Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 48
48 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerrusmíða
2012
2020
Mér þóttu það góð
tíðindi þegar Arnar
Þór Jónsson héraðs-
dómari tilkynnti þátt-
töku sína í prófkjöri
sjálfstæðismanna í
Suðvesturkjördæmi.
Ég hef þekkt manninn
í tæp 40 ár og veit fyrir
vikið að Arnar er í senn
réttsýnn og málefna-
legur og óragur að
fjalla um ýmis mikil-
væg þjóðfélagsmál.
Áherslur Arnars Þórs snúa að ein-
staklingsfrelsi, eflingu þingræðis og
sátt milli ólíkra stétta og eru í raun
rauði þráðurinn í grundvallarstefnu
Sjálfstæðisflokksins.
Frelsi með ábyrgð
Arnar Þór hefur í ótalmörgum
greinum fjallað um frelsi ein-
staklingsins og mikilvægi þess að
skapa hvata til þess að virkja kraft-
inn sem býr í einkaframtakinu. Hann
hefur bent á mikilvægi þess að emb-
ættismenn og opinberar stofnanir
séu ekki þröskuldur í nýsköpun og
atvinnurekstri. Þeirra hlutverk sé
miklu fremur að skapa skýra ramma
og tryggja fyrirsjáanleika fremur en
þvælast fyrir og beinlínis draga úr
hvötum til nýsköpunar og atvinnu-
rekstrar.
Stétt með stétt
Arnar Þór hefur bent á að Sjálf-
stæðisflokkurinn er breiðfylking
ólíkra einstaklinga víðs vegar að úr
samfélaginu sem sameinast um sjálf-
stæðisstefnuna. Einmitt þess vegna
er mikilvægt að Sjálfstæðisflokk-
urinn nái aftur vopnum sínum sem
leiðandi afl á vinnumarkaði. Stétt
með stétt var eitt sinn kjörorð Sjálf-
stæðisflokksins þar sem áhersla var
lögð á að leiða saman hagsmuni at-
vinnurekenda og hinna vinnandi
stétta og tryggja heil-
brigt samtal og stöð-
ugleika á vinnumarkaði.
Sjálfstæðisflokkurinn er
í dag í dauðafæri að
styrkja stöðu sína á ný
sem slík breiðfylking.
Þingræði ekki skrif-
ræði
Í skrifum sínum og
málflutningi hefur Arn-
ar Þór bent á mikilvægi
þess að Alþingi fari með
pólitískt vald í landinu í
stað þess að útvista því gagnrýn-
islaust til ósýnilegra embættis-
manna, innlendra og erlendra dóm-
stóla og/eða alþjóðlegra stofnana.
Með þessu hefur hann bent á þann
lýðræðis- og þingræðishalla sem má
rekja til sífellt aukins pólitísks inn-
grips innlendra og erlendra embætt-
iskerfa sem þjóna óljósum hags-
munum. Þetta ósýnilega vald þarf að
tempra og tryggja íslenska hagsmuni
í hvívetna.
Áherslur Arnars Þórs Jónssonar,
skrif hans og málflutningur, hafa ýtt
við mörgum sjálfstæðismönnum og
vakið þá til umhugsunar um mikil-
vægi þess að hefja grundvallargildi
Sjálfstæðisflokksins aftur til vegs og
virðingar. Málflutningur Arnars er
þannig ferskur andblær inn í flokks-
pólitíska umræðu og löngu tímabær.
Ég hvet sjálfstæðismenn í Suð-
vesturkjördæmi til að kynna sér
áherslur Arnars Þórs og veita honum
brautargengi í komandi prófkjöri.
Dómari með erindi –
Arnar Þór á þing
Eftir Má Másson
Már Másson
» Áherslur Arnars
Þórs snúa að ein-
staklingsfrelsi, eflingu
þingræðis og sátt milli
ólíkra stétta.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Um komandi helgi
mun sjálfstæðisfólk
ganga til prófkjörs í
Suðvesturkjördæmi og
velja fólk í forsvar til al-
þingiskosninga. Þar
býður sig fram í 2.-3.
sæti Arnar Þór Jóns-
son. Það má segja að
hann sé nýr á vettvangi
stjórnmála, en þó kem-
ur framboð hans þeim
ekki alfarið á óvart sem þekkja til
hans.
Undanfarin misseri hefur Arnar
látið til sín taka í pólitískri umræðu,
svo eftir hefur verið tekið. En hann
hefur skrifað greinar og komið fram
opinberlega til að fjalla um mál er
varða réttindi allra Íslendinga, mál
sem eru allt í senn: stór, flókin og um-
deild. Málefni eins og þriðja orku-
pakkann og frelsi og réttindi fólks.
Afstaða hans og tilgangur eru skýr
hverju sinni og byggjast á yfirvegaðri
og yfirgripsmikilli lögfræðilegri
þekkingu á viðfangsefnunum, ásamt
djúpri sannfæringu um að gera rétt
og þola ekki óréttlæti.
Að mínu mati er það einmitt slíkt
fólk sem þarf að velja til forystu nú.
Fólk sem þorir að tjá sig umbúða-
laust, fólk sem getur hlustað á mót-
rök og tekið heiðarlega afstöðu í erf-
iðum málum, þó sú afstaða sé ekki
endilega vinsæl akkúrat í dag, en rétt
til lengri tíma.
Árin í kjölfar heimsfaraldurs geta
orðið okkur flókin og erfið. Við þurf-
um fólk sem er tilbúið að leiða okkur í
gegnum góða, sem og erfiða tíma og
hnika ekki af leið þó vindar blási. Líkt
og við Arnar þekkjum, eins og allir
sem eiga rætur til Vestmannaeyja, að
þó að við fáum stundum
vindinn í fangið, þá mun
hann á endanum snú-
ast. Það er bara það; að
halda stefnu á meðan
hann blæs. Ég treysti
Arnari til þess, enda
veit ég að hann er fullur
af eldmóði að takast á
hendur þessi málefni
sem hann þekkir svo vel
og hefur ástríðu til að
sinna af heilindum.
Prófkjör er vett-
vangur til að hafa áhrif
á framtíðina með því að velja fólk til
að vera í forystu stjórnmála næstu
ára. Með sífellt aukinni kröfu um
beint lýðræði og ákalli, sérstaklega
unga fólksins, um að fá að hafa meiri
áhrif á ákvarðanir í nærumhverfi
sínu, er ekki hægt annað en hvetja til
þátttöku í prófkjöri. Það er auðvelt að
skrá sig og taka þátt, og það er ekki
of seint. Ég vona að sjálfstæðisfólk í
Suðvesturkjördæmi beri gæfu til að
velja Arnar Þór í forystusveit flokks-
ins nú. Ég mun gera það.
Eftir Eygló
Egilsdóttur
» Afstaða hans og til-
gangur eru skýr
hverju sinni og byggjast
á yfirvegaðri og yfir-
gripsmikilli lögfræði-
legri þekkingu á við-
fangsefnunum, ásamt
djúpri sannfæringu um
að gera rétt og þola ekki
óréttlæti.
Eygló Egilsdóttir
Höfundur er viðskiptafræðingur og
sjálfstætt starfandi.
eygloegils@gmail.com
Arnar Þór í forystusveit
Fullveldi þjóðar, lýð-
ræði og einstaklings-
frelsi eru verðmæti
sem í askana verða lát-
in. Það sýnir sagan
hvarvetna. Allt er þetta
vandmeðfarið og út-
þynning á þessum gild-
um varasöm, því að hún
varðar leiðina til glöt-
unar þeirra.
Arnar Þór Jónsson
dómari hefur með skil-
merkilegum hætti vakið máls á því að
viðhorfsbreytingar er þörf hérlendis
á meðal embættismanna og þing-
manna í átt til enn vandaðri rýni á til-
skipunum og reglugerðum ESB
m.t.t. til íslenskrar stjórnskipunar
áður en þær fara fyrir sameiginlega
afgreiðslunefnd ESB og EFTA. Það-
an berast „gerðirnar“ síðan þjóðþing-
unum til lögfestingar. Nú hefur borið
vel í veiði, því að Arnar Þór hefur gef-
ið kost á sér í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í SV-kjördæmi (Kraganum)
í 2.-3. sæti D-listans í alþingiskosn-
ingunum haustið 2021.
Breytt Evrópusamband
Á árunum 1990-1992, þegar ESB
og EFTA sömdu sín á milli um Evr-
ópska efnahagssvæðið, EES, hafði
Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB 1985-1995,
fengið aðildarlöndin til að samþykkja
sáttmála um innri markað ESB og
gekk hann í gildi 1. janúar 1993. Þar
skyldi fjórfrelsið ríkja, þ.e. frjálst
flæði vöru, þjónustu, fólks og fjár-
magns. Sáttmálinn kveður á um viða-
mikið regluverk, sem ásamt tollum
torveldar aðgengi þeirra sem utan
við standa nema með sérstökum frí-
verslunarsamningi.
EES-samningurinn var aðallega
gerður til að hleypa EFTA-ríkjunum
inn á innri markaðinn gegn upptöku
regluverksins sem um hann gildir.
Það verður sífellt umfangsmeira, og
þegar Efnahagsbandalag Evrópu
breyttist í Evrópusamband árið 1993
tók eðli þess að breytast með nýjum
sáttmálum og eftir Lissabonsáttmál-
ann 2009 er leynt og ljóst stefnt að
sambandsríki Evrópu. Útganga
Breta 2020 varð hnekkir fyrir þessa
hugmyndafræði og Bretar höfnuðu
jafnframt aðild að EES.
Svisslendingar, sem
stunda mikil viðskipti
við ESB-ríkin en eru
varir um fullveldi sitt,
höfnuðu aðild að EES
og að ESB í þjóðar-
atkvæðagreiðslum. Þeir
hafa notið aðgangs að
innri markaðinum með
fjölda (120) tvíhliða
samninga. ESB hefur
horn í síðu þessa fyr-
irkomulags og vill að
löggjöf Sviss þróist
„sjálfvirkt“ í samræmi
við löggjöf ESB, eins og í hinum
EFTA-ríkjunum. Svisslendingar
sætta sig ekki við þessa afskiptasemi
af eigin löggjöf og hafa slitið samn-
ingaviðræðum um fyrirkomulag við-
skiptasambands við ESB. Carl I.
Baudenbacher, fyrrverandi dómari
við EFTA-dómstólinn, hefur tjáð þá
skoðun sína á þessu að stjórnvöld í
Bern og Brussel hafi reynt að þoka
Sviss bakdyramegin inn í ESB en
vanmetið andstöðuna við slíkt á með-
al þjóðarinnar. Almenningur vilji
samvinnu á sviði efnahagslífs en ekki
stjórnmálalegan samruna. Þegar fólk
hafi fundið að reynt hafi verið að ýta
landinu svo þétt upp að ESB að ekki
yrði aftur snúið hafi það spyrnt við
fótum.
Gerjun í EFTA
Samband Sviss við ESB er sem
sagt í uppnámi og í Noregi ræða
stjórnmálamenn um að draga Noreg
út úr ACER-orkustofnun ESB og
þar með afturkalla innleiðingu Orku-
pakka 3 (OP3), sem er fordæmalaust,
eða til vara að hafna OP4 eftir Stór-
þingskosningarnar í haust. Stjórn-
arskipti verða þar í haust, ef marka
má skoðanakannanir, og stærsta
verkalýðsfélag Noregs hefur ályktað
í þessa veru. Þar með er talið stutt í
sinnaskipti stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins, Verkamannaflokks-
ins.
Á Íslandi ríkti djúpstæður ágrein-
ingur um það árið 2019 hvort réttlæt-
anlegt væri að innleiða OP3, þótt
sameiginleg nefnd EFTA og ESB
hefði fallist á það árið áður. Lög-
fræðiálit greindi á um lögmæti OP3
m.t.t. stjórnarskrár Íslands, og í Nor-
egi er mál rekið fyrir dómstólum um
lögmæti þeirrar ákvörðunar Stór-
þingsins að krefjast aðeins einfalds
meirihluta í máli, sem samkvæmt
norsku stjórnarskránni útheimtir
aukinn meirihluta að mati nokkurra
lagaprófessora o.fl.
Gagnrýni
Arnar Þór Jónsson hefur á Íslandi
leitt gagnrýni á það sem virðist færi-
bandaafgreiðsla stjórnsýslu og þings
á „gerðum“ ESB. Hann hefur bent á
að fyrirkomulagið sé í mótsögn við
grundvöll lýðræðisins, sem er sá að
löggjafinn sé valinn af fólkinu sem á
að hlíta lögunum. Nú koma veiga-
miklir lagabálkar sem snerta hvern
landsmann frá embættismönnum í
Brussel, sem ekkert tillit taka til að-
stæðna hérlendis. Þetta fyrirkomu-
lag ásamt því ákvæði EES-
samningsins að ESB-réttur skuli hér
njóta forgangs umfram landsrétt,
vegur að grunnstoðum lýðveldisins.
Það er brýnt að fjölga alþingis-
mönnum sem hafa kunnáttu, getu og
vilja til að verja fullveldi landsins og
stjórnarskrá með sterkustu fáanlegu
rökum í samskiptunum við yfir-
þjóðlegt vald. Viðamikil mál mun
reka á fjörur þingsins á næsta kjör-
tímabili og nægir að nefna OP4.
Orð Arnars Þórs
„Ef menn vilja veikja þær stoðir
sjálfstæðis, sem persónufrelsið,
stjórnarskráin, almenn lög og aðild
Íslands að alþjóðasáttmálum hvíla á,
er lágmarkskrafa, að slíkt fari fram
fyrir opnum tjöldum, en ekki í bak-
herbergjum.
Meðan við viljum vera sjálfstæð
þjóð verðum við að axla ábyrgð á eig-
in hagsmunum, tilveru okkar og
frelsi.“
Verðmæti verður að verja af viti
Eftir Bjarna
Jónsson » Fjölbreytni í þing-
flokki sjálfstæðis-
manna er Sjálfstæð-
isflokki sem þjóðar-
flokki nauðsyn til að
endurspegla viðhorf
landsmanna með viðhlít-
andi hætti.
Bjarni
Jónsson
Höfundur er verkfræðingur á eftir-
launum.
bjarnijons1949@gmail.com