Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Loks varhafisthanda í vikunni við að rífa brunarústir hússins á horni Bræðraborgarstígs og Vest- urgötu. Þær hafa staðið nánast óhreyfðar frá elds- voðanum í fyrrasumar og hafa verið blettur á hverf- inu auk þess að vera dap- urleg áminning um harm- leikinn, sem þar átti sér stað. Þrír fórust í eldsvoðanum, sem var vegna íkveikju, en í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá því í desember um brunann kemur fram að megin- ástæða þess að eldsvoðinn hafi verið jafnskæður og raun bar vitni hafi verið ástand hússins og lélegar brunavarnir. Í vikunni féll einnig dóm- ur í Héraðsdómi Reykjavík- ur þar sem eigandi starfs- mannaleigunnar 2findjob var dæmdur til fimm mán- aða skilorðsbundinnar fang- elsisvistar fyrir óviðunandi aðbúnað í húsnæði við Smiðshöfða, sem hann leigði starfsmönnum á sínum snærum. Lífi 24 erlendra verkamanna hefði verið stefnt í bráða hættu. Sak- borningurinn hefði hvorki fengið tilskilin leyfi né gert nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja brunavarnir. Eftir lýsingunni að dæma var húsnæðið brunagildra. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuð- borgarsvæðinu, var ómyrk- ur í máli þegar hann var spurður um dóminn. „Því miður rifjast atburð- urinn á Bræðraborgarstíg upp þegar maður les þenn- an dóm. Hann undirstrikar þá miklu ábyrgð sem eig- endur bera þegar þeir leigja út húsnæði til þriðja aðila,“ sagði Jón Viðar í samtali við Morgunblaðið í gær. Bætti hann við að dómurinn, sem væri sá fyrsti sinnar teg- undar hér á landi, sendi skýr skilaboð um ábyrgð eigenda. Í frétt Morgunblaðsins í gær sagði að mál eigenda hússins við Bræðraborgar- stíg væri enn til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Jón Viðar sagði að fleiri mál sambærileg við Smiðs- höfðamálið kynnu að fara fyrir dóm á næstunni. Slökkviliðið hefði á sínum tíma skilað inn þrem- ur málum og tvö önnur væru í far- vegi. „Oft er beð- ið með mál til að fá fram fordæmi og síðan koma hin í kjölfarið,“ segir hann. Nokkrum sinnum hefur verið ráðist í að kortleggja búsetu í óleyfilegu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Ávallt hefur komið í ljós að ástandið er óviðunandi. Það gengur ekki að þúsundir manna búi í húsnæði þar sem öryggi er virt að vett- ugi. Á Smiðshöfða gistu verkamenn í svefnkössum án tilskilinna leyfa og voru engin brunahólf, flóttaleiðir ófullnægjandi og svo fram- vegis. Á Bræðraborgarstíg voru herbergin mun fleiri en samþykkt var og hvert þeirra að auki í útleigu. Húsnæðið var skráð sem íbúðarhúsnæði, en virðist hafa verið gistiheimili, sem hefði kallað á öflugri bruna- varnir. Þá hefði einnig fylgt eftirlitsskylda, en ekki var tilkynnt um breytingar á húsinu og því var ekkert eftirlit. Síðast var gerð úttekt á óleyfisíbúðum á höfuðborg- arsvæðinu árin 2017 og 2018. Þá kom í ljós að fimm til sjö þúsund manns bjuggu í 1.500 til 2.000 óleyfisíbúð- um og hafði óleyfisbúseta aukist um 84% frá árinu 2008. Í haust verður ráðist í að kortleggja stöðuna að nýju og er engin ástæða til að ætla að mikil breyting hafi orðið. Slökkviliðið hefur lengi hvatt til þess að tekið yrði á þessum málum. Það er hörmulegt að atburð eins og brunann við Bræðraborgar- stíg skuli þurfa til að það gerist. Nefnd á vegum Hús- næðis- og mannvirkjastofn- unar með Jón Viðar innan borðs skilaði fyrr á árinu tillögum að úrbótum. Þar er lagt til að íbúðarhúsnæði megi ekki taka í notkun nema úttekt hafi verið gerð á öryggi og eftirlit með brunavörnum tryggt. Endurskoða þarf eftirlits- hlutverk og ábyrgð húseig- enda til að tryggja öryggi og koma í veg fyrir að mannslífum sé stefnt í hættu vegna þess að bruna- vörnum er áfátt. Skýr skilaboð um ábyrgð á húsnæði í útleigu} Óboðlegt húsnæði Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ S jaldnast líða kjörtímabil eins og séð var fyrir. Nú undir lok tímabilsins eru aðgerðir vegna heimsfaraldurs enn áberandi, en full ástæða er til að vekja athygli á þeim góðu verk- um sem fjallað var um í stjórnarsáttmála og gengið hafa eftir, þrátt fyrir faraldurinn. Sjálfstæðisstefnan snýst um frelsi, framfar- ir, öflugt atvinnulíf og lágar álögur. Við lögð- um áherslu á að lækka skatta, draga úr álög- um á fólk og fyrirtæki og það höfum við gert. Skattkerfið hefur tekið jákvæðum breytingum mörg undanfarin ár. Tekjuskattur hefur lækkað stöðugt und- anfarin ár, mest hjá þeim tekjulægri. Vegna skattabreytinga síðustu tveggja ára hefur fólk með 400 þúsund króna mánaðarlaun nærri 10 þúsund krónum meira milli handanna í hverj- um mánuði en áður. Lækkanirnar eru enn meiri litið lengra aftur í tímann. Stimpilgjald er ekki lengur greitt við endurfjármögnun lána og fyrstu kaupendur fá helmingsafslátt af gjöldunum. Frítekjumörk vegna fjármagnstekjuskatts tvöfölduðust um áramótin, úr 150 þúsund krónum í 300 þúsund. Breyt- ingin kemur sér sérstaklega vel fyrir eldri borgara, en mikill minnihluti þeirra greiðir nú fjármagnstekjuskatt. Undir frítekjumarkið felldum við jafnframt söluhagnað sumarhúsa, auk söluhagnaðar og arðstekna vegna hluta- bréfa. Fyrri breytingin er sérstaklega hagfelld fyrir eldri borgara, en sú síðara er kærkomin innspýting í atvinnu- lífið með aukinni þátttöku almennings á markaði. Tryggingagjaldið var 7,7% árið 2013, en er nú 6,1%. Það munar um minna fyrir íslensk fyrirtæki. Fyrir nokkrum árum var VSK-hlutfallið 25,5% og þannig með því hæsta í Evrópu. Við lækkuðum hlutfallið í 24%, en það er nú hvergi lægra á Norðurlöndum. Sérstakir skattalegir hvatar hafa verið sam- þykktir til að örva fjárfestingar atvinnulífsins. Með nýjum lögum getur fólk dregið allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sín- um ef það styrkir almannaheillastarfsemi. Nýtt hvatakerfi ýtir undir umsvif í einkageiranum og styður við grænar fjárfestingar. Vörugjöld og toll- ar á iðnaðarvörur hafa verið felld niður og sem og virðisaukaskattur á vistvæn ökutæki. Áfram mætti lengi telja. Við hækkuðum skattleysismörk erfðafjár veru- lega um áramótin, úr einni og hálfri milljón í fimm. Skerðingarmörk barnabóta hækka stöðugt, en rannsóknir sýna að hér er stuðningur til tekju- lágra barnafjölskyldna í næstum öllum tilfellum hæstur á Norðurlöndum. Á sama tíma og skattar lækka höfum við eflt þjónustu, aukið afköst og bætt gagnsæi, en á nýjum álagningar- seðlum má sjá nákvæmlega hvernig skattgreiðslurnar skiptast niður á málaflokka. Breytingin kemur í framhaldi af sundurliðun skattgreiðslna til ríkisins og útsvars til sveitarfélaga á álagningarseðlum fyrir nokkrum árum. Fyrir þann tíma vissu eflaust fáir hve stór hluti álagn- ingarinnar er í formi útsvars, en í dag þurfa mánaðarlaun að slaga hátt í 900 þúsund krónur áður en farið er að greiða meira til ríkis en sveitarfélags. Lægri álögum fylgir öflugra atvinnulíf og aukin hagsæld vinnandi fólks. Við munum halda áfram að létta byrðarnar og örva framfarir. Það leggur grunninn að velferð fyrir alla. Bjarni Benediktsson Pistill Við lækkum skatta Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is F yrirhugað er að Reykjavík- urborg og Orkuveita Reykjavíkur (OR) geri samkomulag um skil OR á Elliðadal. Í kjölfarið verði efnt til hönnunarsamkeppni um gerð áningar- og útivistarsvæðis og því flýtt að skilið verði á milli göngu- og hjólastíga. Þetta er meðal tillagna stýrihóps um Elliðaárdal sem fulltrúar meiri- hlutaflokkanna í borgarráði hafa ákveðið að fela borgarstjóra að fram- fylgja. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks ítreka gagnrýni á varanlega tæmingu Árbæjarlóns og leggja áherslu á að það verði fyllt að nýju. Rafmagnsframleiðslu var hætt í Elliðaárvirkjun fyrir nokkrum árum. Það vakti ýmis viðbrögð íbúa og ann- arra þegar Orkuveita Reykjavíkur opnaði lokur Árbæjarstíflu í október á síðasta ári og tæmdi lónið með þeim orðum að það væri varanleg ráðstöfun. Voru efasemdir uppi um réttmæti þeirrar aðgerðar. Borgarráð skipaði stýrihóp til að fara yfir þetta mál og önnur sem tengjast Elliðaárdalnum og var álit hans kynnt í borgarráði í fyrradag. Áningar- og útivistarsvæði Hópurinn lagði til að Reykjavík- urborg og Orkuveita Reykjavíkur geri með sér samning um skil OR á dalnum til borgarinnar sem er eigandi lands- ins. Meðal annars verði fjallað um við- hald og endurbætur mannvirkja og stíga og gerð nýrra stíga og brúa. Lagt er til að haldin verði hönn- unarsamkeppni um gerð áningar- og útivistarsvæðis upp af norðurenda stíflunnar í Árbæ sem ljái svæðinu aukið notagildi fyrir fjölskyldur. Hóp- urinn sér fyrir sér stað sem skapar umgjörð fyrir samveru, náttúru- fræðslu, afþreyingu, uppákomur, lýð- heilsu og fjölbreyttan gróður. Tillaga er um að flýtt verði aðskilnaði göngu- og hjólastíga í daln- um til samræmis við nýtt deiliskipu- lag, sérstaklega á fjölförnum stöðum í stígakerfinu þar sem aðstæður eru varasamar. Bent er á að við aukna um- ferð gesta aukist nauðsyn á þessum framkvæmdum. Stýrihópurinn vill að OR hefji þegar það ferli sem gert er ráð fyrir í vatnalögum þegar notkun mannvirkja er hætt. Leiðarljósið verði að svæði skuli skilað til fyrra horfs. Í kjölfarið verði gerðar breytingar á deiliskipu- lagi svæðisins. Árbæjarstífla er friðað mannvirki og reiknar stýrihópurinn með að hún standi áfram. Lagt er til að henni verði fundið nýtt hlutverk og gerð öllum að- gengileg. Kannaðir verði möguleikar á að gera stífluna að samgönguæð fyrir gangandi og hjólandi um miðbik dals- ins. Skoðað verði sérstaklega hvort hún geti komið í stað fyrirhugaðrar göngu- og hjólabrúar sem sýnd er á skipulagi rétt neðan stíflunnar. Meðal mótvægisaðgerða sem stýrihópurinn leggur til er að strax verði hafin vöktun á lífríki í og við Ár- bæjarkvísl Elliðaánna í kjölfar breyttrar vatnsstöðu og greiðari fiski- gengdar um kvíslina. Tillögunum verði framfylgt Borgarráðsfulltúar Samfylking- arinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna fögnuðu tillögunum í bókun í borgarráði. Sögðu tillögurnar endur- spegla virðingu fyrir dalnum og lífrík- inu. Borgarstjóra var falið að fram- fylgja tillögunum með forystu Orkuveitunnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítrekuðu kröfu sína um að lónið verði fyllt að nýju og það án frekari tafa. Niðurstaða meirihluta hópsins kæmi hvorki til móts við íbúa né lífríkið á svæðinu. Samið verði um skil OR á Elliðadal Morgunblaðið/Eggert Elliðaár Það tekur langan tíma fyrir Elliðaárdalinn að jafna sig eftir varan- lega tæmingu Árbæjarlóns. Ekki er vitað fyrir víst hvar farvegurinn var. Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í stýrihópi um Elliðaár- dal, skilaði séráliti. Þar lýsir hann sig sammála ýmsum að- gerðum sem fram koma í skýrslu meirihlutans en lýsir yfir andstöðu við að menn sætti sig við að hleypt hafi verið úr stíflulóninu við Árbæj- arstíflu. Segir Björn að með því að hleypa varanlega úr lóninu án skipulagsbreytinga eða leyfa og án samráðs við íbúa hafi verið brotið gróflega gegn lög- um og rétti íbúa. Björn bendir á að ef ætlunin sé að koma svæðinu í upp- runalegt horf þurfi að komast að því hvernig það var áður en stíflan var byggð. Telur hann margt benda til að lón hafi verið á þessum stað. Þá telur hann að áin renni ekki í sínum gamla farvegi heldur í farvegi sem búinn hafi verið til með sprengingum á sínum tíma. Telur brotið gegn lögum BJÖRN GÍSLASON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.