Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 8

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 FRAMTÍÐ LÍFEYRISKERFISINS Fulltrúaráðsfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn þriðjudaginn 15. júní kl. 17:00 á Grand hóteli, Reykjavík. Við leyfum okkur að horfa 50 ár fram í tímann þar sem hugað er að: KYNNINGARFUNDUR Auk kjörinna fulltrúa eru allir sjóðfélagar velkomnir á fundinn á meðan að húsrúm leyfir. Á fundinum mun Benedikt Jóhannesson gera grein fyrir úttekt Talnakönnunar hf. á tryggingarvernd sjóðfélaga Birtu í víðu samhengi. Nægjanleika lífeyris Áhrifum séreignar á lífeyri og ráðstöfun hennar til húsnæðiskaupa Samspili við almannatryggingakerfið Breytingum á grunnforsendum lífeyris Fundinum verður streymt á vef Birtu, www.birta.is Andríki sagði frá því á dögunumað það hefði fengið MMR til að kanna álit almennings á skrifum í athugasemdakerfi fjölmiðla. Að- eins 3% spurðra sögðust bera mjög eða frekar mikið traust til skrifa í at- huga- semdakerfi. Heil 85% bera mjög eða frek- ar lítið traust til slíkra skrifa. Um þetta segir Andríki: „Í athugasemdakerfum vefmiðla hím- ir hópur ritsóða. Sumir þeirra fela sig á bak við fölsk nöfn. Engu að síður virðast sumir fjöl- miðlar telja það sér til framdráttar að halda úti slíkum vettvangi. Þeim er það að sjálfsögðu frjálst. Þetta eru jafnvel fjölmiðlar sem skráðir eru á markað í virðulegum kauphöllum eða guma af sam- félagslegri ábyrgð, rannsóknar- blaðamennsku og siðareglum rit- stjórnar. - - - Þess verður einnig vart að fjöl-miðla- og stjórnmálamenn telji það einhver tíðindi sem fram fer í þessum sorglega afkima. „Net- heimar loga“ skrifa sumir blaða- menn þegar virkir í athuga- semdum láta gamminn geisa. „Mikil reiði er í samfélaginu“ segja sumir stjórnmálamenn eftir að hafa lesið hroðann. - - - Aðalsmerki virkra í at-hugasemdum er að efast um heilindi fólks sem er í fréttum. Fólk hafi ætíð óhreint mjöl í poka- horninu.“ - - - Nú eru athugasemdakerfi ekkiöll eins en þetta er engu að síður athyglisvert. Og það er um- hugsunarefni hvort ýmsir afkimar samfélagsmiðla-umræðunnar njóti ekki ámóta vantrausts. Þar er um- ræðan iðulega litlu skárri. Verðskuldað vantraust STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur í Skál- holti, er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Skálholti, 9. júní sl. Egill var fæddur 11. júní 1955 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Hallgrímur Egilsson, garð- yrkjubóndi á Gríms- stöðum í Hveragerði, og Sigurlaug Guð- mundsdóttir. Eftirlif- andi eiginkona sr. Egils er Ólafía Sigurjóns- dóttir hjúkrunarfræð- ingur og eiga þau tvö börn; Sóleyju Lindu, f. 1989, og Hallgrím Davíð, f. 1993. Sr. Egill varð stúdent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð 1976. Hann nam sálarfræði um skeið en sneri sér svo að guðfræði og lauk cand.theol.-embættisprófi frá guð- fræðideild Háskóla Íslands. Hann vígðist 12. maí 1991 til Skagastrand- arprestakalls og þjónaði þar til árs- loka 1997. Hann var kjörinn sókn- arprestur í Skálholtsprestakalli og þjónaði þar frá 1. janúar 1998 til dánardags. Skálholtsprestakall spannaði fyrst Biskupstungur en með sameiningu nágranna- prestakalla til þess, þjónaði hann einnig kirkjum og söfnuðum í Grímsnesi, Laugardal, Grafningi og Þing- vallasveit. Áður en Egill hlaut vígslu hafði hann verið starfsmaður í Dóm- kirkjunni í Reykjavík og verið þar kirkju- vörður og annast barnastarf. Jafnhliða prestskap sinnti Egill stundakennslu í grunnskólum, var með námskeið og fleira. Af öðrum trúnaðarstörfum sr. Eg- ils má nefna að hann sat í stjórn Prestafélags hins forna Hólastiftis, í fulltrúaráði Hjálparstofnunar kirkj- unnar, í stjórn Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifti og í stjórn Collegium Musicum, samtaka um tónlistarstarf í Skálholti. Hann var einnig í stjórn Þorláksbúðarfélags- ins og vann ötullega í Ísleifsregl- unni. Hann var félagi í Frímúr- arareglunni á Íslandi um áratugaskeið. Hann útskrifaðist úr námi í stjórnendamarkþjálfun 2017 frá HR. Auk þess lauk hann námi í meðferðardáleiðslu frá Bandaríkj- unum árið 2018. Andlát Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur í Skálholti Alþingi samþykkti í gær fjögur laga- frumvörp Ásmundar Einars Daða- sonar, félags- og barnamálaráð- herra, sem tengjast málefnum barna. Samkvæmt upplýsingum frá fé- lags- og barnamálaráðuneytinu er um að ræða frumvarp um samþætt- ingu þjónustu í þágu farsældar barna, frumvarp um Barna- og fjöl- skyldustofu og frumvarp um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, auk frumvarps um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Þá var þings- ályktunartillaga um Barnvænt Ís- land einnig samþykkt. Ráðuneytið segir, að málin séu öll hluti af þeirri vinnu sem hafi farið fram í félagsmálaráðuneytinu und- anfarin ár við að endurskoða og efla þjónustu og stuðning við börn og fjölskyldur. Um sé að ræða mestu breytingu sem gerð hafi verið á um- hverfi barna á Íslandi í áratugi. Með stofnun Barna- og fjölskyldu- stofu verður Barnaverndarstofa lögð niður og flest verkefni hennar flytj- ast til nýrrar stofnunar, sem mun sjá um uppbyggingu úrræða og yfir- stjórn heimila og stofnana fyrir börn sem nú er í höndum Barnaverndar- stofu. Þá mun stofnunin sinna stuðn- ingi við sveitarfélög og aðra vegna þjónustu í þágu barna. Ný lög samþykkt um málefni barna - Barna- og fjölskyldustofa tekur við málefnum Barnaverndarstofu Morgunblaðið/Ómar Börn Alþingi samþykkti í gær fjög- ur lagafrumvörp um málefni barna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.