Morgunblaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 56
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Allt vesenið í kringum vagninn er
efni í heila bók,“ segir Hjörleifur
Árnason, matreiðslumaður á
Akureyri. Hjörleifur gengur dags-
daglega undir nafninu Lalli kokk-
ur og rak um árabil veitingastað-
inn Akureyri Fish & Chips við
Skipagötu. Hann hætti rekstrinum
síðasta sumar og hefur síðan verið
að svipast um eftir nýjum tæki-
færum.
Flutti matarvagninn
inn frá Hollandi
Lalli ákvað að kaupa matarvagn
til að koma fyrir í miðbæ Akur-
eyrar. Leitin að vagni leiddi hann
til Hollands og þar fann Lalli það
sem hann leitaði að. Við tók hins
vegar flókið ferli við að koma
matarvagninum til Íslands. Það
hafðist á dögunum, en ekki án erf-
iðleika. Bras var að koma vagn-
inum um borð í Norrænu og ekki
tók betra við þegar til Seyðis-
fjarðar var komið.
„Ég er búinn að eyðileggja þrjá
bíla bara á því að koma vagninum
til Akureyrar frá Seyðisfirði.
Núna stendur vagninn á planinu
hjá mér og ég er búinn að rífa
hann í spað. Planið er að einangra
hann betur og breyta lúgunni.
Hún er núna sex metra löng, al-
veg eftir vagninum endilöngum,
og það er enginn að fara að af-
greiða úr þannig lúgu í íslensku
veðri,“ segir hann og hlær við.
Mikil bílalúgumenning
á Akureyri
Auk erfiðleika við að koma
vagninum heim og mikillar vinnu
sem er fram undan við endur-
bætur á honum tók það tímann
sinn að fá svokallað stöðuleyfi hjá
Akureyrarbæ til að geta komið
vagninum fyrir á varanlegum stað.
Lalli leggur þó ekki árar í bát.
Hann lærði til kokks á Hótel Sögu
og segir að tíminn þar hafi kennt
sér að vinna undir álagi, setja
undir sig hausinn og klára verk-
efnin. „Ég er af gamla skólanum
og bretti bara upp ermarnar í
svona stöðu. Alveg sama hvað
blæs mikið á móti, það er bara
unnið myrkranna á milli til að
klára,“ segir Lalli sem kveðst ekki
hafa sett sér nein tímamörk á því
hvenær vagninn verði opnaður.
Þegar að því kemur telur hann þó
að heimamenn muni taka þessari
viðbót fagnandi. Ástæðan er ekki
síst sú að hægt verður að keyra
upp að vagninum og fá afgreitt
beint í bílinn.
„Það er gríðarleg bílalúgumenn-
ing á Akureyri og hefur verið
síðan ég man eftir mér. Akureyr-
ingar elska bílalúgur en núna er
bara einn rekstraraðili með lúgur
á þremur stöðum. Þar er sami
matseðillinn. Ég ætla að koma
með aðra lúgu og bjóða upp á
aðra rétti. Þar verður auðvitað
alltaf hægt að fá fisk og fransk-
ar. Það er mikið búið að liggja á
mér síðan ég lokaði í Skipagötu
því fólk vill fá þennan rétt. En
svo verður sitthvað fleira líka í
boði.“
Mikið á sig lagt til að
fjölga bílalúgum í bænum
- Lalli ætlar að selja Akureyringum fisk og franskar á ný
Mættur Lalli kokkur var sáttur þegar vagninn skilaði sér til Akureyrar.
Spenntur Hundtryggur aðstoðarmaður Lalla, Nagli, bíður eftir fyrsta
skammtinum. Nagli þarf að bíða um sinn meðan endurbætur eru gerðar.
Tónleikaröðin Sumarjazz á Jómfrúnni hefur göngu sína í
26. sinn í dag kl. 15 og standa tónleikarnir til kl. 17. Eins
og undanfarin ár er dagskrárgerðin í höndum Sigurðar
Flosasonar saxófónleikara og að vanda er aðgangur
ókeypis. Afro-Cuban kvintett Einars Scheving kemur
fram á opnunartónleikum sumarsins. „Karabísk stemn-
ing mun svífa yfir vötnum en kvintettinn leikur lög Einars
í bland við útsetningar hans af tökulögum úr ýmsum átt-
um,“ segir í tilkynningu. Auk Einars sem leikur á tromm-
ur skipa hljómsveitina þeir Phil Doyle á saxófón, Ari
Bragi Kárason á trompet, Eyþór Gunnarsson á píanó og
slagverk og Róbert Þórhallsson á bassa. »8
Sumarjazz á Jómfrúnni hefst
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 170. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Tékkland og England mætast í hreinum úrslitaleik um
efsta sæti D-riðils Evrópumóts karla í knattspyrnu á
Wembley í London 22. júní en þetta varð ljóst eftir
markalaust jafntefli Englands og Skotlands í London í
gær. Þá mætast Króatar og Skotar í úrslitaleik um lík-
legt sæti í útsláttarkeppninni í Glasgow á sama tíma en
sigurliðið ætti að komast áfram í útsláttarkeppnina
sem eitt liðanna með bestan árangur í þriðja sæti rið-
ilsins. Svíar eru svo nánast öruggir með sæti í útslátt-
arkeppninni eftir sigur gegn Slóvakíu í E-riðli. »48
Englendingar með annan fótinn í
útsláttarkeppninni eftir jafntefli
ÍÞRÓTTIR MENNING