Morgunblaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 39
Lögfræðingur Íslandsdeild Amnesty International auglýsir stöðu lögfræðings í 100% starf. Leitað er eftir metnaðarfullum lögfræðingi sem brennur fyrir mannrétt- indum. Viðkomandi þarf að geta tekist á við fjölbreytt verkefni á sviði mannréttinda. Leitað er eftir sjálfstæðum og drífandi aðila með skýra sýn og faglega þekkingu. Amnesty International er alþjóðleg hreyfing fólks sem berst fyrir því að alþjóðlega viðurkennd mannréttindi séu virt og að allir njóti verndar þeirra. www.amnesty.is Helstu verkefni og ábyrgð • Ritun umsagna um lög og reglur á sviði mannréttinda • Samskipti við stjórnvöld og milliríkjastofnanir • Kynning á stefnum Amnesty fyrir starfsfólki og stjórn • Samskipti við lobbýteymi innan alþjóðahreyfingarinnar • Verkefnastjórnun • Annast lögfræðitengd mál deildarinnar Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf í lögfræði • Reynsla á sviði mannréttinda • Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi • Reynsla af framsögu • Góð tölvukunnátta • Góð færni í íslensku og ensku • Áhugi á mannréttindamálum Fríðindi í starfi • Sveigjanlegt, skapandi og ábyrgðarfullt starf • Starf þar sem hæfileikar starfsmanna fá notið sín • Vinnustaður með 34 tíma vinnuviku • Sveigjanleiki á vinnutíma • Jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð. Umsóknarfrestur er til 25. júní 2021. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en í lok sumars. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Upplýsingar um starfið veitir Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri, í gegnum tölvupóst anna@amnesty.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Staða framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Vestmannaeyja er laus til umsóknar. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri markaðarins, sinnir uppgjörsmálum gagnvart stjórn auk annara starfa sem til falla við rekstur markaðarins. Framkvæmdastjóri þarf að vera með góða tölvukunnáttu, þjónustulund og menntun sem nýtist honum í fjölbreytilegu starfi. Umsóknum skal skila til Fiskmarkaðs Vestmannaeyja hf, Friðarhöfn Vestmannaeyjum -merkt starfsumsókn. Einnig hægt að senda umsókn á póstfangið eh@isfelag.is. Upplýsingar um starfið gefur Eyþór Harðarson, stjórnarformaður FMV. Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk. Verkefnisstjóri á sviði sveitarstjórnarmála Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Reynsla af verkefnastjórnun. • Þekking á málefnum sveitarfélaga æskileg. • Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti. • Kunnátta á ensku og einu Norðurlandatungumáli kostur. • Þekking á áætlunargerð æskileg. • Samskiptafærni, frumkvæði og metnaður. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið auglýsir eftir verkefnisstjóra í tíma- bundið starf á skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála til ársloka 2022. Helstu verkefni eru framkvæmd og eftirfylgni stefnumótandi áætlunar um málefni sveitarfélaga fyrir árin 2019-2023. Eitt af markmiðum áætlunarinnar er að sveitarfélög á Íslandi verði öflugur og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi. Verkefnisstjóri mun einkum vinna að framkvæmd aðgerða er varða starfsaðstæður kjörinna fulltrúa, lágmarkíbúafjölda sveitarfélaga og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Við leitum eftir framsýnum einstaklingi sem hefur áhuga og innsýn í nýsköpun í opinberri stjórnsýslu, hefur yfirsýn yfir málefni sveitarfélaga og er sjálfstæður í störfum til að fylgja eftir aðgerðum stefnumörkunarinnar. Um er að ræða fullt starf. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Einstaklingar óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið. Athygli er vakin á því að í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda er starfið auglýst án staðsetningar. Nánari upplýsingar veitir Guðný E. Ingadóttir, mannauðsstjóri, í síma 545 8200. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 23. júní nk. Umsóknum skal skila rafrænt á Starfatorgi – starfatorg.is. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Ertu leið/ur á að hanga heima? Viltu ganga í lið með okkur? Við erum að leita að hraustum einstaklingi í fjöl- breytt starf sem felur í sér meðal annars: %4!3(0"#)&2 *)#-('-2 /$30.#)4!-"0) +" ,#!)01 Hafðu samband ef þetta vekur áhuga þinn! Sendu ferilskrá á: konni@xprent.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.