Morgunblaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Tryggjum
tveggja metra fjarlægð
og gætum ítrustu
ráðstafana
Íranir kusu sér nýjan forseta í stað Hassans Rou-
hani í gær en litið var á fjóra frambjóðendur af
fimm sem harðlínumenn. Andófsmenn og umbóta-
sinnar hvöttu kjósendur til heimasetu þar sem yf-
irvöld höfðu strikað frambjóðendur út og þar með
nánast gert kjörið að formsatriði. Þótti sem búið
væri að ganga frá kjöri ofuríhaldssams klerks,
Ebrahims Raisi, með því að vísa hættulegustu
keppinautum hans frá. Kosningarnar fara fram á
tímum mikillar óánægju vegna efnahagslegra
þrenginga sem sagðar eru afleiðing refsiaðgerða
vesturveldanna sem gripið var til eftir að Íranar
féllu frá samningnum um kjarnorkumál. Á mynd-
inni bíður kristin írönsk kona þess að fá að kjósa á
kjörstað í Teheran. agas@mbl.is
Íran
AFP
Íranir kjósa sér nýjan forseta
Frjálslyndi flokk-
urinn breski vann
óvænt en örugg-
lega aukakosn-
ingar um þing-
sæti kjördæmis-
ins Chesham og
Amersham.
Íhaldsflokkurinn
hafði ætíð unnið
kjördæmið og
vann það með 16.000 atkvæðum í
kosningunum 2019.
Frambjóðandi Frjálslynda flokks-
ins, Sarah Green, hlaut 56,7% at-
kvæða en íhaldsmaðurinn Peter
Fleet 35,5%. Vann Green með 8.028
atkvæða mun. Frambjóðandi Verka-
mannaflokksins hlaut aðeins 622 at-
kvæði en flokkurinn mun aldrei hafa
komið jafn illa frá aukakosningum.
Leiðtogi frjálslyndra, Ed Davey,
sagði Íhaldsflokknum nú standa ógn
af frjálslyndum í fjölda kjördæma.
Sarah Green fer inn á þing sem 12.
þingmaður Frjálslynda flokksins.
Boris Johnson forsætisráðherra
sagði niðurstöðu Íhaldsflokksins
vonbrigði og rakti ósigurinn til stað-
bundinna deilumála.
Efna þurfti til kosninganna eftir
að Cheryl Gillan, fyrrverandi ráð-
herra og þingmaður Chesham og
Amersham, féll frá í apríl.
Johnson
missti
þingmann
- Höfðu aldrei
tapað kjördæminu
Cheryl Gillan
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Nýsmit kórónuveirunnar hafa rokið
upp sem faraldur væri í Rússlandi.
Þar hefur þeim fjölgað þrefalt á einni
viku. Skýringuna á uppsveiflunni er að
finna í svonefndu Delta-afbrigði. Hef-
ur þetta leitt til ýmissa ráðstafana af
hálfu Rússa og meðal annars þrengt
að áhorfendum á EM í fótbolta sem
fram fer í Moskvu.
Alls greindust 9.056 nýsmit í
Moskvu á sólarhring þar til í gær, sem
er met. Sagði Sergei Sobjanin, borg-
arstjóri hinnar 12 milljóna manna risa-
stórborgar, að tæp 90% smitanna
væru af völdum Delta-afbrigðisins
sem fyrst greindist á Indlandi. Hálfum
mánuði áður greindust 3.000 nýsmit í
Moskvu.
Sobjanin sagði að takmarka yrði
samkomuhald og þrengja að umsvif-
um vegna EM í fótbolta. „Þetta er mér
á móti skapi en ekki er um annað að
ræða,“ skrifaði borgarstjórinn á
heimasíðu sína. „Frá og með deginum
í dag verður aðsókn að stórviðburðum
takmörkuð við eitt þúsund manns. Við
erum að stöðva allar stórsamkomur og
verðum líka að loka danshúsum og
áhorfendasvæðum.“
Sobjanin varaði við nýrri sýkingar-
bylgju í fyrradag. „Við höfum ekki séð
svona mikinn gang í smitinu. Hann var
aldrei svona mikill í fyrri bylgjum,“
sagði hann. Á fundi með veitinga-
mönnum í fyrradag sagði borgarstjór-
inn að á einungis fimm dögum hefðu
13.000 laus rúm á sjúkrahúsum fyllst.
„Þau voru étin upp.“ Í gær voru spít-
alarúm helguð stríðinu gegn kórón-
uveirunni orðin 17.000 og ætlunin var
að fjölga þeim brátt í 20.000, að sögn
Sobjanin.
Hið stóraukna veirusmit á sér stað á
sama tíma og Rússar reynast tregir til
að láta bólusetja sig. Þótt herferð hafi
verið ýtt úr vör í desember og alls fjög-
ur bóluefni verið þróuð og framleidd í
Rússlandi; Sputnik V, EpiVacCorona,
CoviVac og Sputnik Light – gætir
mótþróa við að láta sprauta sig. Aðeins
19 milljónir Rússa af 146 milljónum
hafa fengið a.m.k. einn sprautu-
skammt. Í Moskvu hafa aðeins 1,8
milljónir íbúa af 12 milljónum fengið
bóluefni gegn kórónuveirunni. Nýleg-
ar skoðanakannanir sýna að 60%
Rússa ætla ekki að þiggja sprautu.
AFP
Vörn Lögreglumenn vígbúnir gegn veirunni á Rauða torginu í Moskvu.
Sýkingar blossa
upp í Rússlandi
Breska stjórnin
bað fórnarlömb
nauðgana afsök-
unar í gær og
gekkst við því að
mikill niður-
skurður fjárveit-
inga í dóms-
málakerfinu
hefði að hluta til
leitt til fækkunar
sakfellinga í nauðgunarmálum.
Tveir ráðherrar sögðust „djúpt
sneyptir“ vegna lágs hlutfalls sak-
fellingardóma í nauðgunarmálum í
Englandi og Wales. Hét dóms-
málaráðherrann Robert Buckland
því að „betur yrði að verki staðið“ í
framtíðinni.
Alls teljast fórnarlömb nauðg-
unar og tilrauna til nauðgunar
128.000 á ári í Englandi og Wales.
Aðeins 1,6% þessara mála komast á
ákærustig. Á síðasta ári voru 1.439
ákærðir einstaklingar sakfelldir
fyrir nauðgun eða vægara brot.
BRETLAND
Ráðherrar biðjast
afsökunar
Robert Buckland
Neyðarlögum
hefur verið lýst
yfir í Kaliforníu
vegna gríðar-
legrar hita-
bylgju sem talin
er geta ógnað
orkukerfi rík-
isins.
Í þjóðgarð-
inum Dauðadal
mældist hitinn
54°C í fyrradag en þar er jafnan
heitasti blettur Bandaríkjanna.
Hættulega mikill hiti mældist einn-
ig í ríkjunum Arizona, Nevada og
Utah eða 37-43 gráður á Celcius.
Ekki dregur úr hita fyrr en á
mánudag. Íbúar voru hvattir til að
dveljast innanhúss eða í skugga og
spara rafmagn.
BANDARÍKIN
Neyðarástand vegna
hita í Kaliforníu
Hátt steig hitamæl-
irinn í Dauðadal í gær.