Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Að undanförnu hafa verið óvenju-
margar auglýsingar á heimasíðu
Framkvæmdasýslu ríkisins þar
sem auglýst er eftir húsnæði fyrir
heilbrigðisstofnanir. Á vefsíðu
FSR hafa verið fjórar auglýsingar
þar sem auglýst er eftir húsnæði
fyrir Heilsugæsluna í Hlíðum,
heimahjúkrun á höfuðborgarsvæð-
inu, Heilsugæsluna í Hveragerði
og útboð fyrir hjúkrunarheimili í
Stykkishólmi.
Ríkiskaup fyrir hönd Ríkiseigna
óska eftir að taka á leigu húsnæði
fyrir starfsemi Heilsugæslunnar
Hlíðum. Umsjónaraðili er Fram-
kvæmdasýsla ríkisins.
Verði leigt til 15 ára
Miðað er við að húsnæðið verði
tekið á langtímaleigu til 15 ára,
fullbúið til notkunar, án lauss bún-
aðar. Gerð er krafa um staðsetn-
ingu innan starfssvæðis Heilsu-
gæslunnar Hlíðum, þó þannig að
hún sé í hæfilegri fjarlægð frá öðr-
um starfsstöðvum heilsugæsla á
höfuðborgarsvæðinu. Skal vera
gott aðgengi, þ.m.t. fyrir hreyfi-
hamlaða, hjólandi, gangandi,
sjúkrabifreiðar og næg bílastæði.
Húsrýmisþörf er áætluð um
1.300 fermetrar. Leigutilboðum
skal skila rafrænt í útboðskerfinu,
eigi síðar en kl. 12:00 fimmtudag-
inn 1. júlí 2021.
Þá er í gangi öflun húsnæðis
fyrir heimahjúkrun á höfuðborg-
arsvæðinu. Miðað er við að hús-
næðið verði tekið á langtímaleigu
til 15 ára, fullbúið til notkunar, án
lauss búnaðar. Gerð er krafa um
staðsetningu í þungamiðju svæðis
innan starfssvæðis heimahjúkrunar
sem er í Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Kjós.
Skal vera gott aðgengi, þ.m.t. fyrir
hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi
og bílastæði fyrir um 50 bíla. Hús-
næðið skal vera á einni hæð.
Leigutilboðum skal skila rafrænt í
útboðskerfinu, eigi síðar en kl.
12:00 þriðjudaginn 22. júní 2021.
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h.
heilbrigðisráðuneytisins og Stykk-
ishólmsbæjar, auglýsti opið útboð
á innréttingu á nýju hjúkrunar-
heimili á 2. og 3. hæð St. Frans-
iskusspítalans á Austurgötu 7 í
Stykkishólmi. Um er að ræða 18
ný einstaklingshjúkrunarrými, skv.
viðmiðum HRN, með sameigin-
legum matsal og setustofu ásamt
starfsmannaaðstöðu og tilheyrandi
stoðrýmum.
Verkið felur í sér m.a. að fjar-
lægja núverandi innréttingar, rífa
niður milliveggi, fjarlægja núver-
andi lyftu og koma fyrir nýrri og
stærri lyftu í nýjum lyftustokk
ásamt því að innrétta ný hjúkr-
unarrými. Einnig skal gera nýjan
inngang á 1. hæð hússins sem mun
þjónusta nýtt hjúkrunarheimili.
Endurbætur sjúkrahússins ná yfir
um 1.280 m² ásamt lóðarfrágangi
við bílastæði og aðkomu fyrir hið
nýja hjúkrunarheimili.
Heimamenn með tilboð
Tilboð í verkið voru opnuð sl.
þriðjudag og barst eitt tilboð. Það
var frá Skipavík í Stykkishólmi,
543,6 milljónir. Kostnaðaráætlun
var 466 milljónir. Tilboðið er til
skoðunar hjá verkefnastjóra FSR.
Loks ber að nefna að Ríkiskaup
f.h. Heilsugæslunnar í Hveragerði
stefnir að því að taka á leigu um
400 fermetra húsnæði fyrir Heilsu-
gæsluna þar í bæ. Umsjónaraðili
verkefnisins er Framkvæmdasýsla
ríkisins.
Gerð er krafa um staðsetningu
miðsvæðis í bæjarfélaginu, gott að-
gengi fyrir hreyfihamlaða, hjólandi
og gangandi og næg bílastæði
bæði fyrir viðskiptavini og starfs-
fólk.
Gert er ráð fyrir að leigutími
verði 15-20 ár auk mögulegrar
framlengingar. Markmiðið er að
kanna hvort hentugt leiguhúsnæði
fyrir heilsugæslu sé til staðar í
Hveragerði. Upplýsingum skal
skilað fyrir kl. 12:00 þann 16. júní
næstkomandi.
Leita að húsnæði fyrir ríkisstofnanir
- Eitt tilboð barst í
innréttingu nýs
hjúkrunarheimilis í
Stykkishólmi
Morgunblaðið/Ómar
Stykkishólmur Eitt tilboð barst í innréttingu á nýju hjúkrunarheimili á 2. og 3. hæð St. Fransiskusspítalans þar í bæ.
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Að minnsta kosti 56 þúsund Íslend-
inga glíma við langvinna verki og
um það bil þriðjungur þeirra er
óvinnufær vegna þess.
Þetta kemur fram í skýrslu
starfshóps sem heilbrigðis-
ráðherra fól að afla upplýsinga um
meðferð fyrir einstaklinga með
langvinna verki ásamt tillögum til
úrbóta á því ferli. Var starfshóp-
urinn meðal annars fenginn til að
greina fjölda einstaklinga með
langvinna verki, kyn þeirra og ald-
ur.
Erfðir, kyn og aldur hafa áhrif
Samkvæmt niðurstöðum skýrsl-
unnar eru konur í aukinni hættu á
ýmsum langvinnum verkjavanda,
má þar meðal annars nefna vefja-
gigt, mígreni og slitgigt. Hafa lýð-
eðlisfræðilegir þættir einnig áhrif,
auk þess sem tíðni lið- og tauga-
verkja fer vaxandi samhliða hækk-
andi aldri. Bak- og höfuðverkir ná
hámarki um miðjan aldur áður en
tíðni þeirra fer lækkandi.
Tillögur að bættri þjónustu
Meðal þeirra úrbóta sem starfs-
hópurinn lagði til var meiri áhersla
á kennslu um verki og verkja-
meðferð meðal nema í heilbrigð-
isvísindum. Töldu þau einnig þörf á
auknu aðgengi nema í framhalds-
námi að klínískri kennslu í meðferð
langvinnra verkja.
Þar að auki var lagt til að gera
fræðsluefni fyrir almenning að-
gengilegt í gegnum Heilsuveru til
að virkja þátttöku einstaklinga.
Þykir þá mikilvægt að lögð sé sér-
stök áhersla á fræðslu um skyn-
samlega ávísun og neyslu sterkra
verkjalyfja en notkun þeirra hefur
aukist verulega síðustu tvo til þrjá
áratugina. 20% aukning var á ávís-
un á ópíóða frá árinu 2007 til 2018 í
heilsugæslu. Starfshópurinn legg-
ur að lokum til að fyrirhuguð þver-
fagleg endurhæfingarteymi í
heilsugæslu verði nýtt til að þróa
þjónustu og miðla þekkingu áfram.
Morgunblaðið/Ómar
Háskólasjúkrahús Aukin fræðsla meðal grunnnema er talin mikilvæg viðbót.
Þriðjungur verkj-
aðra óvinnufær
- 56 þúsund með langvinna verki
3. SÆTI
NÁNAR I UPPLÝS INGAR
WWW.S IGTHRUDUR . IS
RÖDD
ATVINNULÍFSINS
Á ALÞINGI
Öflugt atvinnulíf er grundvöllur velferðar,
framþróunar og hagsældar í samfélaginu.
Það er því hagur okkar allra að efla
atvinnulífið.
Ég óska eftir þínum stuðningi í 3. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
P RÓ F K JÖ R S J Á L F S TÆÐ I S F L O K K S I N S
Í S U Ð V E S T U R K JÖ R DÆM I 1 0 . - 1 2 . J Ú N Í
, ,Ég v i l v a l f r e l s i o g n ý s köpun í
he i l b r i g ð i s - og menn t am á l um . ' '
, ,Ég v i l s t y ð j a v i ð a t v i n n u l í f i ð
með l águm skö t t um , m i n n k a
ums v i f í r e k s t r i h i n s op i n b e r a og
ú t v i s t a v e r k e f n um . ' '
, , Þ a ð e r a t v i n n u l í f s i n s a ð l e i ð a vö x t
á v i n n uma r k að i o g s k ap a n ý s tö r f . ' '
, ,Ég v i l h e i l d s tæða s t e f n u í
m á l e f n um e l d r i b o r g a r a með
f r e l s i þ e i r r a t i l e i g i n á k v a r ð a n a
að l e i ð a r l jó s i . ' '