Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Michelle Bachelet, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sagði að vaxandi ofbeldisverk ættu sér stað í Mjanmar, áður Búrma, og landið væri sokkið niður í „mannréttinda- ógæfu“ í kjölfar herbyltingarinnar 1. febrúar sl. er Aung San Suu Kyi var hrakin frá völdum. Bachelet sagði umsvif hersins í ýmsum héruðum landsins hafa aukist og hvatti hún til þess að ofbeldisverkum yrði hætt til að afstýra auknu manntjóni og dýpkandi neyðarástandi í mannúðarmálum. Á aðeins röskum fjórum mánuðum hefur Mjanmar „breyst úr brothættu lýðræðisríki í mannréttindaógæfu,“ sagði Bache- let í tilkynningu. Bætti hún því við að her landsins „bæri einn ábyrgð“ á því hvernig komið væri. Á myndinni færa óbreyttir borgarar íbúum í austurhluta landsins matvæli sem verið hafa af skornum skammti vegna stríðsátaka. agas@mbl.is Ofbeldi færist í aukana í Mjanmar AFP Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims hittust í eigin persónu í fyrsta sinn í tæp tvö ár, vegna kórónuveirufarald- ursins. Hófu þeir fundi sína í Corn- wall á Englandi í gær. Munu þeir hafa bundist samtökum um að gefa fátækari ríkjum samtals milljarð skammta af bóluefni gegn kórón- uveirunni. Til fundanna mættu leiðtogar Kanada, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Japans, Bandaríkjanna og Bretlands. Sögðu þeir samheldni og sameiginlegt átak ekki aðeins bestu vörnina gegn heimsfaraldrinum heldur og vænlegustu leiðina í glím- unni við að afstýra loftslagsbreyting- um. Joe Biden Bandaríkjaforseti lagði línurnar í fyrradag er hann gaf ein- angrunarstefnu forvera síns, Do- nalds Trump, í alþjóðamálum reisu- passann til að leggja áherslu á að einbeitni og festa G7-ríkjanna og NATO gegn bæði Peking og Moskvu dygði best. „Megindrifkraftur þessa leiðtoga- fundar G7 er að sýna fram á að vest- rænt lýðræði getur staðist og sam- eiginlega sigrast á aðkallandi ögrunum sem við veröldinni blasa,“ sagði háttsettur bandarískur emb- ættismaður við AFP. Baráttumenn fyrir auknum bólu- setningum meðal fátækari ríkja segja að fyrirheit G7-ríkjanna séu ónóg og of seint á ferðinni til að kveða í kútinn faraldurinn sem kost- að hefur 3,7 milljónir mannslífa. „Geti G7-leiðtogarnir í besta falli gef- ið milljarð skammta þá verður fund- ur þeirra að hafa talist misheppnað- ur,“ sögðu líknarsamtökin Oxfam. Þau segja þörfina vera 11 milljarða í stað eins milljarðs. Bólusetning í fátækari ríkjum er hlutfallslega langt á eftir því sem náðst hefur að bólusetja í G7-ríkjun- um og öðrum ríkum löndum. Miðað við bólusetningar til þessa, að sögn Alþjóðabankans, hafa 73 verið bólu- settir í ríkum löndum fyrir hvern einn í snauðum löndum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) fagnaði skuldbindingu G7- ríkjanna en sagði miklu skipta hve- nær bóluefninu væri deilt til fátækra ríkja. Þegar bóluefnið loks næði til þeirra til bólusetningar heilbrigðis- starfsfólks og aldraðra í fyrstu yrði bólusetning barna langt á veg komin í G7-ríkjunum. Talsmaður WHO sagði gjöfina vera uppörvandi en gat þess að þarna næðist það loks í gegn sem stofnunin hefur haldið fram frá í janúar sl. Bandaríkin og ESB hafa heitið því að bólusetja langleiðina í alla full- orðna á norðurhveli jarðar fyrir sum- arlok. Forstjóri WHO, Tedros Adha- nom Ghebreyesus, hvetur til herferðar með því takmarki að 10% íbúa í öllum löndum verði bólusett fram til september og 30% við ára- mót. Til þess er þörf á 250 milljónum viðbótarskammta bóluefnis fram til september og 100 milljónir aðeins í júní og júlí. Gefnar hafa verið tæplega 2,3 milljónir skammta í 216 löndum heims, samkvæmt gögnum AFP. Fjórðungur bólusetninganna hefur átt sér stað í G7-ríkjunum en þar er að finna um 10% íbúa jarðar. Í rík- ustu löndunum er að finna 16% íbúa heims en í þeim hafa 67 af hverjum eitt hundrað íbúum verið bólusettir. Hlutfallið er 73 í G7-löndunum en í 29 fátækustu löndum heims – þar sem er að finna 9% búa heimsins – er það einn skammtur á hverja hundrað. G7-leiðtogarnir hafa ekki farið dult með að þeir verði að grípa til ráðstafana gegn „diplómatískri bólu- setningarherferð“ Kínverja og Rússa. Bandaríkjastjórn hamrar á því að ekki eigi að endurgjalda þeim greiðann í nokkurri mynd. Búist var og við að þeir myndu leggja drög að aukinni þróunaraðstoð, meðal ann- ars með aukinni hjálp við að byggja upp grunngerð innviða til mótvægis við skuldsettar fjárfestingar í Afríku, Asíu og Rómönsku-Ameríku fyrir milligöngu Kínverja. Frumkvæðið mun fela í sér „há viðmið, gagnsæi, loftslagsvænt og spillingarfrítt gangverk til fjárfest- inga í grunninnviðum í þróunarríkj- um,“ sagði bandarískur embættis- maður. Leiðtogar G7-ríkjanna gefa milljarð skammta - G7-leiðtogarnir hyggjast grípa til ráðstafana gegn „dipló- matísku bólusetningarverkefni“ Kínverja og Rússa AFP Andmæli Baráttufólk mótmælti skammt frá fundarstað G7-ríkjanna. Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.