Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 55
Upplifun Umgjörðin þykir einstaklega vel heppnuð og smekkleg.
Baða sig í heit-
um vökum ofan
á Urriðavatni
« Vinsældir Vök Baths hafa farið fram
úr björtustu vonum. Framkvæmda-
stjórinn segir gott að byrja eða enda
daginn á heimsókn í þessi einstöku böð
Gaman hefur verið að fylgjast með
uppbyggingu ferðaþjónustunnar á
Austurlandi á undanförnum árum.
Nýir veitingastaðir og hótel hafa
sprottið upp en ein merkilegast
viðbótin er heilsulindin Vök Baths
við Urriðavatn, aðeins fimm mín-
útna akstur frá Egilsstöðum.
Aðalheiður
Ósk Guðmunds-
dóttir er fram-
kvæmdastjóri
fyrirtækisins en
hún fluttist frá
höfuðborgar-
svæðinu til
Egilsstaða þegar
hún tók við
starfinu. Að
sögn Aðalheiðar
var það ögn stressandi að aka í
fyrsta sinn alein austur á land um
hávetur en heimamenn hafi tekið
vel á á móti henni. „Sjálf er ég op-
in að eðlisfari og fyrstu vikurnar
eftir að ég hóf störf reyndi ég að
vera sem mest í móttökunni til að
kynnast fólkinu sem kom til okk-
ar.“
Heyra má að lífið fyrir austan á
vel við Aðalheiði og hún nýtur
þess hve stutt er í óspillta náttúr-
una. „En svo eru líka frábærar
búðir hérna eins og Sentrum og
River sem eru með fjölbreytt en
úthugsað vöruúrval. Það er
kannski langt að fara í Kringluna
og Smáralind en þessar verslanir
eru búnar að sjá um það fyrir
mann að velja það áhugaverðasta
og besta. Þá vantar ekki góða veit-
ingastaði og kaffihús á Egils-
stöðum og bæjarfélögunum í
kring.“
Hún hvetur fleiri til að skoða
þann möguleika að setjast að fyrir
austan: „Hér er mikill uppgangur
og vöntun á fólki; allt frá snyrti-
fræðingum til verkfræðinga, og
hér er gott að búa.“
Heitt, kalt og ljúffengt
Vök Baths tók á móti fyrstu
gestunum í júlí 2019 og þrátt fyrir
kórónuveirufaraldurinn fóru við-
tökurnar fyrsta rekstrarárið fram
úr áætlunum. Boðið er upp á mjög
sérstaka upplifun þar sem tvær
fljótandi laugar – eða vakir – eru í
aðalhlutverki. Vakirnar fljóta ofan
á Urriðavatni og eru fylltar með
heitu vatni en gestir geta líka synt
í Urriðavatni og þannig fengið alla
þá heilsubót sem fylgir heitum og
köldum böðum. „Við erum líka
með gufubað og köld úðagöng fyr-
ir fólk til að ýmist slaka á eða fá
frískandi upplifun,“ útskýrir Aðal-
heiður.
Veitingastaðurinn á Vök Bistro
og Tebarinn hafa líka vakið verð-
skuldaða athygli. Tebarinn er
helgaður lífrænum jurtadrykkjum
sem gestir blanda sjálfir úr hand-
tíndum íslenskum jurtum frá Móð-
ur Jörð á Vallanesi en drykkurinn
er innifalinn í verði aðgangsmiða
baðstaðarins.
Vök Bistro skartar útsýni yfir
Urriðavatn og náttúruna í kring
og skartar fjölbreyttum matseðli
þar sem hráefni úr héraði er gert
hátt undir höfði en réttirnir kosta
frá 1.790 til 2.490 kr og eru vel úti-
látnir. Á laugardögum og sunnu-
dögum er dögurðarmatseðill frá 12
til 15 og kostar máltíðin frá 1.290
kr til 2.690 á mann.
Aðalheiður segir heimsókn í Vök
Baths geta verið bæði gott upphaf
og þægilegan endi á áhugaverðum
degi á Austurlandi. „Mér finnst
t.d. mjög gaman að prufa dögurð-
inn okkar um helgar, fara svo í
heitu böðin og komast í góðan gír
fyrir daginn. En það er líka engu
líkt að ganga t.d. upp að Hengi-
fossi eða að Stapavík og koma svo
við í Vök Baths í lok dags áður en
farið er út að borða. ai@mbl.is
Aðalheiður Ósk
Guðmundsdóttir
55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
arfsmannafatnaður
rir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is
Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Hótelstjórnandann
Hótelrúmföt
Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði
og öðru líni fyrir hótel
Ferðumst
innanlands
í sumar
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Björn Ingimarsson segir mikið líf
í Múlaþingi um þessar mundir.
Heimamenn hafa verið duglegir
að njóta lífsins og t.d. heimsækja
baðstaðina á svæðinu eftir að
slakað var á smitvörnum. Einnig
er töluvert um gesti frá öðrum
landsfjórðungum í bland við slæð-
ing af erlendum gestum.
Eins og lesendur muna varð
kórónuveirufaraldurinn til þess
að landsmenn nýttu síðasta sumar
til að ferðast innanlands og
margir uppgötvuðu þá fegurð
Austurlands í fyrsta skipti. Björn,
sem er sveit-
arstjóri Múla-
þings, segir að
ef eitthvað já-
kvætt hafi kom-
ið út úr farald-
inum þá hafi
það verið þetta:
„Við finnum það
núna að margir
þeirra innlendu
ferðamanna sem
eru að leggja
leið sína til okkar eru að heim-
sækja Austurland vegna þess sem
þau hafa heyrt og séð af ferða-
lögum vina og ættingja síðasta
sumar.“
Mælir Björn með því að fólk
skoði Múlaþing og nærsveitir fyrr
en seinna því eftir því sem flug-
samgöngur komast í betra horf
má reikna með að erlendum gest-
um fjölgi og meira annríki verði
hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum.
„Við finnum fyrir því að erlendi
ferðamaðurinn er kominn aftur á
kreik og mig grunar að upp úr
miðju sumri verði allt komið aft-
ur á fulla ferð svo það verður
kannski erfiðara að finna laust
herbergi hjá gististöðunum.“
Þurfa ekki að flýta sér þegar
komið er á staðinn
Segir Björn að það erfiðasta við
að skoða Austurlandið sé að gefa
sér nægan tíma til að kynnast
svæðinu vel. Margt er að sjá og
vissara að taka frá a.m.k. nokkra
daga til að berja hápunktana aug-
um. „Ég man að sænskt vinafólk
okkar hjóna kom í heimsókn fyrir
tveimur eða þremur árum og var
á Íslandi í eina viku. Ég hafði séð
fyrir mér að nota einn eða tvo
daga til að sýna þeim Austurland
en reiknaði svo með að fara með
þau norðar og í átt að Akureyri.
En ferðalagið endaði með því að
við fórum aldrei út fyrir Austur-
land, og samt náðum við ekki að
skoða alla þá staði sem ég hefði
viljað sýna þeim.“
Spurður um nokkra hápunkta
nefnir Björn m.a. ferð í Sænauta-
sel til að fá kaffi og vöfflur í ein-
stakri stemningu í gömlum torfbæ,
heimsókn í baðstaðinn Vök og ferð
upp í Hafnarhólmann á Borgar-
firði eystra: „Þar getur fólk horft
yfir girðingu og beint í augun á
lundanum sem er með hreiður sín
hinum megin við girðinguna.
Möguleikarnir eru nær endalausir,
góð gisting í boði í þéttbýliskjörn-
unum og nóg af veitingastöðum.“
Til að gera góða heimsókn enn
betri er hægt að tímasetja ferða-
lag á Austurland þannig að
stemmi við eina af bæjarhátíð-
unum og menningarviðburðina á
svæðinu. Björn Ingimarsson segir
suma hápunkta sumarsins hafa
verið blásna af vegna óvissu um
smitvarnamál en samt séu ótal
viðburðir á dagskrá og niður-
negldir: „LungA-hátíðin verður
t.d. haldin á Seyðisfirði og list-
viðburðurinn Rúllandi snjóboltinn
á Djúpavogi verður líka á sínum
stað, að ógleymdri Bræðslunni á
Borgarfirði eystri og Ormsteiti á
Egilsstöðum.“
Allt verður komið á fulla
ferð um mitt sumar
Yndi Lindarbakki á Borgarfirði eystri. Í Múlaþingi og nágrenni er margt að
sjá og gera. Tónlistar- og menningarhátíðir dreifast yfir sumarmánuðina.
« Ferðamannastraumurinn farinn að taka við sér
Björn
Ingimarsson