Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
Ú T S K R I F TA G J A F I R
KARTELL BOURGIE lampi
chrome – 59.900,-
KLIPPAN
ullarteppi
14.900,-
ROSENDAHL PREMIUM
bjórglös 2stk – 4.290,-
URBAN BAR MOSCOW MULE
bolli 32 cl – 1.990,-
sjússamælir – 2.490,-
RIG TIG hnífa-
standur – 9.990,-
AIDA hnífaparasett
60.stk. – 39.990,-
BIALETTI rafmagns
mjólkurflóari – 12.990,-
HEKLA skúlptúr LÓA
lítill 7.500,-
stór 10.900,-
SPECKTRUM FLOW
vasi 25cm – 7.690,-
SPECKTRUM SQUARE
kertastjaki – 7.690,-
AIDA pizzabretti
46 cm – 6.990,-
DESIGN LETTERS FAVOURITE
bolli – 3.290,-
VORHÚS handklæði
70x150 cm
6.790,-
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hef-
ur hafnað ósk lóðareiganda, Gömlu
Reykjavíkur ehf., um að reisa
þyrpingu smáhýsa á lóðunum nr.
53 og 55 við Hverfisgötu, sam-
kvæmt uppdráttum Hornsteina
arkitekta ehf. Lóðirnar eru neðan
götunnar, á horninu við Vatnsstíg.
Sami eigandi að lóðunum
Sótt var um deiliskipulagsbreyt-
ingu fyrir lóðirnar Hverfisgötu 53
og 55. Um er að ræða 10 íbúðir,
36,24 fermetra hver, með opnum
útistiga undir þaki. Sami eigandi
er að Hverfisgötu 53-55 og Vatns-
stíg 8 og 10 B, sem stendur að
þessari umsókn.
Fram kemur í umsókninni að
húsin við Hverfisgötu 53 og 55,
ásamt húsunum við Vatnsstíg 8 og
10a, hafi verið færð til uppruna-
legs horfs á síðustu árum og að-
löguð nýrri notkun. Þau myndi
sterka og samstæða götumynd
sem viðhaldi fjölbreytileika
Skuggahverfis.
Tillagan gerir ráð fyrir að þyrp-
ingin á horni Hverfisgötu og
Vatnsstígs, ásamt húsunum nr. 10
og 12 við síðarnefndu götuna,
verði uppistaðan í nýju íbúðaþorpi
í anda gamla Skuggahverfis. Á
grundvelli hins upprunalega
byggðamynsturs hverfisins, þar
sem bakbyggingar, gjarnan á lóð-
armörkum, voru regla en ekki
undantekning. (Samanber MÍR-
salinn við Vatnsstíg.)
Húsunum sé raðað kringum
aldagömul tré sem fái að njóta sín
áfram. Einungis sé gert ráð fyrir
því að fella eitt tré til þess að
tryggja að önnur eldri tré dafni
sem best. Einnig sé ráðgert að
planta nýjum trjám á reitnum.
Garðsvæðið milli húsanna sé hugs-
að í svipuðum anda; steinlagðir
stígar með fjölærum íslenskum
plöntum s.s. reynivið og hvönn,
þar sem lágtempruð lýsing skapi
aðlaðandi vin í miðborginni.
Tekið mið af byggingarhefð
„Við efnisval og frágang íbúðar-
klasans verði tekið mið af bygg-
ingarhefð hverfisins eins og hún
birtist í nærliggjandi byggingum
er reistar voru skömmu eftir þar
síðustu aldamót. Gert er ráð fyrir
því að húsin verði einingahús sem
framleidd verði í verksmiðju og
hífð tilbúin á staðinn til að raska
sem minnstu með vernd gamalla
trjáa í öndvegi,“ segir í umsókn-
inni.
Í umsögn verkefnisstjóra skipu-
lagsfulltrúa segir að samkvæmt
aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-
2030 njóti öll byggð innan gömlu
Hringbrautar hverfisverndar.
Í kafla um hverfisvernd innan
Hringbrautar segir m.a.: „Að
varðveita og styrkja þau einkenni
og það heildaryfirbragð gamla
bæjarins sem gera hann einstakan
og eftirsóknarverðan stað í al-
þjóðlegu samhengi – varðveita og
styrkja söguleg og fagurfræðileg
einkenni. Að við þróun byggðar
innan svæðisins verði gætt ýtrustu
varúðar og meginmarkmiðum
borgarverndarstefnu fylgt í hví-
vetna.
Ekki skal raska hinu sögulega
gatnaskipulagi, skipan bygging-
arreita og opinna rýma né lóða-
skipan. Ef breyta á grunnmynstri
byggðarinnar og sögulegu skipu-
lagi skal færa fyrir því sterk rök í
tillögu að deiliskipulagi og gera
grein fyrir því hvernig það sam-
ræmist markmiðum borgarvernd-
arstefnu og með hvaða hætti ný
byggð bætir þá byggð sem fyrir
er.“
Fellur illa að byggðamynstri
Verkefnastjórinn segir í umsögn
sinni að ekki verði séð hvernig til-
lagan með þyrpingu fimm smá-
hýsa innan reitsins falli að þessum
markmiðum aðalskipulagins.
„Tillagan fellur illa að byggða-
mynstri reitsins, smáhýsin eru of
mörg og aukning á byggingar-
magni innan lóðanna er of mikil,“
segir verkefnastjórinn og tekur
neikvætt í erindið.
Skipulagsfulltrúi samþykkti á
fundi sínum 28. maí sl. niðurstöðu
verkefnastjórans.
Morgunblaðið/sisi
Séð frá Vatnsstíg Húsunum átti að raða í kringum aldagömul tré á lóð.
Mynd/Hornsteinar
Smáhýsabyggð Þannig hugsuðu arkitektarnir sér að þyrping smáhýsa yrði á mótum Hverfisgötu og Vatnsstígs.
Hafna smáhýsum við Hverfisgötu
- Vildi byggja hús með 10 íbúðum, 36 fermetra að stærð - Skipulagsfulltrúi hafnaði hugmyndinni
Guðmundur Ingi Guðbrandsson um-
hverfisráðherra undirritaði á þriðju-
dag friðlýsingu Lundeyjar í Kolla-
firði. Verndargildi eyjunnar er ekki
síst fólgið í mikilvægi hennar sem
sjófuglabyggðar. Eyjan er í eigu rík-
isins en var í konungseign fram eftir
öldum.
Fjölskrúðugt varp sjófugla er í
Lundey, en þar verpa m.a. rita,
teista og æðarfugl sem eru á válista
Náttúrufræðistofnunar Íslands
ásamt lunda, sem telst vera í bráðri
hættu, segir í frétt á heimasíðu ráðu-
neytisins. Með friðlýsingunni á að
vernda þetta mikilvæga bú- og
varpsvæði, sér í lagi varpstöð lunda
til framtíðar en hátt í 10.000 lunda-
pör verpa í eynni. Í Lundey vex
fjöldi háplantna. Hið friðlýsta svæði
er 1,74 ferkílómetrar.
Eyjar á Kollafirði hafa um langt
árabil verið á náttúruminjaskrá, þ.e.
Þerney, Lundey, Engey og Akurey,
sem var friðlýst í maí 2019.
Undirritun friðlýsingarinnar fór
fram í Viðey, næstu eyju sunnan við
Lundey, að viðstöddum borgarstjór-
anum í Reykjavík og fleiri gestum.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lundey Liggur í innanverðum Kollafirði, milli Geldinganess og Brimness.
Lundey friðlýst
- Eyjan talin mikilvæg byggð sjófugla