Morgunblaðið - 12.06.2021, Page 47
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
K
veikjan að þessum pistli liggur í
linnulitlum tilkynningum um plötur
frá ungum og efnilegum tónlistar-
konum, stígandi sín fyrstu skref með fimm
til sjö laga plötum sem lúra á Spotify og/
eða Bandcamp. Nöfn eins og t.a.m. Laufey,
Rakel og Raven, innihaldið þekkileg og
móðins popptónlist, stundum með nútíma r
og b blæ, stundum af þjóðlagakyni.
Ógrynni nafna hafa lent á borðinu mínu
undanfarin tvö misseri. Salóme Katrín,
Karítas, Karítas Harpa, Kristín Sesselja,
Elín Hall, Blankifúr, svo fátt eitt sé nefnt.
Fram undan svo efni með Ástu, Árnýju
Margréti og Red Riot (Cell7 og Hildur). Og
poppdrottningarnar Bríet og GDRN á fullu
stími líka. Hallelúja!
Tónlistarkona að nafni Sigga Ózk gaf
til að mynda út plötuna Ný ást á dögunum.
Allt tipp topp, veri það umslagshönnun,
kynningartextar, ljósmyndir, spilamennska
o.s.frv. Tónlistin sjálf sannfærandi. Djass-
skotið popp í bland við stálkaldar r og b
drifnar stórborgarstemmur. Sigga sjálf ný-
skriðin yfir tvítugt og textar ástarbundnir
þar sem á skiptast skin og skúrir. Vel
syngur hún þá, smá Amy Winehouse (og
Teyana Taylor, Summer Walker) en fyrst
og síðast ástríða og kraftur sem hún beitir
af lagni út plötuna.
Hvernig stendur á þessu flóði sem er
að sönnu fagnaðarefni? Tæknin hefur eitt-
hvað að segja, einfaldara er að gefa út en
áður og öll stig þar með minna flækjustig
en áður. En það eru aðrar og mikilvægari
skýringar líka sem fara heldur dýpra. Nú
er alveg ljóst að konur eiga við ramman
reip að draga á sviði tónlistar, hindr-
anirnar eru margvíslegar og ég ætla ekki
að fara sérstaklega út í hverjar þær eru
hér. En eitt mikilvægasta tólið til að leið-
rétta skekkjuna er sýnileiki og vettvangur
(e. „platform“). Þegar ung, upprennandi
stúlka sér aldrei kynsystur sínar á tón-
leikahátíðum, í tónlistartímaritum eða á
bak við trommusett er ekki nema eðlilegt
að hún hugsi að hún eigi ekkert erindi
þangað. Skekkjan og skilaboðin eru kerf-
islæg, þetta er rammað inn í það samfélag
sem við lifum og hrærumst í. Það sama á
við um kynsegin og hinsegin fólk að sjálf-
sögðu, í raun alla þá sem eru ekki í þeirri
valdastöðu sem hvítir karlar njóta.
Undanfarin ár höfum við séð æ fleiri
stelpur taka þátt í Músíktilraunum, við
sjáum passað upp á kynjahlutfall í útvarps-
spilun (Rás 2) og samtök eins og Stelpur
rokka! eru að vinna mikilvægt starf. Takið
eftir, að allt eru þetta aðgerðir, við hugs-
um okkur ekki út úr villunni. Hjal um að
fólk ætli sér að gera betur næst, „besta“
lagið sé valið óháð kyni (sem á einhvern
ótrúlegan hátt er svo alltaf eftir karlmann)
og svo framvegis er bara það. Hjal. Ef þér
er raunverulega annt um réttlátara þjóð-
félag og sjálfsagðan framgang kvenna
ráddu þær þá inn á hátíðina þína, skrifaðu
um þær, spilaðu þær, hlustaðu á þær, tal-
aðu um þær og veittu þeim athygli.
Það er nefnilega meira en að segja það
að taka sér pláss í bransa sem hefur frá
upphafi verið kvenfjandsamlegur svo ég
segi það bara hreint út. Komandi úr um-
hverfi þar sem þér er kennt að vanda þig
umfram allt, trana þér ekki fram og vera
ekki fyrir á meðan karlmenn venjast því að
geta vaðið uppi og gert hlutina kinnroða-
laust, algerlega án skammar. Þetta er lín-
an. Er því nema von að ég sé kátur eftir
þessa upptalningu í blábyrjun greinar? Að
sjá alla þessa útgáfu? Mikið sem ég óska
þess að allt það hæfileikakvenfólk sem við
eigum í tónlistinni kýli á það, gefi út, skapi
og tjái sig. Skítt með útkomuna. Hún þarf
ekki að vera fullkomin. Bara að hún sé
þarna. Skammar- og kinnroðalaust.
Popp í krafti kvenna
Það hillir undir talsverðan
fjölda poppplatna frá kven-
kyns flytjendum á þessu ári
og er það vel.
»
Skekkjan og skilaboðin
eru kerfislæg, þetta er
rammað inn í það samfélag
sem við lifum og hrærumst í.
Red Riot Cell7 og
Hildur eru kraft-
mikið tvíeyki.
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
THE WASHINGTON POST
ROGEREBERT.COM
TOTAL FILM
USA TODAY
THE SEATTLE TIMES
THE GUARDIAN
GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA
SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA
HROLLVEKJANDI SPENNUMYND
THE WRAP FILM
SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI
97%
SAN FRANCISCO
CHRONICLE
INDIE WIRE