Morgunblaðið - 12.06.2021, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Nú get ég ekki betur
skilið en búið sé að
ákveða að næsta varð-
skip okkar Íslendinga,
sem koma á í staðinn
fyrir varðskipið Tý,
skuli bera nafnið
Freyja. Við ákveðið
tækifæri komst Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir
svo að orði að það væri
tími til kominn að varð-
skip bæri kvenmannsnafn. Það hefur
nefnilega hingað til tíðkast að varð-
skipin okkar beri karlmannsnöfn úr
norrænni goðafræði, samanber Týr,
Þór og Ægir svo einhver séu nefnd.
Hjá stóðu Georg Lárusson og félagar
úr Landhelgisgæslunni og þorðu ekki
að leggja orð í belg nema til að sam-
þykkja þessa tillögu dómsmálaráð-
herrans.
Ef við rýnum aðeins í söguna þá
kom varðskipið Týr til landsins 24.
mars 1975, nánast beint inn í þorska-
stríðið 1975-1976 við hinn breska
flota hennar hátignar. Með Guðmund
Kjærnested í brúnni og hina vösku
áhöfn hans börðust þeir, ásamt öðr-
um skipum gæslunnar, af miklum
hetjumóð til að verja landhelgi okkar
Íslendinga og fóru að lokum, eins og
frægt er orðið, með sigur af hólmi.
Varðskipið Týr reyndist í þessum
hildarleik hið mesta happafley og
skilaði áhöfn sinni heilli til hafnar
þótt oft hafi ekki mátt miklu muna að
illa færi. Allar götur síðan hefur Týr
varið landhelgina og tekið þátt í
björgunaraðgerðum á hafi, oft við
hrikalegar aðstæður, og verið okkur
landsmönnum til halds og trausts á
okkar svörtustu stundum eins og til
dæmis eftir snjóflóðin í Súðavík á sín-
um tíma.
Nú eru dagar Týs sem varðskips
senn taldir því farið er að gæta
þreytu á líkama og sál eftir farsæla
ævi á sjónum í okkar þágu í hátt í
fimm áratugi. Mér finnst það því
sorglegt og sýna vanvirðingu að
kasta eigi þessu farsæla
nafni út í hafsauga bara
af því að einhverjir telja
að „halli á konur“ í
þessu tilviki. Ég hélt að
okkar göfuga jafnrétt-
isbarátta væri hafin yfir
svona hégóma. Hvað er
að þessari áratuga
gömlu hefð að varð-
skipin beri karlmanns-
nöfn? Telur fólk virki-
lega að þetta sé merki
um kynjamisrétti? Má
þá ekki segja það sama um þá stað-
reynd að öll flugför gæslunnar, þyrl-
ur og flugvélar, bera kvenmanns-
nöfn; TF LIF, TF SIF, TF EIR og
TF GRO? Er þá ekki „tími til kom-
inn“ að þau tæki fari að bera karl-
mannsnöfn?
Þetta er staðreynd sem Lárus og
félagar hefðu kurteislega getað bent
á við ofangreint tækifæri í stað þess
að lúta höfði í undirgefni.
Persónulega finnst mér jafnrétt-
isbaráttan eiga betra skilið og best sé
að halda hégóma og minnimáttar-
kennd fyrir utan hana.
Nafngiftir á tæki Landhelgisgæsl-
unnar eru líka hin besta hefð og Týr á
skilið þakklæti og virðingu eftir bráð-
um 50 ára þjónustu við okkur Íslend-
inga með því að halda nafni hans á
lofti um ókomna tíð. Leyfum nýja
skipinu að bera þetta nafn svo þeir
bræður Þór, Týr og Ægir geti áfram
varið okkar verðmætu landhelgi,
englarnir í háloftunum, Sif, Líf, Eir
og Gró, vakað yfir sjómönnunum
okkar og öll saman með krafti sínum
hjálpað okkur á ögurstund.
Eftir Arnodd
Erlendsson
» Öll flugför gæsl-
unnar, þyrlur og
flugvélar, bera kven-
mannsnöfn; TF LIF,
TF SIF, TF EIR og TF
GRO.
Arnoddur Erlendsson
Höfundur er verktaki.
Er nafn varðskips
virkilega
jafnréttismál?
Jóna og Sigrún voru nýkomnar
heim úr mánaðarlega sunnudags-
rápinu sínu. Þær fara í Kringluna
eða Smáralind og svo eru Costco og
Ikea heimsótt inn á
milli. Gunnar er með
aðra rútínu. Fer til
Svans, eða Villa eins
og flestir kalla hann.
Villi er með í Kolaport-
inu „Grams og gæða-
dót“. Stundum dettur
Gunnar á nýtilegt
verkfæri en mestur
tíminn fer í spjall við
Svan. Þrennt kaupir
hann í þessum Kola-
portsferðum. Í mörg
ár hefur hann keypt
kleinur frá Kökugerð
HP á Selfossi, en nú
sér Depla um söluna.
Hjá Deplu fær hann líka hákarl og
hrossakjöt, ýmist hrossabjúgu eða
saltað. Hann keypti hrossasperðla í
þetta sinn. Mæðgurnar sátu með
kaffibolla við eldhúsborðið. Gunnar
breytti ekki út af vananum með
mjólkurglas og nýkeypta kleinu.
Þær voru að tala um ellilauna-
skerðinguna. Jóna var búin að
finna út að í ellilaun fengju ömmur
landsins rúmlega 210 þúsund krón-
ur á mánuði, en afarnir um 185
þúsund í miðgildi, samkvæmt
ellilífeyrismælaborðinu á vefsíðu
TR. Ömmurnar hafa þá líklega í líf-
eyristekjur á mánuði um 100 þús-
und krónur. Afarnir hafa vænt-
anlega samsvarandi 160 þúsund.
Afar landsins (karlar) sem fá elli-
laun voru, samkvæmt ársskýrslu
TR, 15.380 árið 2019.
„Tryggingastofnun
lækkar ellilífeyrinn
þeirra þá, samkvæmt
mælaborðinu, um
rúmlega einn komma
þrjá milljarða á mán-
uði. Hjá ömmunum er
það eitthvað lægra, í
miðgildi.“ Jóna gerði
svona gæsalappa-
merki með fingrunum
og hló. „Á árs-
grundvelli er þetta í
nánd við samsvarandi
fjármuni og framlag
úr ríkissjóði er til líf-
eyrisskuldbindinga.
Ellilífeyrir er skertur um 45% af
lífeyrissjóðstekjum skjólstæðinga
TR og notaður til að greiða lífeyr-
isskuldbindingar ríkissjóðs við op-
inbera starfsmenn. Ríkissjóður
nær með tekjuskatti til viðbótar
allt að 80% af ellilífeyrinum inn í
ríkissjóð aftur. Þetta eru snilld-
armillifærslukúnstir.“ Mæðgurnar
skellihlógu að þessum brellum.
Gunnar hristi hausinn. „Þú getur
ekki stillt þessum tölum svona upp,
elskan mín, og því síður hlegið að
því og sagt vera bókhalds-
bellibrögð.“
Tómas Láruson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Bókhaldsbellibrögð ríkissjóðs?
Tómas Láruson