Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 29

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 SÉRBLAÐ Ferðalög Sérblöð um ferðalögkoma vikulega út í júní Hvert blað beinir sjónum sínum að einum landsfjórðung • Hvert skal halda í sumarleyfinu? • Viðtöl við fólk sem elskar að ferðast um Ísland • Leynistaðir úti í náttúrunni • Hvar er best að gista? • Ferðaráð • Bestu sumarfrí Íslendinga Pöntun auglýsinga og nánari upplýsingar augl@mbl.is Í slandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson er meðal þátttakenda á heimsbikarmóti FIDE sem hefst 12. júlí nk. í Sotsjí við Svartahaf. Ekki liggur fyr- ir hver verður andstæðingur Hjörv- ars í fyrstu umferð mótsins sem fram fer eftir útsláttarfyrirkomulagi. Samkvæmt reglum um mótið verður pörun að liggja fyrir 20 dögum fyrir upphaf þess. Alls verða keppendur 206, þar af munu 156 hefja leikinn í 1. umferð en 50 stigahæstu keppend- urnir komast beint í 2. umferð. Sotsjí er þekktur staður í skáksög- unni. Árið 2015 tefldu þeir Magnús Carlsen og Anand sitt annað heims- meistaraeinvígi og á Sovéttímanum fóru þar reglulega fram öflug al- þjóðleg skákmót. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen verður meðal keppenda rétt eins og þegar heimsbikarmótið fór fram á eyjunni Mön fyrir tveim árum. Tveir efstu menn öðlast þátttökurétt í næstu áskorendakeppni en þátttaka Magnúsar þar er vitanlega tryggð. Tapi Magnús heimsmeistaraeinvíg- inu fyrir Nepomniachtchi í Dubai í haust á hann samt öruggt sæti í næsta áskorendamóti. Hann hefur látið þau orð falla að þar sem langt sé um liðið síðan hann tók þátt í skák- móti við venjulegar aðstæður sé mót- ið í Sotsjí sé kjörið til þess að komast aftur í form. Vart þarf að taka fram að nær allir bestu skákmenn heims eru skráðir til leiks að áskorand- anum Nepo undanskildum en hann vill nota tímann til að undirbúa sig fyrir HM-einvígið. Kasparov teflir í Zagreb Guðirnir ættu ekki að snúa aftur stóð skrifað einhvers staðar. Garrí Kasparov sem hætti að tefla hefð- bundnar kappskákir fyrir meira en 16 árum er greinilega á annarri skoð- un og hefur annað veifið tekið þátt í skákkeppnum með styttri umhugs- unartíma. Nú ætlar hann að vera með á Grand chess tour, mótaröð sem hefst í Zagreb í Króatíu dagana 5.-12. júlí nk. Þar verður Wisvanat- han Anand einnig meðal þátttakenda ásamt Jan Nepomniachtchi, Wesley So, Vachier Lagrave og Alexander Grischuk svo nokkrir séu nefndir. Fyrirkomulag mótsins er með þeim hætti að tefld verður tvöföld umferð hraðskáka og einföld umferð atskáka en atskákirnar hafa tvöfalt vægi á við hraðskákirnar. Þó að Kasparov hafi átt í tals- verðum erfiðleikum með kynslóð Magnúsar Carlsen er alltaf fjör í kringum þátttöku hans. Tafl- mennska hans er áhugaverð og verð- ur gaman að fylgjast með honum í Króatíu. Gott dæmi um handbragð hans eftir að ferlinum „lauk“ mátti finna í hraðskák sem hann tefldi við öfl- ugasta skákmanna Frakka fyrir tíu árum: Clichy 2011: -Sjá stöðumynd 1- Kasparov – Vachier Lagrave 48. e6! d2 Ekki dugar 48. … fxe6 vegna 49. g6 o.s.frv. 49. e7! d1(D)+ 50. Rxd1 Hxd1 51. h6 51. g6 vinnur líka en það er engin leið fyrir svartan að sleppa út úr leppuninni. 51. … Hd6 52. Kg2 Hd2+ 53. Kf3 Hd6 54. Ke2 He6+ 55. Kd3 Hd6+ 56. Ke4 b5 57. g6! fxg6 58. exd8(D)+ Hxd8 59. f7+ - og svartur gafst upp. Eftir miklar frestanir vegna Covid-faraldursins hófst í gær í Par- ís eitt mótið á Grand chess tour sem fer fram með sama fyrirkomulagi og það sem stendur fyrir dyrum í Kró- atíu. Meðal þátttakenda eru Car- uana, Nepomniachtchi, Kramnik, Wesley So, Aronjan og Vachier La- grave. Hægt er að fylgjast með mótinu á öllum helstu vefsvæðum skák- arinnar, svo sem Chess24.com. Hjörvar Steinn tefl- ir á heimsbikarmóti FIDE í Sotsjí Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Kjartan Briem Teflir í Sotsjí Hjörvar Steinn Grét- arsson við upphaf Meistaramóts Skákskóla Íslands í maí sl. Kærleiksríki, stór- kostlegi Guð, þú skap- andi og elskandi andi. Þú sem ert upphafið og endirinn, frelsarinn, lífið sjálft og eilífðin. Höfundur og fullkomn- ari lífsins. Miskunna þú okkur og veit okkur örlátlega af lífi þínu, kærleika og friði. Við erum líf af lífi. Það varst þú sem gerðir okkur svona og komst okkur hérna fyrir. Óendanlega elsk- uð af þér. Ætlað að vera farvegir kærleika þíns, miskunnar og náðar, fyrirgefningar og fagnaðarerindis. Að vera samferðafólki til blessunar og þér til dýrðar og þannig sjálfum okkur til heilla og hamingju, gleði og blessunar. Vilt þú gefa okkur innblástur af anda þínum. Viltu fylla okkur af þín- um heilaga, góða og heilnæma anda. Það er svo mikilvægt fyrir okkur mannfólkið að við myndum skjól hvert fyrir annað og einnig öll þau sem fara um hrjóstrugan svörðinn. Gef okkur að vera lampar þínir. Ljós af þínu ljósi sem lýsir upp tilveruna, varðar veginn og vekur von. Að vera vegvísir þeirra sem villst hafa af leið. Hafa ratað í ógöngur, komast ekki fyrir eigin styrk upp á veginn og finna ekki leiðina heim. Leiðina sem liggur til hamingjunnar. Takk, Guð, fyrir að velja okkur í lið lífsins og fá að vera með í lífs- ins leik. Þótt við skynj- um okkur oft svo van- máttug, umkomulaus, lin og smá, úthaldslítil og getulaus, þá erum við bara eins og við er- um. Elskuð af þér ómótstæðilegri, óend- anlegri eilífri ást. Óhætt Hvar sem ég er og hvert sem ég fer, þar ert þú, ó Guð. Því þar sem ég er, þar ert þú. Og hvar sem þú ert, þar er mér óhætt. Ég er hér og þú ert þar. Samt alls staðar, alltaf. Líka hér og nú hjá mér. Mér finnst svo gott að mega vita af þér og fá að hvíla í þér öllum stundum, í öllum veðrum. Eitt stundlegt augnablik í einu, alla leið. Megum við nú biðja þess að hinn ljúfi andvari ástar Guðs mætti um okkur leika líkt og blíður blær sem vermir vanga. Viltu hughreysta okk- ur. Viltu minna okkur á þig og von- ina sem þér fylgir. Viltu færa okkur yl þíns heilaga góða anda í brjóst og hjarta svo það mætti birta varanlega yfir okkur. Svo við fáum að upplifa allar lífsins sælustu stundir í þinni nærandi nærveru svo við endurnýj- umst dag frá degi og verðum stöðugt ný í þér. Þess biðjum við þig um leið og við lofum þig og þökkum þér. Í frelsarans Jesú nafni. Með eilífri kærleiks- og friðar- kveðju. - Lifi lífið! Andi sköpunarinnar Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Viltu veita okkur innblástur af anda þínum. Fylltu okkur af þínum heilaga, góða og heilnæma anda. Gef okkur að vera lampar þínir. Ljós af þínu ljósi. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Tryggvi Magnússon fæddist 19. júní 1896 á Akranesi og var sonur hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur og Magnúsar Ólafs- sonar ljósmyndara. Hann flutti ungur í höfuðstaðinn og starf- aði hjá versluninni Edinborg alla tíð, síðustu árin sem versl- unarstjóri. Hann kvæntist El- ínu Einarsdóttur og áttu þau tvær dætur. Tryggvi var með eindæmum fjölhæfur íþróttamaður. Þegar Knattspyrnufélagið Fram var stofnað árið 1908 var Tryggvi einn af stofnendum og sá allra yngsti. Hann vann auk þess til verðlauna m.a. í frjálsum íþróttum og í sundi og varð Ís- landsmeistari í fimleikum á fer- tugsaldri. Þá var hann góður á skautum og skíðum. Tryggvi var einnig frum- kvöðull í ferðamennsku um lítt þekkta staði landsins. Hann stofnaði „Nafnlausa félagið, forvera Ferðafélagsins, sem stóð fyrir ferðum um landið. Á veturna var farið á gönguskíð- um til fjalla og einnig farið í jöklaferðir, sem voru óþekktar á þessum tíma. Þá eru ótalin störf hans í leikhúsi og revíum Reykvík- inga, en hann þótti góður gam- anleikari og lék m.a. Grasa- Guddu í vinsælli uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Skugga-Sveini árið 1935. Tryggvi lést 1. nóvember 1943 langt fyrir aldur fram. Merkir Íslendingar Tryggvi Magnússon Allt um sjávarútveg Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.