Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021
30 ÁRA Rakel Rós fæddist á Sel-
fossi og ólst upp á Laugum í Reykja-
dal. Hún fór í Menntaskólann á Ak-
ureyri og þegar hún fór að vinna á
heimili fyrir fatlað fólk fékk hún
áhuga á þroskaþjálfun og skráði sig í
nám í Háskóla Íslands. „Eftir að ég
lauk námi 2015 starfaði ég á leik-
skóla sem þroskaþjálfi en fór svo í
meistaranám í atferlisfræði í Wales
og lauk þar námi 2019.“ Núna starf-
ar Rakel á Greiningar- og ráðgjaf-
arstöð ríkisins.
Rakel er búin að vera grænkeri
frá árinu 2015 og alveg vegan síð-
ustu tvö árin. „Í fyrstu áttaði ég mig
allt í einu á því að ég var að borða
kjöt í öll mál og ég ákvað að sleppa
kjöti í mánuð. Í kjölfarið fór ég að
hugsa aðeins meira um siðferðislegu
hliðina á veg-
anisma og einn-
ig hið mikla kol-
efnisspor sem
fylgir ræktun
dýra til mann-
eldis.“
Hún segir að
mörg sveitar-
félög séu byrjuð
að bjóða upp á grænkeramöguleika
fyrir börn sem skiptir sköpum fyrir
þær fjölskyldur sem borða ekki dýr
og vonandi sjá flest sér fært að gera
það í framtíðinni.
Maki Rakelar er Óli Freyr Ax-
elsson, þroskaþjálfi og for-
stöðumaður í búsetukjarna hjá
Reykjavíkurborg, og eiga þau son-
inn Snæbjörn Atlas.
Rakel Rós A. Snæbjörnsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Safnaðu saman öllum bestu hug-
myndunum þínum og æfðu sölukynningu á
þeim. Afrek þín munu tala fyrir sig sjálf –
að lokum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það þýðir ekkert að stinga höfðinu í
sandinn; vandamálin hverfa ekkert við það.
Vandinn er hins vegar að þú ert ekki í
nokkru vinnustuði og vilt helst sitja og láta
dæluna ganga.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Ánægjulegur endir kemur yfir-
leitt í framhaldi af góðri byrjun. Gættu
þess bara að málflutningur þinn sé jafnan
skýr og skorinorður svo enginn misskilji
þig.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Dulinn og óformlegur samskipta-
máti sem gengur yfirleitt gagnvart ástvin-
um og vinum klikkar allt í einu. Sinntu taf-
arlaust máli sem leitar sterkt á þig nú um
stundir.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú mátt aldrei missa sjónar á tak-
markinu jafnvel ekki þótt einhver daga-
munur sé á velgengni þinni.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er ekki eftir neinu að bíða með
að kynna áhrifafólki hugmyndina þína og
lyfta starfsframanum á æðra plan.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft að gefa þér tíma til þess að
íhuga þau mál sem hvíla þungt á þér.
Krafturinn liggur í loftinu og hann er fullur
hugrekkis og ævintýraþrár.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú færð einstakt tækifæri til
að kynnast sjálri/sjálfum þér. Farðu samt
varlega og reyndu að særa engan í leiðinni.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú hefur haldið þér til hlés í
ákveðnu máli en nú kemstu ekki lengur hjá
því að taka afstöðu og láta hana í ljós við
viðkomandi.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Dagurinn í dag er ákjósanlegur
fyrir miklar endurbætur á heimilinu. Láttu
það ekkert á þig fá þótt aðrir kvarti.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú þarft að taka meira tillit til
annarra og þarft að varast að ganga yfir
fólk, þótt boðskapur þinn sé góður.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú brýst út úr sama gamla farinu
og finnur ný tækifæri og nýjar lausnir í
dag. Næstu dagar verða þér til mikillar
gæfu.
horninu hans og eina skúffu. Þá var
engin sálfræðiþjónusta til utan
Reykjavíkur, svo byrjuðum bara ein-
hvern veginn og gerðum okkar besta
við þröngan kost. Eftir fyrsta árið
hjá fræðslustjóra fór ég að kenna í
MA og var líka námsráðgjafi. Það
hentaði betur á þeim tíma því við
eignuðumst þá yngri soninn og svo
ég var við MA fyrstu þrjú æviárin
Ungu hjónin kunnu vel við sig í Svía-
ríki, Brynjar nam verkfræði og Sig-
rún fór í sálfræði þegar Hrólfur
komst í leikskóla eins árs.
„Við förum heim í byrjun árs 1976
með tvö börn en dóttirin fæddist í
Gautaborg, búum og störfum fyrst í
Reykjavík en flytjum til Akureyrar
1977. Ég fékk vinnu hjá fræðslu-
stjóra, fékk aðstöðu í skrifborðs-
S
igrún Sveinbjörnsdóttir
fæddist 19. júní 1946 í
Reykjavík. „Ég ólst upp í
Langholtinu, fyrst í
Skipasundi og síðan á
Kleppsveginum til tvítugs. Þetta
voru ný hverfi og mikið frjálsræði og
Langholtsbúið var ennþá starfandi
með kúm. Ég byrjaði í Langholts-
skólanum ári eftir að hann tók til
starfa.“ Sigrún ólst upp á stóru
heimili. „Við vorum þéttur systkina-
hópur og margt um manninn því
einnig var algengt að ættingjar utan
af landi gistu. Við lærðum það mjög
snemma að það var ekkert endilega í
boði að hafa pláss út af fyrir sig, en
það var aldrei íþyngjandi heldur
þvert á móti. Auðvitað var stundum
tekist á og slegist, en maður var
aldrei einmana.“
Sigrún hafði alltaf gaman af því að
vera í skóla. Faðir hennar var kenn-
ari og mjög natinn uppalandi og hún
sá kennarastarfið í hillingum allt frá
æsku. Það lá því beint við að fara í
KÍ og útskrifaðist Sigrún þaðan með
kennarapróf árið 1966. „Þá var ég
tvítug og ég fór norður til Akureyrar
og kenndi þar einn vetur. Það var
ógleymanlegt af mörgum ástæðum.
Ég féll alveg fyrir bænum og svo var
ég að stíga fyrstu fullorðinsskrefin
ein, leigði íbúð með vinkonu minni og
svo var magnað að vinna með börn-
unum, ákvað þar að ég vildi læra
meira um börn.“ Tveimur árum áður
hafði Sigrún séð ungan mann, Brynj-
ar, frá Akureyri í anddyri Þjóðleik-
hússins, sem var staddur í höf-
uðstaðnum í einhverjum skáta-
erindum. Fyrir norðan hitti hún
Brynjar aftur, þau giftust í byrjun
árs 1968 og eignuðust eldri son sinn
18. júní það ár, einmitt þegar Sigrún
lauk stúdentsprófi frá KÍ. Þá um
haustið fluttu þau til Gautaborgar í
Svíþjóð til náms. „Þar var mikil hús-
næðisekla og fyrstu önnina bjuggum
við í hústökuhúsi meðan við biðum
eftir stúdentaíbúð, en allt gekk þetta
vel. Í desember fluttum við síðan í
fjölskylduíbúð í nýjum stúdenta-
garði ásamt fleiri fjölskyldum, sem
var stórkostlegt. Mikil vinátta
myndaðist á milli okkar í húsinu,
sem stendur enn þann dag í dag.“
hans.“ Sigrún fór þá að vinna við
Svæðisþjónustu fatlaðra, sem þá var
nýstofnuð, og fór ásamt öðrum að
byggja upp þjónustu fyrir fötluð
börn og foreldra þeirra og var lengi í
ráðgjöf og greiningum lítilla barna.
„Á þessum tíma var samfélagið að
taka gífurlegum breytingum og
þjónustan að byggjast upp. Börn
með fötlun voru aðeins að byrja að fá
leikskólapláss, en leikskólar voru
samt ekkert á hverju strái.“ 1989 var
Sigrún fengin til að stýra Vistheim-
ilinu Sólborg þegar búið var að
ákveða að leggja stofnunina niður og
þurfti að halda utan um flutning íbú-
anna út í samfélagið.
Árið 1994 ákváðu Sigrún og
Brynjar að sleppa tökunum á hefð-
bundnu lífi og fóru ásamt yngri syni
til Melbourne í Ástralíu þar sem Sig-
rún fór í doktorsnám. „Við vorum
saman þarna í eitt ár sem var algjört
ævintýri. Við höfum alltaf verið
ferðaglöð hjónin en þetta árið tókum
við tjaldið allar helgar í ferðalög og
fórum víða.“ Sigrún vann að náminu
með hléum, flakkaði á milli og lauk
doktorsprófi í sálfræði frá Latrobe-
háskólanum í Melbourne 2001. Eftir
námið sótti hún um starf í Háskól-
anum á Akureyri, fyrst sem lektor,
þá dósent og loks prófessor.
„Það merkilega var að HA flutti á
Sólborg svo þar vann ég síðustu 15
starfsárin mín. Þá var búið að end-
urbyggja og bæta við Sólborg, en í
20 ár vann ég þar og gekk í fótspor
þeirra sem þar höfðu gengið á und-
an.“
Sigrún missi lífsförunaut sinn árið
2015. „Eftir á að hyggja er ég glöð
yfir að við skyldum lifa lífinu jafn-
óðum og tjalda jafn oft og við gerð-
um. Við geymdum það ekkert að
njóta lífsins og sinna áhugamál-
unum, fyrir það er ég þakklát núna,
þegar ég er orðin ein.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigrúnar er Brynjar
Ingi Skaptason, skipaverkfræðingur
og kennari á Akureyri, f. 8.6. 1945, d.
21.6. 2015.
Foreldrar Brynjars voru hjónin
Guðfinna Hallgrímsdóttir húsmóðir,
f. 8.7. 1910, d. 16.7. 1979 og Skapti
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, sálfræðingur og prófessor emerita – 75 ára
Sveitasælan Sigrún og Brynjar í bústaðnum sem þau byggðu 2009 í
Fnjóskadalnum, en þau nutu þess að vera í sveitinni. Myndin er tekin 2012 af
svölunum á efri hæðinni, þegar allt lék í lyndi. Stuttu síðar veiktist Brynjar.
Lifðum lífinu jafnóðum
Lesklúbburinn Sigrún hefur verið í lesklúbbi fjörugra kvenna í yfir 30 ár
og hér eru þær flestar í klúbbnum í forstofunni eftir skemmtilegt kvöld.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Úlfur Elí Lima fæddist á
Landspítalanum 13. júní 2020 kl.
00:34. Hann var 51,5 cm og vó 3.805
g. Foreldrar hans eru Nína Katrín Jó-
hannsdóttir og Viktor Orri Lima.
Nýr borgari
Helga
rútgá
fanEinar bárð
a - an
na ma
gga -
yngvi
eyste
ins
Alla l
augar
daga
frá k
l 9-12