Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 58

Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 ✝ Hulda fæddist á Hjartar- stöðum 8. maí 1943. Hún lést 19. mars 2021. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Magnússon, f. 30.9. 1908, d. 1984, og Sigríður Jóns- dóttir, f. 4.8. 1917, d. 2007, og bæði voru þau bændur á Hjartarstöðum. Hulda var þriðja í röð systkina en þau eru Smári Þrastar og Magnús (dó á öðru ári). Yngri eru Magnús Ólafur, Jóna Kristín, Árdís og Halldór. Hulda ólst upp á Hjart- arstöðum við almenn sveitastörf eins og þau voru í þá daga. Hún byrjaði ung að gæta systkina sinna og snúast fyrir foreldra sína. Hún fór snemma að vinna fyrir sér og var meðal annars á Seyðisfirði mestöll síldarárin í söltun. Hún fluttist síðan til Reykjavík- ur og árið 1965 gift- ist Hulda fyrri eig- inmanni sínum, Einari Gunnari Óskarssyni, en þau skildu eftir nokk- urra ára sambúð. Þau eignuðust son- inn Ragnar Inga 14.11. 1966. Ragnar kvæntist Ragnhildi Guðrúnu Sveinsdóttur og eiga þau saman börnin Einar Svein og Sylvíu Karen, síðar skildu þau. Frá fyrri sambúð átti Ragn- ar soninn Sigurð Halldór. Nú- verandi sambýliskona Ragnars er Gunnhildur Björk Jónasdóttir og hennar börn eru Stefán Örn, Jónas Birgir, Birgitta Ösp og Rebekka Rós. Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju í dag, 10. júní 2021, klukkan 13. Í örfáum orðum langar mig að minnst vinkonu minnar Huldu Sigurðardóttur, sem lést 19. mars sl. Aldrei óraði mig fyrir því að ég ætti eftir að setjast niður til þess að skrifa minningarorð um þig elsku Hulda mín, en svona er lífið, það veit enginn hver er næstur. Nú ert þú horfin inn í nóttina eilífu og eflaust hvíldinni fegin, því síð- ustu mánuðir voru búnir að vera þér og þínum þungbærir. Við vorum búnar að þekkjast lengi og vita hvor af annarri frá því við vorum ungar fyrir austan, enda fæddar á sama árinu hvor sínu megin undir tignarlegum Dyrfjöll- unum, þú Héraðsmegin. Þar eru ræturnar okkar sem við vorum svo stoltar af og þar slitum við barns- skónum og vel það. Oft grínuð- umst við með það síðar meir í góðra vina hópi að við værum dæt- ur Dyrfjallanna (Mikið til í því). Eftir að báðar fluttu suður smullum við algjörlega saman og áttum heima í sömu blokk í mörg ár. Hulda hafði góða nærveru og var einstaklega hjartahlý og ynd- isleg vinkona. Hún var algjör orku og gleðisprengja, sem elskaði lífið og tilveruna og tileinkaði sér það jákvæða sem okkur hinum sést svo oft yfir. það var erfitt að meðtaka það þegar þessi erfiði sjúkdómur læsti í hana klónum og hún hvarf okkur smátt og smátt. Ragnar sonur hennar sem hún kallaði oft klett- inn sinn (sem hann sannarlega var), kom með hana til mín eftir að hún hætti að keyra sjálf, en þá hafði ég ekki séð hana um tíma og fyrst þá gerði ég mér grein fyrir því hvað hún var orðin veik. Ég er svo þakklát fyrir þennan síðasta dag sem við áttum saman. Við spiluðum austfirska tónlist og snerumst hvor með aðra á gólfinu og skemmtum okkur hið besta. Hlógum og flissuðum eins og smá- stelpur – við kerlingarnar. Eftir að hún fór á Hrafnistu kom óþverrinn Covid og heim- sóknir bannaðar. Það var sárt að geta ekki heimsótt hana. Síðbúin kveðjuorð segja lítið, en einlægar þakkir eiga þau að færa fyrir yndislega vináttu og all- ar okkar góðu samverustundir. Minningarnar sem ég á um þig elsku Hulda mín senda hlýju í hjartað, þær geymi ég og gleymi aldrei. Eins og frænka mín segir í fallegu ljóði: Já - minningarnar ljúfu við gjarnan munum geyma þótt grálynd sýnist veröldin eins og margur veit, þá enn mun sólin skína og vorið vakna heima á verði standa Dyrfjöll um okkar gömlu sveit. Nú bið ég almættið að umvefja þig og ljóssins engla lýsa veginn þinn til bjartari og betri heima, svo kveð ég þig í bili mín kæra þegar minn tími kemur skemmt- um við okkur saman eins og á ár- um áður og tökum austfirska sveiflu undir ljúfum tónum Dyr- fjallapolkans. Elsku Ragnar og ástvinir allir, innilegar samúðarkveðjur. Ást og friður fylgi ykkur. Margrét Geirs (Magga). Hulda Sigurðardóttir ✝ Finnur Bárð- arson fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1953. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 23. maí síðastliðinn. Finnur var son- ur hjónanna Bárð- ar Ísleifssonar yfirarkitekts, f. 1905, d. 2000, og Unnar Arnórs- dóttur píanókennara, f. 1918, d. 2013. Finnur kvæntist árið 1986 Iréne Jensen, sem fæddist í Svíþjóð 23. mars 1953. Iréne er iðjuþjálfi og myndlist- armaður að mennt og hefur starfað sem myndlistarmaður frá árinu 1990. Bróðir Finns er Leifur, f. 1948, læknir, giftur Vilborgu Ingólfsdóttur hjúkrunarfræð- ingi. Dætur þeirra eru: Mar- grét María fiðlusmiður og verkfræðingur, gift Guðmundi við sjúkrahúsið í Kalmar. Ár- ið 1978 hóf hann nám í iðju- þjálfun við háskólann í Jön- köping í Svíþjóð og brautskráðist þaðan árið 1981. Finnur stundaði síðar framhaldsnám við háskóla- sjúkrahúsið í Gautaborg og sótti einnig sérnám í end- urhæfingu handarslysa og handarmeina við sjúkrahúsið í Malmö. Fyrst eftir útskrift sem iðjuþjálfi starfaði hann við sjúkrahús í Jönköping en eftir að hann og Iréne fluttu til Halmstad hóf hann störf við við sjúkrahúsið þar. Árið 1988 fluttu Finnur og Iréne heim til Íslands. Finnur starf- aði allan sinn starfsferil á endurhæfingardeild Landspít- alans en þar nýttist sérþekk- ing hans einstaklega vel. Finnur var mikill nátt- úruunnandi, um það vitna all- ar fallegu myndirnar sem hann málaði hvar sem hann fékk því viðkomið. Hann bjó einnig til stuttmyndir og gerði vídeóverk þar sem náttúran og margbreytileiki hennar var aðalviðfangsefnið. Útför Finns fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 10. júní 2021, klukkan 15. Pálssyni tónlistar- manni og dag- skrárgerðarmanni. Börn Margrétar Maríu og Guð- mundar eru Diljá Helga, Máni, María og Snorri. Inga María menningarfræð- ingur og verk- efnastjóri, gift Kristbirni Helga- syni eðlisfræðingi og verk- fræðingi. Börn Ingu Maríu og Kristbjarnar eru Júlía Helga, Jakob Leifur og Jóel Bene- dikt. Systkini Finns sem eru lát- in: Arnór, f. 1938, d. 1938, og Margrét, f. 1944, d. 1963. Finnur brautskráðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973. Að stúd- entsprófi loknu hóf hann nám í bókasafnsfræði við Háskóla Íslands en flutti fljótlega til Svíþjóðar og starfaði um tíma Elsku bróðir minn. Ég kveð þig með þessum ljóðum þínum sem birtust í Lesbók Morgunblaðsins árið 1996, Upphaf nýrra tíma, Vafn- ingsviður og Sumarnótt. Þar sem eldar brenna fer ekki allt forgörðum. Síðar er skarað í glæðum og heillegu safnað. Ótrauðir rennum við stoðum undir nýja tilveru og enn blása vindar og eldur er falinn að gömlum sið. (F.B.) Vafningsviðurinn óx ekki sumarið sem frændi dó. Fjörutíu árum áður gróðursetti hann nokkra kvisti undir suðurvegg. Um þessi undur voru ekki höfð mörg orð en það er ekki sami ylurinn í skjólinu sem fyrr. (F.B.) Lauflétt ætti lífið að vera á stundu sem þessari. Þegar vindurinn þagnar og varpfuglar stinga höfði undir væng. Og sólin lætur okkur eftir kvöldroðann um stund á meðan hún býr sig undir árrisulan dag. (F.B.) Þinn Leifur. Elsku Finnur minn, sá ljúfi maður, er nú genginn inn í dýrðina eilífu. Þar mun birtan umvefja hann alla daga. Finnur var enn þá unglingur, aðeins 14 ára, þegar við kynntumst. Þeg- ar ég lít yfir árin okkar birtast margvíslegar myndir. Finnur var mjög næmur, vissi alltaf hvað hann vildi en var að sama skapi viðkvæmur. Frá því hann var barn var hann oftast sjálf- um sér nógur, hafði frjótt ímyndunarafl og gat því dundað sér tímunum saman. Hann var einstaklega handlaginn, vand- virkur og þolinmóður og hafði jafnframt mikið verkvit. Því er ekki að undra að hann skyldi velja iðjuþjálfun sem sinn starfsvettvang. Þar var hann svo sannarlega á heimavelli og voru honum oft falin hvað vandasömustu verkefnin. Finn- ur hafði mikið listrænt innsæi, málaði fallegar myndir alveg frá barnsaldri bæði með vatns- litum og olíu. Hann naut sín vel úti í náttúrunni og þar fangaði hann landslagið, umhverfið og kyrrðina. Hann hafði líka unun af að taka vandaðar ljósmyndir, stuttar kvikmyndir og gerði mörg flott vídeóverk þar sem hann lék sér með myndefnið, birtuna og stemninguna. Finn- ur var mjög fljótur að tileinka sér allt sem laut að tölvum og forritun. Hann setti upp sér- staka heimasíðu, makki.is, sem risaveldið Macintosh vísaði á frá sinni heimasíðu. Af þessari síðu leiðbeindi hann öllum sem þangað leituðu og fékk miklar þakkir fyrir. Finnur var ljóð- elskur og samdi sjálfur ljóð. Finnur átti marga glaða daga en honum leið ekki alltaf vel. Hann þurfti að minnka við sig starfið fyrir þó nokkrum árum og síðan að láta alveg af störf- um. Eitt stærsta lán Finns í lífinu var að kynnast og kvænast Iréne. Hún stóð eins og klettur við hlið hans alla tíð og umvafði hann elsku sinni og kærleika. Finnur var heimakær, dundaði sér í tölvunni og dekraði við kettina, Nóa og síðar Dísu. Hann fór sjaldan á manna- mót síðustu árin og valdi stund- irnar vel út frá því hvernig hon- um leið hverju sinni. Á slíkum stundum var hann oft hrókur alls fagnaðar. Finnur var mér, Leifi, Mar- gréti Maríu, Ingu Maríu og fjöl- skyldum þeirra mjög kær og á hann stóran stað í hjörtum okk- ar allra. Ég kveð elsku hjartans mág minn, Finn Bárðarson, og bið góðan Guð að blessa minningu hans. Vilborg Ingólfsdóttir. Elsku Finnur frændi minn hefur kvatt. Þessi föðurbróðir minn átti alveg sérstakan stað í hjarta mér, og ég í hans, allt frá barnæsku. Við áttum nefnilega ýmislegt sameiginlegt, vorum bæði yngstu systkini og tengd- um við margbreytileikann í mannlegri tilveru. Við komumst oft fljótt á gott flug í samræð- um okkar um tilveruna. En við deildum líka einlægum áhuga á því sem gefur lífinu gildi og gleði; myndlist, köttum og mat- argerð. Í litlu bóhemalegu íbúðinni þeirra Iréne á Barónsstígnum eyddum við fjölskyldan þó nokkrum gamlárskvöldum. Þegar tengdafaðir minn lést fór ég að vera heima og halda mín eigin boð á gamlárskvöld en hélt – og held enn – í sama mat- seðil og Finnur og Iréne höfðu alltaf boðið upp á; steikta nautalund sem var látin hvíla þar til hún varð fullkomlega „rosa“ (bleik á sænsku), steikt- ar kartöflur, grænar ólífur, súrsaðan perlulauk og smág- úrkur. Áramótasósan fræga kórónar síðan máltíðina. Ég fór á Barónsstíginn á gamlársdag 2002 til að læra handtökin í sósugerðinni fyrir fyrstu veisl- una mína, ólétt að mínu fyrsta barni. Þeirri kunnáttu bý ég alltaf að síðan, en ég hringdi upp frá því oftast á Barónsstíg- inn á gamlársdag meðan ég var að elda og undirbúa kvöldið og við Finnur tókum stöðuna. Smám saman varð veislan hjá mér fjölmennari, en Finnur og Iréne áttu yfirleitt rólegri kvöld, voru stundum með ömmu, stundum með vinum og stundum bara tvö. Á einhverj- um tímapunkti skiptu þau líka úr nautalundinni yfir í hoisin- penslaða andabringu, sem var líka höfð „rosa“ ef mig minnir rétt. Sem hljómar líka ansi girnilega, kannski prófa ég þann rétt við tækifæri. Fyrir nokkru síðan sagði Finnur mér að það væri lag sem minnti hann alltaf á mig, lagið (The Girl With) Far Away Eyes með The Rolling Stones. Ég er glöð og þakklát fyrir að hafa fengið að vera stelpan hans með fjarlægu augun. Inga María Leifsdóttir. Finnur Bárðarson HINSTA KVEÐJA Á kvöldin berst keimur af pípureyk Finns inn um gluggann. Sé hann fyrir mér totta pípuna með olnbogann á svalahandriðinu og horfa á heiminn úr öðrum vinkli en mínum hérna niðri. Stundum í sólskini bankar hann hjá mér hneigir sig - að vana og segir: Má bjóða þér upp á svalir til mín. Og við sitjum saman með olnbogana á svalahandriðinu og skoðum veröldina frá sama vinkli. Gunnhildur Sigurjónsdóttir. Elskuleg tengda- móðir mín kvaddi þennan heim þann 10. mars sl. Þessi síðbúnu minningarorð ber upp í dag þann 10. júní, á degi sem hefði verið 94. afmælisdagur Elsu. Elsa, eða Elsa Dóa eins og hún var oft kölluð af sínu fólki, var skírð tignarlegu nafni sem kom Anna María Elísa- bet Þórarinsdóttir ✝ Anna María Elísabet, Elsa, eins og hún var allt- af kölluð, fæddist 10. júní 1927. Hún lést 10. mars 2021. Útför Elísabetar fór fram 22. mars 2021. frá ömmu hennar í Skógarnesi, síðar Stóra-Hrauni á Snæfellsnesi, og frá eldri systur sem dó barnung. Elsa var mann- eskja gleðinnar, hláturmild og fé- lagslynd og trygg sínu samferðarfólki. Hún var jafnframt hreinskilin og var óhrædd við að segja skoðun sína á mönnum og málefnum. Elsa var ætíð vel til höfð, smekklega klædd, með nýlagt hár og alltaf búin skarti og fylgihlutum. Eitt helsta áhugamál Elsu var útsaumur og afköstin eftir því og mörg falleg verk eftir hana sem prýða heimilin í fjölskyldunni. Ekki síðra áhugamál var spila- mennskan, hvaða nafni sem það nefndist, bridds, kani, lomber, skák, kapall og ekki síst fé- lagsvistin sem hún sótti í hin ýmsu félagsheimili og tók gjarn- an afkomendur með sér. Þá fannst henni gaman að kveða vís- ur og ljóð og tónlist var henni hugleikin, auk þess sem hún leysti krossgátur af sérstakri kostgæfni. Elsa var heimavinnandi hús- móðir, sem voru að mörgu leyti hennar forréttindi á sínum tíma, að gæta bús og barna á meðan Stefán var fjarverandi í fluginu. Hún var frábær kokkur og tert- urnar og bakkelsið í minnum haft, alltaf til nóg af því. Dýrmætar minningar eru af öllum ferðunum okkar Rósu með þeim Elsu og Stefáni til Dunedin í Flórída þar sem þau dvöldu löngum stundum á seinni árum í góðra vina hópi. Elsa naut þess að vera í sólinni, spilaði bingó, fór reglulega í sundleikfimi í lauginni og var í hattavinafélaginu Rauðu höttunum með konunum á svæð- inu. Þá spilltu ótal búðarferðir ekki fyrir. Síðasta árið var okkur öllum erfitt þar sem samkomubönn hömluðu annars tíðum heimsókn- um til Elsu, en yndislegt starfs- fólk á hjúkrunarheimilinu Eir sá til þess að hún hefði það sem allra best og megi þið hafa hjartans þakkir fyrir. Þá var gott að hún hafði Ipadinn sem Stebbi hafði keypt handa henni svo hún gat séð og talað við sína nánustu í gegnum Skype. Æðruleysið var hennar aðal og hún svaraði því iðulega til að hún hefði það svell- andi fínt. Þá er táknrænt að enda þessar línur á setningu sem hún viðhafði oft, „það er nefnilega það“. Elsku Elsa, hjartans þakkir fyrir allt og allt. Minningin lifir. Þinn tengdasonur, Óskar Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.