Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 28

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Í farveginum eru miklar samgöngu- framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Greinarhöfundur hefur það á tilfinn- ingunni að ekki sé lengur horft til þess að framkvæmdirnar þjóni sínum til- gangi, að auka umferðaröryggi og um- ferðarrýmd um leið og hugað er að kostnaði og umhverfi, heldur sé verið að finna pólitískar lausnir á því hvað eigi að framkvæma burtséð frá því hversu góðar útfærslurnar séu. Þær fyrirhuguðu framkvæmdir sem verður fjallað um hér eru Sunda- braut, Miklistokkur, gatnamót Arn- arnesvegar og Breiðholtsbrautar og svo síðast en ekki síst borgarlínan. Sundabraut Hún hefur verið til umræðu í tugi ára og margar útfærslur skoð- aðar. Nú er allt í einu komin til sögunnar ný útfærsla sem er lág hábrú á ytri leið sem mun skerða mjög starf- semi Samskipa og má segja að sú útfærsla sé samkvæmt skipun sam- gönguráðherra. Grein- arhöfundur hefur barist fyrir því að botngöng á ytri leið verði skoðuð af sömu alvöru og „nýja“ brúin, enda tel- ur hann að botngöngin séu ódýrari og umhverfisvænni og loki ekki Samskip inni, en það hefur ekki gengið eftir. Í skýrslunni „Sundabraut – Viðræður ríkisins og SSH“, júní 2019, var lagt til að skoða bara jarðgöng og hábrú á ytri leið. Þar var lítillega fjallað um botn- göng og þau afgreidd með þeim orðum að „óvissa fylgir því að engin reynsla er af gerð botnganga hér á landi og kostnaðaráætlanir því ótryggar“. Má segja að þetta sé ótrúleg afgreiðsla á tækniöld. Mest kemur á óvart að Faxaflóahafnir ætli að sættast á að hafnarstarfsemin við Vogabakka verði fyrir miklum skerðingum. Ég hef bent fulltrúum Faxaflóahafna á að með botngöngum fáist mjög góð tenging Sundahafnar við Sundabraut meðan „nýja“ brúin veldur því að Sundahöfn hefur ekki tengingu við Sundabraut heldur þarf fyrst að fara á Sæbraut. Ef botngöng yrðu byggð væri líkleg- ast að botngangaeiningarnar yrðu steyptar erlendis og þær svo dregnar til landsins og með slíkum bygging- armáta yrði jarðrask við Vogabakka lítið og stæði í stuttan tíma. Þá má benda á að botngöng samkvæmt minni út- færslu eru í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur, en „nýja“ brúin þarfnast breyt- inga á aðalskipulagi. Nánar má sjá rök fyrir því að skoða botngöng sem alvöruvalkost í blaðagrein eftir und- irritaðan í Morg- unblaðinu þann 9. feb. 2021. Miklistokkur Hér er um að ræða þann mikla stokk sem á að byggja meðfram Miklatúni (nú Klambratún), frá Snorrabraut og austur fyrir Kringlu- mýrarbraut, og er hann talinn munu kosta 20 til 25 milljarða króna. Þessi mikli stokkur gerir lítið gagn fyrir um- ferðina og ekkert gagn fyrir umferð- ina austan við Kringlumýrarbraut, þ.e. gatnamót Miklubrautar við Háaleit- isbraut og Grensásveg. Það tekur nokkur ár að byggja þennan stokk og á meðan verður algjört umferðaröng- þveiti á svæðinu og erfitt að komast inn í miðborgina. Hér er því haldið fram að miklistokkur sé pólitísk nið- urstaða til að koma borgarlínunni fyr- ir. Greinarhöfundur hefur bent á lausn til að létta á umferðinni á Vesturlands- vegi, Miklubraut og Hringbraut, þar með talin gatnamót leiðarinnar við Grensásveg, Háaleitisbraut, Kringlu- mýrarbraut og Lönguhlíð. Lausnin felst í því að byggja jarðgöng (ca 3,5 km löng) frá Grensásvegi og vestur að Umferðarmiðstöð BSÍ. Slík jarðgöng gætu kostað um helminginn af mikl- astokki og væru ekki að trufla umferð- ina mikið á byggingartíma. Ekki virð- ist vera áhugi á að skoða þessa lausn í alvöru. Nánar má sjá rök fyrir jarð- göngunum í blaðagrein eftir undirrit- aðan í Morgunblaðinu hinn 15. nóv- ember 2018. Gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa deilt um útfærslu þessara gatna- móta í tugi ára. Borgin hefur viljað fá þarna ljósastýrð gatnamót og telur sig vera að gæta hagsmuna íbúa við Suð- urfell, að ekki verði mikil umferð ná- lægt þeim. Vegagerðin hefur viljað fá þarna mislæg gatnamót eins og eðli- legt er þegar tvær stofnbrautir mæt- ast og hefur sú útfærsla verið í skipu- lagi svæðisins. Nú virðist vera komin pólitísk niðurstaða í málinu. Hún felst í því að byggja þarna brú svo að Vega- gerðin geti sagt að þarna séu mis- lægar akbrautir, en brúin er notuð til að fara með hægri beygjurnar yfir brúna og á ljósastýrð gatnamót til að taka þar hættulegar vinstri beygjur. Þetta þýðir að byggja þarf fjögurra akreina brú í staðinn fyrir tveggja ak- reina brú ef útfærslan væri hefðbundin „trompet“lausn (sbr. t.d. gatnamót Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar vestan við Grafarholtið) og umferðin við Suðurfellið verður tvöfalt meiri og þar fjórar akreinar í stað tveggja. Póli- tíska niðurstaðan er því sú að útfærsl- an er miklu verri hvað varðar umferð- aröryggi, kostnað og vegalengdir þar sem hægri beygjurnar eru sendar fram og til baka gegnum ljósastýrð gatnamót. Ég hef spurt „alvöru“ aðila í Kópavogi um þetta sem finnst þetta slæm lausn en að þrýst hafi verið á um að fá einhverja lausn í málið. Þá hef ég spurt „alvöru“ aðila hjá Vegagerðinni um þetta sem fannst lausnin í lagi, hún myndi auka umferðaröryggið frá nú- verandi ástandi sem er vissulega rétt, en væri ekki frábært að losna við ljósin þarna í staðinn fyrir að nota brúna til að taka hægri beygjurnar á ljósin? Það verður fróðlegt að sjá hvað Skipulags- stofnun segir um þessa breytingu á skipulagi, að breyta hefðbundnum mis- lægum gatnamótum í ljósastýrð gatna- mót með tilheyrandi slysum og eigna- tjóni. Borgarlínan Hún er gott dæmi um pólitíska ákvörðun í umferðarmálum sem er mjög umdeild meðal umferðarsér- fræðinga. Líklega getur um þriðj- ungur höfuðborgarbúa notað hana, en spurningin er hve margir þeirra myndu velja að nota hana. Væri ekki viturlegt að senda öllum íbúum höf- uðborgarsvæðisins kynningarrit um borgarlínuna og um leið spurninga- lista þar sem væri t.d. spurt hvort við- komandi gæti notað borgarlínuna og ef svo væri, myndi hann nota hana. Með svör í höndum væri betri grund- völlur til að ræða þessi mál frekar, þarna gæti jú verið um að ræða fjár- festingu upp á allt að 100 milljarða kóna. Niðurstaða mín er sú, að í þessum fyrirhuguðu fjórum stóru samgöngu- mannvirkjum sé ekki verið að leita að bestu lausnum varðandi umferðarör- yggi, kostnað og umhverfi, heldur ráði pólitíkin ferðinni. Eftir Bjarna Gunnarsson » Borgarlínan er gott dæmi um pólitíska ákvörðun í umferðar- málum sem er mjög um- deild meðal umferðar- sérfræðinga. Sundabraut 1. áfangi. Höfundur er umferðarverkfræðingur og lífeyristaki. Teikning af Hlíðargöngum. Bjarni Gunnarsson Fyrirhuguð ljósastýrð gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Pólitíkin ræður (um)ferðinni Alpadraumur í Austurríki sp ör eh f. Haust 7 Nú höldum við til Austurríkis á vit ævintýranna þar sem fegurð fjallanna umlykur okkur. Dvalið verður í Mayrhofen, einum aðalferðamannabænum í Zillertal, og þaðan verður farið í skemmtilegar ferðir, m.a. upp á Hintertux jökulinn, að hrífandi Krimmler fossunum og til Kufstein. Í Mayrhofen eru líka mikil hátíðahöld sem við tökum að sjálfsögðu þátt í, en það er hin árlega hátíð kúasmölunar sem er einstaklega litríkt sjónarspil. 28. september - 5. október Fararstjóri: Gísli Einarsson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 229.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Árið er 1982. Stuð- menn hafa gert leyni- samning við forstjóra SÍS um dulbúna áróð- ursmynd til varnar hinu fallandi stórveldi. Gegn einnar milljónar króna framlagi. Senur eru skotnar í lager- húsnæði Sambands ís- lenskra samvinnu- félaga og víðar, þar sem Stuðmenn syngja um mikilvægi þess „að vera í Sambandi“. Stuðmenn mæra SÍS á alla kanta og „Samband þeirra er frá öllum hliðum séð stór- fínt“ – þar til kemur að skuldadögum. Þá svíkur SÍS hina vel meinandi at- fylgismenn sína um milljónina er lof- að hafði verið. Bera við slæmum heimtum frá bændum og búaliði. Hér vantaði skyndilega heil 25% fram- leiðslukostnaðar og því góð ráð dýr. Siglt er til Vestmannaeyja og bankað upp á hjá bankastjóra Útvegsbank- ans þar, Vilhjálmi Bjarnasyni, stór- greindum, skemmtilegum og afar glöggum manni. Hann hlustar, gaumgæfir og met- ur stöðuna þannig að um sé að ræða stórt kynningartækifæri fyrir áfangastaðinn Vestmannaeyjar, þ.m.t. Þjóðhátíðina í Herjólfsdal. Hans eigið innsæi og eðlisávísun reyndist hárrétt og leiddi til þess að við gengum út með ávísun að upphæð kr. 1 milljón. Fyrir hans tilstilli varð til fjölsóttasta kvikmynd Íslandssög- unnar, Með allt á hreinu, sem enn í dag er reglubundið sýnd í kvik- myndahúsum landsins og í Ríkissjón- varpinu á sérhverjum þjóðhátíðar- degi (þ.m.t. næstkomandi fimmtudag 17. júní kl. 19.55). Glöggskyggni Vilhjálms Bjarna- sonar, yfirburðaþekking hans og skilningur á samfélagsmálum, fjár- málum og öðru er varðar okkur öll hefur á undanförnum árum speglast í frábærum greinum hans hér í Morg- unblaðinu og víðar. Hann er óhræddur við að segja það sem aðrir veigra sér við að viður- kenna og óhræddur við að pönkast dálítið. Orðið „tabú“ er ekki til í hans orðaforða. Hann varaði m.a. kröftuglega við sölu bankanna 2003 á meðan Fjár- málaeftirlitið, Ríkisendurskoðun og helstu varðmenn lýðveldisins blésu á varnaðarorð hans. Hann sá fyrir það sem aðrir sáu ekki. Slíka menn þurf- um við á Alþingi. Nú, sem fyrr – og um framtíð alla. Vilhjálmur veðjaði á okkur og sá ekki eftir því. Við veðjum á Vilhjálm og hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að gera slíkt hið sama í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Krag- anum nú um helgina. Það mun eng- inn þurfa að sjá eftir því að veðja á slíkan afburðamann. Veðjum á afburðamanninn Vilhjálm Bjarnason Eftir Jakob Frí- mann Magnússon og Egil Ólafsson Jakob Frímann Magnússon »Hann varaði kröft- uglega við sölu bankanna 2003 á meðan Fjármálaeftirlitið og Ríkisendurskoðun blésu á varnaðarorð hans. Höfundar eru tónlistarmenn. jfm@bankastraeti.is Egill Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.