Morgunblaðið - 12.06.2021, Page 29

Morgunblaðið - 12.06.2021, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Nú get ég ekki betur skilið en búið sé að ákveða að næsta varð- skip okkar Íslendinga, sem koma á í staðinn fyrir varðskipið Tý, skuli bera nafnið Freyja. Við ákveðið tækifæri komst Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir svo að orði að það væri tími til kominn að varð- skip bæri kvenmannsnafn. Það hefur nefnilega hingað til tíðkast að varð- skipin okkar beri karlmannsnöfn úr norrænni goðafræði, samanber Týr, Þór og Ægir svo einhver séu nefnd. Hjá stóðu Georg Lárusson og félagar úr Landhelgisgæslunni og þorðu ekki að leggja orð í belg nema til að sam- þykkja þessa tillögu dómsmálaráð- herrans. Ef við rýnum aðeins í söguna þá kom varðskipið Týr til landsins 24. mars 1975, nánast beint inn í þorska- stríðið 1975-1976 við hinn breska flota hennar hátignar. Með Guðmund Kjærnested í brúnni og hina vösku áhöfn hans börðust þeir, ásamt öðr- um skipum gæslunnar, af miklum hetjumóð til að verja landhelgi okkar Íslendinga og fóru að lokum, eins og frægt er orðið, með sigur af hólmi. Varðskipið Týr reyndist í þessum hildarleik hið mesta happafley og skilaði áhöfn sinni heilli til hafnar þótt oft hafi ekki mátt miklu muna að illa færi. Allar götur síðan hefur Týr varið landhelgina og tekið þátt í björgunaraðgerðum á hafi, oft við hrikalegar aðstæður, og verið okkur landsmönnum til halds og trausts á okkar svörtustu stundum eins og til dæmis eftir snjóflóðin í Súðavík á sín- um tíma. Nú eru dagar Týs sem varðskips senn taldir því farið er að gæta þreytu á líkama og sál eftir farsæla ævi á sjónum í okkar þágu í hátt í fimm áratugi. Mér finnst það því sorglegt og sýna vanvirðingu að kasta eigi þessu farsæla nafni út í hafsauga bara af því að einhverjir telja að „halli á konur“ í þessu tilviki. Ég hélt að okkar göfuga jafnrétt- isbarátta væri hafin yfir svona hégóma. Hvað er að þessari áratuga gömlu hefð að varð- skipin beri karlmanns- nöfn? Telur fólk virki- lega að þetta sé merki um kynjamisrétti? Má þá ekki segja það sama um þá stað- reynd að öll flugför gæslunnar, þyrl- ur og flugvélar, bera kvenmanns- nöfn; TF LIF, TF SIF, TF EIR og TF GRO? Er þá ekki „tími til kom- inn“ að þau tæki fari að bera karl- mannsnöfn? Þetta er staðreynd sem Lárus og félagar hefðu kurteislega getað bent á við ofangreint tækifæri í stað þess að lúta höfði í undirgefni. Persónulega finnst mér jafnrétt- isbaráttan eiga betra skilið og best sé að halda hégóma og minnimáttar- kennd fyrir utan hana. Nafngiftir á tæki Landhelgisgæsl- unnar eru líka hin besta hefð og Týr á skilið þakklæti og virðingu eftir bráð- um 50 ára þjónustu við okkur Íslend- inga með því að halda nafni hans á lofti um ókomna tíð. Leyfum nýja skipinu að bera þetta nafn svo þeir bræður Þór, Týr og Ægir geti áfram varið okkar verðmætu landhelgi, englarnir í háloftunum, Sif, Líf, Eir og Gró, vakað yfir sjómönnunum okkar og öll saman með krafti sínum hjálpað okkur á ögurstund. Eftir Arnodd Erlendsson » Öll flugför gæsl- unnar, þyrlur og flugvélar, bera kven- mannsnöfn; TF LIF, TF SIF, TF EIR og TF GRO. Arnoddur Erlendsson Höfundur er verktaki. Er nafn varðskips virkilega jafnréttismál? Jóna og Sigrún voru nýkomnar heim úr mánaðarlega sunnudags- rápinu sínu. Þær fara í Kringluna eða Smáralind og svo eru Costco og Ikea heimsótt inn á milli. Gunnar er með aðra rútínu. Fer til Svans, eða Villa eins og flestir kalla hann. Villi er með í Kolaport- inu „Grams og gæða- dót“. Stundum dettur Gunnar á nýtilegt verkfæri en mestur tíminn fer í spjall við Svan. Þrennt kaupir hann í þessum Kola- portsferðum. Í mörg ár hefur hann keypt kleinur frá Kökugerð HP á Selfossi, en nú sér Depla um söluna. Hjá Deplu fær hann líka hákarl og hrossakjöt, ýmist hrossabjúgu eða saltað. Hann keypti hrossasperðla í þetta sinn. Mæðgurnar sátu með kaffibolla við eldhúsborðið. Gunnar breytti ekki út af vananum með mjólkurglas og nýkeypta kleinu. Þær voru að tala um ellilauna- skerðinguna. Jóna var búin að finna út að í ellilaun fengju ömmur landsins rúmlega 210 þúsund krón- ur á mánuði, en afarnir um 185 þúsund í miðgildi, samkvæmt ellilífeyrismælaborðinu á vefsíðu TR. Ömmurnar hafa þá líklega í líf- eyristekjur á mánuði um 100 þús- und krónur. Afarnir hafa vænt- anlega samsvarandi 160 þúsund. Afar landsins (karlar) sem fá elli- laun voru, samkvæmt ársskýrslu TR, 15.380 árið 2019. „Tryggingastofnun lækkar ellilífeyrinn þeirra þá, samkvæmt mælaborðinu, um rúmlega einn komma þrjá milljarða á mán- uði. Hjá ömmunum er það eitthvað lægra, í miðgildi.“ Jóna gerði svona gæsalappa- merki með fingrunum og hló. „Á árs- grundvelli er þetta í nánd við samsvarandi fjármuni og framlag úr ríkissjóði er til líf- eyrisskuldbindinga. Ellilífeyrir er skertur um 45% af lífeyrissjóðstekjum skjólstæðinga TR og notaður til að greiða lífeyr- isskuldbindingar ríkissjóðs við op- inbera starfsmenn. Ríkissjóður nær með tekjuskatti til viðbótar allt að 80% af ellilífeyrinum inn í ríkissjóð aftur. Þetta eru snilld- armillifærslukúnstir.“ Mæðgurnar skellihlógu að þessum brellum. Gunnar hristi hausinn. „Þú getur ekki stillt þessum tölum svona upp, elskan mín, og því síður hlegið að því og sagt vera bókhalds- bellibrögð.“ Tómas Láruson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Bókhaldsbellibrögð ríkissjóðs? Tómas Láruson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.