Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 13

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 13
FRÉTTIR 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is Opið virka daga: 12.00-18:00 Laugardagar 11:00-15:00 OFFBEAT léttur, sætur og sumarlegur Verð 7.990,- Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is Tilboðsdagar 20% á völdum vörumSkoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Viðtökurnar hafa farið fram úr okk- ar björtustu vonum. Þær hafa verið yndislegar,“ segir Agla Egilsdóttir, rekstrarstjóri á Hressingarskál- anum sem opnaður var í vikunni eft- ir langt hlé. Þó nokkur tíðindi felast í því að Hressingarskálinn hafi verið endur- vakinn í sinni gömlu mynd. Hann er elsta veitingahús borgarinnar og var um langt árabil vinsæll samkomu- staður þekktra listamanna í bland við almenna borgara. Veitingarnar voru rómaðar og stemningin þótti einstök. Þegar leið á síðustu öld fóru vinsældirnar minnkandi, væntan- lega vegna harðari samkeppni eftir að sífellt fleiri kaffihús skutu upp kollinum. Hressingarskálinn varð að skemmtistað og mátti muna fífil sinn fegri. Gestirnir rifja upp ljúfar minningar Nú hefur gamla, góða stemningin verið endurvakin og segir Agla að mikill áhugi virðist vera hjá fólki að upplifa hana. „Við ákváðum að end- urvekja staðinn með gömlu gild- unum. Hér er gamla, góða tónlistin og Hressó-kakan sem margir muna eftir. Nú er Hressó lítill og huggu- legur staður þar sem seldur er heim- ilismatur fyrir alla, líka börnin því það er ekki sérstakur barnamatseð- ill, þau borða bara það sama og full- orðnir. Svo erum við líka með nýbak- aðar kleinur og pönnukökur. Þú getur ekki labbað inn á hvaða stað sem er í Reykjavík og fengið þessar veitingar og þessa notalegu tilfinn- ingu.“ Agla segir að margir gestanna sem komið hafa í vikunni rifji upp sögur frá því þeir sóttu Hressingar- skálann á árum áður. „Það eiga allir ljúfar minningar héðan. Núna sitja hjá mér gestir og einn þeirra var að segja mér frá því þegar amma hans fór með hann hingað þegar hann var barn. Þetta er ótrúlega gaman að heyra.“ Óhætt er að segja að vel hafi tek- ist til við að endurskapa gömlu stemninguna sem einkenndi Hressó. Agla tekur vel á móti gestum og þeir vita að hverju þeir ganga. Hér er ekkert kúskús eða kimchi; hér er gamla góða Reykjavík. „Það er góð- ur andi í húsinu. Það koma allir brosandi hingað inn. Það er mikil hjartahlýja sem fylgir gestunum. Sagan er allt í kringum okkur og ekki bara gamla sagan. Líka sagan sem verið er að skrifa núna og sagan sem verður til á morgun,“ segir Agla sem er 32 ára gömul og hefur unnið í veitingabransanum frá því hún var 19 ára gömul. Hún kveðst hlakka til að sjá Hressó verða aftur að horn- stein í menningu miðborgarinnar. „Ég hvet alla til að koma í kærleik- ann hér. Hér fær fólk dísætt kaffi og getur sagt mér sínar sögur af heim- sóknum á Hressingarskálann. Fólk ætti líka að taka börnin sín og barna- börnin með og búa til nýjar sögur.“ Eitt elsta hús Reykjavíkur Hressingarskálinn var opnaður á öðrum degi jóla 1929 og naut frá fyrsta degi mikilla vinsælda. Fyrst um sinn var Hressingarskálinn í húsinu í Pósthússtræti 7 (Reykjavík- urapótek) en reksturinn var fluttur í Austurstræti 20 árið 1932. Húsið er eitt hið elsta í Reykjavík. Í bók Páls Líndal um sögustaði Reykjavíkur, sem út kom 1986, segir að húsið Austurstræti 20 hafi komið til- höggvið frá Svíþjóð. Það var reist ár- ið 1805 fyrir sýslumann Gullbringu- og Kjósarsýslu. Í marga áratugi þar á eftir bjuggu í húsinu fjölmargir embættismenn landsins og fjöl- skyldur þeirra. Húsið var friðað árið 1990. Árið 1995 var opnaður McDo- nald’s-staður í húsinu og var hann rekinn til 2003. Staðurinn var opinn til kl. 22 á kvöldin og svo voru seldir hamborgarar út um lúgu á nóttunni. Í kjölfarið voru gerðar nokkrar til- raunir með rekstur skemmtistaða í húsinu. Allir koma brosandi inn á Hressó - Hressingarskálinn endurvakinn í sinni gömlu mynd - Gestir rifja upp sögur af heimsóknum frá fyrri tíð - Heimilismatur, kleinur og pönnukökur - Elsti veitingastaðurinn og húsið eitt hið elsta Morgunblaðið/Árni Sæberg Ómissandi Margir eiga góðar minningar frá heimsóknum á Hressingarskálann á árum áður. Þá var Hressó-kakan vinsæl og hún er hluti af stemningunni í dag. Agla rekstrarstjóri nýtur þess að hitta kúnnana og heyra sögur þeirra. Hlýlegt Afgreiðsluborðið er komið á sinn stað og gestum er þjónað til borðs. Margir hafa rekið inn nefið í vikunni og bros er á hverri vör að sögn Öglu. Sígilt Íslenskur heimilismatur og kaffi í brúsa hefur aldrei klikkað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.