Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 60
60 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
✝
Bjarnfríður
Andrea
Guðnadóttir fædd-
ist 10. nóvember
1958. Hún lést á
heimili sínu í
faðmi fjölskyld-
unnar 31. maí
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Guðni
Marinó Ingibjart-
arson frá Ísafirði,
f. 21.3. 1917, d. 5.5. 2002, og
Guðrún Veturliðadóttir frá
Súgandafirði, f. 31.5. 1921, d.
31.8. 2010.
Bjarnfríður Andrea, sem
yfirleitt var kölluð Adda, var
yngst fimm systkina. Systkini
hennar: Sólveig Bára, f. 31.1.
1945, Veturliði H., f. 16.9.
1946, Sævar, f. 27.12. 1949, d.
29.9. 1988, og Guðni Marinó, f.
25.7. 1956, d. 8.11. 2011.
Adda ólst upp á Ísafirði en
10.5. 1958. Sonur hans er Þór-
ólfur Freyr, f. 19.3. 1986.
Adda og Þór gengu í hjóna-
band 28.5. 2011 og héldu
heimili í Hafnarfirði.
Adda gekk í grunnskólann á
Ísafirði og lauk grunnskóla-
prófi þaðan. Hún starfaði í
eldhúsinu á sjúkrahúsi Ísa-
fjarðar. Þegar hún flutti til
Vestmannaeyja starfaði hún
um hríð hjá Vinnslustöð Vest-
mannaeyja og síðar í aðhlynn-
ingu á Hraunbúðum, dval-
arheimili aldraða. Adda
starfaði sem miðill og var
meðlimur í Sálarrannsókn-
arfélagi Íslands og Hafn-
arfjarðar. Adda greindist með
krabbamein í september 2008
og við tók lyfjameðferð og 13
ára barátta. Adda var lífsglöð
og þrjósk og það hjálpaði
henni mikið í baráttunni við
krabbameinið. Hún dvaldist
mikið inni á kvennadeild
Landspítalans og leið alltaf vel
þar. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Líf, styrkt-
arfélag kvennadeildarinnar.
Útförin fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag,
10. júní 2021, klukkan 13.
dvaldi mikið í
Vestmannaeyjum
sem unglingur hjá
systur sinni. Þar
kynntist hún Guð-
mundi Jónssyni, f.
1.9. 1948. Þau
gengu í hjónaband
30.5. 1980 og
bjuggu í Vest-
mannaeyjum. Þau
eignuðust tvö
börn: Guðrúnu, f.
10.8. 1979, og Jón Sævar, f.
11.2. 1992, d. 25.3. 2010. Adda
og Guðmundur slitu sam-
vistum árið 2008. Eiginmaður
Guðrúnar er Gísli Haukur
Þorvaldsson, f. 6.4. 1979. Þau
gengu í hjónaband 27.7. 2010
og eiga tvær dætur: Andreu
Ruth, f. 12.2. 2004, og Maríu
Þrá, f. 8.2. 2009. Fjölskyldan
býr í Hafnarfirði.
Eftirlifandi eiginmaður
Öddu er Þór Magnason, f.
Elsku mamma, nú kveð ég
þig í hinsta sinn.
Það er erfitt að trúa því að þú
sért farin, að ég eigi aldrei eftir
að hitta þig aftur. Veikindin síð-
ustu ár tóku mikinn toll en við
náðum að eiga gæðastundir sem
ég mun ávallt varðveita. Það er
óneitanlega komið stórt skarð í
líf mitt.
Við mamma vorum góðar vin-
konur og spjölluðum saman í
síma á hverjum degi, stundum
oft á dag. Mamma var lífsglöð,
hress og ljúf. Hún vildi engum
illt og það var alltaf stutt í grín-
ið og hláturinn hjá henni, alveg
fram á síðasta dag.
Hún studdi mig þegar ég vildi
flytja frá Eyjum og fara í fram-
haldsskóla í Hafnarfirði. Henni
fannst erfitt að ég færi en vildi
ekki tala mig af því. Hún studdi
mig líka þegar ég var á kross-
götum í náminu og vildi hætta.
Hafði fulla trú á því að það væri
tímabundið, að ég myndi finna
mína leið og ganga vel.
Hún hafði gaman af að hjóla
og fórum við í allmargar hjóla-
ferðir inn í Herjólfsdal eða út í
Klauf. Áttum góðar stundir í
eldhúsinu þar sem ég lærði
margt af henni. Vikulegu spila-
kvöldin okkar þar sem við spil-
uðum spilið okkar, Heima. Núna
mun ég kenna dætrum mínum
það svo við getum haldið hefð-
inni áfram. Sögurnar sem hún
spann upp á kvöldin þegar hún
var að svæfa mig eða Jón Sæv-
ar. Hún hafði alltaf hug á að
gefa sögurnar út en aldrei varð
neitt úr þeim draumi. Ég man
að ég lá oft við hliðina á henni
að fylgjast með henni lesa í bók
og ég reyndi að anda í takt við
hana, endaði alltaf á að sofna út
frá því. Allar sögurnar sem hún
sagði mér af æskubrekum sín-
um, malbikandi í sparifötunum
og hvernig hún ætlaði að verða
skautadrottning. Hún elskaði
fjöllin á Ísafirði mikið, talaði
alltaf um fjöllin sín og andlit
hennar ljómaði þegar við nálg-
uðumst Ísafjörð og stoppuðum
við gatið í gegnum Arnarnes-
hamarinn. Amma og afi biðu þar
með kaffi og kleinur. Síðan var
keyrt í gegnum gatið og staðið á
flautunni.
Ég var alltaf að biðja um lítið
systkini og svo gerðist það
kraftaverk að Jón Sævar kom í
heiminn. Lítill glókollur, grallari
af guðs náð, listrænn með ein-
dæmum og ljúfur drengur sem
við fengum að hafa allt of stutt
hjá okkur. Það var allt of mikið
lagt á hana í gegnum ævina,
veikindi, áföll og erfiðleikar. En
hún tók á þessu öllu eins og
henni einni var lagið. Leitaði
styrks hjá fólkinu sínu, í bæn-
inni, trúnni, gleðinni og voninni.
Nú ertu komin í sumarlandið
og ég veit að þar ertu í faðmi
fjalla blárra sameinuð Jóni Sæv-
ari. Ekki meiri erfiðleikar eða
veikindi, bara gleði, heilsa og
hugarró.
Tárin renna
sorgin snertir hjartað mitt
lítið tré fellir laufin
eitt og eitt
uns þau hverfa ofan í jörðina
og koma ekki upp aftur.
Ég sé þig í huga mér
og dagurinn hverfur út í buskann
og eilífðin sjálf stoppar.
Ég kveð þig
með söknuð í hjarta og tár á hvarmi.
Eins og hörpustrengur er hjarta mitt
þegar ég hugsa um brosið þitt
eins og fallegur dagur sem kemur
og fer
mun stjarnan þín lýsa upp hjá mér
þetta er kveðjan mín
til þín
elsku besta mamma mín.
(Solla Magg)
Guðrún Guðmundsdóttir.
Elsku amma mín, mér finnst
skrítið að ímynda mér að næst
þegar ég kem í heimsókn þá
verður þú ekki þar, að ég muni
aldrei heyra í þér hlæja eða sjá
þig brosa aftur. Mér finnst mjög
erfitt að þú sért farin því í mín-
um heimi ertu í rauninni ekki
farin. Ef ég þekki þig rétt þá
muntu koma og kíkja á mig ann-
að slagið líkt og Jón Sævar ger-
ir. Ég mun alltaf finna fyrir þér
hjá mér, sama hvort það sé
minning, lykt, snerting eða til-
finning. Það er erfitt að útskýra
en ég mun vita af þér þegar þú
ert að passa upp á mig.
Þú ert sterkasta manneskja
sem ég veit um og ekki nóg með
það þá fæddir þú aðra ótrúlega
sterka stelpu. Ég er svo stolt af
ykkur báðum og þakklát fyrir að
geta kallað ykkur fjölskyldu
mína. Þú varst alltaf svo jákvæð
og glöð þrátt fyrir öll veikindin
og erfiðleikana sem þú gekkst í
gegnum. Þú sýndir alltaf að þótt
lífið sé erfitt þá er alltaf hægt að
finna eitthvað til að brosa yfir.
Þú varst alltaf að segja sögur
og búa til sögur. Ég man þegar
við María vorum hjá þér og við
lágum uppi í rúmi saman og þú
sagðir okkur frá þegar þú og
vinkona þín voruð í bíltúr með
pabba þínum og þið stoppuðuð á
bryggju. Pabbi þinn sagði ykkur
sögu um par sem fór að skauta
um miðjan vetur á sjónum. Kon-
an hverfur sjónum mannsins og
hann finnur hana ekki aftur.
Hann hverfur síðan sjálfur við
leitina að henni. Pabbi þinn
sagði að sumir sjái manninn enn
leitandi að konunni sinni á botn-
inum. Þessi saga fylgir mér því
mér finnst hún svo sorgleg en
falleg á sama tíma.
Við eigum margar góðar
minningar saman. Ein í uppá-
haldi hjá mér er þegar við María
fórum með þér og Þór í laut-
arferð við Kleifarvatn. Það var
ekki ský á himni og sólin skein.
Enn betra var að við vorum ein
þarna og höfðum vatnið út af
fyrir okkur. Við gengum um,
settumst niður, óðum í vatninu
og tókum nokkrar myndir. Við
skoðuðum líka Djúpavatn og
Grænavatn. Nokkrum dögum
seinna sýnið þið okkur mynd-
irnar sem voru teknar við Kleif-
arvatn. Þar sést í rauðhærða
konu í hvítum klæðum sitjandi
fyrir neðan okkur að horfa á út-
sýnið. Þú varst handviss um að
þetta væri huldukona að passa
að við myndum ekki detta fram
af. Ég var alltaf hrædd við hug-
myndina um drauga og huldu-
fólk en þú talaðir alltaf um þau
sem hjálpara þeirra lifandi og
það dró úr hræðslu minni. Þú
opnaðir töfraheim fyrir okkur
með öllum sögunum þínum um
álfa og huldufólk. Að sjá þig
trúa svo innilega leyfði okkur
Maríu að trúa. Í kringum þig
var maður aldrei of gamall til að
trúa á þennan heim.
Þú kenndir mér margt
skemmtilegt, þú kenndir mér að
synda, leika mér með orkusteina
og nýlega hefur þú verið að
hjálpa mér að læra að lesa í spil
en það mikilvægasta sem þú
kenndir mér var að vera jákvæð
og hafa gaman af lífinu og ekki
taka öllu of alvarlega. Að mínu
mati eiga allir að lifa aðeins
meira eins og þú lifðir. Þú gerðir
lífið skemmtilegt hjá öllum sem
þekktu þig og ég get ekki annað
en þakkað þér fyrir að hafa ver-
ið góður og hlýlegur hluti af lífi
okkar. Takk fyrir að hafa verið
besta amma sem ég hefði getað
beðið um, ég elska þig svo mik-
ið.
Andrea Ruth Gísladóttir.
Elsku amma.
Ég á eftir að sakna þín svo
mikið. Það var alltaf gaman að
koma til þín, fá faðmlag og
heyra sögur af þér þegar þú
varst lítil og sögur af mömmu
þegar hún var lítil. Þú sagðir
líka margar skemmtilegar sögur
um álfa og huldufólk. Þú gafst
þér alltaf tíma til að sitja með
mér og sýna mér alla fallegu
orkusteinana þína. Ég elskaði að
fara í sund með þér, þú varst
svo dugleg að fara með okkur,
nenntir að leika við okkur í laug-
inni og hjálpaðir mér að læra að
synda. Allar minningar mínar
með þér eru dýrmætar og góð-
ar.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
María Þrá Gísladóttir.
Bjarnfríður Andrea
Guðnadóttir
- Fleiri minningargreinar
um Bjarnfríði Andreu Guðna-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 11-16 virka daga
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HALLDÓR JÓHANNSSON
læknir,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu
föstudaginn 4. júní.
Útför fer ekki fram að ósk Halldórs. Minningarathöfn fyrir þá
sem vilja minnast hans verður haldin á heimili hans, Sunnuflöt 4,
Garðabæ, miðvikudaginn 16. júní klukkan 17.
Margrét Halldórsdóttir Marinó Kristinsson
Stefanía Halldórsdóttir Lars Meyer-Myklestad
Halla Halldórsdóttir Einar Páll Indriðason
Jóhann Halldórsson Valgerður M. Backman
afabörn og langafabörn
Elsku hjartans sonur minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
GUÐMUNDUR RINGSTED,
Álfaskeiði 70,
Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
föstudaginn 4. júní. Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði þriðjudaginn 15. júní klukkan 15.
Anna Elín Ringsted
Davíð Guðmundsson Hulddís Guðbrandsdóttir
Guðbjörg V. Guðmundsdóttir Theódór Skúli Sigurðsson
Magnús Guðmundsson Julia Bakke
Anna Elín Guðmundsdóttir Ole Marselius Lillebo
barnabörn, systkini og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HALLDÓR INGI ANDRÉSSON
tónlistarspekingur,
lést á líknardeild Landspítalans 4. júní.
Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn
15. júní klukkan 13.
Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir
Guðný Þorsteinsdóttir Friðrik Magnússon
Anna María Halldórsdóttir Ólafur Páll Johnson
Friðbert Þór Ólafsson Ólafur Hrafn Johnson
Kolbeinn Ingi Friðriksson Halldóra Guðrún Johnson
Eydís Magnea Friðriksdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN LOVÍSA GRÍMSDÓTTIR,
áður til heimilis á Aflagranda 40,
Reykjavík,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund 2. júní. Útförin fer fram föstudaginn 11. júní klukkan 10.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir. Athöfninni verður streymt á:
https://youtu.be/fkldZsVAwuI.
Starfsfólki Grundar eru færðar alúðarþakkir fyrir góða umönnun.
Grímur Sveinbjörn Sigurðss. Sigríður Valgerður Finnsdóttir
Freysteinn Sigurðsson Kolbrún Sigurpálsdóttir
Hulda Guðlaug Sigurðard. Brynjar Þórarinsson
Guðbjörg Sigurðardóttir Skúli Kristjánsson
Sigurður Sigurðsson Liv Marit Solheim Sigurðsson
Sigrún Lovísa Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
ATLI BENT ÞORSTEINSSON,
sem lést mánudaginn 31. maí, hefur verið
jarðsunginn í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Píeta-samtökin.
Sigrún Ragnarsdóttir
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson
Benedikt M. Sch. Thorsteinsson
Patrick Jens Sch. Thorsteinsson