Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 72

Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 72
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Skuggahverfið, kvikmynd leikstjór- anna og hjónanna Jóns Einarson Gústafssonar og Karolinu Lewicka sem frumsýnd var í fyrra á RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykja- vík, er nú loksins komin í almennar sýningar hér á landi. Sýningin á myndinni varð aðeins ein í fyrra út af kófinu og hefur almennum sýningum verið frestað margoft, að sögn Jóns. Skuggahverfið er fyrsta kvikmynd þeirra hjóna í fullri lengd og fer kan- adíska leikkonan Brittany Bristow með aðalhlutverkið en hún á ættir að rekja hingað til lands. Þekktasti leik- arinn er hinn velski John Rhys-Davies sem hefur m.a. leikið í kvikmyndunum um Hringadróttinssögu og af íslensk- um leikurum má nefna Eddu Björg- vinsdóttur, Kolbein Arnbjörnsson, Ingu Maríu Eyjólfsdóttur og Atla Óskar Fjalarsson. Eins og titill myndarinnar gefur til kynna er sögusvið myndarinnar Skuggahverfið og á þeim tíma er góð- ærið var í hámarki, árið 2007, með til- heyrandi húsnæðisbólu. Bristow leik- ur kanadíska konu, Mayu, sem erfir hús ömmu sinnar í Reykjavík, konu sem hún þekkti ekki og vissi ekki af. Maya heldur til Íslands og verður margs fróðari um rætur sínar og for- tíðina og dularfullir atburðir eiga sér stað. Örlagavaldur Tökur myndarinnar fóru fram í lok árs 2018 og segir Jón að sagan og handritið hafi verið lengi í vinnslu þar á undan og þróast og breyst með tím- anum. „Þetta var upphaflega saga sem pabbi sagði mér af föður sínum, afa mínum, sem hafði verið á sjó og átti sex syni og þurfti að halda vinnunni á bátnum. Þá veiktist amma mín svona harkalega þannig að hann gat ekki far- ið á sjóinn. Það var talið að hún myndi ekki lifa af nóttina þannig að hann varð eftir og einhver annar fékk pláss- ið hans. Svo sökk togarinn,“ segir Jón. Allt frá því hann heyrði þessa sögu hafi hann verið að hugsa um þessa ör- lagavalda í lífi fólks, sjóslysin. Þarna hafi verið fjölskylda sem missti fyr- irvinnuna, fjölskylduföðurinn. „Þetta eru vangaveltur um hvað varð um hina fjölskylduna,“ segir Jón og að út frá þessu hafi sagan í handritinu spunnist. „Við vorum alltaf heilluð af þessu fólki sem fæðist í Ameríku en hefur þessi sterku tengsl til Íslands en veit ekki al- veg af hverju. Margir þurfa að koma hingað og komast að því.“ Jón segir að inn í söguna blandist rannsóknir og vangaveltur um hvaða áhrif áföll hafi á næstu kynslóðir, áföll sem erfist. „Út úr öllum þessum pæl- ingum spratt sagan um þessa ungu konu sem kemur til Íslands þegar amma hennar deyr,“ útskýrir Jón. Unga konan fái í arf hús í Skugga- hverfinu og þurfi að ganga frá eigum gömlu konunnar. Hana fer fljótlega að gruna að glæpur hafi verið framinn. Með sektarkennd í 50 ár John Rhys-Davies leikur vin afa Mayu, þann sem veiktist og afinn hljóp í skarðið fyrir. „Hann hefur lifað með sektarkennd í 50 ár og í framhaldi af sjóslysinu veiktist amma Mayu á geði og börnin voru tekin af henni. Það er ekki sagt hreint út en í baksögunni okkar hefur hann verið að passa þessa gömlu konu í 50 ár, passa upp á hana. Hann er með bréf frá afa Mayu sem hann hefur reynt að koma til skila í 50 ár en hefur ekki getað það því amman var andlega veik og vildi ekki taka við því. Þegar hún deyr vilja verktakar komast yfir húsið og sá hluti sögunnar kemur úr því sem var að gerast hérna í kringum 2007, þegar verktakar voru að hrekja fólk úr húsum og í Skugga- hverfinu sérstaklega. Þeir ætluðu að rífa þau öll niður og byggja háhýsi í staðinn og tókst það með sum hús og út úr þessu kom barátta þar sem fólk var að berjast fyrir því að vernda þessi hús sem síðan endaði með því að Reykjavíkurborg setti á þessa hundr- að ára reglu,“ segir Jón og á þar við að hús sem eru hundrað ára eða eldri séu friðuð með lögum. Nú standi þar eftir nokkur hús, yfir 100 ára gömul og sum hver í mikilli niðurníðslu. Jón segir þessar sögur allar koma úr íslenskum veruleika og endurspegla hann á einn eða annan hátt. Finnur fyrir návist ömmu Hinir framliðnu koma líka við sögu í myndinni því Maya finnur fyrir ömmu sinni heitinni, návist hennar. Jón segir það þekkt fyrirbæri að fólk finni fyrir návist sinna heittelskuðu í einhvern tíma eftir andlát þeirra og þarna er komið að trú Íslendinga á drauga og hið yfirnáttúrulega. Hversu opnir Ís- lendingar eru fyrir hugmyndum um aðrar víddir, eins og Jón kemst að orði. „Við erum sérstaklega opin fyrir því og ég rannsakaði mikið draugasög- ur þegar við vorum að skrifa þetta,“ segir hann og að handritið og myndin hafi verið gerð með það í huga að ekki væri alltaf ljóst hver væri lífs og hver liðinn. Dæmi svo hver fyrir sig. „Eins og þú ert búinn að heyra er þetta algjörlega úr íslenskum upplif- unarheimi og íslenskum raunveru- leika,“ segir Jón að lokum um Skugga- hverfið, eða Shadowtown eins og hún heitir á ensku. Myndin verður sýnd í Háskólabíói og Sambíóunum í Álfa- bakka. Úr íslenskum raunveruleika - Sýningar eru hafnar á Skuggahverfinu - „Við vorum alltaf heilluð af þessu fólki sem fæðist í Ameríku en hefur þessi sterku tengsl til Íslands,“ segir Jón Gústafsson, annar tveggja leikstjóra Vestur-Íslendingur Brittany Bristow, aðalleikkona Skuggahverfisins, er kanadísk og á ættir að rekja til Íslands. Í tökum Karolina Lewicka, annar leikstjóra myndar- innar, og Kristin Fieldhouse kvikmyndatökustjóri. Sjóaður Jón Gústafsson ræðir við velska leikarann Jon- athan Rhys-Davies sem er margreyndur og þekktur. Ljósmyndir/Gunnar Freyr Steinsson 72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Sýning á verkum Rögnu Róberts- dóttur verður opnuð í dag í i8 og er það fjórða einkasýning hennar í galleríinu sem hún sýndi fyrst í árið 1996. Sýning hennar nú er í þrennu lagi, inni í galleríinu, fyrir utan það má sjá útiverk og í þriðja lagi er verk eftir Rögnu í Hljómskálagarð- inum. Um verk Rögnu segir í tilknningu að þau séu rannsókn á ímynd, efn- iskennd, tíma, náttúrufræði og sögu byggingarlistar. Ragna sé líklega best þekkt fyrir naumhyggjulega skúlptúra og innsetningar sínar þar sem hún notist við efni sem megi finna víða í íslenskri náttúru svo sem hraungrýti, salt, torf og leir. Á sýn- ingunni í i8 má sjá verk sem Ragna gerði snemma á níunda áratugnum fram til dagsins í dag og endurvekur hún verk sem annað hvort hafa aldr- ei verið fullgerð eða glatast fyrir löngu. Segir að greina megi ein- kenni hennar sem listamanns í gegn- um sýninguna alla, hina fínlegu og nákvæmu tilfinningu fyrir formi og efni. Á sýningunni má m.a. sjá nýja inn- setningu í tveimur hlutum sem Ragna vann úr svörtum vikri úr Heklu og í veggverkum sínum hefur hún notast við ólík efni. Fyrir fram- an galleríið hefur hún svo komið fyr- ir þremur bronsplötum í stað gagn- stéttarhellna og verkið fyrir vikið orðið hluti af gangstéttinni og borg- arlandslaginu. Í Hljómskálagarð- inum má svo finna verk eftir Rögnu, stíg sem hún gerði úr rauðum vikri úr Seyðishólum sem urðu til við sprengigos. „Inngrip listamannsins villir leið frá skipulögðum göngu- stígum í garðinum og líkt og brons- plöturnar í gangstéttinni þá breytist stígurinn stöðugt eftir því sem veg- farendur ganga á vikrinum,“ segir í tilkynningu. Inngrip Stígur sem Ragna gerði úr rauðum vikri í Hljómskálagarðinum. Sýnir í i8 og Hljómskálagarðinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.