Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 47

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 47
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is K veikjan að þessum pistli liggur í linnulitlum tilkynningum um plötur frá ungum og efnilegum tónlistar- konum, stígandi sín fyrstu skref með fimm til sjö laga plötum sem lúra á Spotify og/ eða Bandcamp. Nöfn eins og t.a.m. Laufey, Rakel og Raven, innihaldið þekkileg og móðins popptónlist, stundum með nútíma r og b blæ, stundum af þjóðlagakyni. Ógrynni nafna hafa lent á borðinu mínu undanfarin tvö misseri. Salóme Katrín, Karítas, Karítas Harpa, Kristín Sesselja, Elín Hall, Blankifúr, svo fátt eitt sé nefnt. Fram undan svo efni með Ástu, Árnýju Margréti og Red Riot (Cell7 og Hildur). Og poppdrottningarnar Bríet og GDRN á fullu stími líka. Hallelúja! Tónlistarkona að nafni Sigga Ózk gaf til að mynda út plötuna Ný ást á dögunum. Allt tipp topp, veri það umslagshönnun, kynningartextar, ljósmyndir, spilamennska o.s.frv. Tónlistin sjálf sannfærandi. Djass- skotið popp í bland við stálkaldar r og b drifnar stórborgarstemmur. Sigga sjálf ný- skriðin yfir tvítugt og textar ástarbundnir þar sem á skiptast skin og skúrir. Vel syngur hún þá, smá Amy Winehouse (og Teyana Taylor, Summer Walker) en fyrst og síðast ástríða og kraftur sem hún beitir af lagni út plötuna. Hvernig stendur á þessu flóði sem er að sönnu fagnaðarefni? Tæknin hefur eitt- hvað að segja, einfaldara er að gefa út en áður og öll stig þar með minna flækjustig en áður. En það eru aðrar og mikilvægari skýringar líka sem fara heldur dýpra. Nú er alveg ljóst að konur eiga við ramman reip að draga á sviði tónlistar, hindr- anirnar eru margvíslegar og ég ætla ekki að fara sérstaklega út í hverjar þær eru hér. En eitt mikilvægasta tólið til að leið- rétta skekkjuna er sýnileiki og vettvangur (e. „platform“). Þegar ung, upprennandi stúlka sér aldrei kynsystur sínar á tón- leikahátíðum, í tónlistartímaritum eða á bak við trommusett er ekki nema eðlilegt að hún hugsi að hún eigi ekkert erindi þangað. Skekkjan og skilaboðin eru kerf- islæg, þetta er rammað inn í það samfélag sem við lifum og hrærumst í. Það sama á við um kynsegin og hinsegin fólk að sjálf- sögðu, í raun alla þá sem eru ekki í þeirri valdastöðu sem hvítir karlar njóta. Undanfarin ár höfum við séð æ fleiri stelpur taka þátt í Músíktilraunum, við sjáum passað upp á kynjahlutfall í útvarps- spilun (Rás 2) og samtök eins og Stelpur rokka! eru að vinna mikilvægt starf. Takið eftir, að allt eru þetta aðgerðir, við hugs- um okkur ekki út úr villunni. Hjal um að fólk ætli sér að gera betur næst, „besta“ lagið sé valið óháð kyni (sem á einhvern ótrúlegan hátt er svo alltaf eftir karlmann) og svo framvegis er bara það. Hjal. Ef þér er raunverulega annt um réttlátara þjóð- félag og sjálfsagðan framgang kvenna ráddu þær þá inn á hátíðina þína, skrifaðu um þær, spilaðu þær, hlustaðu á þær, tal- aðu um þær og veittu þeim athygli. Það er nefnilega meira en að segja það að taka sér pláss í bransa sem hefur frá upphafi verið kvenfjandsamlegur svo ég segi það bara hreint út. Komandi úr um- hverfi þar sem þér er kennt að vanda þig umfram allt, trana þér ekki fram og vera ekki fyrir á meðan karlmenn venjast því að geta vaðið uppi og gert hlutina kinnroða- laust, algerlega án skammar. Þetta er lín- an. Er því nema von að ég sé kátur eftir þessa upptalningu í blábyrjun greinar? Að sjá alla þessa útgáfu? Mikið sem ég óska þess að allt það hæfileikakvenfólk sem við eigum í tónlistinni kýli á það, gefi út, skapi og tjái sig. Skítt með útkomuna. Hún þarf ekki að vera fullkomin. Bara að hún sé þarna. Skammar- og kinnroðalaust. Popp í krafti kvenna Það hillir undir talsverðan fjölda poppplatna frá kven- kyns flytjendum á þessu ári og er það vel. » Skekkjan og skilaboðin eru kerfislæg, þetta er rammað inn í það samfélag sem við lifum og hrærumst í. Red Riot Cell7 og Hildur eru kraft- mikið tvíeyki. MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA HROLLVEKJANDI SPENNUMYND THE WRAP FILM SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI 97% SAN FRANCISCO CHRONICLE INDIE WIRE

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.