Morgunblaðið - 10.06.2021, Page 61
MINNINGAR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
✝
Elís Gunnar
Kristjánsson
fæddist 8. maí 1926
á Arnarnúpi í
Dýrafirði. Hann
lést á Vífilsstöðum
25. maí 2021.
Foreldrar hans
voru Guðbjörg
Kristjana Guðjóns-
dóttir, f. 20.8. 1897,
d. 31.12. 1989 og
Kristján Guð-
mundsson, f. 27.12. 1889, d.
20.12. 1973. Systkini Elísar
voru: Guðmundur Jón, f. 1921,
d. 1988, tvíburabróðir Guð-
mundar Jóns, drengur, f. 1921,
sem lést í fæðingu, Guðmunda, f.
1921, d. 1959, Guðjón Örn, f.
1922, d. 2021, Sigríður Guðný, f.
1925, d. 2016, Bjarni Sverrir, f.
1928, Ingvar Stefán, f. 1931, d.
1979 og Þorgeir Björgvin, f.
1937. Uppeldisbróðir Elísar var
Markús Stefánsson, f. 1928, d.
2010, en þeir voru systkina-
synir.
Elís kvæntist 8. nóvember
1952 Önnu Jóhönnu Ósk-
arsdóttur, f. 20.12. 1929, d. 3.1.
2003, frá Svefneyjum á Breiða-
firði.
bert Elís, f. 2007, Sandra Dís, f.
2008 og Thelma Rós, f. 2013.
5) Trausti, sérfræðingur hjá
VÍS, f. 1966, kvæntur Sif Þórs-
dóttur, f. 1966. Börn þeirra: Elís
Þór, f. 2002 og Þórhildur Anna,
f. 2004.
Elís ólst upp á Arnarnúpi í
Dýrafirði og bjó þar ásamt fjöl-
skyldu sinni til átján ára aldurs
er hann flutti til Reykjavíkur
þar sem hann stundaði sjó-
mennsku á stríðsárunum.
Ungur að árum greindist Elís
með berkla og var um tíma rúm-
fastur á sjúkrahúsi á Þingeyri
og á Landspítalanum áður en
hann hóf dvöl á berklahælinu
Reykjalundi í Mosfellssveit. Á
Reykjalundi kynntist Elís yfir-
lækninum Oddi Ólafssyni sem
átti eftir að reynast honum vel,
en undir handleiðslu Odds end-
urheimti Elís heilsu og hóf verk-
legt nám í trésmíði árið 1949.
Bóklega hlutann nam Elís síðan
við Iðnskólann í Reykjavík það-
an sem hann útskrifaðist árið
1954 sem trésmiður. Árið 1958
fékk Elís síðan réttindi sem
húsasmíðameistari. Árið 1950
kynntist Elís lífsförunaut sínum,
Önnu Jóhönnu Óskarsdóttur.
Þau gengu í hjónaband árið
1952 og hófu búskap á Reykja-
lundi, en vorið 1953 fluttu þau í
Miðstræti 8 í Reykjavík.
Elís verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag, 10. júní
2021, klukkan 13.
Börn Elísar og
Önnu eru:
1) Ólafur endur-
skoðandi, f. 1953,
kvæntur Stellu
Skaptadóttur, f.
1953. Börn þeirra:
a) Sjöfn, f. 1976,
maki Pálmi Jó-
hannsson, f. 1974.
Börn þeirra:
Snorri, f. 2008 og
Linda, f. 2012. b)
Skapti Örn, f. 1980, maki Guð-
rún Arna Sturludóttir, f. 1987.
Börn þeirra: Sturla Hrafn, f.
2018 og Elísabet Stella, f. 2020.
c) Hlín, f. 1989, maki Jón Bjarki
Magnússon, f. 1984.
2) Anna Björg grunnskóla-
kennari, f. 1959, gift Stefáni Jó-
hanni Björnssyni, f. 1957. Börn
þeirra: Stefán Jóhann, f. 1997 og
Anna Margrét, f. 1998.
3) Atli Þór, f. 1964. Sonur
hans: Óskar Máni, f. 1992, maki
Berglind Ösp Rafnsdóttir, f.
1991. Dóttir þeirra: Saga Björk,
f. 2016.
4) Hlynur, fjármálastjóri LS
Retail, f. 1965, kvæntur Addý
Ólafsdóttur, f. 1972. Börn
þeirra: Óliver Elís, f. 2004, Ró-
Við vitum ekki alveg hvar við
eigum að byrja, en það hellast yf-
ir okkur fallegar minningar um
þig síðan við munum eftir okkur
elsku pabbi minn og afi. Við eig-
um margar fallegar og góðar
minningar frá Vindási og Tungu-
bakka og síðar Fornastekk og
Fitjasmára sem ylja okkur um
hjartarætur þessa dagana.
Það sem við munum hvað
mest og best var hvað þið
mamma og amma Anna tókuð
alltaf vel á móti okkur – við feng-
um bestu móttökur og faðmlag í
heimi.
Þú varst alltaf mikill talsmað-
ur Breiðholtsins og sagðir hverf-
ið það best skipulagða í Reykja-
vík. „Sjöfn, þú veist að Mjóddin
er miðjan í Reykjavík!“ sagðir
þú, afi minn, eitt sinn við mig. Þú
reistir enda fjölskyldunni tvö
heimili í Breiðholtinu – í Tungu-
bakka og Fornastekk. Það er þér
og ömmu Önnu að þakka að ég
bý ásamt minni fjölskyldu í
Breiðholti í dag.
Við erum svo þakklát fyrir að
hafa átt þig elsku pabbi og afi
minn. Við kveðjum þig með mikl-
um söknuði og þökkum fyrir allt
sem þú gafst okkur og allar
stundirnar sem við áttum saman.
Í minningunni eru þær ómetan-
legar. Við biðjum góðan Guð að
taka vel á móti þér, en við vitum
að mamma og amma Anna tekur
vel á móti þér með góðum kaffi-
sopa. Góða ferð elsku pabbi minn
og elsku afi minn, þangað til við
hittumst á ný.
Takk fyrir allt og allt.
Þinn sonur og sonardóttir,
Atli Þór og Sjöfn.
Þakklæti er mér efst í huga
þegar ég kveð elskulegan
tengdaföður minn í dag. Þakk-
læti fyrir hlýjar móttökur þegar
ég kom í fjölskylduna og ætíð
síðan fann ég fyrir umhyggju,
hjálpsemi, velvilja og vináttu.
Elís fæddist og ólst upp í
Keldudal í Dýrafirði, hann náði
95 ára aldri og man því tímana
tvenna. Voru sumar af sögunum
hans ævintýri líkastar enda bjó
hann í torfbæ til 12 ára aldurs,
sótti sjóinn á opnum áttæringi,
sópaði upp krækiberjum með
strákústi og sigldi á stríðsárun-
um milli Íslands og Bretlands
svo eitthvað sé nefnt.
Tengdapabbi hafði marga
mannkosti, hann var ljúfur,
æðrulaus, ósérhlífinn, sjálfstæð-
ur, talaði aldrei illa um neinn,
handlaginn og ráðagóður. Ungur
maður fékk hann berkla sem
breyttu lífsáformum hans. Í stað
þess að stunda sjóinn tók við
sjúkrahúsvist og síðan endur-
hæfing á Reykjalundi þaðan sem
hann nam trésmíði og kynntist
lífsförunauti sínum, Önnu Jó-
hönnu Óskarsdóttur. Bar hann
ætíð hlýhug til Reykjalundar.
Elís var ern og upplýstur
maður og ekki komið að tómum
kofunum þegar leitað var til
hans, sama hvort það tengdist
sögunni og fyrri tímum, fréttum
líðandi stundar, stjórnmálum,
íþróttum, húsbyggingum, garð-
plöntum, veðrinu eða fréttum af
fjölskyldunni. Hann hafði mikinn
lífsvilja og leið best með fólkinu
sínu, ljómaði þegar barnabörnin
og barnabarnabörnin voru ná-
lægt. Honum var umhugað um
að geta tekið vel á móti öllum og
fannst mikilvægt að eiga hinar
ýmsu uppáhaldskextegundir,
íspinna og góðgæti fyrir gesti
sína bæði stóra og smáa.
Minningarnar eru margar og
dýrmætar, dásamlegar ferðir
vestur á æskuslóðirnar, samver-
an í sumarbústaðnum, Kanar-
íeyjaferðirnar, ýmsir viðburðir
og allar hversdaglegu stundirn-
ar.
Með þakklæti í hjarta kveð ég
þig elsku tengdapabbi.
Hvíl í friði og takk fyrir sam-
fylgdina.
Þín tengdadóttir,
Sif.
Elsku Elli,
Ástvinir munu þér aldrei gleyma,
meðan ævisól þeirra skín.
Þú horfin ert burt til betri heima.
Blessuð sé minning þín.
(Theodór Einarsson)
Þá er komið að því, kveðju-
stundinni. Eins erfið og sár sem
hún er þá veit ég að þú varst svo
tilbúinn að fara. Þú sagðir mér
eitt sinn að það hefði verið það
erfiðasta, að vera svo lengi án
lífsförunauts þíns, nú eruð þið
Anna sameinuð í draumalandinu.
Ég er svo endalaust þakklát fyrir
okkar kynni, og allar dásamlegu
stundirnar, við vorum svo lukku-
leg að hafa þig mikið í lífi okkar
og margt sem við upplifðum
saman. Ógleymanleg ferðalög til
Færeyja, Grænlands, Danmerk-
ur og yndi að fá að vera með þér
á Kanaríeyjum ykkar Önnu. Síð-
ast en ekki síst að fá að heim-
sækja heimahaga þína fyrir vest-
an, þú varst svo stoltur af
uppruna þínum og það voru for-
réttindi að fá þína leiðsögn og
frásagnir af uppvaxtarárunum,
það var allt best fyrir vestan, og
veðrið alltaf frábært, ef það
skyldi nú rigna, þá var það ekki
blaut rigning!
Ófáar voru stundirnar í Vind-
ási, sumarbústaðnum sem þú,
Hlynur og Trausti byggðuð sam-
an og gróðurinn sem veitir okkur
skjól er svo mikið þér að þakka,
þú með þína grænu fingur sást
um að gróðursetja, og hlúa að
landinu með einstakri natni svo
eftir stendur að við, sem tókum
við, fáum að njóta einstaks skjóls
og sælu. Líkt og í lífinu, með ást-
úð og umhyggju sem þú veittir
okkur, eftir stöndum við í skjóli,
umvafin hlýju frá þér.
Barnabörnunum sýndir þú
einstakan áhuga, og fundu þau
fyrir miklum kærleika, hlýju, ást
og ekki síst áhuga á öllu sem
gerðist í lífi þeirra. Varst alltaf
með á hreinu hvað þau höfðu fyr-
ir stafni, það voru ófá skipti sem
spurningin hvernig fór leikurinn
fékk að hljóma. Fram á hið síð-
asta fylgdist þú með öllum frétt-
um, varst alsæll með ipadinn þar
sem þú gast oft á dag farið inn á
þá fréttamiðla sem þú kaust en
að sjálfsögðu hélstu áfram þeim
vana þínum að hlusta á allar
fréttir í útvarpi og sjónvarpi sem
ríkisútvarpið bauð upp á!
Ráðagóður varstu þegar kom
að húsakaupum og framkvæmd-
um og það var ekkert sem fékk
þig stöðvað á níræðisaldri í að
stökkva upp á þak til að kanna
ástand þess áður en við færum
lengra með fjárfestingu okkar!
Þér fannst það einnig vel til
fundið þegar við héldum upp á 95
ára afmælið þitt á dögunum, að
boðið var upp á skemmtun í
formi smiða að störfum við palla-
smíði en það sem upp úr stóð við
þessi tímamót og þér fannst dá-
semd, var að allir fjölskyldumeð-
limir skyldu ná því að koma og
gleðjast saman á þessum tíma-
mótum.
Það fylgdi þér einstök hlýja,
kærleikur og umhyggja, og á
þinn rólyndishátt umvafðir þú
okkur fjölskylduna ást og góð-
vild, eftir stöndum við með sökn-
uð í hjarta en yndislegar minn-
ingar um ljúfmenni, sem ylja
okkur og munu fylgja okkur
áfram gegnum lífið.
Ljúfar voru stundir
er áttum við saman.
Þakka ber Drottni
allt það gaman.
Skiljast nú leiðir
og farin ert þú.
Við hittast munum aftur,
það er mín trú.
Hvíl þú í friði
í ljósinu bjarta.
Ég kveð þig að sinni
af öllu mínu hjarta.
(Maren Jakobsdóttir)
Þar til síðar, þín
Arndís (Addý).
Afi lifði öðru lífi en við þekkj-
um í dag, hann fæddist í torfbæ,
var sendur ungur á sjó og sigldi
til Bretlands í seinni heimsstyrj-
öldinni. Mér fannst svo gaman
þegar hann sagði mér sögur frá
æsku sinni, eins og þegar hann
var að lýsa fyrir mér fyrsta út-
varpi fjölskyldunnar en það var
15 kílóa þungt og þurfti hann að
ganga langt með 10 kílóa batt-
eríið til þess að hlaða það. Í sam-
vinnu við afa gerði ég kynningu
um skipalestirnar í seinni heims-
styrjöldinni og sagði hann mér
frá sinni upplifun, svo mætti
hann á kynninguna mína í skól-
ann og höfðum við bæði gaman
af.
Hann var harðasti og þrjósk-
asti maður sem ég hef kynnst og
var með allar fréttir líðandi
stundar á hreinu. Auk þess að
hlusta á útvarps- og sjónvarps-
fréttir horfði hann einnig á al-
þingisrásina og á textavarpið. Á
gamalsaldri eignaðist hann ipad
pro og las netfréttamiðla. Afi var
nútímalegur í hugsun og hafði
sterkar skoðanir í pólitík sem
honum þótti gaman að rökræða.
Þegar amma kvaddi stóð afi
frammi fyrir mörgum áskorun-
um en hann tókst á við þær af
sömu hörku og annað. Hann
ræktaði kartöflur í blómakerun-
um hennar ömmu og lærði að
baka rúgbrauð. Afi naut þess að
fara upp í Vindás, vera með
barnabörnunum sínum og hugsa
um trén.
Ég mun sakna þess að fá
kandís úr krúsinni og spjalla.
Hvíldu í friði elsku afi.
Þín
Anna Margrét.
Elís Gunnar
Kristjánsson
- Fleiri minningargreinar
um Elís Gunnar Krist-
jánsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
HINSTA KVEÐJA
Elsku langi.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mun hverfa úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna
fund .
Það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Takk fyrir alla frost-
pinnana, kexið, kúrið, ól-
sen-ólsen, veiðimann og að
vera ljúfastur allra manna.
Takk fyrir allt, elsku
langafi okkar. Góða ferð.
Snorri og Linda Pálmabörn.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST •REYNSLA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
mágkona, amma og langamma,
ÞORGERÐUR EGILSDÓTTIR,
Grímsstöðum,
Mývatnssveit,
lést mánudaginn 31. maí á HSN Húsavík.
Útför hennar fer fram frá Reykjahlíðarkirkju laugardaginn
12. júní klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni:
https://youtu.be/S4qMdZ20rpE
Brynjólfur Steingrímsson Guðrún H. Össurardóttir
Sigfríður Steingrímsdóttir
Egill Steingrímsson Þuríður Snæbjörnsdóttir
Jóhannes Steingrímsson Kristín Halldórsdóttir
Friðrik Steingrímsson Hrönn Björnsdóttir
Elín Steingrímsdóttir
Herdís Steingrímsdóttir Karl V. Pálsson
Helga Steingrímsdóttir Sigmundur Sigurjónsson
Herdís Egilsdóttir Hulda Þórhallsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær móðir okkar og amma,
ÞÓRA GUÐRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR
frá Borgarhöfn,
síðast til heimilis að Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu 28. maí.
Útför verður í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Pétur Jónsson
Jóna Gígja Jónsdóttir
Unnur Elísa Jónsdóttir
Jón Pétur Bosson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
REGÍNA HANNA GÍSLADÓTTIR,
Sléttuvegi 27, Reykjavík,
lést sunnudaginn 6. júní. Útför hennar fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
15. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Alzheimersamtökin.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Hrafnistu við
Sléttuveg fyrir góða umönnun.
Þórður Haukur Jónsson
Jón Rafnar Þórðarson Valgerður Ásgeirsdóttir
Björgvin Þórðarson Þórhildur Garðarsdóttir
Unnur Th. Söreide Torleif Söreide
Marta Þórðardóttir Egill Þorsteins
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
ÞÓRA VÍKINGSDÓTTIR,
ónæmisfræðingur og kennari,
varð bráðkvödd á heimili sínu, Mosagötu
13, Garðabæ, mánudaginn 31. maí.
Blóm og kransar er vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að hægt er að styrkja góðgerðarstarf.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju laugardaginn
12. júní klukkan 13.
Slóð á streymi er: www.streyma.is.
Bjarni Jónsson
Sveinbjörg Bjarnadóttir
Þóra H. Bjarnad. Lynggaard Niels Lynggaard
Valgerður Bjarnadóttir Jóhannes Ingi Torfason
Kári Kristinn Bjarnason Særún Anna Traustadóttir
Sölvi, Silja og Svana
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
INGIBJÖRG HULDA ELLERTSDÓTTIR,
áður til heimilis að Brekkugötu 38,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð 3. júní.
Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju
föstudaginn 11. júní klukkan 13.
Jónína Freydís Jóhannesd. Ingvi Þór Björnsson
Anna Hafdís Jóhannesd. Óskar A. Óskarsson
Agnes Bryndís Jóhannesd. Reimar Helgason
Jórunn Eydís Jóhannesd. Páll Viðar Gíslason
Hanna Vigdís Jóhannesd.
ömmu- og langömmubörn