Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 49

Morgunblaðið - 12.06.2021, Síða 49
Innsetning Kovacevic er austurrískur leik- húsframleiðandi og býr á Íslandi. Koddahjal – Endurhlaða nefnist innsetning eftir Sonju Kovacevic í Borgarbókasafninu í Grófinni sem gefur áhorfandanum innsýn í líf hælisleitenda og flóttamanna á Ís- landi. Hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleit- endur og úr hátölurum heyrast síð- an fjölmargar ólíkar frásagnir, seg- ir í tilkynningu og að áhorfand- anum bjóðist að leggjast niður og hlusta. Koddahjal var sýnt á Listahátíð í Reykjavík 2018 og hef- ur verið lagað að Borgarbókasafn- inu Grófinni. Samfara innsetning- unni verður haldin vinnustofa, hugsuð til að kveikja umræður um efnið. Koddahjal í Borgarbókasafninu MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021 Kvikmyndahátíðin í Berlín hófst 9. júní síðastliðinn eða öllu heldur sér- stök sumarútgáfa hátíðarinnar sem mun öll fara fram utandyra vegna farsóttarinnar. Fjölmennir fólk nú á torgum og nýtur nýrra kvikmynda og sjónvarpsþátta og þá meðal ann- ars fyrir framan Charlotten- burg-höllina, hvort heldur er að degi til eða kveldi. Hátíðin stendur yfir til og með 20. júní og þurfa allir gestir að fara í Covid-prufu til að fá aðgang að sýn- ingum. Sýningarstaðir eru 16 talsins og því mikil veisla þessa dagana í borginni. 126 kvikmyndir verða sýndar á sumarhátíðinni og aðalsýningarstað- urinn hin svokallaða safnaeyja borg- arinnar. Þar hefur rauðum dregli verið komið fyrir og var opnunar- mynd hátíðarinnar The Mauritan- inan eftir skoska leikstjórann Kevin McDonald. Í henni er rakin sönn saga Mohamedou Ould Slahi, manns frá Máritaníu sem haldið var föngn- um í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu án ákæru í 14 ár. Aðalleikarar myndarinnar eru Tahar Rahim og Jodie Foster sem hlaut Golden Globe-verðlaun fyrr á árinu fyrir leik sinn í myndinni. AFP Opnunarræða Framkvæmdastjóri Berlinale, Mariette Rissenbeek, flytur ávarp á skjá við setningu hátíðarinnar. Hátíð undir Berlínarhimni Notalegt Ggestir bíða eftir því að sýning hefjist við Charlottenburg. Logandi Björninn, táknmynd Berlinale, birtist í allri sinni dýrð á bíótjaldi. Kig & Husk nefnist nýstofnaður dú- ett tónlistarmannanna Franks Hall og Höskuldar Ólafssonar sem nú hefur sent frá sér fyrstu smáskíf- una, „So long Holly“, af væntan- legri fyrstu breiðskífu sinni. Lag og texti eru innblásin af kvikmyndinni The Third Man frá árinu 1959 og þá sérstaklega ódauðlegri ræðu undir lok myndarinnar þar sem persóna Orson Wells upphefur áhrif ófriðar og átaka á menningarlegar fram- farir, eins og segir í tilkynningu frá dúettinum. Tónlist þeirra félaga hefur verið lýst sem poppuðu listarokki þar sem hefbundið tónlistarform er þanið út og óhljóðum stillt upp á móti melódískum lag- og söng- línum, skv. tilkynningu og allur hljóðfæraleikur í laginu, forritun, útsetningar og hljóðblöndun voru í höndum dúettsins en Paul Maguire sá um trommuleik. Höskuldur og Frank stofna dúett Ljómandi Höskuldur Ólafsson. Tegundagreining nefnist sýning á verkum Steingríms Eyfjörð sem opnuð verður í Listasafni Reykja- nesbæjar í dag kl. 13 til 17 og er hún sambland endurlits og nýrra verka eftir listamanninn sem hafa ekki áð- ur komið fyrir sjónir almennings. Er sýningin sögð tilraun Steingríms til að skýra kveikjuna að myndsköpun sinni og verkin afmörkuð og staðsett með flokkunarkerfi, mynstri sem þróast hafi á löngum ferli hans. Segir í tilkynningu að sýningin muni setja fram óvænta sýn á höfundarverk Steingríms sem hafi auðkennt ákveðna yfirflokka sem settir séu fram í því samhengi. Þess- ir flokkar eru Hið ósnertanlega, Arf- urinn, Heimur kvenna, Gagnrýni, Guðs eigið land, Kellingin, Decode og Comix. Í sýningarskrá skrifar Halldór Björn Runólfsson m.a. að í engu sé logið þegar fullyrt sé að Steingrím- ur Eyfjörð sé meðal okkar allra sér- stæðustu listamanna. „Það helgast ekki síst af persónulegri nálægð hans við viðfangsefnið – það hversu langt hann leyfir list sinni að af- hjúpa sinn innri mann án þess að blikna,“ skrifar Halldór og að Stein- grímur sé margslunginn, víðlesinn og áhugasamur um alla skapaða hluti. Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Nýlistasafnið lánuðu verk eftir Steingrím á sýninguna auk fjölmargra einkasafnara. Einn- ig aðstoðaði Hverfisgallerí safnið við gerð sýningarinnar sem stendur yfir til 22. ágústs. Listasafn Reykja- nesbæjar er opið alla daga kl. 12-17. Margslungin Verk eftir Steingrím Eyfjörð á sýningunni í Reykjanesbæ. Sambland endurlits og nýrra verka Söngleikjadeild Söngskóla Sig- urðar Demetz sýndi um síðustu helgi söngleikinn Djúpt inn í skóg og var uppselt á báðar sýningar. Vegna eftirspurnar hefur verið blásið til aukasýningar sem fram fer annað kvöld kl. 20 í Gaflaraleik- húsinu. Miðasala á sýninguna fer fram á vefnum tix.is. Djúpt inn í skóg heitir á frum- málinu Into the Woods og er eftir Stephen Sondheim og James Lap- ine en uppsetning söngskólans er í leikstjórn Orra Hugins Ágústs- sonar. Söngleikurinn hefur hlotið fjölda verðlauna. Aukasýning í boði á Djúpt inn í skóg Fjör Úr söngleiknum Djúpt inn í skóg. GUAVA LÍNAN Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup & á Heimkaup.is Organic Guava ávöxturinn inniheldur fjórfalt meira C-vítamín en appelsínur Gefur húðinni raka, ljóma og orku Léttur og ferskur sumarilmur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.