Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Það eru
tímamót í
þínu hverfi
Við opnum sýningu á tillögum að
nýju hverfisskipulagi Breiðholts
19. júní nk. klukkan 14.
Hverfisskipulag byggir á víðtæku samráði, óskum íbúa
og vistvænum áherslum í þróun hverfisins. Kynntu þér
nýju tillögurnar á hverfisskipulag.is.
Dagskrá
Ávarp – Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar
Kynning á tillögum
Umræður
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Tíu sinnum hefur það gerst að tveir
einstaklingar hér á landi nái 100 ára
aldri sama daginn. Nú í dag gerist
það svo í ellefta skiptið, en Kristín
Gísladóttir og María Arnlaugsdóttir
deila afmælisdeginum 19. júní og
fagna því báðar 100 ára afmæli sínu í
dag, skv. upplýsingum Jónasar Ragn-
arssonar, sem er líklega manna fróð-
astur um langlífi Íslendinga og sér
m.a. um Facebook-síðuna Langlífi.
Engin sérstök ráð til
að ná 100 ára aldri
„Mér líður nú bara alveg eins og í
gær,“ segir María í samtali við Morg-
unblaðið í gær, aðspurð hvernig
manni líði þegar maður verður 100
ára. María segist ekki vera með nein
sérstök ráð sem gott væri að fylgja
ætli maður sér að ná 100 ára aldri.
„Ég hefði aldrei látið mér detta í hug
að ég yrði svona gömul, en þannig er
bara gangurinn í þessu, maður tekur
bara því sem kemur.“ María sagðist
ekki þurfa að standa í því sjálf að
halda upp á afmælið, en hún ætlar að
fagna því með sínu nánasta fólki á af-
mælisdaginn.
Síðustu hálfa aðra öldina hafa á átt-
unda hundrað Íslendinga náð 100 ára
aldri. Síðustu áratugina hafa aldrei
fleiri en 30 orðið 100 ára á einu og
sama árinu. Það er því athyglisvert
að ellefu sinnum hafi það gerst að
tveir einstaklingar nái þessum aldri á
sama deginum. Fyrst gerðist það 7.
júní árið 1963. Síðan tvisvar árið 1992
og 1995. Einu sinni árin 2005, 2008,
2011, 2015 og 2020 og nú 19. júní
2021. Af þessum 22 einstaklingum
eru 5 karlar.
Tvisvar náðu slíkir jafnaldrar 101
árs aldri. Einu sinni 102 ára aldri og
einu sinni 103 ára aldri. það voru
Helgi Símonarson á Dalvík og Ingi-
björg Bjarnadóttir í Reykjavík. Helgi
náði að verða 105 ára og 11 mánaða
og átti lengi aldursmet íslenskra
karla.
Ellefta skiptið
sem tveir verða
100 ára sama daginn
- Tvær konur fagna 100 ára aldri
Afmæli María Arnlaugsdóttir
fagnar 100 ára afmæli í dag.
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Talið er að fyrsta kristna kirkja Ís-
lands hafi staðið við Esjuberg og á
hún að hafa verið reist um árið 900
en hennar er getið í íslenskum rit-
heimildum. Þrátt fyrir fornleifa-
rannsóknir á svæðinu hafa aldrei
fundist ummerki um kirkjuna, en
regluleg skriðuföll úr Esjuhlíðum
hafa hulið svæðið.
Sögufélagið Steini á Kjalarnesi
hefur undanfarin ár staðið að því að
reisa minnisvarða um kirkjuna og
nú á sunnudag mun biskup Íslands
vígja útialtari að keltneskri fyrir-
mynd á Esjubergi. „Þjóðkirkjan hef-
ur talað um það í áratugi að gera
eitthvað þarna til að minnast þessa
atburðar, en ekkert bólaði á fram-
kvæmdum,“ segir Bjarni Sig-
hvatsson, varaformaður félagsins.
„Þá fékk okkar litla sögufélag þá fá-
ránlegu hugmynd að þetta væri
verðugt verkefni fyrir félagið að
halda á lofti nöfnum Kelta í íslenskri
sögu,“ segir Bjarni í léttum tón.
„Félagið safnaði fé fyrir verkinu á
Karolina fund og tókst vel til, auk
þess hafa margir aðilar komið að því
að styrkja verkefnið,“ segir Bjarni.
Biskup Íslands mun svo vígja kirkj-
una við nokkuð látlausa athöfn
klukkan 2 á sunnudag, en boðið
verður upp á kaffi og kleinur og
kirkjukór Brautarholtskirkju syng-
ur á athöfninni. „Þá fengu velgjörð-
armenn verkefnisins boð í vígsluna,
en sérstakir áhugamenn um sögu
kirkjunnar eru að sjálfsögðu vel-
komnir“ segir Bjarni.
Útsýni Útialtari að keltneskri fyrirmynd er fullgert en sögufélagið Steini á Kjalarnesi hefur séð um verkefnið.
Biskup vígir keltneskt
útialtari á Esjubjargi
- Sögufélagið Steini á Kjalarnesi stendur á bak við verkefnið