Morgunblaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 14
ekki síst í Vestur-Evrópu. Það hafi gengið vel og teikn séu á lofti um enn frekari vöxt á komandi árum. Nefnir hann sem dæmi að Frakk- landsmarkaður hafi tekið íslenska skyrinu afar vel. Sala þar hófst í smáum stíl á síðasta ári en nú stefnir í yfir 700 tonna sölu í ár. Ísey skyr er til sölu í einni stærstu verslanakeðju landsins og er að fara í sölu hjá fleiri keðjum. Sala hófst á Spáni í ár og þróast hægar en í Frakklandi Góður gangur í Evrópu Tafir hafa orðið á því að sala hefjist í Þýskalandi vegna kórónuveirufaraldursins. Þar átti að hefja markaðsstarfið með kynn- ingu í verslunum en það hefur frestast. Nú er verið að kanna við- tökurnar í fjórum verslunum. Ari bendir á að í þessum þrem- ur Evrópulöndum sé um 200 millj- óna manna markaður og bindur hann vonir við góða aukningu á næstu árum. Ísey hóf útflutning á skyri frá Íslandi til sölu í nokkrum versl- anakeðjum í Danmörku á síðasta ári. Magnið er ekki mikið enda selur samstarfsaðili Íseyjar í Dan- mörku skyr í stærstu verslana- keðjurnar þar. Mesta ævintýrið í útflutningi á þessu ári er að sögn Ara í Bene- lux-löndunum og þá sérstaklega Hollandi. Þar tvöfaldaðist skyrsal- an á árinu 2020 og stefnir í að hún fari vel yfir 1.000 tonn í ár. Sala hefur aukist eða minnkað á öðrum hefðbundnum mörkuðum en Ari segir gleðilegt að tekist hafi nokkurn veginn að halda sjó, þrátt fyrir erfiðleika vegna faraldursins. Tafir vegna faraldursins Á móti ágætu gengi á mörk- uðum í Evrópu hafa orðið tafir á því að salan nái að blómstra á nýj- um og fjarlægari mörkuðum. Nefna má Rússland. Þar hefur sal- an ekki aukist jafn mikið og áætl- anir gerðu ráð fyrir. Ari nefnir að salan í Rússlandi sé aðeins um fimmtungur af sölunni í Finnlandi þótt markaðurinn sé margfalt stærri. Ísey gerir þó ráð fyrir að Rússlandsmarkaðurinn taki við sér á næstu árum. Sömu sögu má segja um Jap- ansmarkað. Þar hófst framleiðsla og sala á skyri á síðasta ári og miklar vonir voru bundnar við aukningu á næstu árum. Tekur Ari fram að samstarfsaðilar Íseyjar í Japan hafi staðið vel að verki og þeir hafi áfram trú á verkefninu. Skyrið hafi fengið mjög góðar við- tökur við bragðprófanir í Japan og því segist hann hafa tröllatrú á að salan aukist hratt þegar ástandið vegna kórónuveirufaraldursins lagast. Dráttur hefur orðið á því að BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þrjú stór markaðssvæði bætast á heimskort Ísey skyrsins á þessu ári; Nýja-Sjáland/Ástralía, Þýska- land og Spánn. Ný mjólkurbú sem byggð eru til að framleiða Ísey skyr taka til starfa á Nýja- Sjálandi og í Bretlandi á árinu og stefnt er að opnun verksmiðju í Kína undir lok næsta árs. Salan hefur margfaldast á undanförnum árum, var um 19 þúsund tonn á síðasta ári og áætlanir gera ráð fyrir að hún verði orðin þrefalt meiri á árinu 2025. Ísey útflutningur ehf. hefur starfað sem sjálfstætt fyrirtæki í eigu Auðhumlu sem er samvinnu- félag mjólkurframleiðenda og Kaupfélags Skagfirðinga frá 1. september en áður hafði skyrút- flutningnum verið sinnt af sam- nefndu dótturfélagi Mjólkursam- sölunnar og sölu- og markaðsdeild fyrirtækisins. Ísey útflutningur vinnur að auknum útflutningi á skyri frá Íslandi undir merkjum Íseyjar. Stærri hluti starfseminnar byggist þó á útflutningi á þekk- ingu á framleiðslu á skyri í formi sölu á rétti til að framleiða og selja skyr undir vörumerkinu. Ari Edwald, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að vegna kórónuveirufaraldursins hafi orðið tafir á framgangi verkefna á fjar- lægari mörkuðum. Meiri áhersla hafi verið lögð á nálæga markaði, framleiðsla á skyri hefjist í Kína. Nú er staðan sú að samstarfsaðilar Ísey útflutnings og borgaryfirvöld í Dongguan sem er í Guangdong- héraði, skammt frá Shenzhen, hafa undirritað viljayfirlýsingu um að- stöðu fyrir skyrverksmiðju í iðn- aðarhúsnæði sem þar er verið að reisa. Vonast er til að framleiðsla geti hafist undir lok næsta árs. Ari segir að betra sé að hafa færri orð en fleiri um þá möguleika sem skapast á þessum stóra markaði. Þróunin geti ráðist af svo mörgu, allavega geti tekið tíma að koma sér þar vel fyrir. Víðar áhugi á samstarfi Sjálfstætt fyrirtæki sem Ísey út- flutningur á hlut í, Icelandic Pro- visions, annast framleiðslu og sölu á skyri á Bandaríkjamarkaði. Þar er stöðug aukning í sölu. Ari segir að svo virðist sem fólk hafi farið að hugsa meira um heilsuna í far- aldrinum og margir hafi trú á gerjuðum mjólkurvörum eins og skyri. Framleiðsla á Ísey skyri hefst í nýrri verksmiðju í Nýja-Sjálandi í næsta mánuði og sala á afurðinni í því landi og Ástralíu. Ari getur þess að nú þegar kór- ónuveirufaraldurinn er í rénun hafi nokkrir áhugasamir aðilar lát- ið vita af sér og óskað eftir sam- starfi, meðal annars í Suður- Ameríku. Tekur Ari fram að það taki yfirleitt um fimm ár að koma framleiðslu og sölu á skrið á nýj- um mörkuðum. Góður markaður er fyrir Ísey skyr á Bretlandi og hefur honum að mestu verið sinnt með fram- leiðslu frá Danmörku. Fyrir nokkrum árum var samið um kvóta til útflutnings á skyri til Evrópusambandslanda. Þegar út- ganga Bretlands úr ESB var sam- þykkt og sá markaður var í upp- námi var ákveðið að koma upp verksmiðju í Wales til að framleiða skyr fyrir markaðinn í Bretlandi. Átti að hefja framleiðslu á síðasta ári en kórónuveirufaraldurinn hef- ur tafið ýmis verk við uppbygg- inguna. Nú er stefnt að því að hefja framleiðslu í ágúst. Ari segir óljóst hvernig sá kvóti sem Ísland fær til útflutnings á skyri til Bretlands með nýgerðum fríverslunarsamningi nýtist Ísey útflutningi. Það geti farið eftir því hvernig salan í Bretlandi þróast og hvort möguleikar opnist til sölu á skyri í nýjum umbúðum. Nefnir hann svokallaðar skvísur, sem eru vinsælar hér á markaðnum, í því efni. Ísey sækir á þrjú ný markaðssvæði - Stefnt að aukningu í sölu á íslensku skyri - Ísey sérstaklega vel tekið í Frakklandi og Hollandi - Framleiðsla hefst í nýjum verksmiðjum á Nýja-Sjálandi og Bretlandi í sumar og í Kína á næsta ári Sala á skyri margfaldast Þúsundir tonna, Ísland meðtalið 40 30 20 10 0 Rauntölur Áætlun fyrir 2021-2023 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 7 12 14 15 17 18 18 19 26 34 41 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Svartur/Dark Ash Walnut að innan (einnig til svartur).10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flott- asta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlit- aðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmimottu, sóllúga. VERÐ 13.580.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 Litur: White Frost/Dark Ash Walnut að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmimottu, sóllúga. VERÐ 13.680.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 Ísey útflutningur hefur tekið þátt í þróun á jurtavörum með Mjólk- ursamsölunni og Icelandic Provi- sions, skyrfyrirtækinu í Bandaríkj- unum. Tilraunaframleiðsla er hafin hjá MS á Selfossi og afurðin, „Oatmilk skyr“, er komin til sölu í 430 sælkeraverslunum Whole Fo- ods Market í Bandaríkjunum. Ari segir að þótt þetta sé ekki mjólkurafurð þurfi þekkingu mjólkuriðnaðarins til að búa til góða vöru af þessu tagi. Mark- aðurinn kalli eftir jurtavörum, til hliðar við mjólkurafurðir. Afar vel hafi tekist til með þróun á þessari tilteknu afurð, hún sé bragðbetri en aðrar sambærilegar vörur sem hann hafi bragðað á. „Hafra- mjólkurskyrið“ sé spennandi nýj- ung og geti skapað vaxtartækifæri á mörkuðum Ísey útflutnings. Tek- ur Ari fram að engar ákvarðanir hafi verið teknar um framhaldið en bendir á að allir fulltrúar sam- starfsaðila Íseyjar erlendis sem smakkað hafi jurtaskyrið hafi dásamað það og séu áhugasamir um að fá það til sölu með hinu hefðbundna íslenska skyri. Hins vegar segir Ari að fram- leiðslan sé enn á tilraunastigi og takmarkaðir framleiðslumögu- leikar á Selfossi, enn sem komið er. Áhugi á skyrbarnum „Okkar stóra verkefni er eftir sem áður að halda áfram að auka sölu á hefðbundnu Ísey skyri,“ segir Ari og nefnir að þar muni Ísey skyr- barinn gegna lykilhlutverki. Vöxtur hefur verið hjá Ísey Skyr Bar og nú eru reknir sjö slíkir stað- ir hér á landi, flestir í tengslum við veitingastaði N1, og fleiri í und- irbúningi. Þá eru tveir slíkir staðir reknir í Finnlandi og stefnt er að hraðri fjölgun á næstu árum. Ari segir að verulegur áhugi sé á verk- efninu í fleiri löndum en kór- ónuveirufaraldurinn hafi hægt á framkvæmdinni. VÖRUÞRÓUN Skyr úr haframjólk í verslanir Whole Foods í Bandaríkjunum „Jurtaskyr“ Skyr úr haframjólk sem framleitt er á Selfossi er nú til sölu í verslunum Whole Foods Market. Morgunblaðið/Eggert Á erlendum mörkuðum Ari Edwald stýrir Ísey útflutningi sem sér um út- flutning á skyri og aðra erlenda starfsemi sem áður var undir hatti MS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.