Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 4. SÆTI FYRIR FJÖLSKYLDUNA X-D SUÐVESTURKJÖRDÆMIGUDBJORG.IS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Okkur sýnist á öllu að strax eftir versl- unarmannahelgi fari allt á fulla ferð,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu. Vart hefur farið fram hjá mörgum að mikið er auglýst af tón- leikum og viðburðum á næstu vikum og mán- uðum. Afléttingar sam- komutakmarkana vegna kórónuveirunnar, gangur bólusetninga og aukinn fjöldi ferðamanna hefur fært líf í afþreyingariðn- aðinn að nýju. Ljóst er að margir hugsa sér gott til glóðarinnar og verður ef- laust hart barist um hylli landsmanna á þeim vett- vangi. Auk tónleika og annarra skemmtana er líf að færast í bókanir á söl- um fyrir ýmsar veislur og ráðstefnur. „Bókunarstaða Hörpu frá miðjum ágúst og til ársloka er orðin mjög þétt. Þar á meðal eru tón- leikar af öllum stærðum og gerðum og það er sér- staklega gleðilegt að stóru Eldborgar- tónleikarnir eru nú aftur að komast á dag- skrá. Við gerum ráð fyrir því að frá og með ágúst sé hægt að vera með fulla Eldborg í fyrsta sinn frá því í byrjun mars 2020,“ seg- ir Svanhildur. Mörg brúðkaup í sumar Hún segir að það sé sömuleiðis ánægju- legt að bókanir séu farnar að berast fyrir ráðstefnur og ýmsa alþjóðlega viðburði en þeim hefur ekki verið til að dreifa nema í streymi. „Svo verða hér veislur og árs- hátíðir. Bókunarstaðan er orðin mjög þétt en við erum þó ekki orðin fullbókuð. Það eru margar vistarverur í þessu húsi.“ Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela sem reka meðal annars Grand hótel, segir að landið sé sannarlega farið að rísa í bókunum á veislusölum. „Ég veit ekki hvað við verðum með mörg brúðkaup á Grand í sumar. Þau eru ansi mörg. Það er kominn góður kippur í bókanir fyrir fundi, ráðstefnur og veislur. Einhverjir dagar eru orðnir þéttir og jafnvel fullbókaðir. En við erum með marga sali og getum tekið við ansi miklu.“ Fjöldi stórtónleika á teikniborðinu Fljótleg yfirreið yfir viðburði á Tix.is sýn- ir að ansi margir ætla sér að halda stóra tónleika og viðburði í haust. Þar má sjá að Nýdönsk ætlar að halda tónleika í Eldborg í september, Sigga og Grétar í Stjórninni ætla að ferðast um landið í sumar, Helgi Björns verður með sumarhátíð í ágúst og fóstbræðurnir Maggi Eiríks og Pálmi Gunn- ars halda hvor sína afmælistónleikana. Það sama gerir Páll Óskar og Jón Jónsson ætlar að fylla Eldborg. Þá koma Smokie og Skunk Anansie til landsins svo fátt eitt sé nefnt. Allt þetta framboð minnir á þegar jóla- tónleikamarkaðurinn var sprengdur ræki- lega í loft upp árin 2018 og 2019. Óvíst er hvort eftirspurn sé eftir öllum þeim tón- leikum sem fyrirhugaðir eru. Framboðið gæti verið of mikið „Það verður töluvert offramboð af tón- leikum. Vonandi verður þorstinn alveg gríð- arlegur hjá landsmönnum,“ segir Eiður Arnarsson, framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda og tónlistarmaður. Hann kveðst óttast að þótt uppsöfnuð þörf verði hjá fólki að komast á tónleika og skemmtanir sé ekki víst að markaður verði fyrir alla þá tónleika sem nú séu auglýstir. Eflaust muni einhverjir veigra sér við að sækja skemmtanir þótt kórónuveiran verði á undanhaldi, í það minnsta fyrst í stað. „Markaðurinn mun ekki allt í einu verða 100% eins og hann var. Ég held að þetta komi í skrefum en vonandi verða þau stór.“ Slegist um tónleikagesti í haust - Mikið auglýst af stórtónleikum í haust - Hörð barátta um hylli landsmanna þegar samkomutak- mörkunum sleppir - Gæti orðið offramboð - Æ meira bókað af sölum fyrir veislur og ráðstefnur Ríkisstjórnarflokkarnir hafa nú komið sér saman um þau mál sem þeir hyggjast ljúka fyrir þinglok. Þingið átti að fara í sumarfrí í dag en það mun standa yfir eitthvað lengur. Óeining hefur verið innan ríkis- stjórnarinnar um nokkur stór póli- tísk mál. Mörg þeirra hafa verið slegin út af borðinu. Þar má nefna frumvarp um há- lendisþjóðgarð sem verður ekki af- greitt á þessu kjörtímabili, né heldur rammaáætlun, frumvarp um fjar- skiptalög, frumvarp um mannanöfn, breytingar á útlendingalögum eða frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna. Píratar beita sér nú fyrir að þeirra frumvarp um afglæpavæðingu sem var fellt á síðasta þingi verði tekið fyrir á ný. Frumvarp um breytingar á stjórn- arskrá hefur ekki borið á góma í samningaviðræðunum. Gert var ráð fyrir að það yrði rætt á þingstubbi í ágúst en óljóst er hvort af því verður. Meðal mála sem ríkisstjórnin hyggst leggja fyrir þingið eru fjár- aukalög, víðtækar breytingar á barnaverndarmálum, breytingar á innflytjendalögum, lög um þjóð- kirkjuna, markmið um kolefnishlut- leysi og um umhverfismat. Morgunblaðið/Eggert Alþingi Samningaviðræður standa nú yfir á meðal þingflokksformanna um það hvaða þingmál verða sett á dagskrá á síðustu dögum þingársins. Mörg stór þingmál slegin út af borðinu - Þingflokksformenn semja um þinglok Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, segir að kórónuveirutíminn hafi verið nýtt- ur til að fara í alls konar umbótaverkefni í húsinu. „Við höfum til dæmis verið að skipta út lýsingu og LED-væða húsið. Það er bæði umhverfismál en líka rekstrarlega hagkvæmt. Þegar Sinfóníuhljómsveitin fer í leyfi í júlí munum við skipta út ljósunum þar.“ Hún segir jafnfamt að ráðist hafi verið í miklar breytingar á jarðhæð Hörpu sem kynntar verði að fullu á Menningarnótt en þá verður tíu ára afmæli hússins fagnað. Meðal þeirra er að Rammagerðin opnar verslun á jarðhæðinni þar sem lögð verður áhersla á íslenska hönnun. Þá verða nýir veitingastaðir opnaðir en Svanhildur segir ekki tímabært að greina frá því um hvaða staði ræðir. Nýttu Covid-tím- ann til endurbóta TÍU ÁRA AFMÆLI HÖRPU Í ÁGÚST Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sjónarspil Páll Óskar ætlar að fagna fimmtugsafmæli sínu með tónleikum í Háskólabíói. Morgunblaðið/Eggert Stemning Jónas Sigurðsson er einn þeirra tónlistarmanna sem halda tónleika í haust. Davíð Torfi Ólafsson Svanhildur Konráðsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.