Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 69

Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 69
urnar frá stóru félagsliðunum taka að sér hlutverkin í sínum landsliðum. Michel Platini, besti knattspyrnu- maður Evrópu á þeim tíma, leiddi Frakka til Evrópumeistaratitils á heimavelli árið 1984. Stjarnan frá Ju- ventus fór á kostum á þessu móti, rétt eins og Diego Maradona gerði á heimsmeistaramótinu 1986. Platini, með gaulverska hanann á brjóstinu, skoraði níu mörk í fimm leikjum – sem miðjumaður. Þýskir sjónvarps- áhorfendur kusu flugskallann hans gegn Júgóslavíu mark mánaðarins. Árið 2016 fór Gareth Bale með Walesbúa í undanúrslitin. Stór- stjarnan Cristiano Ronaldo lét líka þjóð sína njóta snilli sinnar. Portúgal stóð uppi sem sigurvegari án Ronal- dos sem fór meiddur af velli snemma í úrslitaleiknum en hvatti liðið áfram af varamannabekknum. Þar sást vel að hann áttaði sig á því að hann gæti líka hagnast á styrkleika samherj- anna. Þessi titill fullkomnaði feril hans sem fótboltamaður. Belgarnir og Benzema Núna skulum við taka sérstaklega vel eftir Kevin de Bruyne, leikmanni Manchester City. Belgía er með fleiri góða fótboltamenn eins og Eden Hazard, Romelu Lukaku og Thibaut Courtois. Sem fótbolta- áhugamaður er þetta lið sem maður vill sjá vinna. Það er líka forvitnilegt að sjá Karim Benzema, 33 ára gaml- an framherja í heimsklassa. Frakk- ar urðu heimsmeistarar 2018 og fengu silfrið á EM 2016 án hans. Ef Didier Deschamps vill komast í þriðja úrslitaleikinn í röð á stórmóti, eins og Spánn gerði frá 2008 til 2012 og Þýskaland frá 1972 til 1976, verð- ur franski þjálfarinn að koma þess- um mikla karakter frá Madríd inn í liðið. Frakkland er einu sinni sem oftar með eitt af sigurstranglegu liðunum, rétt eins og Ítalía og Spánn. Eða Þýskaland, sem Joachim Löw ætlaði að byggja upp að nýju fyrir tveimur árum. Samt hefur hann kallað aftur á tvo heimsmeistara, þá Thomas Müller og Mats Hummels, sem höfðu verið settir út. Nú er spurning hvaða áhrif það hefur á liðið. Eftir að hafa fallið snemma úr keppni á HM 2018 er mikilvægt fyr- ir Löw að gera öllum sínum leik- mönnum grein fyrir því að það fylgir því sérstök ábyrgð að spila fyrir hönd þjóðar sinnar. Ég hlýddi á þjóðsönginn minn 113 sinnum inni á vellinum og var snortinn í hvert skipti. Peningar og samningar skipta minna máli þegar landslið á í hlut en í daglegu lífi hjá félagsliðinu. Þar snýst meira um samvinnu, vin- áttu, heimalandið, alla þá hluti sem skipta máli í liðsíþrótt. Þú skrifar söguna á EM eða HM. Áskorun að vera lítilmagninn Rétt eins og alheimsfótboltinn hefur fjöldi þátttökuþjóða vaxið, úr átta árið 1960, í sextán árið 1996 og í 24 árið 2016. Í ár eru Finnar með í fyrsta sinn. Ef tekið er mið af þeirra fótboltamenningu og þjóðar- einkennum eru þeir ekki sigur- stranglegastir. Þeir eru sammála því. Það er líka áskorun að vera tal- inn lítilmagni. Norður-Makedóníumenn sem sigruðu Þýskaland í mars mæta líka til leiks í fyrsta sinn. Þetta unga lýðveldi skipti um nafn af póli- tískum ástæðum. Það vill komast í NATO og Evrópubandalagið en hefur ekki enn haft erindi sem erf- iði. Þátttaka á EM mun efla sjálfs- traustið. Þeir vilja sýna hverjir þeir eru og hvað þeir vilja ekki vera. Ekki slæm hvatning fyrir stórmót. Kórónuveiran keppir ekki á mótinu en hún er stórveldi sem mun halda áfram að benda okkur á hvað skiptir máli fyrir hverja þjóð næstu vikurnar: Samstaða og heið- arleiki. Auðvitað mun veiran hafa áhrif á þessa útbreiddu Evr- ópukeppni. Það hefur hún þegar gert því Dublin og Bilbao voru því miður strikaðar út sem keppn- isborgir. Fyrir Evrópu og allan heiminn verður verkefnið áfram að sjá til þess að allir séu öruggir. Samt sem áður eigum við að geta fagnað þessu Evrópumóti sem frjálsri og friðsamri keppni þjóð- anna á milli. Reuters 1992 Danir voru óvænt ræstir út í sumarfríi og sendir á EM þar sem þeir urðu meistarar. ÍÞRÓTTIR 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Brynjar Ingi Bjarnason er nafn sem skyndilega er á allra vörum, allavega hjá þeim sem hafa fylgst með vináttulands- leikjum karlalandsliðsins í fót- bolta að undanförnu. Saga hans er óvenjuleg í fót- bolta síðari ára þar sem keppst er við að finna hæfileikaríkustu ung- mennin sem allra fyrst og helst strax í 5. flokki. Sjá svo til þess að þau séu búin að spila tugi leikja með yngri landsliðum og komin á atvinnusamning á táningsaldri. Svo kemur strákur frá Akur- eyri sem aldrei hefur verið valinn í landslið, ekki einu sinni í hóp hjá yngra landsliði, fyrr en hann dett- ur óvænt inn í A-landsliðið, 21 árs gamall, og slær í gegn. Skorar meira að segja einu marki meira en sjálfur Robert Lewandowski, andstæðingur hans í leiknum í Poznan á þriðjudaginn. Lew- andowski komst ekki einu sinni í marktækifæri gegn KA- manninum. Þeir einu í seinni tíð sem ég man eftir að hafi átt sambærilega síðbúna innkomu í landslið eru Birkir Már Sævarsson sem spilaði fyrst landsleik 21 árs gamall, þá reyndar með 21-árs landsliðinu, og Alfreð Finnbogason sem kom tvítugur inn í sama landslið. Birk- ir lék á dögunum sinn 98. A- landsleik. Frá minni kynslóð man ég eftir svipuðu ferli með Sævar Jónsson og Þorgrím Þráinsson sem komu seint fram á sjónarsviðið en áttu báðir fínan feril og Sævar varð einn leikjahæsti leikmaður lands- liðsins. Nú verður áhugavert að sjá hvernig Brynjari Inga tekst að nýta sér meðbyrinn. Viðbúið er að hann eigi ekki eftir að spila marga leiki til viðbótar í KA- búningnum. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Philipp Lahm var fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu þegar það varð heimsmeistari árið 2014 og lék með Bayern München í fimmtán ár. Hann er mótsstjóri Evrópumóts karla sem fram fer árið 2024. Pistlar hans um knattspyrnu, „Mitt sjónarhorn“, birtast reglulega í Morgunblaðinu. Þeir eru skrifaðir í samvinnu við Oliver Fritsch, íþróttaritstjóra þýska netmið- ilsins Zeit Online, og birtast í fjölmiðlum nokkurra Evrópulanda. Í þriðja pistli sínum í dag fjallar Lahm í sögulegu samhengi um Evrópukeppni karla í fótbolta en lokakeppni EM 2020 sem haldin er í ellefu borgum víðs vegar um Evrópu í þetta skipti hefst á morgun eftir að hafa verið frestað um eitt ár vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Pistlahöfundurinn Philipp Lahm Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir úr GR er komin í 32 manna úrslit á Opna breska áhugamannamótinu í golfi í Kilm- arnock í Skotlandi en Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR og Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG féllu báðar úr keppni í gær. Ragnhildur lék frábærlega í fyrradag þeg- ar hún spilaði á 66 höggum og varð efst allra keppenda á mótinu að loknum tveimur hringjum en þá var leikinn hefðbundinn höggleikur. Efstu 64 keppendurnir komust áfram í 2. umferð mótsins þar sem leikin er holukeppni og 64 manna úrslitin voru leikin í gær. Ragnhildur mætti Aine Donegan frá Írlandi sem end- aði í 64. sæti í höggleiknum og mátti sætta sig við ósigur gegn þeirri írsku. Hulda Clara, sem endaði í 12. sæti höggleiksins mætti Jó- hönnu Leu sem endaði í 53. sæti í 2. umferðinni í dag og þar hafði Jóhanna betur. Hún heldur því áfram keppni í dag og mætir Hazel Macgarvie frá Skotlandi sem endaði í 21. sæti höggleiksins og sló í gær út Katie Warren frá Englandi. vs@mbl.is Jóhanna áfram í Skotlandi Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir Padova vann í gærkvöldi 1:0- útisigur á Avell- ino í seinni leik liðanna í undan- úrslitum um sæti í ítölsku B- deildinni í fót- bolta. Fyrri leik- urinn endaði með 1:1-jafntefli og vinnur Padova því einvígið 2:1. Emil Hallfreðsson lék allan leik- inn með Padova á miðjunni en hann hefur verið í lykilhlutverki hjá lið- inu á leiktíðinni og skorað þrjú mörk í 31 leik. Miðjumaðurinn hefur nú leikið 400 deildarleiki á ferlinum sem hófst hjá FH. Flestir leikirnir komu með Verona á Ítalíu eða 184. Þá hefur hann leikið með Malmö, Lyn, Reggina, Barnsley, Udinese, Fros- inone og Padova. Í þeim hefur hann skorað 36 mörk Emil á 73 landsleiki að baki þar sem hann skoraði eina markið sitt gegn Spánverjum í undankeppni EM 2008 á Laugardalsvelli. Emil og félagar mæta Aless- andria í úrslitum um sæti í næst- efstu deild. Nánar má lesa um feril Emils á mbl.is/sport/fotbolti/ Emil í úrslit eftir 400. leikinn Emil Hallfreðsson Knattspyrnufélögin Lecce á Ítalíu og Sotsjí í Rússlandi hafa mikinn áhuga á að fá landsliðsmanninn Brynjar Inga Bjarnason í sínar rað- ir frá KA. Brynjar hefur slegið í gegn með íslenska landsliðinu síð- ustu vikur og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Póllandi á þriðjudag með þrumufleyg í þriðja landsleiknum. Brynjar er aðeins 21 árs. Akureyri.net greindi frá. Lecce hafnaði í fjórða sæti ítölsku B-deildarinnar á síðustu leiktíð og Sotsjí í fimmta sæti rúss- nesku úrvalsdeildarinnar. Sotsjí og Lecce vilja Brynjar AFP Ítalía Brynjar Ingi Bjarnason er eftirsóttur af félögum í Evrópu. Aganefnd HSÍ úrskurðaði í gær Valsmanninn Agnar Smára Jónsson í eins leiks bann fyrir rauða spjald- ið sem hann fékk gegn ÍBV í undan- úrslitum Íslandsmótsins í handbolta á þriðjudagskvöld. Agnar fékk rautt spjald í blálokin fyrir að hindra Eyjamenn í að taka snöggt innkast. Skyttan fékk einnig rautt spjald í leiknum á undan gegn KA og fékk því reisupassann tvo leiki í röð. Valur vann leikinn 28:25 en lið- in mætast í annað skiptið á föstu- daginn kemur og verða Valsmenn þá án Agnars. Agnar úrskurð- aður í bann Ljósmynd/Þórir Tryggvason Bann Valsmaðurinn Agnar Smári Jónsson verður ekki með gegn ÍBV. Nikola Jokic, leikmaður Denver Nuggets, hefur verið útnefndur besti og mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar í körfuknattleik 2020-21. Hann er fyrsti leikmaður Denver sem hlýtur þessa viður- kenningu og jafnframt fyrsti Serb- inn. Einu Evrópubúarnir á undan honum voru Þjóðverjinn Dirk No- witzki og Grikkinn Giannis Ante- tokounmpo. Jokic lék frábærlega með Denver í vetur, skoraði 26 stig, tók 11 fráköst og átti 8 stoðsend- ingar að meðaltali í 72 leikjum í deildakeppninni. Jokic bestur í NBA-deildinni AFP Bestur Nikola Jokic hefur átt frábært tímabil með Denver. Reuters 2004 Grikkir slógu rækilega í gegn í Portúgal þegar þeir urðu óvæntir Evrópumeistarar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson 2016 Íslenska landsliðið vann hug og hjarta heimsbyggðarinnar á EM í Frakklandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.