Morgunblaðið - 10.06.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.06.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 Verð frá kr. 59.900 y y Benidorm 17. júní í 7 nætur Flug og gisting Verð frá kr. 76.800 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meirihluti íbúa Borgarbyggðar er hlynntur því að sett séu upp vind- orkuver á Íslandi, ef marka má skoðanakönnun. Áhuginn er heldur minni á að staðsetja slík mannvirki í sveitarfélaginu og enn minni á því að setja vindmyllur upp á Grjót- hálsi eins og áform eru uppi um. Samt eru mun fleiri hlynntir slíkri framkvæmd en andvígir. Maskína gerði skoðanakönn- unina fyrir VSÓ sem er ráðgjafi eigenda jarðanna Hafþórsstaða og Sigmundarstaða við umhverfismat á vindorkuveri á Grjóthálsi. Þar hefur verið áformað að koma fyrir sex vindmyllum. Könnunin var gerð í mars og svöruðu 435 íbúar spurningum könnuða Maskínu. Meiri andstaða í sveitinni Þegar spurt var um afstöðu til vindorkuvera á Íslandi sögðust 53,7% svarenda hlynnt en 23,6% andvíg. Heldur meiri andstaða reyndist vera við vindorkuver í héraðinu þar sem 49,6% svarenda sögðust hlynnt en 30% andvíg. Andstaðan jókst meira þegar spurt var um afstöðu til 10 vind- mylla á Grjóthálsi þótt mun fleiri væru áfram jákvæðir en neikvæð- ir. Sögðust 47,4% svarenda hlynnt slíku verkefni en 34,6% and- víg. Meiri andstaða er við nýtingu vindorkunnar meðal íbúa í sveit- unum en í Borgarnesi, að því er ráða má þegar svör fólks eru sund- urliðuð eftir póstnúmerum. Hjálpar í baráttunni Þegar fólk var spurt hvort það teldi að vindmyllur gætu hjálpað í baráttu við hlýnun jarðar svöruðu 47,2% því til að það gæti hjálpað mjög mikið eða frekar mikið en 23,5% töldu að það myndi hjálpa frekar lítið, mjög lítið eða alls ekk- ert. Svarendur voru á því að stórar vindmyllur væru almennt ljótar því 45,1% sagði að sér þætti þær ljótar en 20,4% lýstu þeirri skoðun sinni að þær væru fallegar. Vilja vindmyllur en ekki í héraði - Íbúar Borgarbyggðar almennt jákvæðir fyrir uppsetningu vindmylla Morgunblaðið/Árni Sæberg Vindmyllur Íbúar Borgarbyggðar eru almennt frekar jákvæðir fyrir vind- orkuverum en áhuginn minnkar þegar áformin eru í þeirra heimahéraði. Álftin Svanhildur, sem jafnan býr sér hreiður í Elliðaárdal í Reykjavík, og maki hennar komu þremur ungum á legg nú í vor. Aðstæður hafa breyst eftir að hleypt var úr lóninu við Ár- bæjarstíflu í október á síðasta ári. Svanhildur lá að venju á eggjunum á Blásteinshólma ofan við stífluna og til þessa hef- ur álftaparið hafst við með unga sína ofan stíflunnar en fjöl- skyldan heldur nú til neðan við stífluna og virðist una hag sín- um vel að sögn íbúa á svæðinu, sem fylgjast vel með fuglalífinu við Elliðaár. Morgunblaðið/Eggert Svanhildur með þrjá unga Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Það getur ekkert sjúkrahús búið við svona ástand í áraraðir,“ sagði Runólfur Pálsson, forstöðumaður lyf- lækninga og endurhæfingarþjónustu á Landspítalanum, í samtali við mbl.is í gærkvöldi um stöðuna á bráða- móttöku Landspítalans. Framkvæmdastjórn Landspítala hefur fundað síð- ustu daga vegna stöðunnar og snúast fundirnir að sögn Runólfs helst um viðbragð til þess að mæta manneklu á bráðamóttökunni, sérstaklega á meðal lækna. Þetta verður gert með því að nýta starfskrafta lækna frá öðrum sérgreinum til aðstoðar. „Það getur hins veg- ar reynst flókið þar sem þessir læknar eru með aðra þjónustu á sínum snærum auk þess sem fólk er búið að skipuleggja sumarleyfi,“ segir Runólfur. Bæði læknar með langa starfsreynslu og nýlega útskrifaðir bráða- læknar hafa yfirgefið bráðamóttökuna undanfarin ár. „Við höfum verið að vinna í því að reyna að koma með einhver úrræði sem duga til þess að tryggja ör- yggi sjúklinga og veita starfsliðinu á bráðamóttökunni stuðning,“ segir Runólfur og bætir við að þessi úrræði kalli á skipulagsbreytingar víða, meðal annars í sér- greinum á spítalanum, og aðra forgangsröðun en hefur verið. Runólfur segir að nú þegar séu sérgreinar með starf- semi á bráðamóttökunni en það þurfi að auka hana verulega, það sé verið að vinna að því. „Ég held að það sé nú að smella hjá okkur en það breytir því ekki að það er viðvarandi þarna. Það virðist einhvern veginn aldrei vera tekið almennilega á rót vandans.“ Alvarleg staða á bráðamóttöku - Nýta starfskrafta lækna úr öðrum sérgreinum til að mæta manneklu - Úrræði kalla á skipulagsbreytingar Morgunblaðið/Árni Sæberg Vandi Mikill erill hefur verið á bráðamóttökunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.