Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
✝
Jóna Sigjóns-
dóttir fæddist
20. mars 1945 á
Móa í Nesjum, upp-
alin í Bjarnanesi.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjólgarði þann 5.
júní 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Sigjón Ein-
arsson, f. 1896, d.
1961, og Guðlaug
Guðmundsdóttir, f. 1909, d.
1998. Jóna átti þrjú systkini:
Snorra, f. 1930, d. 2013, Ingi-
björgu, f. 1933, og Þorstein, f.
1939.
Maður hennar er Guðni
Karlsson, Smyrlabjörgum,
fæddur 6.5. 1947. Börn þeirra
eru Hrefna Hjördís,
f. 1967, gift Heimi
Þór Gíslasyni, f.
1964, og Karl
Ágúst, f. 1969,
kvæntur Kristínu
Gyðu Ármanns-
dóttur, f. 1969.
Barnabörnin eru
átta. Hrefna og
Heimir eiga Söndru
Ernu, Eliths Frey,
Trausta Adrian,
Heklu Gná og Hilmi Guðna.
Kalli og Kristín eiga Guðlaugu
Jónu, Maríu Hjördísi og Nönnu
Guðnýju. Barnabarnabörnin eru
orðin tíu.
Útförin fer fram frá Hafnar-
kirkju í dag, 12. júní 2021, kl.
13.
Mig langar að minnast hennar
Jónu frænku minnar og góðrar
vinkonu með nokkrum orðum.
Hún hafði átt við veikindi að
stríða nú í fá ár en andlátið kom
allt of snöggt og söknuðurinn er
mikill. Það er þó gott að vita að
hún þurfti ekki að kveljast mjög
lengi.
Ég var ung send í sveit ásamt
Hönnu systur austur í Horna-
fjörð. Við fórum með Esjunni
þangað og þar tóku á móti okkur
tveir föðurbræður okkar. Hanna
fór með Olla frænda að Meðalfelli
þar sem amma okkar bjó en ég á
næsta bæ, Móa, með Sinna
frænda. Þeir bræður hétu Þórólf-
ur og Sigjón. Þarna var gott að
vera í fallegu sveitinni og þangað
fóru öll systkini mín í sveit ein-
hvern tíma og sum í mörg sumur.
Pabbi hafði sagt okkur að Nesja-
sveitin væri fallegasta sveit á Ís-
landi.
Jóna fæddist á Móa, en fjöl-
skyldan flutti stuttu seinna að
Bjarnanesi og þar ólst hún upp.
Jóna var ekki fædd þegar ég var
þar í sveit en systkinin Snorri,
Ingibjörg og Steini voru mínir
vinir þar. Lauga mamma þeirra
var mér mjög góð og lærði ég
margt þar þótt ekki væri ég göm-
ul þá.
Jóna kom til Reykjavíkur 1963
til að vinna í verslun eftir að hún
hafði verið nemandi á húsmæðra-
skóla í Eyjafirði. Þann vetur var
hún heimagangur hjá okkur
Hilmari og mjög þægileg og
hjálpleg mér þegar börnin okkar
voru lítil og smá og myndaðist þá
vinskapurinn sem hefur haldist
allar götur síðan og efldist með
árunum.
Ung kynntist hún Jóna honum
Guðna sínum frá Smyrlabjörgum
í Suðursveitinni og hófu þau bú-
skap á Höfn og þar hafa þau búið
síðan. Þau eignuðust börnin sín
hana Hrefnu og hann Kalla og
hafa alltaf haft nægan tíma fyrir
þau og stutt þau vel þegar þörf
hefur krafist í þeirra lífi. Mikið
hafði hún Jóna gaman af að fylgj-
ast með barnabörnunum sínum
og nú síðustu árin litlu langöm-
mukrílunum.
Þau voru mjög samhent hjón
og höfðu mjög gaman af að
ferðast um landið. Guðni var dug-
legur að útbúa ferðabíla og fóru
þau á marga staði sem voru ekki
mjög fjölfarnir á þeim tíma og
marga ferðina fóru þau með okk-
ur Hilmar um fjöll og firnindi
Austur-Skaftafellssýslu. Að fá að
vera í bústaðnum ykkar Guðna á
hverju sumri hefur gefið okkur
Hilmari mikla ánægju.
Við fjölskyldan kveðjum Jónu
með miklu þakklæti og sendum
Guðna, Hrefnu, Kalla og allri fjöl-
skyldunni okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning þín Jóna
mín.
Katla, Hilmar og fjölskylda.
Það gerði bara lífið auðveldara
og skemmtilegra að hafa átt
frænku eins og hana Jónu. Nú er
hún farin yfir í sumarlandið. Jóna
litla systir hennar mömmu var
alltaf hluti af okkur í Hátúni þeg-
ar við vorum lítil og eins eftir að
við urðum fullorðin. Hún var kon-
an með stóra hjartað. Hún gerði
allt fyrir alla og oft óbeðin. Hún
var sú sem kenndi okkur að
teygja út úr okkur tyggjó og okk-
ur fannst mjög flott þegar hún
gat látið smella í þegar hún
tuggði tyggjó. Hún var aðsóps-
mikill dugnaðarforkur. Hún gat
líka verið afskiptasöm, en hvaða
eldri frænkur eru það ekki? Jóna
frænka átti sér líka viðkvæma
hlið og hún grét í skírnarathöfn-
um og sagði að þetta væri svo fal-
legt. Hún hafði góða kímnigáfu
og gat hlegið hátt og innilega að
vitleysunni í okkur. Jóna frænka
var yngst af sínum systkinum en
þau voru Snorri sem er látinn,
Ingibjörg mamma okkar og
Steini sem lifa systur sína. Þau
systkinin bjuggu alla sína tíð á
Hornafirði, mamma og Jóna á
Höfn og bræðurnir í Nesjum.
Jóna var gift Guðna Karlssyni og
eftir að þau urðu par um tvítugt
var alltaf talað um þau sem eina
heild. Það voru Jóna og Guðni.
Þau voru þær manneskjur sem
gerðu allt fyrir okkur og okkar
fólk ef þau mögulega gátu. Það
var alltaf mikill samgangur á
milli þeirra systra og milli okkar
og barna Jónu og Guðna. þegar
mesti húsnæðisskorturinn var á
Höfn bjuggu þau heima hjá okk-
ur um tíma. Síðan þegar Hrefna
og Kalli fæddust þá var nú ekki
leiðinlegt að passa þau og skipta
sér af þeim sem eldri frænkur
þeirra. Seinustu árin fóru Jóna
og Guðni til Kanarí og dvöldu
lengi í hvert skipti og áttu þar
góðan tíma í sól og hita. það er nú
dálítið fyndið því Jóna frænka
var svo flughrædd. En hún lét sig
hafa það. Fyrsta skipti sem hún
flaug til útlanda var 1999 þegar
við fórum í frænkuferð til Köben.
Mamma, Jóna frænka, Valdís,
Hafdís, Hrefna, Ingibjörg Erna
og Hekla sem laumufarþeginn
hennar Hrefnu. Það er yndisleg
minning sem við getum yljað
okkur við. Í fyrrasumar lögðu
þau land undir fót og heimsóttu
Vestfirðina á sínum góða húsbíl
og áttu frábært frí þrátt fyrir
veikindi Jónu. Það var alltaf pláss
og verður áfram fyrir okkur hjá
Jónu og Guðna þegar við komum
á Höfn og það voru ófá skipti sem
við fengum að gista í Móakoti.
Eftir að Jóna fór að finna til veik-
inda var aldrei kvartað, en hún
var orðin þreytt á því að enginn
gat fundið út hvað var að. En hún
var samt aldeilis ekki af baki
dottin, sat og prjónaði lopapeys-
ur í tugavís og hnésokka á örmjóa
prjóna. Hún var líka frábær
kokkur og bakari. Ósjaldan var
maður nestaður með kleinupoka
þegar maður kvaddi. Það er gott
til þessa að hugsa hversu sam-
heldin fjölskylda hennar er. Efst
í huga okkar systra er þakklæti
til hennar og hún var besta
frænka sem hægt er að hugsa
sér.
Elsku Guðni, Hrefna, Kalli og
fjölskylda, innilegar samúðar-
kveðjur.
Hrífa undir fjósvegg.
Hlátrasköll í fjaska.
Upprúllaðar pönnsur á rósóttum diski.
Fram á lappir sér liggja hundar.
Við pírum augun mót sólinni.
(S. Hafdís Ólafsdóttir)
Þínar frænkur,
Valdís og Hafdís .
Jóna Sigjónsdóttir
✝
Þóra Guðrún
Óskarsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 5. ágúst 1933.
Hún lést 31. maí
2021 á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni í
Reykjavík.
Foreldrar henn-
ar voru Óskar
Gíslason og Sig-
urðína Straum-
fjörð Einarsdóttir.
Þóra Guðrún var einkadóttir
þeirra.
Þóra Guðrún, oftast kölluð
Rúna, ólst upp á Fjölnisvegi 5
í Reykjavík. Að lokinni skóla-
göngu í Austurbæjarskóla fór
hún í Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar. Síðar sem ung kona
sótti hún hússtjórnarnám við
Húsmæðraskólann á Laug-
arvatni. Að auki sat hún nám-
skeið í færslu bókhalds og
vann um tíma við slíkt hjá
Málningarverksmiðjunni
Hörpu hf.
Þann 17.8. 1957 giftist Þóra
Guðrún eftirlifandi eiginmanni
sínum, Einari Baldvinssyni
lækni, f. 2.2. 1932. Bjuggu þau
fyrstu búskaparárin á æsku-
heimili hennar á
Fjölnisvegi uns
Einar fór í sérnám
í læknisfræði í
Bandaríkjunum
1962. Er þau
fluttu aftur til
landsins sumarið
1967 héldu þau
áfram heimili með
móður Þóru Guð-
rúnar um tíu ára
skeið, eða þar til
þau fluttu í eigið hús í Brúna-
landi 22 í Reykjavík hvar Þóra
Guðrún bjó þar til hún varð
fyrir skyndilegum og alvar-
legum heilsubresti sumarið
2013.
Þau Þóra Guðrún og Einar
eignuðust þrjá syni: 1) Óskar,
f. 1957, eiginkona hans var
Hildur Harðardóttir. 2) Bald-
vin, f. 1960, eiginkona hans er
Lóa Steinunn Kristjánsdóttir.
3) Reynir, f. 1964, sambýlis-
kona hans er Brynja Birgis-
dóttir. Barnabörn þeirra Þóru
Guðrúnar og Einars eru sjö og
barnabarnabörn átta.
Útför Þóru Guðrúnar fór
fram 7. júní 2021 í kyrrþey að
hennar ósk.
Þóra Guðrún Óskarsdóttir,
sem jafnan var kölluð Rúna, er
fallin frá. Hún var samstarfs-
kona fjölskyldu minnar um ára-
tugaskeið í málningarverk-
smiðjunni Hörpu hf. og síðar
Hörpu Sjöfn hf. en hún var stór
hluthafi og stjórnarmaður
ásamt okkur.
Samstarf Rúnu og Magnúsar
Helgasonar, föður míns, stóð
yfir í nær fjörutíu ár meðan
hann lifði og var allan tímann
farsælt og traust. Þegar ég tók
við starfi framkvæmdastjóra
Hörpu árið 1992 gat ég ávallt
reitt mig á góðan stuðning
Rúnu en hún var ráðhollur
stjórnarmaður sem lagði ein-
ungis gott til mála í hópi okkar
hluthafanna. Á þessum árum
gerðum við miklar breytingar á
fyrirtækinu sem sumar hverjar
voru djarfar. Rúna studdi allar
slíkar hugmyndir og stóð með
okkur að þeim eins og þegar
við fórum út í rekstur Hörpu-
verslananna sem reyndist fyrir-
tækinu mikið gæfuspor. Sama
gilti um þá ákvörðun að sam-
eina Hörpu og Sjöfn á Akureyri
sumarið 2001 þegar til varð
Harpa Sjöfn hf., enn öflugra
málningarfyrirtæki en hin tvö
voru hvort í sínu lagi.
Þegar við stóðum frammi
fyrir því að stórfyrirtæki í
málningarviðskiptum í Dan-
mörku, Flügger, falaðist eftir
kaupum á Hörpu Sjöfn árið
2004, hlýtur það að hafa verið
stór ákvörðun fyrir Rúnu að
samþykkja sölu á fyrirtæki sem
hún og fjölskylda hennar höfðu
átt eignarhluti í frá árinu 1936.
En hún sýndi þá enn á ný að
hún var framsýnn hluthafi sem
nýtti langa reynslu sína til að
taka réttar ákvarðanir. Um
þessa stóru ákvörðun ríkti al-
ger samstaða í okkar hópi.
Ég sakna þessarar merku
konu og trausta samstarfs-
manns. Það féll aldrei neinn
skuggi á samstarf hennar og
fjölskyldu hennar og okkar fjöl-
skyldu í þau sextíu ár sem leið-
ir lágu saman í rekstrinum.
Eftirlifandi eiginmanni
Rúnu, Einari Baldvinssyni, og
sonunum Óskari, Baldvin og
Reyni ásamt fjölskyldunni allri
vottum við innilega samúð.
Blessuð sé minning Þóru Guð-
rúnar Óskarsdóttur.
Helgi Magnússon.
Þóra Guðrún
Óskarsdóttir
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST •REYNSLA
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞORBJARGAR J. ÓLAFSDÓTTUR
ljósmóður,
Urriðakvísl 16, Reykjavík,
sem jarðsett var frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 19. maí.
Bestu þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar
Landspítala á deild 11E fyrir frábæra umönnun.
Jón M. Benediktsson
Þórólfur Jónsson Nanna Viðarsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir Erlend Nicolaisen
Þórhildur Jónsdóttir Jón Hákon Hjaltalín
og barnabörn
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og ómetanlegan stuðning vegna
andláts og útfarar elsku eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR KRISTÍNAR
ÞÓRSDÓTTUR.
Páll Þorsteinsson
Þór Elfar Helgason
Pálína Mjöll Pálsdóttir Skúli Sigurðsson
Guðrún Hulda Pálsdóttir
Brynhildur Nadía, Harpa Rán, Eyvindur Páll,
Sindri Fannar og Kristófer Þór
Kæru ættingjar og vinir. Hjartans þakkir
fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
elskulegs eiginmanns, föður, afa og
langafa,
SIGURBJARTS SIGURÐSSONAR,
Langagerði 34.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Viðeyjar og Mánateigs á
Hrafnistu Laugarási fyrir hlýhug og nærgætni.
Guðbjörg Jónsdóttir
Jóna Sigfríð Sigurbjartsd. Gunnar Þórir Þorkelsson
Heiða Björg Sigurbjartsdóttir Hans Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástvinir þakka auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og
ömmu,
SVANBORGAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Litla-Laugardal í Tálknafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ölduhrauns,
Hrafnistu Hafnarfirði, fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Baldur Jóhannsson
Reynir Baldursson Karitas Jóhannsdóttir
Jóhann Baldursson Kristín Reynisdóttir
Anna Björk Baldursdóttir Sigurjón Andersen
Birgitta Baldursdóttir Elías Ívarsson
Brynja Baldursdóttir Gunnar Óli Pétursson
Erla Baldursdóttir Gísli Vattnes Bryngeirsson
Ólafur Jósúa Baldursson Ramona Balaciu
og fjölskyldur þeirra
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR SIGURJÓNSDÓTTUR
frá Syðri-Grund.
Bestu þakkir til starfsfólks HSN á Blönduósi
fyrir hlýtt viðmót og virðingu.
Valgerður Guðmundsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir Einar Sigurðsson
Þorsteinn Guðmundsson Sigrún Jónsdóttir
Sveinn Helgi Guðmundsson Karin Roland
og ömmubörnin