Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 14
og mun reka bílastæðahús. Þar verður
hægt að leigja langtíma- og skamm-
tímastæði eins og í kjallaranum undir
Hörpu. Borgin fær nánast öll stæðin
en stæði munu fylgja stærstu íbúð-
unum sem við seljum á almenna
markaðnum,“ segir Jónas Þór.
Langur aðdragandi
Uppbyggingin í Vesturbugt á sér
langan aðdraganda.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu 8.
apríl 2017 að borgarráð hefði sam-
þykkt tilboð VSÓ Ráðgjafar ehf., fyrir
hönd Vesturbugtar ehf., í kaup á
byggingarrétti og sölu til Reykja-
víkurborgar á 74 íbúðum og 170 bíla-
stæðum í bílakjöllurum á tveimur lóð-
um í Vesturbugt, Hlésgötu 3 og 4.
Síðar í sama mánuði birtist frétt í
Morgunblaðinu þar sem sagði að
stefnt væri að því að hefja jarðvinnu
fyrir lok árs, þ.e. ársins 2017. Fram-
kvæmdir skyldu hefjast innan 15 mán-
aða frá undirskrift og vera lokið innan
fimm ára.
Hinn 22. mars 2019 var fjallað um
það í Morgunblaðinu að fjárfestar
hefðu hægt á markaðssetningu nýrra
íbúða í miðborg Reykjavíkur.
„Má þar nefna Austurhöfn og
Hafnartorg. Þá er uppbygging
Vesturbugtar við Slippinn ekki hafin
en tvö ár eru síðan borgin undirritaði
samning um verkið. Fjármögnun er
sögð ótryggð,“ sagði í fréttinni.
Kaldalón tók síðan yfir verkið og
styttist nú í að það hefjist.
Hefja uppbyggingu við gamla Slippinn
- Kaldalón byggir tæplega 200 íbúðir í Vesturbugt í Reykjavík - Uppbyggingin hefst um áramótin
Vesturbugt Hér er horft frá bryggjunni við Sjóminjasafnið við Grandagarð.
Teikning/PK/Basalt/Krads/Trípólí
Göngugata Ríflega 190 íbúðir verða í Vesturbugt og atvinnurými á jarðhæð að hluta til. Með því hækkar þjónustustigið við höfnina í Reykjavík.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignaþróunarfélagið Kaldalón
hyggst hefja uppbyggingu í Vestur-
bugt í Reykjavík um áramótin. Þar
munu rísa 192 íbúðir og atvinnu-
húsnæði.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi
svæðisins hefur verið samþykkt til
auglýsingar en með því fjölgar áform-
uðum íbúðum um 15-20.
Uppbyggingin
sætir tíðindum á
fasteignamarkaði.
Árin 2018 til 2019
var fordæmalaust
framboð nýrra
íbúða á þétting-
arreitum í mið-
borginni. Fall
WOW air og svo
kórónukreppan
settu strik í reikn-
inginn hjá verk-
tökum en salan tók við sér í kjölfar
vaxtalækkana Seðlabankans í fyrra.
Eru nú flestar þessara ríflega 620
íbúða seldar, ef frá eru taldar 70 íbúðir
á Austurhöfn en fjöldi seldra íbúða þar
er ekki gefinn upp.
Komi á markað um mitt ár 2023
Jónas Þór Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldalóns, segir hönn-
un Vesturbugtar verða lokið á næst-
unni. Hefjist framkvæmdir um
áramótin sé raunhæft að fyrstu íbúð-
irnar komi á markað um mitt ár 2023.
Samkvæmt því kunni verkefninu að
ljúka í árslok 2024.
Í Vesturbugt verði aðallega tveggja,
þriggja og fjögurra herbergja íbúðir.
Jarðhæðir verði að mestu „lifandi“
með verslunarrýmum, en þó sé lítil-
lega dregið úr því með nýju deiliskipu-
lagstillögunni.
„Engu að síður er meginþemað að
hafa lifandi götumynd á mest áberandi
hliðum reitsins sem verður hátt í 20
þúsund fermetrar. Þar af fara liðlega
þúsund fermetrar undir verslun og í
bílakjallara verða um 190 stæði. Borg-
in fær hluta íbúðanna, rétt rúmlega
fjögur þúsund fermetra, upp í kaupin
Jónas Þór
Þorvaldsson
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Bæjarstjórn Seltjarnarness var ná-
lægt því að jafna eigið met á mið-
vikudaginn þegar bæjarstjórnar-
fundur stóð aðeins yfir í fjórar
mínútur. Metið, þrjár mínútur,
stendur því enn.
Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur
oft komist í fréttirnar fyrir stutta og
snaggaralega fundi. Miðvikudaginn
9. júní kom bæjarstjórnin saman til
fundar klukkan 17:00. Lagðar voru
fram fjórar fundargerðir og einn
bæjarfulltrúi tók til máls. Fundi var
slitið klukkan 17:04.
Á fundi sem haldinn var miðviku-
daginn 25. apríl 2018 tókst bæjar-
stjórninni að afgreiða málin á þrem-
ur mínútum. Á þeim mínútum
afgreiddi bæjarstjórnin níu fund-
argerðir sem innihéldu meðal ann-
ars aðalskipulag Reykjavíkur 2010-
2030 og gjaldskrá skipulags- og
byggingarfulltrúa bæjarins.
Og á fundi sem haldinn var mið-
vikudaginn 22. maí 2019 jafnaði bæj-
arstjórnin ársgamalt metið. Fund-
urinn hófst klukkan 17 og honum var
slitið klukkan 17:03. Á þessum tíma
tókst að afgreiða fjórar fundargerðir
og taka síðari umræðu um breytingu
á samþykkt um stjórn Seltjarnar-
nesbæjar. sisi@mbl.is
Mynd/Seltjarnarnes.is
Bæjarstjórnin Er orðin landsþekkt fyrir snaggaralega afgreiðslu mála.
Afgreiddu málin
á fjórum mínútum
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS