Morgunblaðið - 19.06.2021, Page 38

Morgunblaðið - 19.06.2021, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 ✝ Eygló Óskars- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 1. desember 1937. Hún lést á Hraun- búðum í faðmi fjöl- skyldunnar 5. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Óskar Ólafsson frá Torfa- stöðum í Fljótshlíð, f. 15.8. 1915, d. 23.1. 1986, og Kristín Jóns- dóttir frá Hafnarnesi í Fá- skrúðsfirði, f. 9.11. 1911, d. 1.11. 1992. Systkini Eyglóar eru: Adolf, f. 30.11. 1928, d. 15.12. 2008, Jóna Guðlaug, f. 16.2. 1930, d. 15.8. 2006, Aðal- heiður, f. 8.11. 1934, Kristín Ósk, f. 14.10. 1940, Ólafur, f. 27.5. 1944, d. 9.8. 1986, Albína Elísa, f. 26.6. 1945, d. 29.7. 2008, Hrefna, f. 30.4. 1951, Örn, f. 18.2. 1953, og Guðrún, f. 12.11. 1957. Hrund Kristjánsdóttur, börn þeirra eru Kamilla Dröfn, Kristel Kara og Rökkvi, c) Ein- ar Gauti, sambýliskona hans er Erla Steina Sverrisdóttir, dóttir þeirra er Lilja Glóð, d) Svava Tara, sambýlismaður hennar er Dagur Arnarson. 3) Stein- grímur, f. 1961, sambýliskona hans er Katrín Stefánsdóttir. Eygló lauk skólagöngu sinni frá Barnaskóla Vestmannaeyja. Eygló iðkaði íþróttir með Knattspyrnufélaginu Tý og var alla tíð ötull stuðningsmaður íþróttahreyfingarinnar í Vest- mannaeyjum. Hún starfaði við netagerð, fiskvinnslu, sem mat- ráður og við ræstingar. Eygló hafði alla tíð mikið dálæti á garðrækt og mátti finna sum- arblóm frá Eygló víða í görðum í Vestmannaeyjum. Eygló og Svavar bjuggu alla tíð á Sól- eyjargötu 10 þar sem hún lagði mikinn metnað í að búa þeim og afkomendum sínum gott heimili. Útförin fer fram frá Landa- kirkju í dag, 19. júní 2021, klukkan 14. Eftirlifandi eiginmaður Eygló- ar er Svavar Stein- grímsson, f. 24.5. 1936. Börn þeirra eru 1) Óskar, f. 1956, kvæntur Önnu Sigríði Er- lingsdóttur. Börn þeirra eru a) Tinna Ósk, eiginmaður hennar er Vilhelm Sveinn Sigurðsson, börn þeirra eru Gabríel Ísarr, Mikael Ísarr, Rafael Ísarr og Aríel Ísarr, b) Þórunn Día, sambýlismaður hennar er Björn Kristmannsson, þau eiga Óskar Júlían, c) Eygló Myrra, sambýlismaður hennar er Emil Liljeroth. 2) Halla, f. 1957, eiginmaður hennar er Ólafur Ágúst Einarsson. Börn þeirra eru a) Sindri, kvæntur Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, börn þeirra eru Aron og Sara Rós, b) Daði, kvæntur Thelmu Ég á eftir að sakna þín elsku amma Eygló. Að skrifa þessi orð fær augu mín til að fyllast tárum. Ég trúi því að þú sért komin á stað þar sem þú getur fylgst með afa hlaupa upp og niður Heimaklett, spjallað við fólkið þitt og dundað við blómin þín. Ég á svo yndislegar minn- ingar um þig sem ég mun varð- veita. Eins og að vökva blómin með þér inni í sólstofu í róleg- heitum, sitja með þér yfir kvöldkaffinu með einn súkku- laðisnúð í hendi meðan þú kenndir mér kapal, og fara í hárgreiðsluleik þar sem þú dottaðir þótt við systur notuð- um hálfan brúsa af hárspreyi og flæktum allar rúllunar í fína hárinu þínu. Í löngum erfiðum sjóferðum með Herjólfi huggaði ég mig alltaf við það að ég væri nokkr- um klukkustundum frá flatkök- unum þínum og ömmuknúsi, sem lét sjóveikina líða hjá. Þótt þú hefðir aldrei spilað golf passaðir þú upp á að láta mig vita hversu grænn og fal- legur völlurinn væri orðinn og að nú væri tími til að koma heim þegar ég hringdi til ykkar frá Bandaríkjunum og Svíþjóð. Þegar ég kom svo að keppa á landsins fallegasta velli þótti mér afar vænt um að sjá bílinn ykkar afa keyra niður í dal og veifa mér þegar ég spilaði 6., 7. og 8. holu. Þú barðist í gegnum síðustu árin elsku amma mín og náðir með því að hitta fjögur dásam- leg barnabörn til viðbótar. Ég fæ sting í hjartað að hugsa til þess að fá ekki að knúsa þig og kyssa þegar ég kem næst til Vestmannaeyja. Hvíldu í friði elsku amma, ég er meyr að vera skírð í höfuðið á þér. Ég elska þig. Eygló Myrra Óskarsdóttir. Amma var heimakær og það ekki að ástæðulausu, hún og afi héldu hlýtt og gott heimili á Sóleyjargötunni. Það voru ekki breiðir gangar eða nýtískuhús- búnaður sem gerðu heimili þeirra að yndislegum stað. Heldur móttökurnar sem hver einasti gestur hlaut við það að líta í bæinn. Það var líka alltaf hægt að ganga að dekkuðu borði vísu hjá Eygló alveg sama hvenær sólarhringsins gesti bar að garði. Það var vel hægt að merkja hversu dugleg- ur maður var að heimsækja ömmu á því hversu vel galla- buxur pössuðu hverju sinni. Auðvitað elska allir pönnukök- urnar hennar ömmu sinnar en Eygló var matráður í hæsta klassa. Það var ýmislegt sem maður smakkaði í fyrsta skipti í borðkróknum á Sóleyjargöt- unni. Hún fór snemma að föndra við austurlenska og aðra framandi matargerð, smurði glæsilegar snittur og lagaði ný- móðins brauðrétti á meðan flestir aðrir voru fastir í nið- ursoðnum aspas. Það var henni líka mikið kappsmál að öllum væri vel veitt af kræsingunum, svo mikið að hún hafði sjaldn- ast tíma til að borða sjálf. Þá fékk hann oft að fljúga frasinn sem síðan hefur markað fastan sess í fjölskyldunni: „Í guðanna bænum borðið þið.“ Amma var miklu meira en bara húsmóðir þótt hún hafi ung kynnst fimum villingi í Spröngunni og þau fellt saman hugi. Það var nefnilega ekki bara afi sem var lunkinn með bandspotta því amma lagði stund á netagerð og starfaði við og þótti það nokkuð framsækið. Ég man vel eftir því þegar amma var með fullt sólhús af netabútum og nálina á lofti á vorin þegar verið var að und- irbúa lundaveiðitímabilið. Netin hennar ömmu voru eftirsótt í lundaháfa bjargveiðimanna og þóttu fengsæl og endingargóð. Amma og afi hafa alla tíð sprangað saman taktföst í gegnum lífið og í huga ömmu ekki til það vandamál sem afi gat ekki leyst. Ef eitthvert við- fangsefnið sigldi í strand sagði hún einfaldlega „hann Svabbi reddar þessu“ sem oftar en ekki varð raunin. Amma var ekki mikið fyrir að trana sér fram eða skipta sér of mikið af, hún var sterk- ust á heimavelli. Hún gat alltaf séð það góða í fólki sem öðrum þótti lítið til koma og henni var alla tíð mikið í mun að öllum í kringum sig liði vel. Takk fyrir samfylgdina elsku amma og hafðu engar áhyggjur, hann Svabbi reddar þessu. Sindri Ólafsson. Elsku amma. Ég er svo þakklátur fyrir allar stundirnar með þér í gegnum tíðina. Missti varla úr hádegismat hjá þér í gaggó ef mat skyldi kalla því alla jafna voru kökur á boð- stólum. Í matarboðum hjá þér sá ég þig aldrei borða, þú varst of upptekin að stjana við gest- ina. Það tók mjög á að sjá þig fara á elló en það gladdi mig hversu ánægð þú varst alltaf þegar við heimsóttum þig, ljómaðir og brostir út að eyr- um. Ég er svo þakklátur að þú fékkst að hitta Lilju Glóð, ég mun sýna henni myndir af ykk- ur saman og halda uppi minn- ingu þinni. Ég reyni að hafa hemil á afa þar til þið hittist næst. Þinn ömmustrákur, Einar Gauti Ólafsson. Eygló Óskarsdóttir HINSTA KVEÐJA Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hafðu þökk fyrir allt. Þín Halla. FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 11-16 virka daga Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og hlýju vegna andláts og útfarar KRISTINS HERBERGS KRISTJÁNSSONAR, Fálkahöfða 8, Mosfellsbæ. Esther Bergþóra Gunnarsdóttir Una Hrönn Kristinsdóttir Herdís Kristinsdóttir Gunnar Þór Ármannsson Sigrún Herbergsdóttir Hólmar Örn Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN FJELDSTED öryggisstjóri, Lundi 21, Kópavogi, lést á LSH 3. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. júní klukkan 11. Jarðarförin er opin að 300 manns. Streymt verður frá athöfninni: https://hljodx.is/index.php/streymi. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug til okkar. Ingibjörg Kristjánsdóttir Ásta Björk Sveinsdóttir Jón Júlíus Elíasson Kristján Þór Sveinsson Hulda I. Magnúsdóttir Guðmundur Sveinsson Hulda Sævarsdóttir afabörn og langafabörn Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og ómetanlegan stuðning vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, besta vinar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU HÓLMFRÍÐAR ÓSKARSDÓTTUR, Sunnubraut 7, Þorlákshöfn. Sérstakar þakkir færum við fjölskyldan starfsfólkinu á A6, lungnadeild Landspítalans í Fossvogi, fyrir góða umönnun, ljúft viðmót og hlýju. Kári Böðvarsson Óskar Ingi Böðvarsson Kristrún Hafliðadóttir Tómas Þór Kárason Rúrí Eggertsdóttir Anna Margrét Káradóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURLAUG ÁSGERÐUR SVEINSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 23. júní klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimili aldraðra Dalbæ, Dalvík. Guðbjörg Antonsdóttir Elín Sigrún Antonsdóttir Anna Dóra Antonsdóttir Sveinn Sveinsson Arna Auður Antonsdóttir Þórólfur Már Antonsson Hrönn Vilhelmsdóttir Árdís Freyja Antonsdóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNHILD STEFÁNSDÓTTIR, Grænumörk 2, Selfossi, sem lést mánudaginn 7. júní á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi, Hellu, verður jarðsungin frá Selfosskirkju mánudaginn 21. júní klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni, sjá selfosskirkja.is. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Lundar fyrir frábæra umönnun, kærleika og vináttu. Margrét Einarsdóttir Trausti Traustason Maríanna G. Einarsdóttir Jón H. Snædal Sigurðsson Guðjón Einarsson Emma K. Guðnadóttir Stefanía Einarsdóttir Ólafur H. Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Við þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR SAMÚELSSONAR. Edda Ögmundsdóttir Kristján Sigurðsson Sigurður Sigurðsson Guðrún Lilja Jónsdóttir barnabörn og langafabarn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆVAR SÆMUNDSSON, Lundi 5, Kópavogi, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 3. júní. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 28. júní klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Elín Björg Jóhannsdóttir Sæmundur Sævarsson Marta Gunnarsdóttir Guðrún Ösp Sævarsdóttir Sigurður Eyþór Valgarðsson María Sif Sævarsdóttir Grímur Fannar Eiríksson afa- og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.