennist af ferskum berjum,
rós og vetiver.
Toppnótan er Litchi-tómatur og rifsber.
Miðnótan er rós.
Grunnurinn er vanilla og vetiver-gras sem gefur sætan tré-
kenndan ilm með sítruskeim.
Guerlain, Aqua Allegoria, Flora Salvaggia
Thierry Wasser, einnig þekktur sem „nefið“ fyrir Guerlain,
heldur áfram að toppa sig. Hann heimsækir fallegustu garða
heims og tekur okkur með sér á lyktarskyninu, Flora Sal-
vaggia er hannaður til að fá aðra til að stoppa og snúa sér við.
Ilmurinn er heillandi og ávanabindandi með sínum fersku
villtu blómum, hunangsmelónutónum og umvafinn hvítri
musk.
Toppnótan er fjóla, villt blóm og melóna.
Miðnótan er jasmín og blóm af appelsínutré.
Grunnurinn er fjóla, hvít musk og iris-planta.
Aqua Alle-
goria, Flora
Salvaggia-
ilmurinn frá
Guerlain er
hannaður
fyrir þá sem
vilja stoppa
annað fólk
og fá það til
að snúa sér
við.
Light Blue Forever
frá Dolce & Gabbana
er ferskur og seið-
andi sítrusilmur sem
fagnar fjöl-
breytileik-
anum.
Dylan Tur-
quoise
frá Ver-
sace
minnir
á saltar
strend-
ur Sikil-
eyjar á Ítal-
íu. Ilmurinn er
sumar í glasi.
Það ættu
allir að
prófa að
ganga með
ilmvatn í
hárinu.
Carner
Latin Lover
Hair Perf-
ume er
engu líkt.
62 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Ljósmynd/Colourbox
Styrmir bjó um tíma í Helĺs Kitchen hverfinu á Manhattan í New York. Sá hluti borgarinnar er
einstaklega fagur og bjó hann við útsýni sem er engu líkt.
Þ
að er nóg að gera hjá honum
þessa dagana með alhliða ráðgjöf
þegar kemur að húsnæði ásamt
því að vera með löggilta fast-
eignasölu.
„Við aðstoðum erlend fyrirtæki og fagfjár-
festa hérlendis með leigumál og fjárfestingar
í fasteignum.“
Hvar býrðu núna?
„Ég bý á hæð á Kambsvegi 23 á Laug-
arásnum. Okkur fjölskyldunni líður með vel
þar. Það er stutt í allt og vinnuna okkar
beggja hjónanna. Eins kann ég að meta út-
sýni í allar áttir frá íbúðinni.“
Hvar hefur þú búið um ævina?
„Ég hef búið í Mílanó, London, New York
við sumarstörf á menntaskólaárum og Stokk-
hólmi í Svíþjóð í yfir sex ár þar sem ég rak
verslanir og ráðgjafarfyrirtæki í við-
skiptaþróun.“
Hvað gerir hús að góðu heimili?
„Er það ekki það mikilvægasta að öllum
líði vel og það sé góður andi í húsinu?
Samspil hönnunar og þæginda verður að
eiga sér stað. Ég er á því að við megum ekki
gleyma okkur í einhverju sem er fagurt en
fórna öllu notagildi og þægindum.“
Hver er skrítnasti staður sem þú hefur bú-
ið á?
„Ég myndi
segja að það sé
íbúð sem ég bjó
í um tíma í
Helĺs Kitchen á
Manhattan í
New York. Þar bjó ég með fjórum öðrum
strákum í lítilli íbúð.
Þar voru ávallt á sófa fyrir utan, rónar sem
við gáfum alltaf smá mat og bjór inni á milli.
Þeir pössuðu á móti húsið mjög vel. Við
eyddum miklum tíma uppi á þakinu, en við
þurftum að fara upp mjög hættulegan og
ryðgaðan brunastiga frá íbúðinni til að njóta
útsýnisins yfir hluta borgarinnar.“
En sá skemmtilegasti?
„Ég verð að segja húsið mitt í Eriksvik í
úthverfi Stokkhólms. Þar er strönd og bað-
staður við hliðina á raðhúsunum og báta-
bryggja fyrir neðan húsið.
Eriksvik er í Nacka sem er hluti af Skerja-
garðinum sem er ótrúlegur og nauðsynlegt
að vera með bát til afnota ef maður býr þar.“
Hvaða orðasamband lýsir stemningunni
heima hjá þér?
„Heima er þar sem hjartað er. Við elskum
að taka á móti gestum og erum frekar heima-
kær, þó svo að við ferðumst mjög mikið.
Eitt það besta við að ferðast mikið er til-
finningin að koma heim. Þá lærir maður að
meta upp á nýtt heimili sitt.
Ég hlakka til að fara að ferðast aftur þegar
faraldurinn er búinn. Við erum mjög dugleg
að skipta á heimilum við erlenda gesti í gegn-
um heimaskiptisíðu. Við höfum gert það í yfir
sex ár og höfum fyrir vikið ferðast miklu
meira og þá á persónulegri hátt. Við höfum
kynnst frábæru fólki um allan heim vegna
þessa og farið á staði sem við hefðum
kannski ekki hugsað um að fara á og eru
kannski fyrir utan hinar hefðbundnu slóðir.“
Styrmir Bjartur Karlsson, framkvæmda-
stjóri Croisette Real Estate Partner á
Íslandi, er giftur Vilborgu Sigurþórsdóttur
og á fjögur börn, þau Júlíu Dagbjörtu,
Kristófer Lár, Lísu Maríu og Birtu Ísold.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Instagram
Styrmir bjó um tíma í Eriksvik í úthverfi Stokkhólms. Eriksvik er í Nacka sem er hluti af Skerja-
garðinum en þar þykir ákaflega gaman að vera.
Styrmir Bjartur Karlsson
hefur búið um víða veröld.
Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir
Hefur eignast
góða vini í gegn-
um húsaskipti
Idôle
L’In-
tense-
ilmurinn
frá Lan-
côme er
ástríðu-
fullur og
seiðandi.
Eitt af því sem
einkennir konur með
góða sjálfsvirðingu er að
þær fjárfesta í dásam-
legum ilmum fyrir sig.
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Ástríðufullt sumar með
réttu ilmtónunum
Very Good
Girl-ilmurinn
frá Carolina
Herrera er
kynþokka-
fullur sum-
arilmur fyrir
konur sem
glitra.