Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 0. J Ú N Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 135. tölublað . 109. árgangur .
TELUR
MÖGULEIKA
ÍSLANDS GÓÐA
VANN ALLTAF
BEST UNDIR
ÁLAGI
TÓNLEIKAHALD
Á FULLT MEÐ
HAUSTINU
SÍÐASTA VAKTIN 10 ÍSLENSK TÓNLIST 6ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ 68
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Snæbjörn Sigurðarson, verkefna-
stjóri Íslandsþara, segir fulltrúa
fyrirtækisins farna að sjá til lands
varðandi fyrirhugaða verksmiðju.
Rætt hefur verið um að fjárfest-
ingin sé á þriðja milljarð króna.
Áformað er að hefja framkvæmdir
við verksmiðju á Húsavík næsta vor
og verður jarðhiti notaður til að
þurrka þarann við vinnsluna.
Úr þaranum verða unnin efni sem
ætlunin er að selja til framleiðslu á
fæðubótarefnum, snyrtivörum og
öðrum vörum. Varðandi söluhliðina
segir Snæbjörn að fulltrúar Íslands-
þara séu í samstarfi við erlenda aðila
sem hafi góðar tengingar á markaði í
Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.
Hagkvæmnin eftir að skýrast
Þór Sigfússon, stofnandi Sjávar-
klasans, segir mörg áhugaverð verk-
efni í gangi varðandi þaraskóga.
Raunar hlaupi fjöldi sprotafyrir-
tækja á þessu sviði á tugum.
„Það sem á eftir að koma betur í
ljós er hagkvæmnin og viðskiptalík-
anið í hverju tilfelli. Við erum til
dæmis gjarnan að keppa við þjóðir
sem búa við allt önnur launakjör.
Það horfir til betri vegar með mark-
aði en það er verulegur áhugi fyrir
slíkri ræktun og að sumu leyti kjör-
aðstæður á Íslandi. En við eigum
eftir að sjá fleiri viðskiptaáætlanir
um þararæktun sem leiða til þess að
fjárfestar komi að borðinu.“
Þór segir tækifærin mikil ef rétt
er á málum haldið. Þar með talið í
áframvinnslunni. Meðal annars sé
skilningurinn á þýðingu þara fyrir
kolefnisfótsporið og matvælaiðnað-
inn að aukast. „Þetta er ofurfæða en
varan verður engu að síður að vera
samkeppnishæf,“ segir Þór. »10
Milljarðar í þaravinnslu
- Íslandsþari farinn að sjá til lands í viðræðum við fjárfesta
- Stofnandi Sjávarklasans segir mikla gerjun á þessu sviði
Andleg líðan ungs fólks á aldrinum
18 til 34 ára virðist hafa þróast til
verri vegar á umliðnum mánuðum
samkvæmt lýðheilsuvísum embættis
Landlæknis, sem uppfærðir eru
mánaðarlega. Svarendum í þessum
aldurshópi í netkönnunum sem segj-
ast meta andlega heilsu sína sæmi-
lega eða lélega hefur farið fjölgandi
og voru í kringum 50% í aprílmánuði
sl. sem er hæsta hlutfallið í einum
mánuði á seinustu árum. Hlutfallið
hefur sveiflast nokkuð milli mánaða
eða frá um 36% og upp í 50% á síð-
ustu átta mánuðum.
OECD segir í nýrri skýrslu um
geðheilbrigðisþjónustu í aðildar-
löndunum að frá því að veirufarald-
urinn reið yfir hafi andleg vanlíðan
færst verulega í aukana, sérstaklega
meðal ungs fólks, og algengi kvíða
og þunglyndis jafnvel tvöfaldast í
sumum löndum. »40
Morgunblaðið/Eggert
Lýðheilsa Fleiri meta nú andlega
heilsu sína sæmilega eða lélega.
Andleg líðan
ungs fólks
versnar
Systurnar Sóldís Freyja og Dalrós María Mathie-
sen létu sig ekki vanta í pödduskoðun í Elliðaár-
dal í gær. Skoðunin var á vegum Háskóla Íslands
og Ferðafélags barnanna. Hún er liður í röð við-
burða sem kallast „Með fróðleik í fararnesti“ og
er samstarfsverkefni FÍ og HÍ. Pödduskoðunin
er allra vinsælasti viðburður fróðleiksraðar-
innar og tók fjöldi fólks þátt í henni. Eins og sjá
má voru systurnar afar áhugasamar.
Morgunblaðið/Eggert
Systurnar Sóldís og Dalrós skoðuðu pöddur í Elliðaárdal
_ Allt kapp verð-
ur lagt á að auka
umferðaröryggi
og fækka umferð-
arslysum í nýrri
stefnu umferðar-
öryggisáætlunar
fyrir árin 2023-
2037, sem nú er í
undirbúningi, en
árlegur kostn-
aður samfélags-
ins vegna umferðarslysa er nú met-
inn á um 50 milljarða króna.
Þetta kemur fram í grein sem Sig-
urður Ingi Jóhannsson samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra skrifar í
Morgunblaðið í dag. Telur hann með
markvissum aðgerðum og fræðslu
hægt að ná enn frekari árangri í um-
ferðaröryggi.
Áhersla á að fækka
umferðarslysum
Sigurður Ingi
Jóhannsson
FÁÐU BETRA
VERÐ Á MATVÖRU
MEÐ SAMKAUP
Í SÍMANUM
ÞÚ GETUR
NOTAÐ APPIÐ
Í ÖLLUM
VERSLUNUM
SAMKAUPA
Á LANDSVÍSU.
NÁÐU Í
APPIÐ OG
SAFNAÐU
INNEIGN.
TENERIFE & ALICANTE
JÚNÍSÓL VERÐ FRÁ:
39.900 KR.*
*FYRIR FLUG FRAM OG TIL BAKA TIL TENERIFE
WWW.UU.IS | 585 4000