Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Kartell Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is BOURGIE Borðlampi Frá 39.900,- ÚTSKRIFTAGJAFIR JELLIES glas – 3.290,- stk. PLANET Borðlampi 28cm 54.900,- MASTERS Stóll – 33.900,- COMPONIBILI hirsla 3ja hæða – frá 18.900,- MOON skál Ø: 45 cm – 13.900,- AIR DU TEMPS Klukka – 17.900,- BATTERY Hleðslulampi Lítill frá 21.900,- Stór 43.900,- Guðni Einarsson gudni@mbl.is KOMPÁS Þekkingarsamfélagið er vettvangur samstarfs fjölda fyrir- tækja, stofnana, háskóla og annarra skóla, sveitarfélaga, stéttarfélaga, lífeyrissjóða og fleiri um miðlun hag- nýtrar þekkingar. Fjöldi tóla í verkfærakistunni „Hugsunin er sú að það þurfi ekki alltaf að finna upp hjólið heldur sé hægt að miðla hagnýtum upplýs- ingum sem aðrir geta nýtt. Þar má t.d. nefna verkferla, eyðublöð og gát- lista, vinnulýsingar, samninga, reiknivélar og myndbönd. Það eru meira en 3.000 skjöl og myndbönd í verkfærakistu okkar í dag,“ sagði Björgvin Filippusson, stofnandi og framkvæmdastjóri KOMPÁSS Þekkingarsamfélagsins (kompas.is). „Ég stofnaði Kompás sem ráðgjaf- arfyrirtækið árið 2001. Svo var mér boðið að koma að ræsingu og þróun verkefnisins „Ráðgjafi að láni“ sem er á sviði starfsþróunar, sí- og endur- menntunar hjá hinu opinbera. Þeir sem stóðu að baki því voru starfs- mannaskrifstofa fjármálaráðuneyt- isins og stéttarfélagið SFR. Átti sér enga fyrirmynd Ég var beðinn af þessum sömu að- ilum árið 2005 að koma með hug- mynd að lausn varðandi mannauðs- málin. Ég lagði fram ákveðna hugmynd sem fékk fljótlega nafnið KOMPÁS Mannauður. Þegar við vorum að byrja á þessu á árunum 2005-2006 virtist þetta hvergi vera til í heiminum. Hugmyndin var alveg einstök hvað varðar hugmyndafræð- ina, hvernig efnið er búið til í hóp- vinnu og ritrýnt. Einnig miðlun upp- lýsinganna. Menn vildu strax sjá þessa hugmynd komast til fram- kvæmdar og springa út fyrir fleiri svið eins og stefnumótun, verk- efnastjórnun, lýðheilsu, umhverf- ismál, nýsköpun, mannvirkjagerð, skóla, velferðarþjónustu, heilbrigð- isstofnanir og ýmsar atvinnugreinar og starfssvið. Nafnið Kompás á ágætlega við því þegar þú skráir þig inn mætir þér ákveðið leiðakerfi. Kompásinn, eða áttavitinn, hjálpar þér að rata þar um, en kerfið er mjög aðgengilegt fyrir notandann,“ sagði Björgvin. Viljugir að deila upplýsingum Rekstur Kompáss er fjármagn- aður með þátttökugjöldum. Björgvin sagði að þau séu lág en greiðendur nokkuð margir. „Við getum rekið okkur á lágum þátttökugjöldum því við erum ekki að borga fyrir efnið. Við hvetjum menn til að deila þekk- ingu sinni á þessum vettvangi en við þurfum fjármagn til að vinna efnið og þróa vettvanginn áfram.“ Björgvin sagði að þátttakendur séu ekki tregir til að deila upplýs- ingum með öðrum. Sem höfundar geti þeir skapað sér ávinning af því að leggja efnið fram. Auk þess er allt efnið ritrýnt og því kostur fyrir höf- undana að fá Kompás til að fara yfir og rýna efnið og gæðasetja það. Fjöldi fólks hefur tekið þátt Fastir starfsmenn Kompáss eru tveir en hátt í 600 aðilar hafa komið að þátttöku í uppbyggingu Kompáss. Auk þess hefur fjöldi fólks komið að gerð efnis í verkfærakistuna, m.a. í gegnum vinnuhópa hjá fyrirtækjum, stofnunum og víðar. „Þarna eru jafnt nýsköpunarfyrir- tæki og ISO-vottaðir vinnustaðir, íþróttafélög, menntastofnanir og stéttarfélög svo nokkuð sé nefnt. Þetta er allt frá einyrkjum upp í stærstu vinnustaði landsins. Við er- um líka með samstarfssamninga við háskólana og efnið okkar hefur verið nýtt við kennslu. Við höfum einnig tekið þátt í að búa til kennsluefni með skólunum. Nemendur hafa fengið aðgang hjá okkur og við höf- um byggt brýr milli atvinnulífs og skóla,“ sagði Björgvin. Risavaxinn ávinningur Hann sagði að menning þekking- armiðlunar sé víða lengra komin en hér á landi. „Kompás stuðlar að því að menn sitji ekki á þekkingunni heldur deili henni með öðrum, sýna samfélagslega ábyrgð og efla faglega stjórnun“ sagði Björgvin. „Um leið og þú miðlar þekkingu þá kemur það til baka til þín í gegnum þekkingar- samfélagið. Menn geta sparað gríð- arlega mikinn tíma og fjármuni með þátttöku í þekkingarsamfélaginu. Ávinningurinn getur verið risavax- inn þegar upp er staðið. Mig óraði ekki fyrir því hvað hann getur orðið mikill þegar ég fór af stað með þetta verkefni.“ Það sem sparast er fyrst og fremst tími, og tími er peningar. Menn nýta sér efni í verkfærakistu Kompáss og laga það að sínum þörfum í staðinn fyrir að byrja vinnuna frá grunni. Þannig þarf ekki að eyða tíma í að finna aftur upp það sem þegar er til. Hugtakasafn ferðaþjónustu Kompás hefur greint þarfir tiltek- inna atvinnugreina og mætt þeim. „Til dæmis kölluðum við saman aðila úr ferðaþjónustunni. Þar kom fram að greinin þyrfti að tala sama tungumál. Við bjuggum því til orða- safn. Nú geymir Hugtakasafn ferða- þjónustunnar um 600 skilgreind orð og hugtök á íslensku og ensku. Það stuðlar að auknum gæðum í ferða- þjónustunni. Til dæmis ef einhver bókar „double“ rúm (tvíbreitt) þá eru ekki tekin frá „twin“ rúm (tvö að- skilin) á hinum endanum. Hugtaka- safnið er einnig notað í kennslu allt upp á háskólastig. Kompás hefur þannig byggt brú á milli atvinnulífs og skóla og eins á milli fræðilegrar og hagnýtrar þekkingar,“ sagði Björgvin. Seilst inn á svið Kompáss Hann kveðst sorglega oft verða þess var að hið opinbera sé að setja mannskap og fjármuni í verkefni sem búið er að gera með Kompási, byggist á hugverkinu eða unnið hef- ur verið að til langs tíma hjá Komp- ási. Kompás hefur í sumum tilvikum þurft að gæta réttar síns og hreyft athugasemdum, sem leiðir ekki alltaf til góðs því „kerfið ver sig“ eins og það hefur stundum verið kallað. Þetta hefur tafið að þekkingarsam- félagið hafi sprungið út og skilað þeim mikla ávinningi sem vænst hef- ur verið af atvinnulífi og skólum. Vegferð Kompáss heldur áfram þrátt fyrir hindranir, því ávinning- urinn er ómetanlegur af öflugu og virku þekkingarsamfélagi á þessum vettvangi samstarfs, að sögn Björg- vins. Skipst á hagnýtum upplýsingum - KOMPÁS Þekkingarsamfélag er samstarfsvettvangur margra ólíkra aðila - Þátttakendur víða að skiptast þar á þekkingu og hagnýtum lausnum í stað þess að finna upp hjólið aftur og aftur Morgunblaðið/Árni Sæberg Frumkvöðull Björgvin Filippusson er stofnandi og framkvæmdastjóri KOMPÁSS Þekkingarsamfélags sem er vettvangur fjölda aðila víða að. Kort/Kompas.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.