Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
útskriftarnemar geti tekið með sér
tvo gesti. Við höfum í raun og veru
engu breytt þegar kemur að þessari
athöfn nema þá því að henni verður
skipt í tvennt. Í janúarútskriftinni
héldum við tíu mismunandi athafnir
bara svo að nemendur gætu tekið
með sér gesti,“ segir hann.
Í dag verða 147 nemendur braut-
skráðir frá Listaháskólanum og fer
athöfnin fram í Eldborgarsal í
Hörpu. Útskriftarnemar frá LHÍ
hafa vanalega fengið að bjóða sex
gestum með sér á athöfnina en sök-
um eins metra reglunnar mega þeir
aðeins vera tveir að þessu sinni, seg-
ir Vigdís Másdóttir, kynningarstjóri
LHÍ.
„Það breytir engu fyrir okkur.
Hér ætla allir að mæta sem geta og
enginn sem ætlar ekki að koma út af
sóttvörnum, enda höfum við nægt
pláss,“ segir Vigdís.
„Það eru um 80% útskriftarnema
sem hyggjast mæta í ár, sem er bara
svipuð mæting og hefur verið árin á
undan. Þetta er yfirleitt mjög hátíð-
legur og skemmtilegur dagur og
kandídatar mæta til að halda upp á
hann með samnemendum sínum og
starfsfólki skólans,“ segir Katrín.
Fá að bjóða gestum
Starfsmaður á markaðssviði Há-
skólans í Reykjavík tekur í sama
streng og segir skráningu á braut-
skráningarathöfn HR ekki benda til
þess að færri nemendur ætli sér að
mæta í ár miðað við fyrri ár enda
hefur fjölda þeirra gesta sem nem-
endum er heimilt að bjóða ekki verið
breytt. Um 750 kandídatar verða
brautskráðir frá skólanum í Frjáls-
íþróttahöllinni í Laugardal þann 19.
júní.
„Við höfum alltaf lagt áherslu á að
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Þúsundir kandídata brautskrást úr
háskólum landsins næstu tvær helg-
ar. Athafnirnar verða margar með
breyttu sniði í ár og gestir mis-
velkomnir. Það virðist þó ekki hafa
áhrif á fjölda þeirra nemenda sem
hyggjast mæta á staðinn til braut-
skráningar.
Um 500 kandídatar verða braut-
skráðir frá Háskólanum á Akureyri í
dag en engir gestir eru leyfðir á at-
höfninni. Ekki er þó útlit fyrir að
færri nemendur mæti á athöfnina í
ár miðað við fyrri ár, að sögn Katr-
ínar Árnadóttur, forstöðumanns
markaðs- og kynningarsviðs HA.
Þvert á móti eru nemendur fegnir að
fá að halda upp á tilefnið á staðnum
og starfsmenn skólans glaðir að geta
orðið við því.
Ljósmynd/HR
Útskrift Þúsundir háskólanema útskrifast á næstu tveimur vikum. Myndin er frá útskrift HR í fyrra.
Fjölmenna á braut-
skráningarathafnir
- Kandídatar í háskólum landsins fegnir að fá að útskrifast
Þeir ökumenn sem lagt hafa leið sína
í miðbæ Reykjavíkur nýverið hafa
vafalítið tekið eftir upplýsinga-
skiltum Amnesty International sem
búið er að setja í Pósthússtræti við
Austurvöll, beint fyrir framan Hótel
Borg. Skiltin standa á steinsteyptum
sökklum og er búið að koma þeim
vandlega fyrir í alls sjö bílastæðum.
Verslunarmaður í miðbænum sem
Morgunblaðið ræddi við segist hissa
á staðsetningunni, lítið mál sé að
koma skiltunum fyrir á gangstétt við
hliðina á bílastæðunum eða á sjálf-
um Austurvelli. Þar hafi sambærileg
skilti margsinnis fengið að standa.
Reykjavíkurborg gaf leyfi fyrir
því að leggja bílastæðin undir skilt-
in. Í svari borgarinnar við fyrirspurn
Morgunblaðsins kemur fram að um
sé að ræða „part af viðburðadagskrá
Borgarinnar okkar“ og að skiltin
hafi verið sett upp 26. maí sl. Engin
dagsetning liggur fyrir um það hve-
nær skiltin verða fjarlægð, búið sé
að samþykkja ljósmyndasýningar í
stöndunum út september. Þá segir
Reykjavíkurborg ekki hægt að stað-
setja skiltin annars staðar en á bíla-
stæðunum því á svæðinu er „jafnan
mikið mannlíf og halda þarf aðgengi
á gangstétt óskertu fyrir gangandi
vegfarendur“. khj@mbl.is
Bílastæði
víkja fyr-
ir skiltum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tómlegt Reykjavíkurborg segir mikilvægt að halda gangstéttum í miðbænum algerlega hindrunarlausum fyrir þann fjölda fólks sem þar er að jafnaði.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Svartur/Dark Ash Walnut að innan (einnig til svartur).10 gíra
skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flott-
asta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlit-
aðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmimottu, sóllúga.
VERÐ
13.580.000 m.vsk
2021 GMC Denali Ultimate 2500
Litur: White Frost/Dark Ash Walnut að innan. 10 gíra skipting,
auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir
brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmimottu, sóllúga.
VERÐ
13.680.000 m.vsk
2021 GMC Denali Ultimate 2500