Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 13
FRÉTTIR 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga: 12.00-18:00 Laugardagar 11:00-15:00
OFFBEAT
léttur, sætur og
sumarlegur
Verð 7.990,-
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Tilboðsdagar
20%
á völdum vörumSkoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Viðtökurnar hafa farið fram úr okk-
ar björtustu vonum. Þær hafa verið
yndislegar,“ segir Agla Egilsdóttir,
rekstrarstjóri á Hressingarskál-
anum sem opnaður var í vikunni eft-
ir langt hlé.
Þó nokkur tíðindi felast í því að
Hressingarskálinn hafi verið endur-
vakinn í sinni gömlu mynd. Hann er
elsta veitingahús borgarinnar og var
um langt árabil vinsæll samkomu-
staður þekktra listamanna í bland
við almenna borgara. Veitingarnar
voru rómaðar og stemningin þótti
einstök. Þegar leið á síðustu öld fóru
vinsældirnar minnkandi, væntan-
lega vegna harðari samkeppni eftir
að sífellt fleiri kaffihús skutu upp
kollinum. Hressingarskálinn varð að
skemmtistað og mátti muna fífil sinn
fegri.
Gestirnir rifja upp
ljúfar minningar
Nú hefur gamla, góða stemningin
verið endurvakin og segir Agla að
mikill áhugi virðist vera hjá fólki að
upplifa hana. „Við ákváðum að end-
urvekja staðinn með gömlu gild-
unum. Hér er gamla, góða tónlistin
og Hressó-kakan sem margir muna
eftir. Nú er Hressó lítill og huggu-
legur staður þar sem seldur er heim-
ilismatur fyrir alla, líka börnin því
það er ekki sérstakur barnamatseð-
ill, þau borða bara það sama og full-
orðnir. Svo erum við líka með nýbak-
aðar kleinur og pönnukökur. Þú
getur ekki labbað inn á hvaða stað
sem er í Reykjavík og fengið þessar
veitingar og þessa notalegu tilfinn-
ingu.“
Agla segir að margir gestanna
sem komið hafa í vikunni rifji upp
sögur frá því þeir sóttu Hressingar-
skálann á árum áður. „Það eiga allir
ljúfar minningar héðan. Núna sitja
hjá mér gestir og einn þeirra var að
segja mér frá því þegar amma hans
fór með hann hingað þegar hann var
barn. Þetta er ótrúlega gaman að
heyra.“
Óhætt er að segja að vel hafi tek-
ist til við að endurskapa gömlu
stemninguna sem einkenndi Hressó.
Agla tekur vel á móti gestum og þeir
vita að hverju þeir ganga. Hér er
ekkert kúskús eða kimchi; hér er
gamla góða Reykjavík. „Það er góð-
ur andi í húsinu. Það koma allir
brosandi hingað inn. Það er mikil
hjartahlýja sem fylgir gestunum.
Sagan er allt í kringum okkur og
ekki bara gamla sagan. Líka sagan
sem verið er að skrifa núna og sagan
sem verður til á morgun,“ segir Agla
sem er 32 ára gömul og hefur unnið í
veitingabransanum frá því hún var
19 ára gömul. Hún kveðst hlakka til
að sjá Hressó verða aftur að horn-
stein í menningu miðborgarinnar.
„Ég hvet alla til að koma í kærleik-
ann hér. Hér fær fólk dísætt kaffi og
getur sagt mér sínar sögur af heim-
sóknum á Hressingarskálann. Fólk
ætti líka að taka börnin sín og barna-
börnin með og búa til nýjar sögur.“
Eitt elsta hús Reykjavíkur
Hressingarskálinn var opnaður á
öðrum degi jóla 1929 og naut frá
fyrsta degi mikilla vinsælda. Fyrst
um sinn var Hressingarskálinn í
húsinu í Pósthússtræti 7 (Reykjavík-
urapótek) en reksturinn var fluttur í
Austurstræti 20 árið 1932. Húsið er
eitt hið elsta í Reykjavík. Í bók Páls
Líndal um sögustaði Reykjavíkur,
sem út kom 1986, segir að húsið
Austurstræti 20 hafi komið til-
höggvið frá Svíþjóð. Það var reist ár-
ið 1805 fyrir sýslumann Gullbringu-
og Kjósarsýslu. Í marga áratugi þar
á eftir bjuggu í húsinu fjölmargir
embættismenn landsins og fjöl-
skyldur þeirra. Húsið var friðað árið
1990. Árið 1995 var opnaður McDo-
nald’s-staður í húsinu og var hann
rekinn til 2003. Staðurinn var opinn
til kl. 22 á kvöldin og svo voru seldir
hamborgarar út um lúgu á nóttunni.
Í kjölfarið voru gerðar nokkrar til-
raunir með rekstur skemmtistaða í
húsinu.
Allir koma brosandi inn á Hressó
- Hressingarskálinn endurvakinn í sinni gömlu mynd - Gestir rifja upp sögur af heimsóknum frá
fyrri tíð - Heimilismatur, kleinur og pönnukökur - Elsti veitingastaðurinn og húsið eitt hið elsta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ómissandi Margir eiga góðar minningar frá heimsóknum á Hressingarskálann á árum áður. Þá var Hressó-kakan
vinsæl og hún er hluti af stemningunni í dag. Agla rekstrarstjóri nýtur þess að hitta kúnnana og heyra sögur þeirra.
Hlýlegt Afgreiðsluborðið er komið á sinn stað og gestum er þjónað til borðs.
Margir hafa rekið inn nefið í vikunni og bros er á hverri vör að sögn Öglu.
Sígilt Íslenskur heimilismatur og
kaffi í brúsa hefur aldrei klikkað.