Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 ✝ Jóna Sigjóns- dóttir fæddist 20. mars 1945 á Móa í Nesjum, upp- alin í Bjarnanesi. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skjólgarði þann 5. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Sigjón Ein- arsson, f. 1896, d. 1961, og Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 1909, d. 1998. Jóna átti þrjú systkini: Snorra, f. 1930, d. 2013, Ingi- björgu, f. 1933, og Þorstein, f. 1939. Maður hennar er Guðni Karlsson, Smyrlabjörgum, fæddur 6.5. 1947. Börn þeirra eru Hrefna Hjördís, f. 1967, gift Heimi Þór Gíslasyni, f. 1964, og Karl Ágúst, f. 1969, kvæntur Kristínu Gyðu Ármanns- dóttur, f. 1969. Barnabörnin eru átta. Hrefna og Heimir eiga Söndru Ernu, Eliths Frey, Trausta Adrian, Heklu Gná og Hilmi Guðna. Kalli og Kristín eiga Guðlaugu Jónu, Maríu Hjördísi og Nönnu Guðnýju. Barnabarnabörnin eru orðin tíu. Útförin fer fram frá Hafnar- kirkju í dag, 12. júní 2021, kl. 13. Mig langar að minnast hennar Jónu frænku minnar og góðrar vinkonu með nokkrum orðum. Hún hafði átt við veikindi að stríða nú í fá ár en andlátið kom allt of snöggt og söknuðurinn er mikill. Það er þó gott að vita að hún þurfti ekki að kveljast mjög lengi. Ég var ung send í sveit ásamt Hönnu systur austur í Horna- fjörð. Við fórum með Esjunni þangað og þar tóku á móti okkur tveir föðurbræður okkar. Hanna fór með Olla frænda að Meðalfelli þar sem amma okkar bjó en ég á næsta bæ, Móa, með Sinna frænda. Þeir bræður hétu Þórólf- ur og Sigjón. Þarna var gott að vera í fallegu sveitinni og þangað fóru öll systkini mín í sveit ein- hvern tíma og sum í mörg sumur. Pabbi hafði sagt okkur að Nesja- sveitin væri fallegasta sveit á Ís- landi. Jóna fæddist á Móa, en fjöl- skyldan flutti stuttu seinna að Bjarnanesi og þar ólst hún upp. Jóna var ekki fædd þegar ég var þar í sveit en systkinin Snorri, Ingibjörg og Steini voru mínir vinir þar. Lauga mamma þeirra var mér mjög góð og lærði ég margt þar þótt ekki væri ég göm- ul þá. Jóna kom til Reykjavíkur 1963 til að vinna í verslun eftir að hún hafði verið nemandi á húsmæðra- skóla í Eyjafirði. Þann vetur var hún heimagangur hjá okkur Hilmari og mjög þægileg og hjálpleg mér þegar börnin okkar voru lítil og smá og myndaðist þá vinskapurinn sem hefur haldist allar götur síðan og efldist með árunum. Ung kynntist hún Jóna honum Guðna sínum frá Smyrlabjörgum í Suðursveitinni og hófu þau bú- skap á Höfn og þar hafa þau búið síðan. Þau eignuðust börnin sín hana Hrefnu og hann Kalla og hafa alltaf haft nægan tíma fyrir þau og stutt þau vel þegar þörf hefur krafist í þeirra lífi. Mikið hafði hún Jóna gaman af að fylgj- ast með barnabörnunum sínum og nú síðustu árin litlu langöm- mukrílunum. Þau voru mjög samhent hjón og höfðu mjög gaman af að ferðast um landið. Guðni var dug- legur að útbúa ferðabíla og fóru þau á marga staði sem voru ekki mjög fjölfarnir á þeim tíma og marga ferðina fóru þau með okk- ur Hilmar um fjöll og firnindi Austur-Skaftafellssýslu. Að fá að vera í bústaðnum ykkar Guðna á hverju sumri hefur gefið okkur Hilmari mikla ánægju. Við fjölskyldan kveðjum Jónu með miklu þakklæti og sendum Guðna, Hrefnu, Kalla og allri fjöl- skyldunni okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning þín Jóna mín. Katla, Hilmar og fjölskylda. Það gerði bara lífið auðveldara og skemmtilegra að hafa átt frænku eins og hana Jónu. Nú er hún farin yfir í sumarlandið. Jóna litla systir hennar mömmu var alltaf hluti af okkur í Hátúni þeg- ar við vorum lítil og eins eftir að við urðum fullorðin. Hún var kon- an með stóra hjartað. Hún gerði allt fyrir alla og oft óbeðin. Hún var sú sem kenndi okkur að teygja út úr okkur tyggjó og okk- ur fannst mjög flott þegar hún gat látið smella í þegar hún tuggði tyggjó. Hún var aðsóps- mikill dugnaðarforkur. Hún gat líka verið afskiptasöm, en hvaða eldri frænkur eru það ekki? Jóna frænka átti sér líka viðkvæma hlið og hún grét í skírnarathöfn- um og sagði að þetta væri svo fal- legt. Hún hafði góða kímnigáfu og gat hlegið hátt og innilega að vitleysunni í okkur. Jóna frænka var yngst af sínum systkinum en þau voru Snorri sem er látinn, Ingibjörg mamma okkar og Steini sem lifa systur sína. Þau systkinin bjuggu alla sína tíð á Hornafirði, mamma og Jóna á Höfn og bræðurnir í Nesjum. Jóna var gift Guðna Karlssyni og eftir að þau urðu par um tvítugt var alltaf talað um þau sem eina heild. Það voru Jóna og Guðni. Þau voru þær manneskjur sem gerðu allt fyrir okkur og okkar fólk ef þau mögulega gátu. Það var alltaf mikill samgangur á milli þeirra systra og milli okkar og barna Jónu og Guðna. þegar mesti húsnæðisskorturinn var á Höfn bjuggu þau heima hjá okk- ur um tíma. Síðan þegar Hrefna og Kalli fæddust þá var nú ekki leiðinlegt að passa þau og skipta sér af þeim sem eldri frænkur þeirra. Seinustu árin fóru Jóna og Guðni til Kanarí og dvöldu lengi í hvert skipti og áttu þar góðan tíma í sól og hita. það er nú dálítið fyndið því Jóna frænka var svo flughrædd. En hún lét sig hafa það. Fyrsta skipti sem hún flaug til útlanda var 1999 þegar við fórum í frænkuferð til Köben. Mamma, Jóna frænka, Valdís, Hafdís, Hrefna, Ingibjörg Erna og Hekla sem laumufarþeginn hennar Hrefnu. Það er yndisleg minning sem við getum yljað okkur við. Í fyrrasumar lögðu þau land undir fót og heimsóttu Vestfirðina á sínum góða húsbíl og áttu frábært frí þrátt fyrir veikindi Jónu. Það var alltaf pláss og verður áfram fyrir okkur hjá Jónu og Guðna þegar við komum á Höfn og það voru ófá skipti sem við fengum að gista í Móakoti. Eftir að Jóna fór að finna til veik- inda var aldrei kvartað, en hún var orðin þreytt á því að enginn gat fundið út hvað var að. En hún var samt aldeilis ekki af baki dottin, sat og prjónaði lopapeys- ur í tugavís og hnésokka á örmjóa prjóna. Hún var líka frábær kokkur og bakari. Ósjaldan var maður nestaður með kleinupoka þegar maður kvaddi. Það er gott til þessa að hugsa hversu sam- heldin fjölskylda hennar er. Efst í huga okkar systra er þakklæti til hennar og hún var besta frænka sem hægt er að hugsa sér. Elsku Guðni, Hrefna, Kalli og fjölskylda, innilegar samúðar- kveðjur. Hrífa undir fjósvegg. Hlátrasköll í fjaska. Upprúllaðar pönnsur á rósóttum diski. Fram á lappir sér liggja hundar. Við pírum augun mót sólinni. (S. Hafdís Ólafsdóttir) Þínar frænkur, Valdís og Hafdís . Jóna Sigjónsdóttir ✝ Þóra Guðrún Óskarsdóttir fæddist í Reykja- vík 5. ágúst 1933. Hún lést 31. maí 2021 á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru Óskar Gíslason og Sig- urðína Straum- fjörð Einarsdóttir. Þóra Guðrún var einkadóttir þeirra. Þóra Guðrún, oftast kölluð Rúna, ólst upp á Fjölnisvegi 5 í Reykjavík. Að lokinni skóla- göngu í Austurbæjarskóla fór hún í Gagnfræðaskóla Vest- urbæjar. Síðar sem ung kona sótti hún hússtjórnarnám við Húsmæðraskólann á Laug- arvatni. Að auki sat hún nám- skeið í færslu bókhalds og vann um tíma við slíkt hjá Málningarverksmiðjunni Hörpu hf. Þann 17.8. 1957 giftist Þóra Guðrún eftirlifandi eiginmanni sínum, Einari Baldvinssyni lækni, f. 2.2. 1932. Bjuggu þau fyrstu búskaparárin á æsku- heimili hennar á Fjölnisvegi uns Einar fór í sérnám í læknisfræði í Bandaríkjunum 1962. Er þau fluttu aftur til landsins sumarið 1967 héldu þau áfram heimili með móður Þóru Guð- rúnar um tíu ára skeið, eða þar til þau fluttu í eigið hús í Brúna- landi 22 í Reykjavík hvar Þóra Guðrún bjó þar til hún varð fyrir skyndilegum og alvar- legum heilsubresti sumarið 2013. Þau Þóra Guðrún og Einar eignuðust þrjá syni: 1) Óskar, f. 1957, eiginkona hans var Hildur Harðardóttir. 2) Bald- vin, f. 1960, eiginkona hans er Lóa Steinunn Kristjánsdóttir. 3) Reynir, f. 1964, sambýlis- kona hans er Brynja Birgis- dóttir. Barnabörn þeirra Þóru Guðrúnar og Einars eru sjö og barnabarnabörn átta. Útför Þóru Guðrúnar fór fram 7. júní 2021 í kyrrþey að hennar ósk. Þóra Guðrún Óskarsdóttir, sem jafnan var kölluð Rúna, er fallin frá. Hún var samstarfs- kona fjölskyldu minnar um ára- tugaskeið í málningarverk- smiðjunni Hörpu hf. og síðar Hörpu Sjöfn hf. en hún var stór hluthafi og stjórnarmaður ásamt okkur. Samstarf Rúnu og Magnúsar Helgasonar, föður míns, stóð yfir í nær fjörutíu ár meðan hann lifði og var allan tímann farsælt og traust. Þegar ég tók við starfi framkvæmdastjóra Hörpu árið 1992 gat ég ávallt reitt mig á góðan stuðning Rúnu en hún var ráðhollur stjórnarmaður sem lagði ein- ungis gott til mála í hópi okkar hluthafanna. Á þessum árum gerðum við miklar breytingar á fyrirtækinu sem sumar hverjar voru djarfar. Rúna studdi allar slíkar hugmyndir og stóð með okkur að þeim eins og þegar við fórum út í rekstur Hörpu- verslananna sem reyndist fyrir- tækinu mikið gæfuspor. Sama gilti um þá ákvörðun að sam- eina Hörpu og Sjöfn á Akureyri sumarið 2001 þegar til varð Harpa Sjöfn hf., enn öflugra málningarfyrirtæki en hin tvö voru hvort í sínu lagi. Þegar við stóðum frammi fyrir því að stórfyrirtæki í málningarviðskiptum í Dan- mörku, Flügger, falaðist eftir kaupum á Hörpu Sjöfn árið 2004, hlýtur það að hafa verið stór ákvörðun fyrir Rúnu að samþykkja sölu á fyrirtæki sem hún og fjölskylda hennar höfðu átt eignarhluti í frá árinu 1936. En hún sýndi þá enn á ný að hún var framsýnn hluthafi sem nýtti langa reynslu sína til að taka réttar ákvarðanir. Um þessa stóru ákvörðun ríkti al- ger samstaða í okkar hópi. Ég sakna þessarar merku konu og trausta samstarfs- manns. Það féll aldrei neinn skuggi á samstarf hennar og fjölskyldu hennar og okkar fjöl- skyldu í þau sextíu ár sem leið- ir lágu saman í rekstrinum. Eftirlifandi eiginmanni Rúnu, Einari Baldvinssyni, og sonunum Óskari, Baldvin og Reyni ásamt fjölskyldunni allri vottum við innilega samúð. Blessuð sé minning Þóru Guð- rúnar Óskarsdóttur. Helgi Magnússon. Þóra Guðrún Óskarsdóttir Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST •REYNSLA Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞORBJARGAR J. ÓLAFSDÓTTUR ljósmóður, Urriðakvísl 16, Reykjavík, sem jarðsett var frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 19. maí. Bestu þakkir færum við starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítala á deild 11E fyrir frábæra umönnun. Jón M. Benediktsson Þórólfur Jónsson Nanna Viðarsdóttir Ragnheiður Jónsdóttir Erlend Nicolaisen Þórhildur Jónsdóttir Jón Hákon Hjaltalín og barnabörn Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og ómetanlegan stuðning vegna andláts og útfarar elsku eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR KRISTÍNAR ÞÓRSDÓTTUR. Páll Þorsteinsson Þór Elfar Helgason Pálína Mjöll Pálsdóttir Skúli Sigurðsson Guðrún Hulda Pálsdóttir Brynhildur Nadía, Harpa Rán, Eyvindur Páll, Sindri Fannar og Kristófer Þór Kæru ættingjar og vinir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elskulegs eiginmanns, föður, afa og langafa, SIGURBJARTS SIGURÐSSONAR, Langagerði 34. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Viðeyjar og Mánateigs á Hrafnistu Laugarási fyrir hlýhug og nærgætni. Guðbjörg Jónsdóttir Jóna Sigfríð Sigurbjartsd. Gunnar Þórir Þorkelsson Heiða Björg Sigurbjartsdóttir Hans Gíslason barnabörn og barnabarnabörn Ástvinir þakka auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SVANBORGAR ÓLAFSDÓTTUR frá Litla-Laugardal í Tálknafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Ölduhrauns, Hrafnistu Hafnarfirði, fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Baldur Jóhannsson Reynir Baldursson Karitas Jóhannsdóttir Jóhann Baldursson Kristín Reynisdóttir Anna Björk Baldursdóttir Sigurjón Andersen Birgitta Baldursdóttir Elías Ívarsson Brynja Baldursdóttir Gunnar Óli Pétursson Erla Baldursdóttir Gísli Vattnes Bryngeirsson Ólafur Jósúa Baldursson Ramona Balaciu og fjölskyldur þeirra Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR SIGURJÓNSDÓTTUR frá Syðri-Grund. Bestu þakkir til starfsfólks HSN á Blönduósi fyrir hlýtt viðmót og virðingu. Valgerður Guðmundsdóttir Sigrún Guðmundsdóttir Einar Sigurðsson Þorsteinn Guðmundsson Sigrún Jónsdóttir Sveinn Helgi Guðmundsson Karin Roland og ömmubörnin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.