Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 52

Morgunblaðið - 12.06.2021, Side 52
Tónleikar í röðinni 15:15 verða haldnir í Breiðholtskirkju í dag, 12. júní, kl. 15:15. Kammerhópurinn Camerarctica flytur þá tvö kammerverk sem voru samin við upphaf 19. aldar og í tilkynningu sögð full af birtu og léttleika þar sem klassíkin og rómantíkin mætist í samhljómi klarínettu og strengja og heyrast þau nú þegar sólin skín hæst á lofti. Fluttur verður kvartett fyrir klarínettu og strengjatríó eftir sænsk-finnska tónskáldið Bern- hard Crusell, glæsileg og gásgafull tónsmíð og kvintett fyrir klarínettu, fiðlu, tvær víólur og selló eftir tékk- neska tónskáldið Franz Krommer þar sem þéttur kammerhljómur og léttleiki eru áberandi. Camerarctica leikur í 15:15 LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Ísland vann Írland 3:2 í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í fótbolta kvenna á Laugardalsvellinum í gær, í afar kaflaskiptum leik. Íslenska liðið hafði yfirburði í fyrri hálfleik og skoraði þá þrjú mörk en náði sér ekki á strik í þeim síðari og þá löguðu Írar stöðuna með tveimur mörkum. Liðin mætast aftur á þriðjudaginn. »45 Sigur á Írum í kaflaskiptum leik ÍÞRÓTTIR MENNING Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Dugmiklir nemendur Seljaskóla í Breiðholti kepptust við að klára dagsverkið á fyrsta degi Vinnuskól- ans í Reykjavík þegar blaðamann Morgunblaðsins bar að garði í gær. Góð stemning var í hópnum sem mundaði af krafti hin ýmsu verkfæri sem þurfti til verksins sem var að þessu sinni beðahreinsun í grennd við skólann. Meginhlutverk Vinnuskóla Reykjavíkur er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla Reykjavíkur uppbyggileg sum- arstörf ásamt fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Öllum nemendum 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni. Ekkert mál að vakna snemma Arnór Arnórsson, nemandi við Seljaskóla, er að eigin sögn vel stemmdur fyrir sumrinu og sér- staklega ánægður með launin sem hann fær fyrir vinnuna. „Þetta eru góð laun sko. Sex hundruð kall á tím- ann,“ segir hann. Aðspurður segist Arnór ætla að kaupa sér föt fyrir aur- ana í uppáhaldsfatabúðunum sínum, Polo og Levis. Hann segir lítið mál að vakna snemma á morgnana til að mæta í vinnuna enda hafi hann verið vaknaður klukkan sex þennan morg- uninn. Þá segist hann lítið stressa sig yfir veðrinu. „Það er bara að klæða sig vel,“ segir hann galvaskur. Spara fyrir framtíðinni Vinkonurnar Eygló Kristinsdóttir og Bryndís Guðnadóttir taka undir með Arnóri og segjast sáttar við að byrja að vinna beint eftir skóla. „Þá er auðveldara að vakna því við þurf- um líka að vakna snemma til að mæta í skólann,“ segir Bryndís. Þá segja þær launin fyrir vinnuna ágæt. „Ég ætla bara að safna peningnum og spara hann fyrir framtíðina,“ segir Bryndís. Starf Vinnuskólans í Reykjavík fer vel af stað - Vaskur hópur ungmenna hóf störf í unglingavinnu í gær Morgunblaðið/Unnur Karen Beðahreinsun Nóg var um arfann í beðinu sem iðin ungmenni kepptust við að hreinsa á fyrsta degi Vinnuskólans. Árrisull Arnór Arnórsson segir það ekkert mál að vakna snemma. Safna Eygló og Bryndís eru að safna peningum fyrir framtíðina. „Ég styð frelsi eldri borgara til að ákvarða sjálfir eigin getu og vilja til atvinnuþátttöku.” PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI Í DAG FRÁ KL. 9 - 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.