Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 72
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Skuggahverfið, kvikmynd leikstjór-
anna og hjónanna Jóns Einarson
Gústafssonar og Karolinu Lewicka
sem frumsýnd var í fyrra á RIFF,
Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, er nú loksins komin í almennar
sýningar hér á landi. Sýningin á
myndinni varð aðeins ein í fyrra út af
kófinu og hefur almennum sýningum
verið frestað margoft, að sögn Jóns.
Skuggahverfið er fyrsta kvikmynd
þeirra hjóna í fullri lengd og fer kan-
adíska leikkonan Brittany Bristow
með aðalhlutverkið en hún á ættir að
rekja hingað til lands. Þekktasti leik-
arinn er hinn velski John Rhys-Davies
sem hefur m.a. leikið í kvikmyndunum
um Hringadróttinssögu og af íslensk-
um leikurum má nefna Eddu Björg-
vinsdóttur, Kolbein Arnbjörnsson,
Ingu Maríu Eyjólfsdóttur og Atla
Óskar Fjalarsson.
Eins og titill myndarinnar gefur til
kynna er sögusvið myndarinnar
Skuggahverfið og á þeim tíma er góð-
ærið var í hámarki, árið 2007, með til-
heyrandi húsnæðisbólu. Bristow leik-
ur kanadíska konu, Mayu, sem erfir
hús ömmu sinnar í Reykjavík, konu
sem hún þekkti ekki og vissi ekki af.
Maya heldur til Íslands og verður
margs fróðari um rætur sínar og for-
tíðina og dularfullir atburðir eiga sér
stað.
Örlagavaldur
Tökur myndarinnar fóru fram í lok
árs 2018 og segir Jón að sagan og
handritið hafi verið lengi í vinnslu þar
á undan og þróast og breyst með tím-
anum. „Þetta var upphaflega saga sem
pabbi sagði mér af föður sínum, afa
mínum, sem hafði verið á sjó og átti
sex syni og þurfti að halda vinnunni á
bátnum. Þá veiktist amma mín svona
harkalega þannig að hann gat ekki far-
ið á sjóinn. Það var talið að hún myndi
ekki lifa af nóttina þannig að hann
varð eftir og einhver annar fékk pláss-
ið hans. Svo sökk togarinn,“ segir Jón.
Allt frá því hann heyrði þessa sögu
hafi hann verið að hugsa um þessa ör-
lagavalda í lífi fólks, sjóslysin. Þarna
hafi verið fjölskylda sem missti fyr-
irvinnuna, fjölskylduföðurinn. „Þetta
eru vangaveltur um hvað varð um hina
fjölskylduna,“ segir Jón og að út frá
þessu hafi sagan í handritinu spunnist.
„Við vorum alltaf heilluð af þessu fólki
sem fæðist í Ameríku en hefur þessi
sterku tengsl til Íslands en veit ekki al-
veg af hverju. Margir þurfa að koma
hingað og komast að því.“
Jón segir að inn í söguna blandist
rannsóknir og vangaveltur um hvaða
áhrif áföll hafi á næstu kynslóðir, áföll
sem erfist. „Út úr öllum þessum pæl-
ingum spratt sagan um þessa ungu
konu sem kemur til Íslands þegar
amma hennar deyr,“ útskýrir Jón.
Unga konan fái í arf hús í Skugga-
hverfinu og þurfi að ganga frá eigum
gömlu konunnar. Hana fer fljótlega að
gruna að glæpur hafi verið framinn.
Með sektarkennd í 50 ár
John Rhys-Davies leikur vin afa
Mayu, þann sem veiktist og afinn hljóp
í skarðið fyrir. „Hann hefur lifað með
sektarkennd í 50 ár og í framhaldi af
sjóslysinu veiktist amma Mayu á geði
og börnin voru tekin af henni. Það er
ekki sagt hreint út en í baksögunni
okkar hefur hann verið að passa þessa
gömlu konu í 50 ár, passa upp á hana.
Hann er með bréf frá afa Mayu sem
hann hefur reynt að koma til skila í 50
ár en hefur ekki getað það því amman
var andlega veik og vildi ekki taka við
því. Þegar hún deyr vilja verktakar
komast yfir húsið og sá hluti sögunnar
kemur úr því sem var að gerast hérna
í kringum 2007, þegar verktakar voru
að hrekja fólk úr húsum og í Skugga-
hverfinu sérstaklega. Þeir ætluðu að
rífa þau öll niður og byggja háhýsi í
staðinn og tókst það með sum hús og
út úr þessu kom barátta þar sem fólk
var að berjast fyrir því að vernda þessi
hús sem síðan endaði með því að
Reykjavíkurborg setti á þessa hundr-
að ára reglu,“ segir Jón og á þar við að
hús sem eru hundrað ára eða eldri séu
friðuð með lögum. Nú standi þar eftir
nokkur hús, yfir 100 ára gömul og sum
hver í mikilli niðurníðslu. Jón segir
þessar sögur allar koma úr íslenskum
veruleika og endurspegla hann á einn
eða annan hátt.
Finnur fyrir návist ömmu
Hinir framliðnu koma líka við sögu í
myndinni því Maya finnur fyrir ömmu
sinni heitinni, návist hennar. Jón segir
það þekkt fyrirbæri að fólk finni fyrir
návist sinna heittelskuðu í einhvern
tíma eftir andlát þeirra og þarna er
komið að trú Íslendinga á drauga og
hið yfirnáttúrulega. Hversu opnir Ís-
lendingar eru fyrir hugmyndum um
aðrar víddir, eins og Jón kemst að
orði. „Við erum sérstaklega opin fyrir
því og ég rannsakaði mikið draugasög-
ur þegar við vorum að skrifa þetta,“
segir hann og að handritið og myndin
hafi verið gerð með það í huga að ekki
væri alltaf ljóst hver væri lífs og hver
liðinn. Dæmi svo hver fyrir sig.
„Eins og þú ert búinn að heyra er
þetta algjörlega úr íslenskum upplif-
unarheimi og íslenskum raunveru-
leika,“ segir Jón að lokum um Skugga-
hverfið, eða Shadowtown eins og hún
heitir á ensku. Myndin verður sýnd í
Háskólabíói og Sambíóunum í Álfa-
bakka.
Úr íslenskum raunveruleika
- Sýningar eru hafnar á Skuggahverfinu - „Við vorum alltaf heilluð af þessu fólki sem fæðist í
Ameríku en hefur þessi sterku tengsl til Íslands,“ segir Jón Gústafsson, annar tveggja leikstjóra
Vestur-Íslendingur Brittany Bristow, aðalleikkona Skuggahverfisins, er kanadísk og á ættir að rekja til Íslands.
Í tökum Karolina Lewicka, annar leikstjóra myndar-
innar, og Kristin Fieldhouse kvikmyndatökustjóri.
Sjóaður Jón Gústafsson ræðir við velska leikarann Jon-
athan Rhys-Davies sem er margreyndur og þekktur.
Ljósmyndir/Gunnar Freyr Steinsson
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Sýning á verkum Rögnu Róberts-
dóttur verður opnuð í dag í i8 og er
það fjórða einkasýning hennar í
galleríinu sem hún sýndi fyrst í árið
1996. Sýning hennar nú er í þrennu
lagi, inni í galleríinu, fyrir utan það
má sjá útiverk og í þriðja lagi er
verk eftir Rögnu í Hljómskálagarð-
inum.
Um verk Rögnu segir í tilknningu
að þau séu rannsókn á ímynd, efn-
iskennd, tíma, náttúrufræði og sögu
byggingarlistar. Ragna sé líklega
best þekkt fyrir naumhyggjulega
skúlptúra og innsetningar sínar þar
sem hún notist við efni sem megi
finna víða í íslenskri náttúru svo sem
hraungrýti, salt, torf og leir. Á sýn-
ingunni í i8 má sjá verk sem Ragna
gerði snemma á níunda áratugnum
fram til dagsins í dag og endurvekur
hún verk sem annað hvort hafa aldr-
ei verið fullgerð eða glatast fyrir
löngu. Segir að greina megi ein-
kenni hennar sem listamanns í gegn-
um sýninguna alla, hina fínlegu og
nákvæmu tilfinningu fyrir formi og
efni.
Á sýningunni má m.a. sjá nýja inn-
setningu í tveimur hlutum sem
Ragna vann úr svörtum vikri úr
Heklu og í veggverkum sínum hefur
hún notast við ólík efni. Fyrir fram-
an galleríið hefur hún svo komið fyr-
ir þremur bronsplötum í stað gagn-
stéttarhellna og verkið fyrir vikið
orðið hluti af gangstéttinni og borg-
arlandslaginu. Í Hljómskálagarð-
inum má svo finna verk eftir Rögnu,
stíg sem hún gerði úr rauðum vikri
úr Seyðishólum sem urðu til við
sprengigos. „Inngrip listamannsins
villir leið frá skipulögðum göngu-
stígum í garðinum og líkt og brons-
plöturnar í gangstéttinni þá breytist
stígurinn stöðugt eftir því sem veg-
farendur ganga á vikrinum,“ segir í
tilkynningu.
Inngrip Stígur sem Ragna gerði úr rauðum vikri í Hljómskálagarðinum.
Sýnir í i8 og Hljómskálagarðinum